Morgunblaðið - 29.04.1997, Page 22

Morgunblaðið - 29.04.1997, Page 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 29. APRÍL 1997 MORGUNBLAÐIÐ _____________________ERLENT Er baktería undirrót hjartasjúkdóma? Margt bendir til að baktería, sem veldur annars sýkingu í öndunarfærum, geti verið völd að æðaþrengslum BAKTERÍAN Chlamydia pneum- oniae er ekki jafn kunn og nafna hennar trachomatis, sem veldur kynsjúkdómi, en hún er miklu út- breiddari og hugsanlega miklu hættulegri. Allir komast í kynni við þessa bakteríu fyrr eða síðar og margir oft en hún berst á milli manna með hósta og hnerra. Veld- ur hún sýkingu í öndunarfærum, sem stundum getur orðið að lungnabólgu. Frá þessu segir í síðasta hefti af bandaríska tímaritinu Newswe- ek og þar segir, að æ fleiri sérfræð- ingar séu að komast á þá skoðun, að bakterían sé miklu hættulegri en talið hefur verið. Það er að vísu ekki fullsannað enn en margt bend- ir til, að Chlamydia pneumoniae geti komist inn í æðaveggi og ver- ið þar árum saman. Þar valdi hún bólgum, sem aftur leiði til hjartaá- falla og heilablóðfalls. Með þessu er ekki verið að halda því fram, að bakterían ein valdi æðakölkun eða að rétt mataræði og hreyfíng skipti ekki máli, held- ur, að líkur séu á, að ástæðan fyr- ir helsta banameini á Vesturlönd- um sé smitandi og hægt sé að ráða við hana með sýklalyfjum. Cp-mótefni í blóði Það voru tveir finnskir læknar, Pekka Saikku og Maija Leinonen, sem vöktu fyrst athygli á Cp 1988 en þá sýndu þeir fram á, að fólk með einhverja hjartasjúkdóma væri miklu líklegra en heilbrigt fólk til að vera með mótefni gegn Cp í blóðinu. Önnur rannsókn sýndi óvanalega mikið af þessum mót- efnum í fólki, sem orðið hafði fyr- ir hjartaáfalli. Flestir sérfræðingar litu bara á þessa niðurstöðu sem tölfræðileg skringilegheit en Thomas Grays- ton, faraldursfræðingur við Was- hington-háskóla, vildi skoða þetta betur. Komst hann að sömu niður- stöðu í Seattle og Saikku í Hels- inki og síðan hafa átta rannsókna- hópar í fimm löndum staðfest hana. Þetta sannaði þó ekki eitt né neitt og því var sérstaklega farið að leita að Cp í stífluðum æðum. Það bar árangur 1993 þegar suður- afrískur vísindamaður fann bakt- eríur í vef, sem skorinn hafði verið úr sjúkum æðum. Var þar aðallega um að ræða Cp. Þetta var staðfest í öðrum rannsóknum og 1995 fann James Summersgill við háskólann í Louisville bakteríuna lifandi í æðum manns, sem átti að fá nýtt hjarta. Graystone segir, að nú sé ekki lengur efast um, að bakteríur eða aðrar örverur eigi sinn þátt í æða- sjúkdómum. Sama sé á hvaða aldri fólk er, þjóðerni eða kyni, ef það er með æðaþrengsli, þá ber það merki um sýningu af völdum Chlamydia pneumoniae. Hún finnst líka aðeins I sjúkum æðavef en ekki í alveg heilbrigðum eins og er með ýmsar aðrar örverur. Smitandi átfrumur Eftir sem áður er sekt Cp ekki fyllilega sönnuð en vísbendingarn- ar hrannast upp. Vísindamenn hafa lengi vitað, að æðaþrengsli eru bólgusjúkdómur, sem leggst á æðar í öllum líkamanum, en æðar, sem þjóna hjarta og heila, eru sér- staklega viðkvæmar. Ferlið hefst með því, að ónæmiskerfið hefst handa við að fjarlægja fitu, kó- lesteról og annað óæskilegt efni úr æðaveggjunum. Um það sjá svokallaðar átfrumur en þær geta valdið ertingu á þessum stöðum og bólguþrymlum, sem aftur geta stíflað æðarnar. Margir telja, að Cp geti komið þessu af stað. Kenningin er sú, að átfrumur, sem hafa hreinsað Cp úr öndunar- færum, geti stundum orðið smit- berar. Þegar þær fari um æðarnar geti þær smitað frumur í æða- veggjum. Smituðu frumurnar kalli síðan á enn fleiri átfrumur, sem sýki þá enn fleiri frumur, og út- koman verði enn meiri bólgumynd- un. Hefur verið sýnt fram á það í rannsóknastofum, að Cp getur lif- að inni í átfrumu og í frumum í æðaveggjum, og líka, að sjúkar frumur eru eins og segull á átfrum- urnar. Hjartveikar kanínur Tilraunir á dýrum hníga einnig að þessu sama. A Michael’s-sjúkra- húsinu í Toronto var hópur kanína sýktur með Cp í gegnum nasir og eftir hálfan mánuð höfðu myndast sár í meginslagæð tveggja þeirra. Finnsku Iæknarnir, Saikku og Leinonen, sýktu fimm kanínur með sama hætti en kanínur fá annars ekki æðaþrengsli þótt þær fái fitu- ríkt fæði. Eftir sjö vikur voru þijár þeirra komnar með æðaþrengsli. Ef í ljós kemur, að sýklalyf geta unnið á bólguþrymlunum, þá er ekki lengur vafi á um hvað olli þeim. Þótt á daginn komi, að Cp eigi þátt í hjartaáföllum, þá er mörgum spurningum enn ósvarað. Til dæm- is hvers vegna sumum sé hættara en öðrum; hvort fita og kólesteról séu ástæða út af fyrir sig eða að- eins ásamt bakteríunni og hvernig þetta vinni allt saman. Hugsanlega sest Cp að í sárum, sem fita og kólesteról hafa myndað, og gerir þau verri, og kannski veldur bakt- erían sárum, sem safna í sig óæski- legum efnum. Hjartaáföllum fækkar Dauðsföllum af völdum hjartaá- falla hefur fækkað um helming frá því á miðjum sjöunda áratugnum og ástæðan er meðal annars heilsu- Valda bakteríur hjartasjúkdómum? Clamydia pneumoniae-bakterían er algeng og veidur sýkingu í öndunar- lærum. Kenningin er sú, ai átfrumur, sem hafa hreinsað bakteríuna úr öndunar- tærum, geti stundum orðið smitberar. Þegar þær fari um æðarnar geti þær smitað trumur í æðaveggjum. Smituðu trumurnar kalli síðan á ennfleiri átfrumur, sem sýki þá fleiri frumur. Útkoman verði enn meiri bólgumyndun, sem aftur leiði til hjartaáfalla og heilablóðfalls. samlegra líferni og betri læknis- þjónusta. Fækkunin fer líka vel saman við aukna notkun lyfja eins og „tetracycline“ og „erythromyc- in“ og til stendur að gera sérstak- ar tilraunir með þessi lyf og önn- ur. Raunar hefur þegar verið gerð tilraun á St. George’s-sjúkrahúsinu í London með lyfið „azithromycin“ og kom í ljós við samanburð á tveimur hópum hjartasjúklinga, að það dró úr bólgum. Fylgst með hér á landi Guðmundur Þorgeirsson hjarta- læknir sagði í samtali við Morgun- blaðið, að með þessum rannsókn- um væri vel fylgst hér á landi enda væru þær orðnar að mikilvægri grein í æðakölkunarrannsóknum. Sagði hann, að komið hefði til umræðu hér að kanna mótefni í hjartaverndargögnum, frystum sýnum, en um það hefði þó ekkert verið ákveðið enn. Guðmundur sagði, að það væri ekki aðeins, að Chlamydia pneum- onia gæti komið við sögu, heldur einnig ákveðnar veirur en æða- kölkun væri ákaflega flókinn sjúk- dómur og aðdragandinn langur. Því gæti verið erfitt að skera úr um hvað væri orsök og hvað fylgi- fiskur. Það væri því ekki ráðlegt að kasta fyrir róða þeirri áherslu, sem nú væri á heilbrigða lífshætti, enda líklegt, að óhollar lífsvenjur byggju sjúkdómnum betri skilyrði en ella hver sem frumorsökin væri. Danskir stuðningsmenn Tupac Amaru Gáfust upp í skrifstofu ræðismanns Kaupmannahöfn, Lima. Reuter. DANSKA lögreglan skýrði frá því í gær, að sex ungir danskir mótmæl- endur og þrír starfsmenn kapalsjón- varpsstöðvar, sem lögðu undir sig skrifstofur ræðismanns Perú í Kaupmannahöfn, hefðu gefíst upp. Hefðu þeir hrópað slagorð út um glugga á byggingunni eftir að lög- reglan umkringdi hana, en aðgerðin að öllu leyti verið friðsamleg. Var hópurinn handtekinn og færður til yfírheyrslu. Danska fréttastofan Ritzau hafði eftir talsmanni danskrar nefndar til stuðnings því að Tupac Amaru-liðar (MTRA) yrðu látnir lausir í Perú, að gripið hefði verið til aðgerðanna í samúðarskyni við MRTA-liðana 14 sem féllu í áhlaupi perúska hers- ins á japanska sendiherrabústaðinn í Lima fyrir viku. Kröfðust þeir opin- berrar rannsóknar á áhlaupinu. Móðir Nestors Cerpa Cartolinis, leiðtoga MRTA-liðanna 14, hefur ákveðið að lögsækja perúsk stjórn- völd vegna falls sonar síns, að sögn argentínsks blaðs, Clarin, sem átti viðtal við hana frá Frakklandi þar sem hún býr ásamt tveimur sonum. Þýska stjómin fór þess á leit við borgarstjórnina í Hamborg í gær, að hún bannaði starfsemi Þýska- landsdeildar MRTA-samtakanna. Þaðan hefur Isaac Velazco, útlægur félagi í samtökunum, rekið áróður fyrir málstað MRTA frá því hann hlaut pólitískt hæli í Þýskalandi árið 1993. Hljóðnemi í krossi Frá því var skýrt á sunnudag, að fyrrverandi aðmírál í perúska hern- um, Luis Giampietri, sem var í hópi gísla í sendihen-abústaðnum, hafí tekist að koma á fjarskiptasambandi við leyniþjónustuna. Fann hann fal- inn hljóðnema í húsinu og kom ákveðnu merkjasambandi á með hjálp hans og boðtæki eins gíslanna sem skæruliðarnir gerðu aldrei upp- tækt. Reyndist hljóðneminn falinn í krossi, sem líklega hefur verið smy- glað inn í húsið, og um hann talaði Giampietri við leyniþjónustuna. Grein í Economist um afhendingri íslensku handritanna frá Kaupmannahöfn Merkilegri sögu að ljúka Deilur um veiðileyfagjald einnig til umræðu í tímaritinu í SÍÐASTA hefti af breska tímaritinu Economist segir frá því, að íslendingar muni fá síðustu handritin heim frá Dan- mörku í júní nk. og er afhendingin, sem hefur staðið yfir frá 1971, sögð einstæð í samskiptum ríkja. Eru frammámenn í öðrum gömlum nýlenduveldum hvattir til að taka Dani sér til fyrirmyndar: í júní næstkomandi verður skráður loka- kaflinn í einstæðri sögu um menningarlegt örlæti. Frá árinu 1971 hafa Danir, fyrrver- andi nýlenduherrar á Islandi, smám saman verið að afhenda íslendingum gömlu hand- ritin, sem flutt voru til Danmerkur á 17. og 18. öld, en 19. og 20. júní mun rektor Kaupmannahafnarháskóla afhenda rektor Háskóla íslands síðasta bókabaggann við hátíðlega athöfn. Islendingasögurnar, sem flestar voru ritaðar á 13. öld, segja frá ýmsum hetju- dáðum forfeðranna og menningarlegt mik- ilvægi þeirra fyrir íslendinga verður aldrei ofmetið: Þær eru framlag þessarar litlu þjóðar til heimsbókmenntanna og_ tengsl hennar sjálfrar við fortíðina. Á íslandi, landi elds og ísa, hafa ekki varðveist nein- ar byggingar, sem eru eldri en frá því á 18. öld. Að nokkru vegna landfræðilegrar ein- angrunar hefur íslensk tunga breyst miklu minna en tungur frændþjóðanna í austri. Stefán Karlsson, forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar á Islandi, segir, að forníslenska sé aðgengilegri íslendingum nú en enska Chaucers flestum Englending- um, að lesa hana sé ekki erfiðara en að lesa dagblöðin. Á íslandi er ungdómnum gert að lesa sögurnar á sama hátt og Shakespeare er haldið að enskum æskulýð. Á 18. öld virtist hætta á, að gömlu hand- ritin glötuðust endanlega og raunar meðal annars vegna aukins áhuga á sögunum. Þá voru þær orðnar aðgengilegri í mörgum afritum og gömlu bækurnar ekki í jafn miklum metum og áður. íslendingurinn Árni Magnússon bjargaði þeim frá glötun. Fór hann um landið og safnaði þeim saman og keypti stundum af bændum. Árni var prófessor við Kaupmannahafn- arháskóla og þangað flutti hann handritin. Voru þau geymd í Árnastofnun, sem er hluti af háskólanum, og sum í Konungleg bókhlöðunni. Ákvörðun um að skila þeim var tekin eftir seinna stríð þegar ísland var orðið sjálfstætt riki en danska þingið staðfesti hana ekki fyrr en 1971. íslendingar, sem komnir eru á miðjan aldur, minnast enn þess gleðidags 1971 þegar danskt herskip kom til Reykjavíkur með fyrstu handritin. „Það var einstakt vinarbragð af hálfu Dana,“ segir Elías Snæland Jónsson, rithöfundur og blaða- maður, og ekki síst vegna þess, að þeim bar engin lagaleg skylda til að skila hand- ritunum. Ef til vill ættu frammámenn í öðrum gömlum nýlenduveldum að lesa ís- lendingasögurnar (sem verða brátt að- gengilegar á alnetinu sem afrakstur sam- starfs Háskóla íslands og Cornell-háskóla) og velta því fyrir sér hvort þeir geti ekki lært eitthvað af þeim. í sama hefti er íslenskur sjávarútvegur til umfjöllunar og deilur um kvóta. „Aðeins á íslandi gætu hin torskilda hagfræði físk- veiðiheimilda verið í miðju hinnar pólitísku umræðu í landinu,“ segir í upphafí greinar- innar. Slæmt fyrir ísland og þorskinn Rakið er vægi sjávarútvegs í íslensku atvinnulífí og tilkoma kvótakerfisins. Hvernig það hafi orðið til þess að fiskistofn- ar hafí smám saman tekið við sér en einn- ig valdið því að hann hafi safnast á færri hendur. Á árunum 1990-1996 hafí eigend- um kvóta fækkað um 26%. Þeim sjávarút- vegsfyrirtækjum sem eftir séu, hafí gengið vel, þau eigi möguleika á um 20-25% hagn- aði af aflanum. Þetta hafí orðið til þess að æ fleiri krefjist þess að fyrirtækin verði látin greiða fyrir veiðiréttindin. Eru Morg- unblaðið og Jafnaðarmenn nefnd í því sam- bandi. „Embættismenn í sjávarútvegsráðuneyt- inu segja að sjávarútvegsfyrirtækin hagnist vegna þess að þau séu vel rekin, ekki vegna þess að þau njóti þeirra forréttinda að hafa aðgang að verðmætri auðlind. Ef til viil. En mörg lönd sem afhenda réttindi að tak- markaðri vöru, hvort sem um er að ræða olíu, útvarpsbylgjum eða byggingarsvæði, reyna að ná til baka hluta hagnaðarins sem safnast fyrir hjá þeim sem hefur einkarétt- inn. Takist það ekki og það verði aftur til þess að fjármagni verði veitt til fiskveiða, sem hefði nýst efnahagnum betur á annan hátt, er það slæmt fyrir ísland. Að ekki sé nú minnst á þorskinn."

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.