Morgunblaðið - 29.04.1997, Síða 26

Morgunblaðið - 29.04.1997, Síða 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 29. APRÍL 1997 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR FRÁ sýningu íslenska dansflokksins á La Cabina 26. Alþjóðlegi dansdagurinn Pjáturveizla ÁRIÐ 1982 ákvað UNESCO að al- þjóðlegi dansdagurinn skyldi hald- inn hátíðlegur ár hvert 29. apríl á afmælisdegi Jean Georges Noverre (1727-1810) en hann var frum- kvöðull ballettsýninga. Ár hvert er dreift um heim allan ávarpi frá þekktum listamanni inn- an dansins. Tilgangur Alþjóða dans- dagsins og ávarpsins er að sameina, fagna þessu listformi, „sýna alla þá breidd sem dansinn hefur og btjóta alla pólitíska, menningarlega og þjóðfélagslega múra. En fyrst og fremst færa saman fóik í friði og vináttu í sameiginlegu tungumáli - dansi,“ eins og segir í kynningu. Ávarpið er að þessu sinni eftir Frakkann Maurice Béjart og fer það hér á eftir: „Á þessari öld, tuttugustu öldinni sem bráðum mætir örlögum sínum, hefur svo sannarlega gengið eftir það sem ég hélt fram á sjötta ára- tugnum og mætti þá tvíræðu brosi Nýjar bækur • Blávindur og fleiri ljóð er ljóðakver eftir pakistanska skáldið Daud Kamal, í íslenskri þýðingu Hallbergs Hallmundssonar. Pakistanskar bókmenntir eru lítt kunnar hér á landi, en meðal lýrískra skálda austur þar eftir miðja öldina er Daud Kamal, sem lést fyrir réttum áratug, framarlega í flokki. Ólíkt hvaðanæva - þetta hefur verið öld dansins. Fyrir hundrað árum birtist kona sem var allt í senn æðisgengin og full snilligáfu, því sem næst nakin undir slæðum sínum, frjáls og mikil- fengleg. Isadora Duncan var komin til að umtuma öllum hefðum og við- tekpum hugmyndum um danslistina. Á öðrum vígvelli voru Ballets Russes undir stjórn Serge Diaghilev að gera sína eigin byltingu þar sem nokkrir mestu snillingar þessa tíma- bils - tónlistarmenn, myndlist- armenn, dansarar og danshöfundar lögðu sitt af mörkum með skapandi hugsun sinni. Alveg síðan hefur þessi „Þyrnirós" sem loksins vaknaði, dansinn, laðað til sín nýja áhorfendur í nýjum löndum um allan heim. Hinar mismunandi stefnur innan dansins mæta hver annarri, ný stíl- brigði þróast, mætast og rekast hvert á annað eða mynda saman nýtt blandað form. Segja má að á samlöndum sínum, sem ortu á móður- máli sínu, úrdú, ritaði Kamel fiest ljóð sín á ensku, enda hlaut hann framhaldsmenntun sína á Englandi og kenndi síðan ensku um 30 ára skeið í heimalandi sínu. Hann var síðast forseti enskudeildarinnar við háskólann í Peshawar. Meðal viður- kenninga sem hann hlaut fyrir ljóð- list sína í hinum enskumælandi heimi voru þrenn alþjóðleg gullverðlaun. Blávindur hefur að geyma 25 val- þessari öld hafi verið uppi jafn margir danshöfundar og voru óper- utónskáld á nítjándu öld. Ungir og líflegir áhorfendur hafa tekið við af hinum fyrri „ballett áhugamönnum“ og styðja nýtt framtak danslistamanna. Þeir eru farnir að setja dans í samhengi og samkeppni við tvennt það sem hefur átt hvað mestum vinsældum að fagna á þessari öld; íþróttir og kvik- myndir! Dans er íþrótt en einnig svo miklu meira þar sem hann sameinar gleði áreynslunnar og keppnisandans við tilfinningar okkar og andlegt líf. Dans, rétt eins og kvikmyndir, gefur okkur myndir - hraðar, hrær- andi, myndrænar, óræðar eða kraft- miklar sem fylla sálimar takti. Þessi öld líður senn undir lok. Lengi lifi dansinn, dansarar og allir þeir sem leita að sínum innri manni, verunni í sér sjálfum gegnum hreyf- ingu“. in ljóð, sem flest bera vitni uppruna sínum með skírskotunum í sögu, staðhætti og venjur, en þó ekki þannig að hamlað geti skilningi, enda hefur þýðandi látið fylgja nokkrar skýringar til glöggvunar þeim sem ókunnir eru menningar- arfi Pakistans. Kverið er 32 blaðsíður að stærð og kostar 490 krónur. Það er til sölu í bókabúðum Máls og menningar í Reykjavík. Útgefandi er Brú. TONLIST R á ð h ú s i ð LÚÐRASVEITARTÓN- LEIKAR Verk eftir Árna Bjömsson, Jacob, Jón Leifs, Grainger, Alpert/Haut- wast, Williams, Jón Múla Áma- son/Moravek, Pál P. Pálsson, Ertl, Sonntag og Sigvalda Kaldalóns. Lúðrasveit Reykjavíkur og Heiðurs- sveit u. stj. Jóhanns Ingólfssonar og Páls P. Pálssonar. Ráðhúsi Reykja- vikur, laugardagimi 26. apríl kl. 14. LÚÐRASVEIT Reykjavíkur varð 75 ára um daginn. Af því tilefni var efnt til afmælistónleika í Ráðhúsi höfuðborgarinnar, og er varla ofsagt að færri kæmust að en vildu, því ekki bara hvert sæti, heldur nánast hvert stæði var skipað. Eldri og fróðari látúnsfræðingar en undirr. verða að meta sögulegt gildi sveitarinnar, sem nú mun með- al elztu tónlistarstofnana landsins. En svo mikið er víst, að þó að hljóm- listarvettvöngum hafi ijölgað mjög eftir seinni heimsstyijöld, gegna lúð- rasveitir eins og LR áfram mikil- vægu tónuppeldishlutverki vaxandi kynslóða, þó að verði líklega seint í sama mæli og hjá menntaskólasveit- um Bandaríkjamanna, þar sem kváðu glatast yfir 20.000 1. flokks trompetleikarar á hverju ári, þegar menn útskrifast úr high school og akademísk alvara tekur við. Menntaskólahljómsveitirnar vest- an hafs eru annálaðar, og merkrar lúðrasveitahefðar þarf reyndar ekki að leita lengra en hjá æskulýðssveit- um Norðmanna. En þó að enn hafi ekki tekizt að koma upp sambæri- legri hefð og gæðastaðli hérlendis, má þó merkilegt heita, hvað íslenzk lúðrasveitarhreyfing hefur áorkað úr engu frá því að „Lúðurþeytarafje- lag Reykjavíkur" blés sína fyrstu tóna af Lögbergi á Þingvölium 1874. Er því næg ástæða til að samfagna LR á þessum tímamótum og árna gömlum og nýjum sveitarmeðlimum heilla. Afmælisdagskráin var fjölbreytt og krydduð fróðleiksmolum í hnyttn- um kynningum Jóns Múla Árnason- ar. Hin núverandi 26 manna sveit LR lék fyrst 7 atriði undir stjórn Jóhanns Ingólfssonar. Þar næst flutti „Heiðurssveit" skipuð fyrrver- andi meðlimum 4 lög undir stjórn Páls Pampichlers Pálssonar (stjórn- anda sveitarinnar 1949-75), en að því loknu léku báðar sveitirnar - þ.e. eitthvað um hálft hundrað manns - saman gustmikla útsetn- ingu Páls á Á Sprengisandi eftir Kaldalóns og mars eftir Sousa. Efst á blaði var Gamlir félagar eftir fyrrum flautuleikara LR, Árna Björnsson, frísklegur mars og fluttur af snerpu. The Earle of Oxford’s Marche, saminn af Gordon Jacob fyrir 300 ára hátíð Byrds 1923, minnti nokkuð á settlegan endur- reisnar-pavane í upphafi og náði sveitin ekki fyllilega saman þegar mál tóku að flækjast í miðhluta. Betur gekk í íslenzkum rímnadans- lögum I & II eftir Jón Leifs í viðeig- andi frumlægri útsetningu Alberts Klahn, er sveitin blés með trukki. Síðan komu fjórir þættir úr tónblóm- vendi Perey Graingers, A Lincolns- hire Posy; þétt skrifuð tónlist og trúlega meðal kröfuharðara lúðra- sveitarefnis í dag, enda fóru einstaka hrynflækjur og kontrastef forgörð- um. Glaðvær „Tijuana Brass“ sveifl- an í Herb Alpert Selection No. 1 gerði ekki sömu kröfur og rann ljúf- lega niður, ogjafnvel enn beturtókst til í skemmtilegri og fagmannlega gerðri syrpu Jans Moráveks úr ódauðlegum söngdönsum Múlans undir öruggri stjórn Jóhanns Ing- ólfssonar. Heiðurssveitin, sem með réttu hefði mátt leika „Gömlu félaga" Árna Björnssonar, flutti undir ötul- um tónsprota Páls Pampichlers nokkurra sekúndna langa Fanföru stjórnandans, lúðrakall í tilefni af komu líklega Friðriks IX Danakon- ungs. Þá hófst viðamikill mars eftir Dominik Ertl, „Hoch- und Deutsch- meister," Op. 41, og í kjöifar hans hinn óviðjafnanlegi Tjarnarmars Páls, sem lokkað getur fram sól- skinsbros í jafnvel svartasta dumb- ungi. Gömlu félagarnir léku af eld- móði og snerpu sem sæmt hefði unglingum, og luku sínu innslagi með Niflungamarsi Gottfrieds Sonntags, hágermanskri látúnssúpu soðinni upp úr Hringsstefjum Wagn- ers. Að lokum sameinuðust ungir og gamlir félagar í risalúðrasveit, og ætlaði þakið að rifna af „Camp David“ sem gárungar kölluðu í eina tíð, þegar svar landans við Wilhelm Tell forleiknum kvað við með tilheyr- andi jódyn og hneggjan, svo halda mætti að hér riði höfuðher Húna en ekki hnípnir kotbændur á leið í Kiðagil. Tóku áheyrendur pjátur- veizlunni fagnandi, og ekki urðu undirtektir minni eftir aukanúmerið, hinn vaggandi Washington Post eft- ir marsakónginn J.P. Sousa, er sló glæstan botn í eftirminnilega afmæl- istónleika. Ríkarður Ö. Pálsson Mínni fortíðar MYNPLIST Norræna húslð MÁLVERK Antti Linnovara. Opið alla daga frá 14-19. Til 11. maí. Aðgangur 200 krónur. FINNSKI málarinn Antti Linnovara (f. 1960), er af kynslóð sem hóf ný grunnmál landslagsmálverksins til vegs á Norðurlönd- um. Og það er rétt sem sýningarstjórinn Lars Saari segir í því samhengi í inngangi sýningar- skrár, „að Linnovara fari í myndrænan leið- angur út í náttúruna, söguna og nóttina". Nefna má þetta nýtt vín á gömlum belgjum í norrænni list, en sá sem öðrum fremur hóf þessi minni og jafnframt yfírstærðir lands- lagsmálverka til vegs í Evrópu, telst þjóðveij- inn Anselm Kiefer, en áhrif hans hafa náð alla leið til íslands. Söfn á Norðurlöndum hafa og verið iðin við að festa sér myndir Kiefers og hann er einn af örfáum Evrópubú- um sem eftir seinni heimsstyijöldina hefur tekist að rjúfa þykkasta listmúr veraldar, Bandaríkin, svo ekki er að undra þótt yngri kynslóð láti hrífast með. Það góða við þetta er að miðja listarinnar í Evrópu einskorðast ekki lengur við París, og ungir eru óhræddir við að taka upp fordæmi framsækinna ný- skapara hvaðan sem þeir koma úr álfunni. Hið afleita er, að þetta sýnir um leið ósjálf- stæði norrænna listamanna (og listsögufræð- inga) sem rökkuðu í áratugi niður landslags- málverkið að dagskipan fræðikenningameist- ara og listpáfa í París, í stað þess að stokka upp listina, endurnýja og jarðtengja á heima- slóðum. Neyðarlegt fyrir þá sök, að norræn- ir hafa landslagið og birtumögnin allt um kring og Kiefer hefur að eigin sögn óspart fiskað af þessari auðlegð í landhelgi þeirra um hvorttveggja. Hins vegar er hann eðlilega uppteknari af þýskri sögu, og er undir dijúg- um áhrifum frá óheftri tjáningu og úthverfu innsæi í germönsku málverki. Linnovara er ennfremur af kynslóð metn- aðargjarnra norrænna málara, sem kunna að markaðs- og sviðsetja list sína og er hér gildur fulltrúi nývakinna viðhorfa sem voru nær óþekkt fyrir nokkrum áratugum. Ábúð- armiklar farandsýningar slíkra, skipulagðar af listhúsum, listsögufræðingum og kontór- istum, eru nær árviss viðburður einhvers staðar á Norðurlöndum og minnist ég hér sýningar Olav Christopher Jensens á sama stað fyrir tveim árum eða svo og sýningar íjögurra norrænna listamanna, m.a. Sigurðar Guðmundssonar, enn fyrr. Það sem Linnovara tekur helst fyrir í ANTTI Linnovaara; Handbók, akrýl á prent, 1994. myndheildum sínum eru fjarlægðir, rýmishrif og hillingar víðáttanna, með ívafi gamalla og fornra minna. Landslag, arkitektúr, næt- urstemmningar, þar sem hann sameinar í myndrýminu aðsídljanlegustu myndeiningar sem bera í sér ákveðnar tákn- og sjónrænar vísanir fortíðar. Blý, koparplötur og ljós- myndir vinna á ýmsan hátt með stórum vold- ugum litaflötum, tómarúmi og litalækjum á dúkum. Hér er hraustlega staðið að verki þótt fátt komi á óvart í ljósi hins mikla fram- boðs á svipuðum nótum síðustu ár. Þó má skynja sterkan og persónulegan tón í mynd- unum Ferð 1992 og 1994, báðar til hægri á endaveggjum fremri og innri salar. Sýningar sem slíkar eru piýðilegt innlegg í samræðuna, eiga fullan rétt á sér en óneit- anlega væri forvitnilegt að kynnast fleiri hlið- um framsækinnar norrænnar málaralistar. Prýðilegt kynningarrit um listamanninn með listsögulegri skilgreiningu á verkum hans liggur frammi. SJÖ FRÁ VESTUR-N OREGI A n (I (I y r i Til 11 maí. Aðgangur ókeypis. ÞAÐ kveður við allt annan tón í anddyri hússins þar sem 7 listamenn frá Vestur-Nor- egi sýna 24 myndverk af ýmsu tagi. Trauðla mögulegt að hugsa sér meiri andstæður, því þegar Linnovara er fulltrúi markaðrar og viðurkenndrar stefnu á heimsvísu í málverki, er þessi hópur dæmigerður fyrir það sem nefna mætti sundurlausa og einangraðra átthagalist. Helmingur gerendanna er þannig sjálflært áhugafólk, sem verk þeirra bera alltof vel með sér og í þeim er ei heldur finnanlegur næfur tónn. Þá er skoðandanum gert afar erfítt fyrir með slitinni uppheng- ingu, sem dregur enn frekar fram hin stefnu- lausu og grunnristu vinnubrögð og er mikil spurn hvernig þetta „úrval“ hefur ratað á staðinn. Grafík Ingu Rotevatn er hér undan- tekning, en er slitin úr samhengi í uppheng- ingunni. Bragi Ásgeirsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.