Morgunblaðið - 29.04.1997, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 29. APRÍL 1997 41
MIINININGAR
KLEMENZ RAGNAR
GUÐMUNDSSON
+ Klemen/, Ragn-
ar Guðmunds-
son fæddist í
Reykjavík 9. júní
1936. Hann lést 20.
apríl síðastliðinn.
Foreldrar hans
voru Guðmundur
Albert Þórarinsson,
f. 24. apríl 1903, d.
8. maí 1985, og Ingi-
björg Ameiía
Kristjánsdóttir, f.
7. október 1898, d.
24. mars 1974.
Systkini Klemenzar
voru Þórarinn Guð-
mundsson, tvíburabróðir, f. 9.
júní 1936, d. 12. október 1995,
Elínborg Guðmundsdóttir, f.
18. október 1937, og Hörður
Hjartarson, f. 11. nóvember
1927.
Klemenz var tvíkvæntur.
Fyrri kona hans var Sjöfn Sig-
urgeirsdóttir, f. 15. marz 1939.
Þau eignuðust þijú börn, Al-
bert, f. 26. apríl 1957, kvæntan
Svanhvíti Sverrisdóttur og eiga
þau þrjú börn, en fyrir á Al-
bert tvö börn af fyrra hjóna-
bandi; Ingibjörgu Þórunni, f.
26. apríl 1958, gifta
Hjálmari Jónssyni
og eiga þau tvö
börn, en fyrir á
Ingibjörg eitt barn
af fyrra hjónabandi;
og Vigdísi, f. 28.
maí 1962, sem býr
með Friðriki Sigur-
mundssyni, og eiga
þau þijú börn.
Síðari kona
Klemenzar var
Maryann Mile. Þau
eignuðust einn son,
Róbert, f. 19. febr-
úar 1979. Klemenz
og Maryann skildu eftir stutta
sambúð.
Klemenz vann verslunarstörf
alla ævi. Hann starfaði sem
sölumaður hjá Davíð S. Jónssyni
um árabil. Hann stofnsetti síðar
sitt eigið verslunarfyrirtæki og
vann við fasteignaviðskipti áður
en hann hóf störf hjá Húsnæðis-
stofnun ríkisins 1987. Þar lét
hann af störfum fyrir nokkrum
árum.
Utför Klemenzar verður gerð
frá Fossvogskirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 10.30.
Klemenz R. Guðmundsson var
fæddur 9. júní 1936. Hann lést að
heimili sínu 20. apríl sl. Banamein
hans var astmi.
Ég kynntist Klemenz fyrst á
kaupstefnu haustið 1966, þar sem
við störfuðum sem sölumenn. Hann
hafði geislandi persónuleika, þéttur
á velli og léttur í lund.
Er hann heyrði að ég væri ný-
græðingur í starfinu tók hann mig
þegar að sér, leiðbeindi og studdi á
allan hátt. Var það upphafið að ein-
lægri vináttu okkar.
Er ég spurðist fyrir um þennan
lífsglaða mann var svarið: „Þetta
er einn af bestu sölumönnum lands-
ins.“ Innkaupastjórar utan af landi
sem komu á kaupstefnuna tóku
mjög undir þetta og sögðu mér að
hann tæki oft að sér að erinda fyr-
ir þá í Reykjavík. Ekki þurfti að
hafa áhyggjur af því sem hann tók
að sér, öllu var hratt og vel til skila
haldið svo sem kostur var. Hann
ávann sér vináttu þessara manna
enda gætti hann hagsmuna þeirra
í hvívetna.
Hans lífsgildi var: „Orð skulu
standa."
Er veikindi hans ágerðust varð
honum ljóst hvert stefndi en tók
því með æðruleysi og karlmennsku.
Þá vildi hann sættast við fólk sem
hann var í ósátt við en kom að lok-
uðum dyrum. Féll honum það
þungt, ekki sjálfs sín vegna, heldur
„að fólkið yrði að lifa með þessu“.
Klemenz átti trausta vini sem litu
til með honum og er á engan hallað
að vinkona hans Jenný Breiðfjörð
var sú lind kærleika og vináttu sem
veitti birtu inn í líf hans öllum
stundum.
Klemenz var stofnandi Sölu-
mannadeildar VR sem var stofnað
14. jan. 1967. Sat hann þar í stjórn
nokkur ár. Var hann sæmdur gull-
merki og kosinn heiðursfélagi henn-
Aðrir mér hæfari munu eflaust
skrifa um ætt og lífshlaup hans.
Ég kveð góðan vin og samgleðst
honum á nýjum leiðum. Ég veit að
hann tryggir okkur landskika í
himnaríki þar sem við getum unað
í sumaryl og lagt net fyrir rauð-
maga.
Nú brosir þú, vinur minn.
Guð blessi þig og varðveiti.
Elís Adolphsson.
Btótnasíofa
rriöjums
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík • Sími 553 1099
Opið ðll kvöld
til kl. 22 - einnig um hclgar.
Skrcytingar fyrir öll tilcfni.
+
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi, bróðir
og vinur,
KOLBEINN INGÓLFSSON,
Mávahlíð 45,
Reykjavík,
sem lést á Landspítalanum miðvikudaginn
23. apríl, verður jarðsunginn frá Bústaða-
kirkju föstudaginn 2. maí kl. 13.30.
Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Krab-
bameinsfélagið.
Sigríður Kolbeinsdóttir,
Þorbjörg Kolbeinsdóttir, Guðmundur Ó. Ingimundarson,
Ingólfur Kolbeinsson, Steinunn Þorleifsdóttir,
Ingibjörg Kolbeinsdóttir, Hörður Harðarson,
Edda Ingólfsdóttir,
RagnarJónsson
og barnabörn.
+
Faðir minn, sonur og bróðir,
ÞÓRÐUR ARNAR HÖSKULDSSON,
vélfræðingur,
andaðist á Sjúkrahúsi Reykjavíkur aðfaranótt mánudagsins 28. apríl.
Jarðarför auglýst síðar.
Leifur Orri Þórðarson,
Höskuldur Þórðarson, Hafdís Guðmundsdóttir,
Höskuldur Höskuldsson, Aðalheiður Ríkarðsdóttir,
Guðjón Höskuldsson,
Kristjana Höskuldsdóttir, Viðar Karlsson.
+
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
EYSTEINN ÞORSTEINSSON,
683 Toyon Ave,
Sunnyvale,
Kaliforníu,
andaðist á heimili sínu laugardaginn 26. apríl.
Andrea Backmann Árnadóttir,
Þorsteinn, Árni og Eric Eysteinssynir
og fjölskyldur.
Krossar d Íeíði
Ryðfrítt stóí - varanfegt efhi
Krossamir eru framleiMir
úr kvíthúðuðu, lyðfríu stóíi.
Mtnnisvarði sem endist
um ókomna tíð.
Sóikross (tdfoiar eifift (íf)
Hceð 100 smfrdjörðu.
Hefðbundinn ítross m/munstruðum
endum. Hceð 100 smfrájörðu.
Hringið í slma 431-1075 og fáið litabækling.
BLIKKVERK
Dalbraut 2, 300 Akranesi.
Sími 431-1075, fax 431-3076
+
Ástkær eiginmaður minn, sonur, faðir okkar og fósturfaðir,
VIGNIR FRIÐÞJÓFSSON
skipstjóri,
Víðilundi 18c,
Akureyri,
verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju miðvikudaginn 30. apríl kl. 13.30.
F.h. systkina, tengdafjölskyldu og annarra ástvina;
Jónína E. Þorsteinsdóttir, Friðþjófur Gunnlaugsson,
Sveinn Orri Vignisson, Friðþjófur Örn Vignisson,
Stefán Guðnason.
Guðrún Andrésdóttir,
Andrés Ingi Jónsson,
Hannes Bjartmar Jónsson,
Einar Pétur Jónsson
og aðrir ástvinir.
er látinn.
+
STEINDÓR STEINDÓRSSON
frá Hlöðum,
Guðrún Sigbjörnsdóttir, Gunnar Steindórsson
og fjölskyldur.
+
Eiginmaður minn, faðir okkar og tengdafaðir,
GUNNAR MAGNÚS GUÐMUNDSSON
fv. hæstaréttardómari,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni miðviku-
daginn 30. apríl kl. 13.30.
Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir,
en þeim sem vildu minnast hans er bent á
heimahlynningu Krabbameinsfélagsins.
Guðbjörg Pálmadóttir,
Hörður Gunnarsson,
Bragi Gunnarsson, Herdís Þorgeirsdóttir,
Anna G. Gunnarsdóttir, Ragnar Danielsen.
+
Ástkær dóttir okkar og systir,
KRISTÍN HALLA HARALDSDÓTTIR,
Guðrúnargötu 7,
sem lést sunnudaginn 20. apríl, verður
jarðsungin frá Bústaðakirkju í dag, þriðju-
daginn 29. apríl, kl. 13.30.
Helga S. Bachmann, Haraldur Hjartarson,
Sigríður Sóley Kristjánsdóttir,
Ragnheiður Helga Haraldsdóttir.
+
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi,
SÆMUNDUR GUÐMUNDSSON,
Brekku,
Hveragerði,
er látinn.
Helga Dís Sæmundsdóttir, Ragnar Gunnarsson,
Gerður Sæmundsdóttir, Berndt Grönqvist
og barnabörn.