Morgunblaðið - 29.04.1997, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 29.04.1997, Qupperneq 48
MORGUNBLAÐIÐ OK „o.,Tw„„ir,KH 48 ÞRIÐJUDAGUR 29. APRÍL 1997 AFMÆLI ESTER M AGNÚ SDÓTTIR Ester er dóttir heið- urshjónanna Guðfinnu Guðmundsdóttur og Magnúsar Hannibals- sonar, útgerðarmanns, mestu myndar- og dugnaðarhjóna, sem allir samferðamenn elskuðu og virtu. Þau eignuðust Þijú börn. Elst er Ester, sem fagnar áttræðisafmæli sínu í dag, þá Trausti, fyrrverandi skipstjóri og vitavörður á Sauða- nesvita, og yngst er Emma, sem býr í Hafnarfirði, og var gift miklum sómamanni Sveini Guðmundssyni, sem nú er látinn. Guðfinna lamaðist nokkru eftir að Emma fæddist. Ester var þá níu ára. Öll voru systkinin bráðdugleg og vissu hvað þau áttu að gera. Ester hafði mikla forystuhæfileika. Hún sá og skynjaði vel hvað gera þurfti þegar faðir þeirra kom að landi með fiskinn. Sneru börnin bökum saman og hjálpuðu sem mest og best þau gátu föður sínum og ennfremur að líta eftir móður sinni, sem alltaf var lífsglöð þrátt fyrir lömun sína. Eg hef ekki kynnst mikilhæfari konu en Ester. Öll verk léku í hönd- um hennar og alls staðar lét hún gott af sér leiða. Ester giftist ung hinn 27. október 1939 Guðmundi Agústssyni, mesta myndarmanni frá Kjós. Eignuðust þau tvo syni, Ágúst og Magnús, manngæsku- drengi, sem eru vel giftir. Ester og Guð- mundur byggðu sér hús í Djúpuvík, sem þá var mikill uppgangs- staður og fólk dreif víðs vegar að af landinu í vinnu tengda síldveið- um og vinnslu. Guð- mundur Guðjónsson stjórnaði þá Djúpuvík, mikilhæfur athafna- maður, sem giftur var Ragnheiði Hansen. Tóku þau hjón að sér kjördóttur, Maríu, mestu myndarstúlku, sem síðar varð fegurðardrottning. María er í miklu uppáhaldi af öllum Árneshreppsbúum. Ester var hjálpsöm alla tíð og naut ég þess í ríkum mæli. Hún tók Hilmar son minn að sér þegar ég brenndist og lá af þeim sökum í sjö mánuði á Landspítalanum. Ekki máttu þau heiðurshjón heyra á það minnst, að þeim væri borgað fyrir greiðann. Þótti þeim svo sjálfsagt að rétta þessa kærkomnu hjálpar- hönd. Hilmar minn minnist þess oft hvað það hafi verið gaman að vera hjá Ester og Guðmundi og sonum þeirra. Hefur vinátta Hilmars við þá fjölskyldu haldist æ síðan. Elsku Ester, innilegustu óskir með 80 ára afmælið. Guðsblessun fylgi ykkur hjónum og niðjum í nútíð og framtíð. Lifíð öll heil. Þess óskar, Regína Thorarensen, Hulduhlíð, Eskifirði. AÐSTOÐ VIÐ ALDRAÐA OG AÐRA ÁN HJÁLPAR RÍKISINS Ertu ein / einn ? Þarfnastu: 'félagsskapar ? "einhvers til að tala við ? "spila við ? "aðstoðar við innkaupin ? "aðstoðar við heimilisstörfin Þarf foreldri þitt aðstoöar á meðan þú ert að vinna? Uppl. milli kl 9 -12 alia virka daga i síma 565 2309 Austurvegur rh! c IÐNAÐARHURÐIR í SVAL-öORG A FHF. HÖFÐABAKKA 9, 112 REYKJAVÍK SÍMI 587 8750 - FAX 587 8751 smáskór Mikið úrval af góðum fyrstu skóm. St. 17-25. 6 gerðir með lausum innleggjum. Erum í bláu húsi við Fákafen. Ermaginn vandamál? Fæst í apótekum. KISHLGEL Silicol er nátturulegt bætiefni sem vinnur gegn óþægindum i maga og styrkir bandvefi likamans og bein. Silicol verkar gegn brjótsviða, nábit, vægum magasærindum, vindgangi. uppþembu og bæði niðurgangi og harðlífi. Silicol hentar öllum! Silicol hjálpar Vinsælasta heilsuefnií í Þýskalondi, Svíþjóð og Bretlnndi! Silicol er hrein nóttúruofurð ón hliðarverkono. I DAG VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Fyrstu útskriftarnem- endur Melaskóla ÞIÐ SEM lukuð fullnaðar- prófi frá Melaskóla vorið 1947, fyrsti útskriftarhóp- ur skólans. Hvernig væri að hittast í maí og minnast tímamótanna? Vinsamleg- ast haftð samband við Hall- dóru Gunnarsdóttur í síma 562 5551 og Dóru Guð- leifsdóttur í síma 554 2643. Ekki meiri illdeilur ÉG VIL lýsa óánægju minni með undirskriftasöfnun þá sem hrundið var af stað í Garðabæ varðandi prests- kosningar. Presturinn sem kosinn var fékk löglega kosningu og mér finnst að fólk hefði átt að hlíta því en rjúka ekki af stað með undirskriftalista. Erum við ekki búin að fá nóg af slíku innan kiriqunnar? Einnig finnst mér að prestamir hefðu átt að biðjast undan þessari undirskriftasöfnun og koma þar með í veg fyr- ir frekari illdeilur innan kirkjunnar sem allir em búnir að fá nóg af. Sólbjört Gestsdóttir, Grenilundi 12, Garðabæ. Skækjan ÉG SÁ sýningu Þjóðleik- hússins Leitt að hún skuli vera skækja “ án þess að vita mikið um efnið. Þrátt fyrir góða frammistöðu þeirra er að sýningunni stóðu var tilfinning mín aðeins leiði yfir því að hafa slæðst þarna inn og mér fannst ég hafa atast aur þessa stund í leikhúsinu. Mér þætti rétt að fólk væri varað við svona efni því þá mæta aðeins þeir sem vilja sjá óhugnaðinn. Leikhúsgestur. Grín og guðlast GRÍN Spaugstofunnar um páskana var til að niður- lægja Krist og boðskap hans og var mikil synd sem og hvaða atriði sem leikið er úr Biblíunni þó að ekki sé það guðlast. Sá maður guðlastar sem setur sig í Guðs stað með því að afnema og breyta lögum Guðs og setja lög í staðinn að eigin vilja og geðþótta tilbúin af manni eða mönnum og kenna þau sem frelsunaratriði fyrir fólk. Kaþólska kirkjan og páfar hennar hafa framið þann voðaglæp að afnema og breyta 10 boðorðum Guðs svo að um munar og villt þannig um fyrir fólkinu í heiminum og þeir elta sem kalla sig guðfræðinga, biskupa, presta og djákna og ýmsum öðrum nöfnum, þeir taka mannieg lög tveim höndum eins og þau væru frá Guði komin og tilbiðja þannig páfann, guð- inn í Róm, og taka þannig fullan þátt í guðlastinu með klerkum kaþólsku kirkj- unnar. Samúel spámaður Drott- ins sagði um Sál konung í ísrael: „Af því að þú hefir hafnað skipun Drottins, þá hefir hann og hafnað þér og svift þig komungdómi." (1. Sam. 15,23.) Og einnig í sama kafla óhlýðni, þver- móðska og þijóska er ekki betri en galdrasynd. Guð hafnaði Sál vegna óhlýðni við boð sín og fékk hann þá illan anda og hann endaði með því að fara til miðils, galdrakonu í Endór og féll í stríði við Filista og synir hans, yfirgefinn af Guði. Sál tapaði öllu jarðnesku og líka upprisu réttlátra við komu Krists vegna óhlýðni við fyrirmæli Guðs, eins mun fara fyrir kennurum sem kenna mannaboðorð til frelsunar fólki og setja sig þannig í Guðs stað, þar sem stjóm- arskrá Guðs er forsmáð og niðurrifin, boðorðin 10 (2. Mós. 20. 1-17). Að fyigja og kenna lög páfastóls í stað Guðslaga er syndin stóra, guðlast og grín. Menn ættu að lesa Daníels- bók og rit kaþólsku feðr- anna, þá sjá menn hveijir guðlasta. Fólk ætti að lesa 5. Mósebók og Postulasög- una vel og þá sér það hvernig fólk verður kristið. Aðeins iðrun og aftur- hvarf til boðorða Guðs get- ur læknað sár og mein ein- staklinga og þjóða, og sterk trú á Drottin Jesú. Oðinn Pálsson Stóru-Völlum, Holta- og Landsveit. Flugleiðir - traustur íslenskur ferðafélagi FYRIRSÖGNIN hér að of- an er auglýsing sem við þekkjum svo vel. En á ferð okkar til Kanaríeyja á tíma- bilinu 26.2. til 26.3. 1997 reyndum við þetta í verki. Við vorum 10 manns frá Reykjavík, Fáskrúðsfirði, Drangsnesi og Grundarfirði sem áttum pantaða ferð á þessum tíma. Staðfesting- argjald var greitt í ágúst og síðan fargjaldið að fullu 4-5 vikum fyrir brottfor. Við vorum þá komin með farmiða og staðfesta bókun á það hótel sem við höfðum valið. Við höfðum lagt mikið uppúr að fá þetta hótel á Ensku ströndinni. Þar er stutt í alla þjónustu og á ströndina. Þau okkar sem höfðu áður dvalið þar þekktu þetta allt svo vel. Nokkrum dögum fyrir brottför var okkur tilkynnt með mismunandi fyrirvara að hótelið stæði ekki við samning sinn við Flugleiðir. Þetta þýddi það að við fengum ekki þetta hótel. Okkur brá illa við því erfitt yrði að fá annað hótel á svo stuttum tíma. Eftir- spum eftir Kanaríeyjaferð- um er slík að það þarf að panta með margra mánaða fyrirvara. Flugleiðir brugðust við þessu með miklum ágæt- um. Okkur voru strax boðin önnur hótel eða endur- greiðsla. Þar sem við vild- um halda okkur við þessa staðsetningu á dvalarstað var þetta erfitt. En við fengum svo hótel í sömu götunni, dýrara enda stærri íbúðir, á sama verði og við höfðum greitt fyrir. Áður en ferð okkar hófst var okkur sagt að allar skoðunar- og skemmtiferð- ir inna eyjarinnar væru okkur að kostnaðarlausu í boði Flugleiða. Þessar ferðir eru: Hring- ferð (meðfram strandlengj- unni), hellaferð (ferð upp í hellana þar sem fólk hefur búið í mörg hundruð ár), verslunarferð til Las Palm- as, sigling með Blue Bird (strandferð), Teror og Val- leseco (fi'allaferð, þorps- markaður) og nætur- klúbbsferð til Casino Palace (kvöldmatur og skemmti- dagskrá). Þegar við komum inn í íbúðir okkar á hótelinu beið okkar blómaskreyting og konfekt á stofuborðum okkar, ekkert var eins og höfðum við mikla ánælgju af þessu. Við viljum með þessum línum þakka Flugleiðum innilega fyrir vinsemd ,og hvað vel var við okkur gert á allan hátt. Við áttum yndislega ferð, ekkert kom upp á, veðrið lék við okkur, hiti 26-30 stig hvem ein- asta dag meðan við dvöld- um á Kanaríeyjum. Við sendum góðar kveðj- ur til fararstjóra Flugleiða, Auðar, Ingibjargar Grétu og Jóhönnu á eyju hins ei- lífa vors, Gran Canaria. Anægðir farþegar Flugleiða Tapað/fundið Frakki tapaðist DÖKKBLÁR beinsniðinn karlmannsfrakki var tekinn í misgripum úr fatahengi í Hjallakirkju þann 6. apríl sl. Sá sem kannast við að vera með þennan frakka er vinsamlega beðinn að hringja í síma 552 4807. Lyklakippa tapaðist BRÚNT og svart veski með smellu tapaðist, ann- aðhvort á Hverfisgötunni, bensínstöðinni í Borgar- túni eða í Glæsibæ mið- vikudaginn 23. apríl sl. Á kippunni voru 6 lyklar, þar af tveir litlir. Skilvís finnandi vinsamlega hringi í Sólveigu í síma 555-4378. Gæludýr Álfur er týndur ÁLFUR týndist laugar- daginn 12. apríl. Hann er sealpoint síamsköttur með blá augu, frekar stór og „talar“ mikið. Hann á heima á Brekkustíg 10 í Reykjavík. Hann er með svarta ól með bláu merki. Ef einhver hefur séð hann vinsamlega hringið í Mar- gréti í síma 551 5023. Heyrnarlaus köttur tapaðist STÓR, hvítur, heyrnarlaus fressköttur, með blá augu tapaðist á ferðalagi undir Eyjafjöllum í fyrrasumar. Hann gæti hafa stokkið upp á einhvern bíi og þvælst hvert á land sem er. Hafi einhver orðið hans var er hann beðinn að hringja í síma 555 0801 eða láta vita í Kattholt. Víkveiji skrifar... VERZLUNARMANNAFÉLAG Reykjavíkur skilaði hvorki meira né minna en 108 milljóna króna tekjuafgangi á síðasta ári. I samtali við Morgunblaðið í fyrradag sagði Magnús L. Sveinsson, formað- ur félagsins, að þessi mikli hagnaður skýrðist m.a. af mikilli fjölgun fé- lagsmanna á árinu. Hann segir jafn- framt að það sé alls ekki markmiðið að græða á rekstri félagsins og seg- ir að féð verði notað í þágu félags- manna. Fer ekki bezt á því, að félagsmenn sjálfir, hver og einn, ákveði hvernig þeir noti þessa umfram fjármuni? Bendir þessi mikli hagnaður, sem jafnast á við árshagnað myndarlegs útgerðarfyrirtækis, ekki til þess að það megi lækka umtalsvert gjöldin, sem félagsmönnum VR er gert að greiða? Hefði ekki farið betur á því að skilja þessar hundrað milljónir eftir í vösum félagsmanna sjálfra og að þeir tækju ákvörðun um, hvernig þeir vildu ráðstafa þeim? Forystumenn verkalýðsfélaganna verða að gæta þess, að félögin verði ekki einhvers konar fyrirtæki, sem safni digrum sjóðum, sem vissulega eru betur komnir hjá félagsmönnum heldur en stjórnendum féiaganna, svo ágætir, sem þeir annars eru. XXX ÉR I Morgunblaðinu hefur ítrekað verið bent á, að sjóða- söfnun verkalýðsfélaganna er orðin fáránleg. Því skal ekki mótmælt, að það hafi verið skynsamicgt á sínum tíma, að byggja þessa sjóði upp, eins og t.d. sjúkrasjóðina. En þeir eru nú orðnir svo miklir að vöxtum og vaxa af sjálfum sér í krafti mikillar ávöxtunar, að það hlýtur að vera tímabært að ræða í alvöru, að pen- ingarnir, sem nú ganga í suma þessa sjóði fari, heldur til þess að hækka laun launþega í viðkomandi starfs- greinum og að þeir ákveði sjálfir, hvernig þeir vilji ráðstafa þeim. Þap er einfaldlega nóg komið af sjóðasöfnun á vegum verkalýðsfé- laganna. XXX RAUNAR er orðið tímabært, að félagsmenn verkalýðsfélag- anna hugi að allsheijar endurskoðun á starfsemi þeirra og skipulagi. Það hefur lítið breytzt í áranna rás og tímabært að breyting verði á því. Forystumenn verkalýðsfélaganna og starfsmenn þeirra þurfa lítið fyr- ir lífinu að hafa. Þeir hafa samið við vinnuveitendur um það, að fólk geti ekki fengið vinnu á Islandi nema vera í launþegafélagi viðkomandi starfsgreinar og þeir hafa samið við vinnuveitendur um, að þeir inn- heimti félagsgjöld af starfsmönnum sínum fyrir þá. Hvenær kemur að því, að vinnuveitendur kreíjist þókn- unar fyrir þessi innheimtustörf?! Þetta er löngu úrelt fyrirkomu- lagi. Hveijum einstaklingi á að vera í sjálfsvald sett hvort hann er félags- maður í stéttarfélagi eða ekki. Og félögin sjálf eiga að hafa fyrir því að innheimta félagsgjöld og önnur gjöld-hjá félagsmönnum sínum. En þessu verður sennilega ekki breytt nema með lögum frá Alþingi. Má ekki búast við að einhver framtaks- samur alþingismaður flytji tillögu um slíkt frelsi til handa launþegum þessa lands?

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.