Morgunblaðið - 10.05.1997, Page 4

Morgunblaðið - 10.05.1997, Page 4
4 LAUGARDAGUR 10. MAÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR | Það borgar sig að kunna skil á úrgangi Kynntu þér breytta gjaldskyldu ! á endurvinnslustöðvum okkar. Velkomin ð endurvlnnslustöOvarna S@RFA SORPEYÐING HÖFUÐBORGARSV/EÐISINS bs Heimagerðri sprengju kastað í andlit ellefu ára drengs Sprakk við augað og skaddaði það BORIÐ var til grafar í Krýsuvíkurkirkjugarði og voru líkmenn þar úr hópi félaga Sveins úr lögreglunni. Jafnframt var vigð altaristafla eftir Svein í kirkjunni. Fjölmenni við útför Sveins Björnssonar ÚTFÖR Sveins Björnssonar list- málara og lögregluþjóns var gerð frá Hallgrímskirkju í Reykjavík í gær að viðstöddu miklu ijöl- menni. Séra Karl Sigurbjörnsson jarðsöng og í Krýsuvíkurkirkju vígði séra Gunnþór Ingason nýja altaristöflu eftir Svein. Við útförina sungu Schola Cantorum undir stjóm Harðar Askelssonar organista, sem einnig lék á orgelið, og_ Lög- reglukór Reykjavíkur. Ásgeir Steingrímsson annaðist tromp- etleik. Borið var til grafar í Krýsuvíkurkirkjugarði og jafn- framt var vígð í Krýsuvíkur- kirkju altaristafla eftir Svein heitinn Björnsson. Morgunblaðið/Árni Sæberg VINIR Sveins heitins Bjömssonar bám kistu hans úr Hallgríms- kirkju og stóðu lögreglumenn heiðursvörð utan við kirkjuna. BRESKIR kafarar halda' í dag áfram athugun sinni í vistarverum skelfískbátsins Æsu ÍS 87, sem sökk í Arnarfirði sl. sumar. Bæki- stöðvar kafaranna era um borð í varðskipinu Óðni. Kafararnir hafa aðeins 29 mínútur til stefnu frá því þeir síga niður í djúpið og þar til þeir þurfa að koma upp aftur. Mega þeir ELLEFU ára drengur skaddaðist á auga á uppstigningardag eftir að heimagerð sprengja sprakk við and- lit hans þar sem hann var á hjóli í Foldahverfi í Grafarvogi. Sprengj- unni var kastað í hann af unglings- pilti sem hefur ekki fundist. „Hann sá einhvem hlut út undan sér og heyrði hvin en síðan sprakk sprengjan. Þetta gerðist mjög snöggt og hefur verið talsvert kraftmikil sprenging, því að kona ein sem hraðaði sér á vettvang, býr á fjórðu hæð í nærliggjandi húsi og heyrði alla leið þangað háan hvell og síðan öskur og grát í bami,“ segir móðir drengsins. Orðlaus af reiði „Ég er nær orðlaus af reiði í garð þess sem kastaði sprengj- unni, en því miður sáu sonur minn og vinur hans sem var með honum ekki til þess sem ber ábyrgðina. Ég vona samt að hann finnist. Mér fínnst það skrýtinn einstaklingur sem fær eitthvað út úr því að beina svona löguðu að fólki,“ segir hún. Drengurinn var mjög vankaður eftir sprengjuna og kastáði lengi -upp eftir að hann var fluttur á slysadeild, sem þykir benda til að hún hafí verið kraftmikil og högg- ið á höfuðið þungt. Guðmundur Viggósson augn- læknir segir að svo virðist sem um sé að ræða heimatilbúna sprengju sem springi við högg. „Sprengjan lenti á hægra auga drengsins sem er einn versti hugs- anlegi staður og er augað marið og það hefur blætt inn á það. Hann er með mjög mikið glóður- auga á augnlokinu og framhólf augans er fullt af blóði. Það er ekki útséð um hvemig fer, en við vonumst til að geta bjargað aug- anu og sjóninni," segir Guðmund- ur. Drengurinn þarf að dveljast á sjúkrahúsi í um vikutíma yegna áverka sinna. Otrúlegt virðingarleysi Guðmundur kveðst telja afar aivarlegt mál að til séu unglingar svo bíræfnir að smíða sprengjur af þessu tagi og henda þeim í böm. Fleiri heimagerðar sprengjur hafa verið sprengdar að undanfömu í Anda að sér blöndu af súrefni og helíumi Líftaug kafaranna er ofin úr margþættum þræði fyrir símasam- band, myndbandsupptöku, ljós, loft- blöndu og heitt vatn. í búningunum er net æða sem heitt vatnið rennur um svo kafaramir ofkælist ekki. Kafaramir anda að sér blöndu af súrefni og helíumi og tapa mikl- um raka við útöndun þess síðar- nefnda. Því þarf að hita búningana upp en hitinn á hafsbotni þar sem Æsa liggur er tvær gráður um þessar mundir. sama hverfi og hafa nokkur tilvik komið til kasta lögreglu. „Oft kemur upp faraldur af þessu tagi og virðast unglingspiltar vera aðsópsmestir í gerð vígtóla og að fremja óknytti með sprengi- efnum, skotfæram og eldi. Virð- ingarleysið sem þeir sýna öðra fólki með því að kasta sprengjum af þessu tagi er í senn ótrúlegt og óhugnanlegt ,“ segir Guðmundur. Hann segir lán í óláni að auga drengsins hafi ekki eyðilagst. „Það er stutt á milli í tilvikum sem þess- um. Augað er í kúluformi og af- myndast eins og þegar kýlt er í blöðra við sprenginguna, það teyg- ist á lithimnunni og æðahimnum sem bresta og blæðir úr. Lítið þarf til að augað rifni alveg. Ég hef ekki séð svipaða áverka og á drengnum nema kannski helst um áramót þegar tívolíbombur og þess háttar springa, “ segir hann. Áhrif frá ofbeldismyndum Hann kveðst telja ábyrgð for- eldra mikla í þessu sambandi og ekki sé hægt að ætlast til að skól- amir eða aðrir aðilar hugsi fyrir fólk. „Foreldrar eiga að vita hvað börn þeirra aðhafast og brýna fyr- ir þeim hættumar. Ég er einnig hræddur um að sprengjugerð af þessu tagi endurspegli áhrif frá ofbeldismyndum,“ segir hann. Morgunblaðið/Ásdís KAFARARNIR eru 100 mínútur í afþrýstihylkinu og því frels- inu fegnir þegar meðferð lýkur. Leiðin upp á yfirborð tekur um eina klukkustund og þegar þangað er komið hafa kafaramir tvær mínútur til þess að koma af sér búningum og tækjum og fara inn í afþrýstihylki. Þar þurfa þeir að dvelja í 100 mínútur til þess að koma í veg fyrir köfunarveiki. Kafaramir leggja líf sitt að veði í hvert sinn sem þeir fara niður á botn og reyna, að eigin sögn, að slá á létta strengi til þess að halda sönsum þótt verkefnið sé að sönnu grafalvarlegt. Ríkið úthlutaði nærri tíu milljón- um króna til verkefnisins og eiga þeir ijármunir að nægja fyrir kostnaði við köfunina. Landhelgis- gæslan og Siglingastofnun leggja til skip og mannafla og standa sjálfar straum af þeim kostnaði. Kafað í tveggja gráða hita á sjávarbotni engan tíma missa og í fyrstu ferð sinni niður á botn festu þeir taug i bátinn. Taugin kemur í veg fyrir að óþarfa tíma sé eytt í að leita að flakinu. Kafaramir era fjórar mínútur á leiðinni niður og hafa því rúmar 20 mínútur til þess að athuga flakið og mynda það sem fyrir augu ber. Um borð í Óðni er fulltrúi sýslu- manns á Patreksfírði, lögreglu- menn, einn fulltrúi ættingja og tveir fulltrúar í ID-nefnd sem er ætlað að bera kennsl á hina látnu. Lögreglan tekur skýrslu af köfur- unum eftir hvetja ferð og hefur ekki viljað greina frá því sem í ljós hefur komið, af tillitssemi við ætt- ingja. Lesið verður úr gögnum þegar köfun lýkur og ekki er búist við niðurstöðum um orsök slyssins fyrr en að nokkrum tíma liðnum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.