Morgunblaðið - 10.05.1997, Síða 12

Morgunblaðið - 10.05.1997, Síða 12
12 LAUGARDAGUR 10. MAÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Deildarstjóri öryggisgæslu hjá Seeuritas óttast að innbrot séu orðin skipulagðari enáður Markviss leit að verðmætum DEILDARSTJÓRI öryggisgæslu hjá öryggisfyrirtækinu Securitas kveðst uggandi um að skipulögð innbrot færist í vöxt, og gera verði ráðstafanir til að auka öryggi fyrir- tækja og einkahúsnæðis. Meðal annars hafi fyrirtækinu borist vís- bendingar um að menn sem hyggi á innbrot hafi aflað sér nákvæmra upplýsinga um staðhætti og hagi fólks. Aðfaranótt mánudags eltu tveir öryggisverðir frá fyrirtækinu Secu- ritas uppi mann sem gert hafði til- raun til að btjóta rúðu í skartgripa- verslun í Bankastræti en flúið af vettvangi þegar þjófavarnarkerfí fór í gang. Vel verkfærum búinn „Verslunin var að vísu ekki tengd öryggiskerfí okkar heldur með ut- análiggjandi bjöllu, sem ekki er reglum samkvæmt, en öryggisverð- irnir brugðust samt hart við enda staddir skammt frá. Þeir sáu tvo menn hlaupa af stað og eltu þá um Ingólfsstræti, niður Amtmannsstíg og aftur upp á Ingólfsstræti. Þar stökk annar vörðurinn úr bifreiðinni á eftir þjófínum inn í bakgarð, þar sem hann hentist upp á öskutunnu og yfir háan vegg og vörðurinn á eftir. Hinum megin við vegginn tókst verðinum loks að klófesta manninn, sem reyndist vera með sérstaka hliðartösku bundna við sig til að geta sópað úr glugganum. Einnig voru þar verkfæri til að fremja inn- brot og hann var því vel útbúinn til starfans og ljóst að hann var í leiðangri," segir Ámi. Hinn maður- inn reyndist ekki tengjast innbrots- tilrauninni. Nóttina á undan var brotist inn í spilasalinn Háspennu við Hafnar- stræti og þar báru innbrotsþjófar sig einnig mjög fagmannlega að. Þeir komu að húsinu aftanverðu, í gegnum læst port við hlið Kaffís Reykjavíkur, þar sem þeir höfðu ágætt skjól til að athafna sig. Þar flettu þeir bárujáminu af húsinu á um metralöngum kafla, sópuðu burt einangmn og viði sem þar tók við og voru þá komnir að plötum sem mynduðu innra byrði veggjarins. Þjófarnir engir unglingar „Þeir vom búnir borvélum og boruðu í gegnum vegginn og kýldu út flekann þannig að þeir áttu auð- gengt inn í húsið. Þeir komu að baki eins spilakassans og bmtust inn í hann, áður en starfsmenn fyr- irtækis í grenndinni sáu til þeirra og kölluðu til lögreglu. Þeir komust á brott en náðu engu,“ segir hann. „Samkvæmt upplýsingum sjón- arvottanna vom þessir menn á milli þrítugs og fertugs, þannig að ljóst er að þama vom engir unglingar á ferð. Við teljum ástæðu til að staldra við og skoða hvort innbrotsþjófar séu að fara inn á nýtt svið. Áður fyrr vom innbrot yfírleitt svokölluð tækifærisinnbrot, þ.e. í þeim tilvik- um sem aðstæður buðu upp á það eða skyndihugdetta eða ölæði réð. Núna virðast menn hins vegar gera markvisst út á þessa iðju og hún vera orðin skipulög í þeim tilgangi að sækja verðmæti." Fleiri dæmi em um skipulögð innbrot í spilasali og þannig var nýlega stolið um 1,5 milljónum króna í smámynt úr spilasal í Glæsibæ. Þegar innbrotið var fram- ið stóð yfir viðgerð á húsnæðinu og þjófavörn hafði verið tekin úr sambandi aðeins eina nótt af því tilefni, sem Árni kveðst telja vís- bendingu um að tími innbrotsins hafí ekki verið tilviljun. Hann segir þau dæmi sem liggja fyrir benda eindregið til þess að menn verði að veija fyrirtæki sín og eigur betur en gert hefur verið til þessa. Meðal annars verði að beina sjónum að stöðum sem ekki hafa verið taldir líklegar inngöngu- leiðir, svo sem loftum og bakveggj- um, auk hefðbundinna öryggisráð- stafana. Bjartsýnismenn á Þingeyri þrátt fyrir erfitt atvinnuástand Of mikil svartsýni „ VIÐ gerum of mikið af því að væla, Þingeyringar, þegar dregst saman hjá okkur getum við sótt verkefni út fyrir byggð- arlagið," segir Sigmundur F. Þórðarson, húsasmíðameistari á Þingeyri, í samtali við blaða- mann Morgunblaðsins. Sigmundur er með 4 menn í vinnu og er að ljúka smíði íþróttamiðstöðvarinnar á Þing- eyri. Þegar vinnan dróst saman tók hann að sér löndun úr Sléttanesi í verktöku og hann var við uppskipun þegar blaða- menn bar að garði. Sagðist Sig- mundur sækja verkefni til ná- grannastaðanna þegar minna væri að gera. Það gerðu fleiri og enn fleiri mættu hugsa þann- ig. Nefndi hann sem dæmi að Sléttanesið sækti á fjarlæg mið til að afla sér verkefna. Gósenstaður „Auðvitað er erfitt atvinnu- ástand, ekki þýðir að neita því, en ég hef óbilandi trú á þessum stað og að við náum að rétta þetta af. Það er ekkert grín að vera atvinnulaus, en við verð- um að hætta þessari svartsýni og leysa rnálin," segir hann. Sigmundur segir að Þingeyri sé gósenstaður. „Við höfum aldrei séð annað eins af fiski í Dýrafirði en kvótinn dregur úr möguleikum okkar til veiða. Við erum miðsvæðis á Vest- fjörðum og hingað eiga skipin sem sækja á Dohrnbanka til dæmis að geta sótt þjónustu, það er miklu styttra að sigla hingað en til ísafjarðar. Otæm- andi möguleikar eru fyrir ferðaþjónustu. Hér hefur orðið bylting í samgöngumálum með tilkomu ganganna sem við eig- um að geta nýtt okkur. Við höfum góðan grunnskóla og mjög góðan leikskóla, tónlist- arskóla, öflugt félagslíf, virkt íþróttafélag, björgunarsveit og kvenfélag, öflugan golfklúbb og stórglæsilega íþróttaað- stöðu. Hér er gott að búa og hér vill fólkið búa,“ segir Sig- mundur Þórðarson. Ódýrasta lausnin Annar bjartsýnismaður á Þingeyri, Sigfús Jóhannsson, stofnaði með félögum sínum fiskverkunarfyrirtækið Unni ehf. á síðasta ári. 7-8 menn eru í vinnu hjá Unni, við söltun og herslu og á trillubát sem fyrirtækið gerir út. Sigfús seg- ir að erfitt sé að fá hráefni. Ef hægt væri að útvega meiri fisk gæti fyrirtækið haft 15-16 menn í vinnu og enn fleiri ef mögulegt yrði að hefja fryst- ingu. Það sagði hann að væri ódýrasta lausnin á atvinnu- vanda Þingeyrar. Sigfús segir að ekki borgi sig að kaupa sér kvóta á mark- aðnum. „Eg leigði 10 tonna kvóta af manni, ég veit reynd- ar ekki hvort hann var staddur á Kanaríeyjum, Akureyri eða Reykjavík, og borgaði fyrir 710 þúsund. Þá átti ég eftir Morgunblaðið/Golli SIGMUNDUR F. Þórðarson sljórnar löndun úr Sléttanesi. SIGFÚS Jóhannsson, framkvæmdastjóri Unnar ehf., í vinnslu- salnum. að semja við bátinn um að veiða kvótann og það kostaði 500 þúsund til viðbótar. Þú sérð hvað kílóið hefur kostað og þá átti eftir að vinna fiskinn og salta enda seldi ég hann þremur mánuðum seinna með 300-400 þúsund kr. tapi. Þetta gengur ekki. Ég væri hins veg- ar tilbúinn að kaupa kvótann af hinu opinbera. Þá færu pen- ingarnir í sameiginlegan sjóð til að reka heilbrigðiskerfið og menntakerfið og þannig skil- uðu þeir sér til baka,“ segir hann. Istraktor kynnir Alfa Romeo 146 BÍLAUMBOÐIÐ ístraktor, Smiðs- búð 2, Garðabæ, sem er umboðsað- ili fyrir Fiat, Alfa Romeo og Lanc- ia, sem og Iveco sendi- og vöru- bíla, verður með opið hús laugar- dag og sunnudag í tilefni af komu Alfa Romeo 146 til landsins, 150 hestafla fjölskyldusportbíls með öllum hugsanlegum aukabúnaði, Fiat Bravo/Brava og Marea með nýrri 5 sílindra vél. Þessi nýja fólksbílalína Fiat hef- ur fengið frábærar móttökur í Evrópu og koma hingað til landsins mjög ríkulega búnir, segir í frétta- tilkynningu. Meðal staðalbúnaðar í öllum bílunum er m.a. ABS heml- alæsivörn og loftpúðar fyrir öku- mann og farþega. Sýningartími er frá kl. 13-16 báða dagana og verð- ur einnig boðið upp á reynsluakst- ur. Andlát HAUKUR JACOBSEN LÁTINN er í Reykjavík Haukur Jacobsen kaup- maður. Rak hann um árabil Verslun Egils Jacobsen við Austur- stræti sem faðir hans stofnsetti 1906. Haukur Jacobsen var fæddur 24. apríl 1921 og stundaði alla ævi sína verslunarstörf í verslun föður síns í mið- borg Reykjavíkur, var fæddur í Vonarstræti, starfaði í Austurstræti og bjó þar til síðustu árin við Sóleyjargötu. Móðir hans tók við rekstri verslunarinnar eftir Iát manns síns árið 1926 og síðar tók Haukur við rekstrinum og keypti verslunina. Haukur var meðal stofnenda stofnlána- sjóðs skó- og vefnaðar- vörukaupmanna. Kona Hauks var Inge Liss Jacobsen en hún lést árið 1992. Þau eignuðust þijú börn, Egil tannlæknaprófessor, Öm við- skiptafræðing og Guðrúnu húsmóður. Brutust inn í bóka- safn Kópa- vogs LÖGREGLAN í Kópavogi stöðvaði fyrr í vikunni tvo menn á bíl með þýfí úr inn- broti í Bókasafn Kópavogs. Mennirnir voru handteknir og hafa þeir ásamt tveimur öðr- um mönnum játað á sig inn- brotið. Þeir höfðu stolið tölv- um, myndbandstækjum og fleiru, verðmætum upp á um 600 þúsund kr. Mennirnir höfðu farið tvisv- ar inn í bókasafnið og fyllt tvo bíla með þýfínu. Lögregl- an stöðvaði fyrir tilviljun ann- an bílinn í gærmorgun og sá strax tæki í bílnum og mynd- bandsspólur sem merktar voru bókasafninu. Við eftir- grennslan kom í ljós að þar hafði verið brotist inn. Mennirnir sem játuðu verknaðinn hafa áður verið uppvísir að fíkniefnamisferli og telur lögreglan að þeir fjár- magni fíkniefnakaupin með afbrotum. Athugasemd vegna fréttar FIMMTUDAGINN 8. maí birtist frétt í Mbl. um að skólastjóri hefði gert athuga- semdir vegna próftöku heymarskertra nemenda í stafsetningarhluta sam- ræmda prófsins í íslensku. Af þessu tilefni vill Rann- sóknastofnun uppeldis- og menntamála taka eftirfarandi fram. Vandi heymarlausra og heyrnarskertra er augljós þegar þeir þreyta samræmd próf. Stofnunin hefur í gegn- um árin ítrekað bent á þann valkost að þessir nemendur sleppi þeim þáttum í prófun- um sem reyna á hlustun. Þessi hugmynd hefur ekki fengið hljómgmnn og þess vegna hefur verið reynt að mæta sérþörfum þeirra meðal ann- ars með varalestri í hlustunar- þáttum prófanna. Stofnunin tekur undir þau sjónarmið Berglindar Stefánsdóttur skólastjóra að eðlilegast sé að gera sérstök próf fyrir heymarlausa sem formlega væm talin jafngild samræmd- um prófum. Stofnunin er hér eftir sem hingað til tilbúin að ræða þessi mál við fulltrúa heymarlausra og heyrnar- skertra. Finnbogi Gunnarsson, umsjónarmaður samræmdra prófa. Leiðrétt Rangt heiti skóla ÞAU mistök áttu sér stað við birtingu fréttar sl. fimmtudag um óánægju heyrnarlausra vegna samræmds prófs í ís- lensku, að sagt var að skóla- stjóri Víðistaðaskóla hefði gert athugasemdir vegna prófsins. Þama átti að standa Vesturhlíðarskóli. Era hlutað- eigandi beðnir afsökunar á þessum mistökum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.