Morgunblaðið - 10.05.1997, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 10. MAÍ 1997
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Sífellt fleiri nýta sér þjónustu Heimahlynningar
Tæki keypt fyrir ágóða
af sölu minningarkorta
Morgunblaðið/Kristján
ELÍSABET Hjörleifsdóttir og Sigrún Rúnarsdóttir við
vökvadælur sem gefa næringu og lyf í æð. Sigrún heldur á lyfja-
dælu til verkjalyfjameðferðar.
Messur
AKUREYRARKIRKJA: Guðs-
þjónusta í Akureyrarkirkju kl.
11. Mæðradagur, bjóðið
mömmu með í messu.
HJÁLPRÆÐISHERINN:
Kvöldvaka með veitingum í
kvöld kl. 20.30. Sunnudaga-
skóli kl. 11. Unglingasamkoma
kl. 16. Almenn samkoma kl.
20. Heimilasamband kl. 16 á
mánudag. Gestir á þessum
samkomum verða Ingibjörg
Jónsdóttir og Óskar Jónsson
frá Reykjavík. Allir velkomnir.
HVITASUNNUKIRKJAN:
Almenn samkoma í kvöld, laug-
ardagkvöld, og annaðkvöld,
sunnudagskvöld, kl. 20.00
(Ath. breyttan tíma.) Ræðu-
menn verða Samuel Kaniaki,
sem er forstöðumaður yfir 10
þúsund manna söfnuði í Zaire
í Afríku, og Mike Bellamy for-
stöðumaður, Vinyard kirkjunn-
ar á Keflavíkurflugvelli. Bæna-
stundir mánudags-, miðviku-
dags-, og föstudagsmorgna frá
kl. 6-7. Vonarlínan, sími
462-1210, símsvari allan sólar-
hringinn með orð úr ritning-
unni sem gefa huggun og von.
KAÞÓLSKA KIRKJAN,
Eyrarlandsvegi 26: Messa í
dag, laugardag, kl. 18 og á
morgun, sunnudag, kl. 11.
KFUM og K, Sunnuhlíð:
Bænastund annað kvöld,
sunnudagskvöldið 11. maí kl.
20. Verið velkomin.
Gallerí flytur
GALLERÍIÐ í Sunnuhlíð er
flutt í ný húsakynni við Strand-
götu 19 á Akureyri. Um þessar
mundir reka 15 handverkskon-
ur og tveir handverkskarlar
galleríið.
STARFSEMI Heimahlynningar
hefur vaxið hröðum skrefum á
Akureyri á síðustu árum og sí-
fellt fleiri sjúklingar og aðstand-
endur nýta sér þjónustuna.
Heimahlynning hefur starfað á
Akureyri frá árinu 1992. Það ár
var átta sjúklingum veitt aðstoð
heima, en á síðasta ári voru þeir
tuttugu og sex. Hjúkrunarfræð-
ingarnir Elísabet Hjörleifsdóttir,
Sigrún Rúnarsdóttir og Þóra
Björg Magnúsdóttir stýra starf-
seminni ásamt læknum en auk
þeirra starfa fleiri hjúkrunar-
fræðingar við Heimahlynninguna.
Helsta fjáröflunarleið Heima-
hlynningar er sala minningar-
korta, sem gefin voru til minning-
ar um Bjarna Sigurðsson, prent-
smiðjustjóra á Akureyri, en hann
lést á síðasta ári.
Minningarsjóður nýttur
til tækjakaupa
Minningarsjóðurinn hefur ver-
ið nýttur til kaupa á nauðsynleg-
um tækjum, svo sem vökvadælum
og lyfjadælu. Elíabet segir þessi
tæki dýr og vönduð og hafi verið
afar mikilvægt fyrir Heima- _
hlynninguna að eignast þau. í
gegn um vökvadælu getur sjúkl-
ingurinn fengið næringu og eða
Iyf í æð og þarf því ekki að liggja
á sjúkrahúsi vegna þess. Lyfja-
dælan auðveldar alla verkjameð-
ferð, en um er að ræða lítið tæki
sem hindrar á engan hátt hreyfi-
getu sjúklingsins. Þá hefur
Heimahlynning keypt ýmis
smærri hjúkrunargögn á síðustu
árum fyrir tilstilli minningar-
sjóðsins. Áform eru uppi um að
kaupa á næstunni súrefnissíu,
sem er mikilvægt tæki fyrir
sjúklinga með lungnavandamál.
Elísabet, Sigrún og Þóra eru
sjálfstætt starfandi hjúkrunar-
fræðingar við störf í Heima-
hlynningu en starfa einnig allar
á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur-
eyri. Mikið og gott samstarf hef-
ur frá upphafi verið við starfs-
fólk sjúkrahússins. Beiðni um
þjónustuna getur komið frá
sjúklingi, aðstandendum, lækni
eða öðrum hjúkrunarfræðingum.
Einkum hafa beiðnir tengst
krabbameinssjúklingum, þegar
sjúklingur er ekki lengur í lækn-
ismeðferð en verið er að með-
höndla sjúkdómseinkenni og að-
stoða sjúklinginn að viðhalda sem
FYRSTA skóflustunga að minn-
ingarreit sem verður við austur-
hlið kirkjugarðsins á Akureyri
verður tekin á morgun, sunnudag-
inn 11. maí og hefst athöfnin kl.
16 í Höfða, nýju kapellunni við
kirkjugarðinn. Samhygð, samtök
um sorg og sorgarviðbrögð á Ak-
ureyri og nágrenni hafa lengi haft
það á stefnuskrá sinni að gera
sérstakan minningarreit um
týnda, þá sem hafa farist og ekki
fundist.
Fulltrúar samtakanna hafa oft
fundið fyrir mikilli þörf fólks fyrir
stað þar sem ættingjar geta kom-
ið og kveikt á kerti og lagt blóm
að minnisvarða um hina látnu.
Þeir sem eiga ættingja sem hvíla
annars staðar hafa einnig nefnt
að vanti stað þar sem þeir geti
minnst látins ástvinar.
Helga Aðalgeirsdóttir lands-
Bifreiðastjórar
Hafið bílabænina í
bílnum og orð hennar
hugfost þegar þið akið.
Orottínn Gud. veit mór
vernd þína, og lát mig
minnast ábyrgðar rninnat
er s5g ok þessari bifrcið.
i Jesú nafni. Amen.
L.................Ji
Fæst í Kirkjuhúsinu,
Laugavegi 31,
Jötu, Hátúni 2, Reykjavík,
Hljómveri og Shelistöðinni
v/Hörgárbraut, Akureyri.
Verð kr. 200.
Orð dagsins, Akureyri.
mestum lífsgæðum. Þá hefur fólk
sem er í erfiðri krabbameinsmeð-
ferð eða á við næringarvandamál
að stríða einnig notið þjónustunn-
ar.
Ódýrara og manneskjulegra
Telja þær stöllur að mikilvægt
sé að starfsemi sem Heimahlynn-
ing veitir, þar sem veitt er bak-
vaktarþjónusta allan sólarhring-
inn, verði efld í heilbrigðisþjón-
ustunni, bæði sé hún ódýrari og
einnig manneskjulegri gagnvart
sjúklingnum og hans nánustu en
sjúkrahúsvist.
Minningarkortin eru seld í öll-
um helstu bóka- og blóma-
verslunum á Akureyri, en jafn-
framt hafa líknarfélög styrkt
starfsemina raunsnarlega.
lagsarkitekt hefur gert teikningar
af svæðinu þar sem gert er ráð
fyrir minnisvarða úr stórum steini
í miðju reitsins og 28 minni stein-
um þar sem hægt verður að setja
skilti með nöfnum hinna látnu.
Við athöfn í Höfða verður þeirra
minnst sem týnst hafa og því
næst gengið að minningarreitnum
væntanlega og fyrsta skófl-
ustungan tekin.
Samhygð hefur opnað reikning
til þessa framtaks og er hann I
umsjá sr. Svavars A. Jónssonar
sóknarprests. Reikningurinn er í
Sparisjóði Glæsibæjarhrepps og
er bankanúmerið 1170.
Hross valda
1jóni á lóð
Kjarnalundar
LAUSAGANGA hrossa hefur vald-
ið stórtjóni á lóðinni við Kjama-
lund, húsnæði Náttúrulækningafé-
lags íslands við Kjamaskóg, að
sögn Stefáns Jóhannessonar, vara-
formanns Náttúralækningafélags
Akureyrar og nágrennis.
Stefán sem á jafnframt sæti í
rekstrarstjórn Kjarnalundar segir
að sl. haust hafi verið sáð í hluta
svæðisins en það sé nú allt útspark-
að eftir hross, sem hafi í fjögur
skipti í vor hlaupið yfir svæðið.
„Við unnum við lóðina fyrir
milljónir króna á síðasta ári en það
er ljóst að hér hefur orðið tugþús-
unda króna tjón vegna lausagöngu
hrossa,“ segir Stefán, sem hefur
kært málið til lögreglu.
Erindi um
feður
MÁR V. Magnússon sálfræð-
ingur flytur erindi um feður í
Deiglunni nsætkomandi mánu-
dagskvöld 12. maí kl. 21. Er-
indið er liður í dagskránni
„Karlar um karla“ á vegum
Reynis — ráðgjafarstofu og
jafnréttisnefndar Akureyrar.
í erindinu fjallar Már um
föðurhlutverkið, uppeldisfram-
lag feðra og gildi þess fyrir lífs-
gæði kynslóðanna. Á eftir er-
indinu verða umræður um efnið
og aðgangur að veitingum á
vegum Café Karólínu. Að-
gangseyrir er 500 krónur.
Erindi Ásþórs Ragnarssonar
sálfræðings sem vera á næsta
mánudagskvöld hefur verið
flutt aftast í röðina og verður
27. maí næstkomandi.
Sumarbúðirnar
við Hólavatn
Innritun hafin
INNRITUN í sumarbúðir
KFUM og K við Hólavatn í
Eyjafirði stendur nú yfir. Fer
hún fram í félagsheimilinu í
Sunnuhlíð á mánudögum og
miðvikudögum frákl. 17 til 18.
í sumar verða 5 dvalar-
flokkar á Hólavatni, tveir fyrir
drengi og tveir fyrir stúlkur
og einn unglingaflokkur fyrir
drengi og stúlkur. Sumarbúð-
irnar eru fyrir börn fædd 1989
eða eldri.
Nánari upplýsingar veita
Anna Ingólfsdóttir, Astrid
Hafsteinsdóttir og Jón Odd-
geir Guðmundsson.
Dúkar á
Karólínu
JÓN Laxdal Halldórsson opnar
sýningu á Kaffi Karólínu í dag,
laugardaginn 10. maí. Hann
hefur einungist fengist við svo-
nefnt „collage" klippimyndir og
jafnan leitað fanga í prentuðu
máli, dagblöðum, bókum og
þvíumlíku. Sýningin á Karólínu
er 17. einkasýning hans og er
að mestu handunnir dúkar.
Útskriftar-
sýning Guð-
finnu
GUÐFINNA Guðmundsdóttir
opnar málverkasýningu í
kennslusal Arnar Inga að
Klettagerði 6 á Akureyri á
morgun, sunnudag. Sýningin
stendur aðeins yfir þennan eina
dag, frá kl. 13-18.
Hér er um útskriftarsýningu
að ræða og sýnir Guðfinna af-
rakstur sinn að loknu þriggja
ára námi í Myndlistarskóla
Arnar Inga.
Vortónleikar
VORTÓNLEIKAR yngri nem-
enda Tónlistarskólans verða
haldnir að Hólum, Menntaskól-
anum á Akureyri, kl. 16 á
morgun, sunnudaginn 11. maí.
Fram koma blásarar, strengja-,
píanó-, gítar- og slagverksleik-
arar.
Aglow-fundur
GUÐMUNDUR Ómar Guð-
mundsson verður ræðumaður á
Aglowfundi, Kristilegu félagi
kvenna, sem verður í félags-
miðstöðinni Víðilundi 22 næst-
komandi mánudagskvöld, 12.
maí, kl. 20. Allar konur vel-
komnar.
FORNÁMSDEILD.
Tilgangur fomámsdeildar er að veita nemendum alhliða undirbúningsmenntun í myndlistum.
í deildinni fer fram listrænn og tæknilegur undirbúningur fyrir nám í sárnámsdeildum.
Námstími er eitt ár.
MÁLUNARDEILD.
Nám í málunardeild er þriggja ára sérhæft nám sem veitir
starfsmenntun í frjálsri myndlist. Námstími þrjú ár.
GRAFÍSK HÖNNUN.
í grafískri hönnun er lögð sárstök áhersla á nýja tækni án þess að
missa sjönar á þeim gmnni sem góð hönnun grundvallast á. Námstími þrjú ár.
Myndlistdskólinn á Akureyri
auglysir inntöku nýrra nemenda fyrir skólaárið 1997-98
v
Umsóknarfrestur um skólavist er til 22. maí.
Állar nánari upplýsingar veittar í síma 462 4958
Heimasfðaj http://rvik.ismennt.is/-hvh
Netfang.: myndak®ismennf.is
Myndlistaskólinn á Akureyri Kaupvangsstræti 16 Pósthólf 39 602 Akureyri
Lóðir fyrir iðnað og þjónustu
við Frostagötu
og Fjölnisgötu.
Lausar eru til umsóknar iðnaðar- og þjónustu-
lóðir við Frostagötu 4 og Fjölnisgötu 6.
• Leyft verður að byggja létt hús á lóðunum.
• Leyft verður að byggja hús í áföngum.
• Undirstöður skulu vera forsteyptir niðurreknir
staurar eða súlur sem skal bora fyrir og steypa á
staðnum.
• Greiða skal gatnagerðagjald tengt lóðarveitingu.
• Gatnagerðargjald tengt veitingu byggingaleyfis
verður fellt niður.
• Tengigjöld vatns- og hitaveitu greiðast.
Umsóknum skal skilað til byggingafulltrúa,
Geislagötu 9, fyrir 25. maí 1997.
Fyrsta skófhistunga að
minningarreit um týnda