Morgunblaðið - 10.05.1997, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 10.05.1997, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. MAÍ 1997 15 LAIMDIÐ Tengsl fjöl- miðlamanna við Austfirðinga Vopnafirði - Er tíðindalaust á austurvígsstöðvunum? var yfir- skrift opins málþings sem haldið var í félagsheimilinu Miklagarði á Vopnafirði 2. maí sl. Málþingið var haldið til að efla tengsl flölmiðlamanna við Aust- firðinga, einkum sveitarstajórnar- menn, forsvarsmenn fyrirtækja og stofnana. Tilgangurinn með fund- inum var að fá fjölmiðlamenn til að ræða og leiðbeina þátttakend- um hvernig best er að hátta sam- skiptum við fjölmiðla. Sigríður Dóra Sverrisdóttir setti þingið og héldu eftirtaldir fjölmiðlamenn framsöguerindi, þeir Jón Baldvin Halldórsson frá Ríkisútvarpinu, Heigi H. Jónsson frá Sjónvarpinu, Steinþór Guð- bjartsson frá Morgunblaðinu, Karl Garðarsson frá Stöð 2 og Jón Hákon Magnússon frá KOM (Kynningu og markaði). Fundarstjóri var Vilmundur Gíslason, sveitarstjóri Vopna- fjarðarhrepps. Fundurinn var haldinn á vegum Byggðastofnun- ar, Sambands íslenskra sveitarfé- laga í Austurlandskjördæmi og Vopnafj arðarhrepps. Fjörugar umræður sköpuðust að loknum framsöguerindum og margar fyrirspurnir og forvitni- legar komu fram. Morgunblaðið/Sigrún Oddsdóttir FRÁ málþinginu á Vopnafirði. Góð afkoma hjá gróðrarstöð Barra hf. þriðja árið í röð Geitagerði - Á aðalfundi Barra hf. á Egilsstöðum kom fram í skýrslu stjórnar að hagnaður af rekstri gróðrarstöðvarinnar 1996 nam 1,1 miljón króna sem er um 2,8 milljón- um minna en árið áður, sem skýr- irst af minni sölu og meiri afföllum á plöntum. Helstu viðskiptaaðilar stöðvarinn- ar eru Héraðsskógar með um 1.065.000 plöntur sem skiptist þann- ig: Vorafhending 745.000 plöntur og haustafhending 320.000 plöntur. Landgræðsluskógar: Samtals af- hentar 460.000 plöntur en voru 650.000 árið áður. Sala til einstakl- inga og sveitarfélaga hefur verið að aukast á undanförnum árum. Blómaval í Reykjavík hefur einnig tekið plöntur frá Barra hf. Önnur afhending en til Héraðs- skóga og Landgræðsluskóga nam 135.000 plöntum þannig að heildar- afhending ársins 1996 nam því 1.660.000 plöntum. Helstu tegundir í framleiðslunni eru rússalerki 49%, birki 20% og stafafura 17% en minna af öðrum tegundum. Samdráttur hefur orðið á fram- leiðslu til Héraðsskóga og Land- græðsluskóga á sl. tveimur árum. Munar þar mest um samdrátt til Landgræðsluskóga, eins og fram hefur komið. Barri hefur að einhverju leyti mætt þessum samdrætti með aukinni sölu á öðrum mörkuðum. Þetta hefur kallað á aukna fjölbreytni í ræktun. Nú er því sífellt boðið upp á fleiri GRISJUN plantna hjá Barra hf. nú í vor. Morgunblaðið/Guttormur V. Þormar tegundir og eins algengar tegundir af mismunandi stærð og aldri. Meiri sáning en áður í vor og sumar er áformað að sá í alls 2.755.000 hólf sem er 100% nýting stöðvarinnar í tveimur sán- ingum og jafnframt það mesta til þessa. Fyrri sáningu er nú nýlega lokið. Síðari sáning verður hins veg- ar um miðjan júní. Það verður fjórða árið í röð sem sáð er tveimur upp- skerum í húsið. Greiðslustaða félagsins er góð og er gert ráð fyrir að svo verði áfram. Eigið fé félagsins er bók- fært á 47.325.000 kr. Stjórnin telur að staða Barra sé sterk og möguleikar til sölu góðir. Gæði plantna eru talin mjög mikil og meiri og jafnari en áður, enda stendur þar að baki bæði góð þekk- ing og reynsla. Stjórn Barra var öll endurkjörin en hana skipa: Sveinn Jónson for- maður, Broddi Bjarnason, Guttorm- ur V. Þormar, Jónas Magnússon og Hlynur Halldórsson. Fram- kvæmdastjóri er Jón Kr. Arnarson garðyrkjufræðingur. Laxá í Aðaldal Sílamávur hefur valdið gífurlegu Ijóni á and- arungum Laxamýri - Undanfarin ár hef- ur sílamávur verið að færa sig í aukana á Laxá- og Mývatns- svæðinu og er nú svo komið að margir telja að ekki verði við unað lengur. Á stjórnarfundi Landeig- endafélags Laxár- og Mývatns nýverið var ákveðið að skrifa öllum sveitarstjórum á svæðinu og fara þess á leit að ráðinn verði skotmaður í sumar til þess að vinna á vargnum. Nokkuð hefur verið unnið að fækkum máva á Mývatns- svæðinu en ekki við neðri Laxá. Laxá og Mývatn lúta ákveðnum lögum um vernd lí- fríkisins og framleiða mest allra svæða í Evrópu af and- fugli, sumt sjaldgæfurn teg- undum. Auk þess er ísland bundið af alþjóðlegum sam- þykktum um vernd þessa svæð- is. Auk þess að tína upp andar- ungann sér til fæðis hefur síl- amávurinn aukið mjög sókn sína eftir seiðum á vatnasvæð- inu. Landeigendur telja útilok- að að snúa vörn í sókn nema með samstilltu átaki þar sem allt of lítið hefur verið gert fram að þessu til þess að veij- ast þessum nýja landnema sem heldur sig meðfram ánni allt til Mývatns. Bílvelta á Sauðárkróki Köstuðust útúr bílnum UNGUR ökumaður, sem hafði haft ökuréttindi í tæpa eina viku, velti bíl sínum á Sauðár- króki á þriðjudag. Hann og farþegi í bílnum köstuðust út úr honum. Bílstjórinn fékk að fara heim að lokinni læknis- skoðun en farþeginn var flutt- ur á sjúkrahúsið á Sauðár- króki. Að sögn lögreglu á Sauðár- króki er líklegt talið að öku- maðurinn hafi ætlað að taka fram úr öðrum bíl í beygju syðst í bænum en misst stjórn á honum í lausamöl. Hvorug- ur mannanna var í bílbelti og köstuðust báðir út úr bílnum. Morgunblaðið/Sigurður Gunnarsson FRÁ aðalfundi Kvenfélagasambands austur-skaftfellskra kvenna. Kvenfélag'asamband austur-skaftfellskra kvenna 50 ára Hnappavöllum - Kvenfélagasamband austur-skaftfellskra kvenna er 50 ára á þessu ári. Á aðalfundi sambandsins í Hofgarði í Öræfum var íburður meiri vegna afmælisins og mættu þar marg- ar konur í íslenskum búningum. Eftir fundinn var haldin kvöldvaka þar sem fluttar voru frásagnir, leik- þættir, gamanvísur og fleira efni. Einnig var, í tengslum við fundinn, sett upp sýning á munum er tengd- ust verkum kvenna frá fyrri tíð. Formaður Kvenfélagasambands- ins er Torfhildur Torfadóttir, Gerði í Suðursveit. Nýr ferðamálafulltrúi á Egilsstöðum Egilsstöðum - Stein- unn Ásmundsdóttir hefur verið ráðin ferðamálafulltrúi Fljótsdalshéraðs og Borgarfjarðar eystra. Það eru 11 sveitarfé- lög sem mynda Ferða- málafélagið Forskot en það félag, Ferðam- iðstöð Austurlands og Kaupfélag Héraðsbúa hafa gert með sér samkomulag um ráðningu Steinunnar. Starf ferðamála- fulltrúans verður að reka upplýsingamið- Steinunn Ásmundsdóttir stöð, tjaldvörslu og umferðamiðstöð að sumri til og starfa við hiið starfsmanns FAL á Egilsstöðum, auk þess að sinna verkefn- um fyrir sveitarfélög- in og aðstoða aðila í ferðaþjónustu. Þetta er nýtt fyrirkomulag og starfsumhverfi fyr- ir ferðamálafulltrúa en aðsetur hans og FAL mun flytjast í húsnæði við hlið upp- lýsingamiðstöðvar og tjaldstæðis á Egils- stöðum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.