Morgunblaðið - 10.05.1997, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 10.05.1997, Qupperneq 16
16 LAUGARDAGUR 10. MAÍ 1997 VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ Rekstur verslunar- og þjónustustarfsemi í Flugstöðinni í Keflavík boðinn út Eykur tekjur flugvallar- ins um 110 milljónirá ári REKSTUR á verslunar- og þjón- ustustarfsemi í Leifsstöð verður í höndum einkaaðila frá og með næstu áramótum. Fríhöfnin mun eftir sem áður hafa einkarétt á sölu áfengis, tóbaks og snyrtivara. Með þessum breytingum er þess vænst að tekjur flugvallarstjórnar muni aukast að minnsta kosti um 110 milljónir króna á ári en ríkisstjórnin samþykkti fyrr í vikunni tillögur utanríkisráðherra um aðgerðir til varanlegrar lausnar á fjárhags- vanda Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar sem nemur um 4,2 milljörðum króna en ekkert hefur verið greitt af lánum sem tekin voru vegna byggingar flugstöðvarinnar. Þetta kom meðal annars fram á blaðamannafundi með utanríkisráð- herra í gær þar sem hann kynnti 1. áfanga í áliti nefndar sem ráð- herra skipaði hinn 6. febrúar sl. til að fjalla um málefni Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar. Fram kemur í áliti nefndarinnar að á Keflavíkurflugvelli verði til umtalsverðar tekjur tengdar flug- rekstrinum. Hluti þeirra hefur verið notaður til að mæta rekstrar- og fjár- magnskostnaði við Flugstöðina og hluti hefur runnið til Flugmálaáætl- unar sem markaður tekjustofn. Ann- að hefur runnið í ríkissjóð. Flest árin frá því að flugstöðin var tekin í notk- un hefur sá hluti tekna sem aflað er á flugvellinum og verður eftir hjá flugvallarstjóm ekki nægt til að mæta árlegum rekstrarkostnaði, fjármagnskostnaði og afborgunum af lánum, þrátt fyrir að samnýting flugvallarins með vamarliðinu leiði til þess að tveir af stærstu gjaldalið- um flugvallarrekstrar falli ekki á flugvallarstjóm, þ.e. rekstur og við- hald flugbrauta og brunavamir. Árið 1996 námu tekjur ríkisins af almennri fiugstarfsemi á Kefla- víkurfiugvelli 1708 milljónum króna. Þar af mnnu 627 milljónir króna til rekstrar, afborgana lána og fjármagnskostnaðar flugvallar- stjómar. Hlutur ríkissjóðs og Flug- málaáætlunar nam 1.081 milljón króna á síðasta ári. Að mati nefndarinnar þarf að tryggja flugvallarstjóm a.m.k. 250 milljónir króna í aukið ráðstöfunarfé árlega til að hægt sé að standa við afborganir og fjármagnskostnað vegna Flugstöðvarinnar á 20 ámm. Einkasöluréttur Fríhafnar afnuminn í áföngum Að sögn Halldórs Ásgrímssonar, utanríkisráðherra, verður öllum leigu- samningum við núverandi rekstrarað- ila í Flugstöðinni sagt upp á næst- unni og allt verslunar- og þjónustu- rými fyrir utan Fríhöfn boðið út auk þess sem húsnæði undir þessa starf- semi verður aukið. Um 600 fermetra rými er að ræða á fyrstu og 2 hæð Flugstöðvarinnar. „Með þessum breytingum munum við sjá meiri fyöl- breytni og samkeppni í verslunar- rekstri í Leifsstöð." Áætlað er að leggja komverslunina niður á fyrstu hæðinni og flytja hana upp á 2. hæð. Fríhöfnin má áfram- selja aðrar vömr en þær sem hún hefur einkarétt á sé það ekki í sam- keppni við aðra verslunaraðila að mati flugvallarstjómar. Við val á vörutegundum til sölu í Fríhöfn skal stuðst við útboð og starfsemi hennar taki að öðm leyti mið af samkeppnis- lögum. Nefndin leggur jafnframt til að þessi einkasöluréttur verði afnum- in í áföngum. Að sögn Ólafs Arnar Haraldsson- ar, alþingismanns og formanns nefndarinnar, hafa fulltrúar við- skiptalífsins tekið vel í fyrirhugaðar breytingar og margir aðilar sýnt áhuga á verslunar- og þjónustu- starfsemi í Flugstöðinni en þar em hvorki virðisaukaskattur né vöru- gjöld lögð á vömr þar sem um frí- svæði er að ræða. Morgunblaðið/RAX HALLDÓR Jónatansson, forstjóri Landsvirkjunar og Guðmundur Kr. Tómasson, aðstoðarbankastjóri Norræna fjárfestingarbankans, undirrituðu lánasamninginn í gær. í aftari röð eru Örn Marinósson, framkvæmdasljóri fjármála- og markaðssviðs Landsvirkjunar, og Stefán Pétursson, deildarstjóri sama sviðs. Landsvirkjun tekur 3,570 milljóna lán NORRÆNI fjárfestingarbankinn og Landsvirkjun hafa undirritað samning um 50 milljóna Banda- ríkjadollara lán, eða um 3.570 millj- ónir króna, og er þetta stærsta ein- staka lánið sem Norræni fjárfest- ingarbankinn hefur veitt til Islands, að því er segir í frétt frá Landsvirkj- un. Lánsfénu verður varið til virkjun- arframkvæmda Landsvirkjunar á þessu ári. Lánstíminn er 15 ár og greiðist lánið upp með jöfnum af- borgunum á síðustu fimm ámm lánstímans. Vextir em breytilegir 6 mánaða vextir af dollaralánum á Lundúnamarkaði, LIBOR, en þeir eru nú 6%. Af helmingi lánsfjárins, 25 milljónum dollara, greiðist ekk- ert vaxtaálag, en af hinum helm- ingnum er vaxtaálagið 0,04%. Að þremur til fimm ámm liðnum ber að semja á ný um mynt og vaxta- kjör innan lánstímans. Þingvísitalan lækkar um 0,8% NOKKRAR lækkanir urðu á gengi hlutabréfa í viðskiptum á Verð- bréfaþingi íslands og Opna tilboðs- markaðnum í gær og lækkaði Þing- vísitala hlutabréfa um 0,8%. Er þetta næstmesta Iækkun vísitölunn- ar á einum degi frá áramótum, en samfelld hækkunarhrina hefur sem kunnugt er staðið yfir undanfarnar vikur. Hlutabréfaviðskipti gærdagsins námu samtals liðlega 164 milljón- um króna, en þar af voru seld bréf í Haraldi Böðvarssyni fyrir 37 milljónir, í SÍF fyrir 25 milljónir og Islandsbanka fyrir 19 milljónir. Mestar verðbreytingar urðu á bréf- um SR-mjöls sem lækkuðu um 8,3%, bréf í SÍF lækkuðu um 6,3% og bréf í Haraldi Böðvarssyni um 5,3%. Dæmi voru þó einnig um hækkanir, en gengi bréfa í Slátur- félagi Suðurlands hækkaði um 4,2% og bréf í Eimskip hækkuðu um 1,3%. Tvö ný hlutafélög voru skráð á Verðbréfaþingi í gær, hlutabréfa- sjóðirnir Sjávarútvegssjóður ís- lands hf. og Vaxtarsjóðurinn hf. Skráð félög eru þá orðin 37 talsins og hefur fjölgað um fimm á árinu. Nýtt vikulegt yfirlit V erðbréfaþings Vikulegt yfirlit Verðbréfaþings íslands yfir hlutabréfaviðskipti birtist í fyrsta sinn í Morgunblað- inu í dag á bls. 35 og mun framveg- is birtast á laugardögum ásamt daglegu yfirliti þingsins. Á yfirlitinu koma m.a fram upp- lýsingar um heildarviðskipti í hverri viku, verðbreytingar og heildarveltu utan kerfis Verðbréfa- þings. Þá koma fram helstu kenni- tölur skráðra fyrirtækja á borð við markaðsvirði, V/H-hlutföIl og arð- greiðslur. ■ Verðbréfaþing/35 Hlutafj árútboði SS lokið Hluthafar vildu þriðj- ungi meira HLUTHAFAR í Sláturfélagi Suðurlands hafa keypt öll hlutabréf í útboði félagsins og verður því ekki um að ræða sölu nýs hlutafjár á almennum markaði. Fyrirtækið bauð út bréf að nafnvirði 67,1 milljón á genginu 3,0 þann 22. apríl sl. og lauk forkaupsréttartíma- bili þann 6. maí. Samtals ósk- uðu hluthafar eftir hlutabréf- um að söluverði 270 milljónir í útboðinu eða um þriðjungi meira en var í boði. Tilgangur útboðsins var að styrkja almenna fjárhagsstöðu félagsins, þannig að það yrði betur í stakk búið til arðbærs rekstrar. Umsjón með útboð- inu hafði Kaupþing hf. Félagið áætlar að hagnast um 76 milljónir á þessu ári borið saman við 75 milljóna hagnað árið 1996. Eigið fé félagsins að loknu hlutafjárút- boðinu er kringum 750 milljón- ir og eiginfjárhlutfall um 35%. Innkauparáð- stefna 1997 RÍKISKAUP og Stjórn opin- berra innkaupa halda innkaup- aráðstefnu þriðjudaginn 13. maí á Hótel Loftleiðum. Er þetta í annað sinn sem slík ráðstefna er haldin en fyrri ráðstefnan var haldin í fyrra. Þá voru ráðstefnugestir ein- göngu frá opinberum stofnun- um og -fyrirtækjum en í ár er einkafyrirtækjum boðin þátttaka. Fyrirlesarar á ráðstefnunni eru að þessu sinni 7 talsins, þau Sveinn Hannesson, fram- kvæmdastjóri Samtaka iðnað- arins, Júlíus S. ólafsson, for- stjóri Ríkiskaupa, Halldór Jónsson, framkvæmdastjóri Fjórðungssjúkrahúss Akur- eyrar, Guðlaug Richter, upp- lýsinga- og kynningafulltrúi Staðlaráðs Islands, Skarphéð- inn B. Steinarsson, deildar- stjóri í fjármálaráðuneytinu, Sigurðar Á. Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri BÚR, og Ingi Þ. Hermannsson, fram- kvæmdastjóri EAN samtak- anna á íslandi. Seðlabankastjórí um batnandi gjaldeyrisstöðu Sýnir trú á áfram- haldandi stöðugleika Utflutningsráð og Silfurtún ísamstarf ÚTFLUTNINGSRÁÐ íslands og Silfurtún ehf. hafa gert með sér samkomulag um samstarf á sviði þjónustu og markaðssetningar í Kína. Tilgangur þessa samkomulags er að opna aðgengi fyrir íslensk fyr- irtæki á þjónustu á sviði markaðs- upplýsinga og gera íslenskum fyrir- tækjum auðveldara að hefja mark- aðssetningu afurða og þjónustu í Kína að því er fram kemur í Ut- skoti, fréttabréfi Útflutningsráðs. Eins og fram hefur komið í Morg- unblaðinu þá hefur Silfurtún rekið skrifstofu í Peking í Kína frá því snemma á síðasta ári og veitir Rún- ar Már Sverrisson henni forstöðu. Starfsmenn skrifstofunnar munu aðstoða íslensk fyrirtæki ásamt því að bjóða skrifstofuaðstöðu, auk þess sem möguleiki verður að halda þar fundi, að því er segir í fréttabréfi Útflutningsráðs. HREIN gjaldeyrisstaða Seðla- banka Islands styrktist um rúma 4,3 milljarða króna í aprílmánuði og nam í lok mánaðarins 29,2 millj- örðum króna samanborið við 30,8 milljarða króna í lok síðasta árs. Birgir ísleifur Gunnarsson seðla- bankastjóri segir að þróunin í þess- um málum bendi til þess að það sé almennt ríkjandi trú á áfram- haldandi stöðugleika og að gengi íslensku krónunnar verði stöðugt eftir gerð nýrra kjarasamninga. I apríl jókst gjaldeyrisforði Seðlabankans um 2,9 milljarða króna og erlend skammtímalán lækkuðu um rúmlega 1,4 milljarða króna. Hrein gjaldeyrisstaða bank- ans styrktist þannig um rúma 4,3 milljarða króna. Þá lækkaði heild- areign Seðlabankans í markaðs- skráðum verðbréfum um rúma 6 milljarða króna og er þá miðað við markaðsverð í upphafi og lok mán- aðar. Eign bankans í spariskírtein- um minnkaði um 600 miiljónir króna og ríkisbréfaeign jókst lítil- lega. Ríkisvíxlaeignin lækkaði hins vegar um 5,4 milljarða króna. Þá jókst grunnfé bankans í mánuðin- um um 2,2 milljarða króna og nam í lok aprílmánaðar 19,6 milljörðum króna. Birgir ísleifur Gunnarsson sagði að það væri alveg ljóst að í apríl- mánuði hefði orðið talsvert inn- streymi gjaldeyris, enda hefði gjaldeyrisstaðan batnað og meðal- gengi krónunnar hækkað aðeins. Á þessari þróun væru fleiri en ein skýring. í fyrsta lagi hefðu þær aðhaldsaðgerðir sem bankinn hefði gripið til í haust er leið skilað sér, að minnsta kosti hvað gjaldeyris- straumana snerti og þar spilaði auðvitað vaxtamunur hér og er- lendis hlutverk. í öðru lagi yrði þess greinilega vart að það væri meiri lánsfjárþörf hjá fyrirtækjum og þess vegna hefðu bankar í aukn- um mæli tekið lán erlendis til að endurlána og þar hefði vaxtamun- urinn líka sitt að segja. í þriðja lagi væri árstíðasveifla í útflutn- ingnum um þetta leyti árs og það hefði líka sín áhrif til þess að bæta gjaldeyrisstöðuna.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.