Morgunblaðið - 10.05.1997, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 10.05.1997, Blaðsíða 22
22 LAUGARDAGUR 10. MAÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Marshall P. Adair, varaaðstoðarutanríkísráðherra Bandaríkjanna NATO verður ekki stéttskipt bandalag . ' " ■— .. —.; ...—.—----------------------------------------— " Morgunblaðið/Kristinn MARSHALL P. Adair, varaaðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna. HÉR er um venjulega heim- sókn að ræða, hingað er ég ekki kominn af neinu sérstöku tilefni, heldur til að ræða við embættismenn og leiðtoga um sameiginleg hagsmuna- mál, til að öðlast betri skilning á afstöðu íslendinga tii þeirra. Heim- sóknin er löngu tímabær en við höfum verið mjög uppteknir af mál- efnum Bosníu á undanförnum árum og það hefur gert okkur erfitt um vik að rækta samband okkar við önnur ríki.“ Þannig mælti Marshall P. Adair, varaaðstoðarutanríkisráð- herra Bandaríkjanna í málefnum Evrópu og Kanada, í sam- tali við Morgunblaðið í gær. Adair sagðist hafa rætt um möguleikann á aukinni þátttöku íslend- inga á ýmsum sviðum, t.d. í alþjóðlegum tilraunum til að styrkja efnahags- þróunina og stöðugleika í Eystrasaltsríkjunum. Kvað hann ríkisstjórnina í aðalatriðum hafa sýnt því áhuga. Adair hefur gegnt margvíslegum störfum í bandarísku utanríkisþjón- ustunni frá 1972, f öllum heimsálfum. Hann hefur m.a. starfað í París, Kína, Hong Kong, Búrma og Zaire, en við núverandi starfi tók hann fyrir rúmu hálfu öðru ári. Hann var fyrst spurður um fyrir- hugaða stækkun Atlants- hafsbandalagsins (NATO) og hvort hún yrði peninganna virði. „Því er auðsvarað. Svarið er já. Vegna breyttra aðstæðna í heiminum er stækkunin grundvallaratriði. Að undanfömu hefur banda- lagið, sem er einhver vel- heppnuðustu fjölþjóða- samtök sem nokkra sinni hafa verið stofnuð, í nokk- urs konar aðlögun að stækkun, bæði inn á við og út á við. Það hefur gífurlega mikilvægu hlut- verki að gegna á þessum breytinga- tímum og stendur frammi fyrir þeirri miklu áskoran að endurskapa nýja skipan öryggismála og valda- hlutfalla í Evrópu. Stækkunin er vandasamt verk og öll aðildarríkin taka þátt í þeirri vinnu sem hún út- heimtir. Mér vitanlega hef- ur ekkert þeirra enn sem komið er tekið afstöðu til þess hvaða niður- stöðu leiðtogafundurinn í Madríd í júlí skuli komast að. Bandarísk stjómvöld hafa ekki mótað sér skoð- un á því. Ætlunin er að ákveða þar hvaða ríkjum verður boðið að hefja samninga um hugsanlega aðild, við vitum ekki hversu mörg þau verða. En ríkjahópurinn, sem þar verður ákveðinn og boðin aðild í fyrstu atrennu, verður ekki sá endanlegi. Dymar munu og verða að standa opnar áfram. Stækkunarferlið held- ur áfram um ókomin ár að okkar mati. Á þessu stigi er þó erfítt að móta áætlun um hvað við tekur af fyrstu lotu aðildarsamninga. Líkumar á NATO-aðild hafa ver- ið öllum þeim ríkjum í Mið- og aust- anverðri Evrópu, sem hafa viljað aðild, mjög mikilvæg hvatning og auðveldað þeim að sigrast á erfiðum hindranum, sem þau hafa orðið að yfírstíga til þess að koma í kring nauðsynlegum pólitískum og efna- hagslegum umbótum. Burtséð frá öryggisþættinum líta mörg þessi ríki á NATO-aðild sem mikilvægt tákn um að þau hafí verið tekin að nýju inn í hóp vestrænna ríkja. Þess vegna er það mikilvægt, að um leið og ákvörðun verður tekin í Madríd í júli um hvaða þjóðum verð- ur boðin aðild í fyrstu atrennu, verði jafnframt sýnt fram á, og með þeim hætti að þau treysti orðum okkar, að öðram ríkjum hafi ekki verið úthýst. Og að það borgi sig fyrir þau að halda umbótastarfi sínu áfram. Enginn vafi leikur á því að fjölgun aðildarríkja NATO verður bandalaginu íjár- hagslega mjög kostnaðar- söm. En ástandið í Evrópu yrði býsna raglingslegt síðar meir ef engin stækkun ætti sér stað og yrði mun dýrara að fást við það. Þess vegna er stækkunin útgjaldanna virði.“ - Nú virðast stjómendur Eystra- saltsríkja sannfærðir um að þessi ríki verði skilin eftir, undir hrammi rússneska bjarnarins? „Landfræðileg staða Eystrasalts- ríkjanna gerir stöðu þeirra sér- stæða. Þróun mála þar undanfarin ár hefur verið mjög ánægjuleg. Bandaríkin og önnur vestræn ríki samþykktu aldrei innlimun þeirra í Sovétríkin og styðja tilraunir þeirra til að efla sjálfstæðisþróunina. Að- stoða þær við að efla öryggi sitt, stöðugleika og þróa efnahagslífíð. Vegna viðkvæmrar legu sinnar varða Eystrasaltsríkin mótun nýrrar skipunar öryggismála í Evrópu miklu. Margir telja að þau verði nokkurs konar prófsteinn á hvemig til tekst. Finna verður leið til að allar Evrópuþjóðir geti lifað í sátt og samlyndi, ekki síst svo að Rússar geti þrifíst í friðsamlegri sambúð við önnur Evrópuríki. Staða Eystra- saltsríkjanna ræður þar miklu. Við verðum að finna leið til að koma á eðlilegum samskiptum milli þessara þriggja litlu landa við hinn stóra nágranna sinn, Rússland. í því felst mikil áskoran vegna margskonar viðkvæmni, pólitískrar sem sál- rænnar, milli þessara ríkja. Öllum má ljós vera sú eindregna afstaða okkar, að Eystrasaltsríkin komi fyllilega til greina sem aðilar að NATO. Það er firra að þau hafi verið útilokuð frá aðild, ákvörðun af því tagi hefur ekki verið tekin. Rússar hafa viljað það en þeir fá engu um það ráðið. Spumingin um aðild þeirra er fyrst og fremst spurn- ing um tímasetningu." - Má ekki líta svo á að NATO verði „stéttskipt“ samtök ef kjarna- vopn verða ekki staðsett í nýju aðild- arríkjunum? „Nei, alls ekki. Frá upphafí hefur verið skýrt tekið fram, að enginn dilkadráttur myndi eiga sér stað, ekki yrði um neina annars flokks aðild að ræða. Aðildarríkin hafa öll sömu skyldum að gegna og njóta sömu verndar. Það er ekki talin nein þörf á að staðsetja Iq'amavopn í nýjum aðildarríkjum, aðstæður kreijast þess ekki. En þar með er þó ekki sagt að það verði aldrei gert. Það staðfestir einungis að NATO-ríkin era ekki í hlutverki árásaraðila og það veikir ekki bandalagið þótt kjarnavopn verði ekki staðsett í nýjum aðild- arríkjum. - Bandaríkin hafa lagt aukna áherslu á að efla viðskipti við Mexíkó í gegnum NAFTA-samstarfið og við Asíuríki. Felst í því minnkandi áhersla á viðskipti við Evrópu? „Nei. Það er alrangt að gera því skóna að Evrópa skipti Banda- ríkin minna máli, hvort sem er á sviði stjómmála, viðskipta- eða öryggismála. En viðskipti okkar við Asíu hafa vaxið mun hraðar og endurspegl- ar það fyrst og fremst uppgang og örari hag- vöxt í þeim heims- hluta. Efnahagsleg samskipti okkar við Evrópu standa á göml- um merg. Samskipti okkar við Evrópusam- bandið (ESB) era afar mikilvæg þótt snurða hafi oft hlaupið á þráð- inn. Okkur er áfram um að ESB dafni og það er bjargföst sann- færing okkar að alþjóðaviðskipti verði að vera frjáls og gagnsæ-og kappkosta beri að draga úr við- skiptahömlum fremur en reisa nýj- ar. Af þeirri ástæðu höfum við lagst gegn tilraunum ESB til að setja tálma eða hægja á afnámi hindrana sem fyrir era. Við óttumst slíka þróun í sambandi við hugsanlega aðild Mið-Evrópuríkja að bandalag- inu. Við höfum dæmi um nýjar hömlur í viðskiptum Evr- ópuríkja við Bandaríkin, t.d. í viðskiptum okkar við ísland. Með þeirri ákvörðun að láta reglur ESB um innihaldslýsing- ar á neysluvöram gilda hafa íslensk stjórnvöld sett bandarískum útflytj- endum nýja viðskiptahindran. Það teljum við ranglátt og að forðast beri hömlur af þessu tagi. í húfi er 10 milljóna dollara útflutningur til íslands. Lausnin er að í fyllingu tímans verði gert samkomulag milli ESB og Bandaríkjanna um innihald- slýsingu vörategunda, en það tekur sinn tíma. Fram að því teljum við að íslendingar ættu, hvernig sem þeir kæmu því fyrir í samskiptum sínum við ESB, að gera undantekn- ingu gagnvart viðskiptum við Bandaríkin. Sháh & mát!J |K A S P fl R 0 tf BIMMBLfl Víssir þu aú Bim sem þjanar æ íleiri íy ln nvTil?d RS/STIT ivlmhjnvn n Í? ... Unix talva andli? Fyigstu með einvíginu: RS/6000 http//www.nyherji.is NÝHERJI WWW1 lVÍl(íí‘|l is Sáttum kosningar í Albaníu FRANZ Vranitzky, fulltrúa Öryggis- og samvinnustofnun- ar Evrópu, tókst í gær að fá tíu stjómmálaflokka í Albaníu til að undirrita samkomulag um fyrirkomulag þingkosn- inga, sem fram eiga að fara í landinu í júní. Sagði Vranitzky að um tímamótasamkomulag væri að ræða, þar sem hart hefði verið deilt um málið. Helsti ásteytingarsteinninn hefur verið hvort kjósa eigi hlutfallskosningu eða kjósa fulltrúa í einmenningskjör- dæmum. Ákvörðun verður tek- in á mánudag, 12. maí, en flokkamir hafa fallist á að hlíta henni, hver sem hún verð- ur. Grunuðum morðingja sleppt BELGÍSKA lögreglan sleppti í gær manni sem verið hefur í haldi, grunaður um að hafa myrt sex konur, hlutað líkin í sundur og komið þeim fyrir í plastpokum, sem fundist hafa í borginni Mons að undan- fömu. Ekki var gefin út ákæra á hendur manninum, þar sem ekki tókst að finna nægileg sönnunargögn gegn honum. íhuga veiði- eftirlit í S-íshafi ÁSTRALIR, Frakkar, Nýsjá- lendingar og Suður-Afríku- menn íhuga að koma á lagg- irnar sameiginlegu veiðieftir- liti í Suður-íshafi, að því er norska sjónvarpið hefur eftir talsmanni nýsjálenska utan- ríkisráðuneytisins. Segja sendiherrar Nýja-Sjá- lands og Ástralíu að fjölmörg norsk skip sigli undir henti- fána á svæðinu en þær veiðar hafa verið harðlega gagnrýnd- ar af löndum sem eiga lögsögu í Suður-íshafi, auk þess sem þær era umdeildar heimafyrir. 70 brúð- kaupsgestir farast UM sjötíu manns, sem flestir vora á leið í brúðkaup, fórust þegar rúta, sem fólkið var í, steyptist ofan í gljúfur á Norð- ur-Indlandi á fímmtudags- kvöld. Um níutíu manns vora í bifreiðinni og vora fjölmörg böm á meðal hinna látnu. Israelar láti af pyntingum NEFND Sameinuðu þjóðanna gegn pyntingum, hvatti Isra- ela í gær til að hætta nú þeg- ar að beita ofbeldi við yfir- heyrslur á Palestínumönnum. Segir nefndin ísraela m.a. svipta fangana svefni og hrista þá gróflega en ísraelar hafa vísað þessum ásökunum á bug.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.