Morgunblaðið - 10.05.1997, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
LAUGARDAGUR 10. MAÍ1997 23
Könnun Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur á 10 veitingastöðum
Nýtt
Kælingu matvæla ábóta-
vant á jólahlaðborðum
RÉTT hitameðferð á matvælum á
hlaðborðum var ekki viðhöfð hjá 10
veitingastöðum í könnun Heilbrigð-
iseftirlits Reykjavíkur á aðbúnaði
hlaðborða. Kæld borð virkuðu ekki
á þessum 10 stöðum og var hitastig
kældra matvæla allt upp í 18° en
má mest vera 4°.
Matvælasvið Heilbrigðiseftirlits-
ins kannaði meðferð matvæla á 12
jólahlaðborð á 10 veitingastöðum.
Rögnvaldur Ingólfsson hjá Heil-
brigðiseftirlitinu tjáði Morgunblað-
inu að niðurstöður könnunarinnar
hefðu verið kynntar veitingastöðun-
um, á aðalfundi Sambands veitinga
og gistihúsa og fyrir heilbrigðis-
nefnd Reykjavíkur í síðustu viku.
Kannað var hvort notaður var
búnaður til að halda heitum réttum
heitum og hvemig hann virkaði og
sömuleiðis um kaldan mat, tíminn
sem matvælin stóðu frammi, hvort
krossmengun gæti átt sér stað á
hlaðborðunum, þ.e. hvort hætta
væri á að mismunandi matarteg-
undir gætu borist milli íláta og
hvemig farið væri með matarleifar.
í skýrslu um könnunina segir að
öryggi matvæla á hlaðborðum
byggist aðallega á því að þau verði
ekki fyrir utanaðkomandi mengun
og að þau fái rétta hitameðferð.
Skal halda kældum matvælum við
0-4° hita og heitum við að minnsta
kosti 60°.
Matvælin stóðu mislengi á hlað-
borðunum, 2-2,5 klst. í hádeginu
en 3-5,5 klst. að kvöldinu. Hiti á
kældu matvælunum var á bilinu
14-18°, 5-14° og 3-16° svo dæmi
sé tekið þar sem kælibúnaður var
fyrir hendi en 8-18°, 12-17° og
15-17° þar sem hann var ekki og
virkaði kælibúnaður ekki. Augljósar
ástæður fyrir því em nefndar í
skýrslunni, svo sem að dúkar vom
í sumum tilvikum á kæliplötum,
brúnir vom ekki nægilega háar á
borðum til að kalt loft héldist yfir
matvælunum og segir að þar sem
búnaðurinn virkaði ekki komi ekki
fram munur á hita á matvælunum
hvort sem kælibúnaður var fyrir
hendi eða ekki. Talið er óviðunandi
að bera fram kalda rétti á hlaðborði
án þess að hafa kælibúnað.
Þá virkaði hitabúnaður matvæla
ekki nema í 5 tilvikum af 12. Þar
sem búnaðurinn virkaði var hitastig-
ið á bilinu 50-90° en þar sem hann
virkaði ekki mátti sjá tölur eins og
24-47°, 39-55° og 47-63°. Leifum
köldum mat af hlaðborðunum var
fleygt í 5 tilvikum en af 7 borðum
var metið hvort þær teldust neyslu-
hæfar. Segir í niðurstöðum skýrsl-
unnar að leifum ætti undantekn-
ingalaust á fleygja leiki einhver
vafi á gæðum að borðhaldi loknu
svo sem að kæling hafí ekki verið
næg. Þá segir að eigi að nýta leifar
af heitum mat sé mikilvægt að
kæla hann eins hratt og kostur er
í 0-4° að borðhaldi loknu og hita
hann upp undir suðu áður
en hann er borinn
fram á
Litir fyrir
listamenn
HAFINN er innflutningur á
frönskum litum til myndsköpunar.
Litirnir eru til dæmis ætlaðir leik-
skólum, grunnskólum, dagmæðr-
um og skólaskjólum. Meðal litanna
eru Redimix þekjulitir. Þeir eru
eiturfríir og henta vel fyrir börn.
l fréttatilkynningu frá
Ólínu Geirsdóttur, sem
flytur vöruna inn, segir
að vörurnar uppfylli
Evrópustaðal yfir liti.
Verður opnuð sérstök
verslun í ágúst með
vöru eins og þessari til
listsköpunar. Fram að
því selur Ólína vörurnar á
Vatnsendabletti 25.
Handbók með reglugerð um snyrtivörur
Öðravísi Sesar salat
Snyrtivörur eiga að vera
með innihaldslýsingu
ALLAR snyrtivörur eiga að vera
ítarlega merktar á íslensku, ensku
eða Norðurlandamáli. Á umbúðum
er skylt að hafa tæmandi inni-
haldslýsingu og ber að tiltaka inni-
haldsefni í röð eftir minnkandi
magni.
Þetta kemur fram í nýrri reglu-
gerð nr 690/1994 um snyrtivörur
sem nýlega var gefin út í handbók
á vegum Hollustuverndar ríkisins.
í reglugerðinni sem er í sam-
ræmi við tilskipanir Evrópubanda-
lagsins um snyrtivörur kemur fram
að koma þurfi fram á umbúðum
nafn og heimilisfang framleiðanda,
innflytjanda eða umboðsaðila, net-
tómagn vöru og fyrningardagsetn-
ing fyrir vörur með geymsluþol
minna en þtjú ár.
- Eru flestar snyrtivörur með
geymsluþol minna en þrjú ár?
„Ekki flestar en til dæmis er
algengt að feit krem og áburðir
hafi takmarkað geymsluþol," segja
þær Bryndís Skúladóttir og Sigur-
björg Gísladóttir hjá Hollustuvernd
ríkisins. Þær segja að upplýsingar
um öll innihaldsefni snyrtivöru
þurfi að koma fram á umbúðum
snyrtivara þar sem ekki er óal-
gengt að fólk hafi ofnæmi fyrir
ákveðnum efnum sem eru kannski
í litlum styrk í vörunni.
- Nú eru ýmsar snyrtivöruteg-
undir ekki merktar með innihalds-
lýsingu. Verður því fylgt eftir að
innflytjendur merki vörumar?
„Já. Heilbrigðiseftirlit sveitarfé-
laga (HES) hefur þegar byrjað að
skoða þessa vöruflokka og nú þeg-
ar handbókin er komin út verður
þessu máli fylgt eftir með kynn-
ingu og eftirliti.
Innlendir framleiðendur og inn-
flytjendur eru ábyrgir fyrir því að
snyrtivörur hér á markaði séu í
samræmi við ákvæði reglugerðar-
innar. Eftirlit með þessum mála-
Morgunblaðið/Ásdís
ALGENGT
er að feit
krem og
áburðir hafi
takmarkað
geymsluþol.
flokki er í höndum Heilbrigðiseftir-
lits sveitarfélaga og Hollustu-
verndar ríkisins.“
- Geta neytendur hjálpað til við
aðhald?
„Já, það er einmitt mikilvægt
að þeir séu vakandi í þessu sam-
bandi og hafi samband við HES
ef þeir rekast á vanmerktar vör-
ur,“ segir Sigurbjörg.
Ef snyrtivörur eru merkingar-
skyldar samkvæmt reglugerð um
flokkun, merkingu og meðferð eit-
urefna og hættulegra efna, skal
einnig merkja vöruna í samræmi
við þá reglugerð. Þetta á til dæm-
is við um úðabrúsa sem innihalda
eldfim efni.
Handbókin er fáanleg án endur-
gjalds hjá Heilbrigðiseftirliti sveit-
arfélaga og hjá Hollustuvernd rík-
isins.
f vikunni birtum við uppskrift
að svokölluðu Sesar-salati
(Caesar) fyrir lesanda sem
hafði áhuga á að prófa að búa
það til. í framhaldi hafði annar
lesandi samband og sagðist
yfirleitt gera salatið öðruvísi.
Hér kemur hans útgáfa af
salatinu. Hún er öðruvísi að
því leyti að ediki er sleppt en
majones kemur í staðinn og
ekkert egg er í þessari
uppskrift.
1 marið hvítlauksrif
3 msk. majónes
_______3 msk. grænmetisolio_______
_________1 msk. sítrónusafi_______
_______2 tsk. Worcestersósa_______
___________salt og pipgr__________
‘Atsk. sykur
1 stór salathaus eins og iceberg
eða annað gott og ferskt salat
ansjósur eftir smekk og ef vill
slatti af brauðteningum tilbúnum
eða steiktum í hvítlaukssmjöri
50 g rifinn parmesan ostur
Gott að hafa rækjur eða humar í
staðinn fyrir ansjósur
Búið fyrst til salatsósu með
því að setja saman hvítlaukinn,
majones, olíu, sítrónusafa,
Worchestersósu og smá salt og
pipar. Þeytið þessa blöndu vel
saman.
Þá er komið að salatinu.
Tætið salatið niður í skál og
setjið síðan ofaná ansjósur og
brauðmola. Parmesan ostinum
er stráð yfir og að lokum er
sósunni hellt yfir. ■
WKUR!!!
Goípurer kröftugur drykkur sem býr yfir
miklu og hressandi ávaxtabragði og er ríkur
að kalki og C-vítamíni. Uppistaðan er mysa
en í henni eru öll helstu bætiefni mjólkurinnar.
Garpurer góður á íþróttaæfinguna,
í skólann, fjallið, bíltúrinn og bústaðinn.
FAÐU ÞER EINN - DAGLEGA