Morgunblaðið - 10.05.1997, Side 33

Morgunblaðið - 10.05.1997, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. MAÍ 1997 33 elur íi sínu Mótmælt er hugmyndum um að deildarforsetar, deildarráðsmenn eða aðrir sem gegni stjórnunarstöðum í deildum verði ekki kjörgengir í há- skólaráð, því með því myndu rofna bein tengsl deilda og háskólaráðs. Þegar vísað sé til tillagna þróunar- nefndar Hásakólans um fækkun í háskólaráði úr 16 manns í 10 beri að hafa í huga að þær tillögur lýsi ekki sjónarmiðum Háskóla íslands nema að takmörkuðu leyti. Sjónar- mið um stjórnskipulag fyrirtækis, en ekki háskólasamfélags, hafi ráðið þar för. Innan háskólans séu annars veg- ar uppi óskir um að fjölga í ráðinu, svo oddvitar allra kennslugreina geti átt þar fulltrúa og hins vegar óskir um fámennari stjórn, sem afgreitt geti tiltekin sameiginleg mál. Þessi sjónarmið megi sameina með því að innan háskólaráðs verði kjörin sér- stök framkvæmdastjórn. Mikil andstaða er innan háskóla- ráðs við ákvæði um að menntamála- ráðherra skipi rektor og bent á að rektor hafi frá upphafi verið kjörinn af háskólasamfélaginu og prófessor- ar einir verið kjörgengir. Þá gerir Háskólinn athugasemd við ákvæði um að sá sem gegnt hafí stöðu rekt- ors í fimm ár eigi ekki kost á að sækja um starfið að nýju og telur þau rök hæpin, að óæskilegt sé að visindamenn verji of löngum tíma til rektorsstarfa frá vísindastörfum þar sem þekking þeirra og þjálfun nýtist sem best. Háskólinn vill halda því sjálfstæði, sem hann hefur ávallt haft, að rektor sé kjörinn. „Þeirri auknu ábyrgð sem fylgir auknum mannaforráðum og meira fijálsræði um ráðstöfun íjárveitinga má hæg- lega fylgja eftir í samningum sem háskólinn og menntamálaráðherra gera sín á milli. Að þessu leyti vill háskólinn njóta svipaðs sjálfsforræðis og ríkisstyrktir einkaháskólar munu njóta, samkvæmt frumvarpinu." í umsögninni segir háskólaráð enn fremur, að með því að rektor yrði skipaður af menntamálaráðherra yrði hann að formi til undirmaður hans, enda þótt ráðherra geti þann einn skipað sem háskólaráð tilnefni. Þetta rýri sjálfstæði rektors og háskólans. „Háskólinn er samfélag (ekki fyrir- tæki) sem kýs sér leiðtoga með lýð- ræðislegum hætti. Leiðtoginn (rekt- or) hefur af þeim sökum sérstaka stöðu innan háskólans; hann er leið- togi alls háskólasamfélagsins," segir í umsögninni. Stúdentaráð tekur undir mótmæli háskólaráðs um skipun rektors og lýsir sig andvígt hugmyndum um að ráðherra skipi tvo fulltrúa í háskóla- ráð, þar sem hættan verði ávallt sú að þessir fulltrúar verði pólitískt skip- aðir. Hins vegar hefur Stúdentaráð einnig áhyggjur af að frumvarpið ------- opni fyrir þann möguleika óli kýs að Háskóli íslands taki upp Qa rneð skólagjöld og viðbótarinn- ij I tökuskilyrði við stúdents- , ..j próf eða sambærilegt nám laeitl 0g segir að ef hindra eigi "■™“““ aðgang stúdenta með ein- hverjum hætti að æðri menntun við Háskóla Islands þá sé það kollvörpun á þeirri menntastefnu sem hingað til hafi verið við lýði á íslandi og ein- kennist af jöfnum tækifærum til náms, óháð búsetu og íjárhag. Sigríður Anna Þórðardóttir, for- maður menntamálanefndar, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að skólarnir vildu svigrúm til að skoða málið betur og nefndin hefði orðið við því, en stefndi að því að málið yrði afgreitt fyrir áramót. „Skólarnir kalla allir eftir rammalöggjöf um háskóla og ég tel þetta vera gott frumvarp, þótt auðvitað séu skiptar skoðanir um einstök atriði, enda skól- arnir ólíkir.“ ÞEIM, sem til þekkja, kemur saman um að Vín iði af lífi sem aldr- ei fyrr frá því að keisaradæmið leið undir lok og athafnalífið hafi styrkzt verulega á seinni árum. En breytingunum fylgir óvissa og öryggisleysi fyrir marga. Ringluð þjóð í hringiðu breytinga Andstaða Austurríkismanna yið aðild lands síns að Evrópusambandinu hefur aldrei veríð meirí. Ólafur Þ. Stephensen var í Vín og kynnti sér ástæðumar. AF ERLENDUM VETTVANGI EF GENGIÐ væri til kosn- inga um aðild Austurríkis að Evrópusambandinu nú myndi mikill meirihluti landsmanna, eða 62%, greiða at- kvæði á móti. Óánægja með aðildina að ESB hefur aldrei verið meiri í Austurríki frá því Iandið gekk í sam- bandið í ársbyrjun 1995. Þetta er niðurstaða skoðanakönnunar, sem gerð var í Austurríki í byijun mán- aðarins. Um 36% landsmanna segj- ast myndu styðja aðild að ESB, en 2% eru óákveðin. Tölurnar hafa nánast snúizt við frá því í þjóðaratkvæðagreiðslunni um ESB-aðild árið 1994, en þá sam- þykktu 66% kjósenda aðildarsamn- inginn. Almenningur virðist hafa snúizt gegn stefnu samsteypu- stjórnar tveggja stærstu flokkanna, Þjóðarflokksins (ÖVP) og Jafnaðar- mannaflokksins (SPÖ), en stjórnin styður áframhaldandi samruna inn- an ESB, stefnir á aðild að Efna- hags- og myntbandalagi Evrópu (EMU) og styður stækkun Evrópu- sambandsins til austurs. Of miklu lofað Wolfgang Petritsch, nýskipaður sendiherra Austurríkis í Júgóslavíu, stjórnaði baráttu stuðningsmanna aðildar fyrir þjóðaratkvæðagreiðsl- una. „Dagana fyrir kosningar viss- um við ekki hvort svarið yrði já eða nei,“ segir hann. „Síðan kom í ljós að allt óákveðna fólkið snerist á sveif með okkur. Einhvers konar evró-æði greip um sig, meirihluti þjóðarinnar var óskaplega ánægður með að vera orðinn hluti af Evrópu og bjóst við að uppskera miklar hagsbætur þegar í stað. Þetta var auðvitað óraunsætt, við erum rétt að byija langa veru í ESB og getum ekki búizt við árangri strax á fyrstu dögunum.“ Stuðningsmenn aðildar höfðu heitið því að hagur meðalneytand- ans myndi batna um 1.000 schill- inga á mánuði, eða um 6.000 ís- lenzkar krónur, við inngönguna í ESB. Það gekk ekki beinlínis eftir. Fritz Breuss, hagfræðiprófessor við Rannsóknastofnun Evrópumála í Viðskiptaháskólanum í Vín, bendir á að vissulega hafi verð á ýmsum vörum, einkum landbúnaðarafurð- um, lækkað þegar í stað en önnur áhrif á efnahagslífið séu ekki jafn- sýnileg. Það hafi þó verið reiknað út að á árunum 1995-2000 verði hagvöxtur í Austurríki tæplega 3% meiri en hann hefði verið ef lands- menn hefðu látið sér samninginn um Evrópskt efnahagssvæði nægja. Um sjötiu milljarðar króna hafi sparazt vegna þess að eftirlit með vörum á landamærum sé úr sögunni. Þá megi bú- ast við að samkeppni og skilvirkni í efnahagslífinu aukist og austurrísk fyr- irtæki verði í betri að- stöðu til að nýta sér hagkvæmni stærðarinnar. Hins vegar er Austurríki ríkt land og sem slíkt greiðir það meira í sjóði ESB en það fær til baka. Af þeim sökum jókst fjárlagahallinn úr 4% af landsframleiðslu árið 1994 í 5,9% á síðasta ári. Til að standast inn- tökuskilyrði í EMU hefur ríkis- stjórnin þurft að grípa til þess að skera niður 100 milljónir schillinga árin 1996 og 1997. Þannig á að koma hallanum í minna en 3% af VLF. Breuss segir að margir hafi fundið fyrir þessum niðurskurði, ekki sízt opinberir starfsmenn. Óvissa um framtíðina En Austurríkismönnum finnst ekki aðeins þeir hafa fengið færri skildinga í vasann en lofað var. „Hér ríkir almenn óvissa um fram- tíðina,“ segir Georg Hoffman-Ost- enhof, utanríkismálaritstjóri stjórn- málatímaritsins Profil. „Einu sinni var Austurríki í útjaðri hinnar sögu- legu þróunar. Við lifðum rólegu, letilegu sveitalífi í útjaðri Vestur- Evrópu. Allt í einu erum við í miðju breytinganna í Evrópu. Austur-Evr- ópa hefur opnazt, við erum gengin í Evrópusambandið og stöndum frammi fyrir nýrri samkeppni af þeim sökum. Fólk er ringlað." Hoffman-Ostenhof segir að Aust- urríkismenn séu íhaldssamir að hugarfari og hreyfanleiki í samfé- laginu hafi til þessa ekki verið mjög mikill. Margir hafi brugðizt við breytingunum með daðri við öfga- hægristefnu. Frelsisflokkur þjóð- ernissinnans Jörgs Haider er orðinn öflugasti stjórnarandstöðuflokkur- inn, með yfir 20% atkvæða. Frelsisflokkurinn, sem eitt sinn var hlynntur aðild Austur- ríkis að ESB, hefur nú snúið við blaðinu. And- stæðingar flokksins segja að sú stefnubreyting sé einvörðungu til að krækja í atkvæði. Herbert Scheibner, einn af forystumönnum flokksins, segir að flokkurinn hafi aldrei verið á móti samrunaþróun í Evrópu og hafi verið fyrstur til að hvetja til þess að Austurríki tæki þátt í henni. Hins vegar séu Frelsisflokksmenn ekki hrifnir af þeirri stefnu, sem Evrópusambandið hafi tekið. „ESB er alltof miðstýrt og skrifræðis- legt,“ segir Scheibner. Ótti við austurstækkun Frelsisflokkurinn hefur meðal annars alið á ótta almennings, ekki sízt verkamanna, um að stækkun ESB til austurs muni hafa í för með sér að verkamenn frá Austur-Evr- ópu streymi til landsins og taki af þeim vinnuna. „Aherzlan á austurs- tækkunina er eitt dæmið um ranga stefnu ESB. Þetta er nánast von- laust verkefni vegna efnahags- ástandsins þar eystra,“ segir Scheibner. Aðrir leggja þó áherzlu á þau tækifæri fyrir viðskiptalífið, sem felast í stækkun til austurs. Nú þegar hafa mörg vestræn fyrirtæki komið sér fyrir í Vín til að tryggja sér aðgang að mörkuðum í Austur- Evrópu og austur-evrópsk fyrir- tæki, sem hafa tekið sér bólfestu í borginni, eru ennþá fleiri. Austur- rísk stjórnvöld eru mjög fylgjandi stækkuninni og flestir sérfræðingar eru sammála um að a.m.k. aðild nágrannaríkjanna Tékklands, Slóv- akíu, Ungveijalands og Slóveníu yrði jákvæð fyrir Austurríki. Þegar Pólland er nefnt eru menn hins veg- ar síður upprifnir, þar sem aðild þess myndi þýða að ríkt land á borð við Austurriki myndi þurfa að greiða háar fjárhæðir til að styrkja pólskan landbúnað. Sérfræðingarnir eru sömuleiðis sammála um að mikilvægasta röksemd- in fyrir stækkun til aust- urs, út frá austurrískum hagsmunum, sé sú sem kannski eigi minnstan hljómgrunn meðal al- mennings vegna þess að erfitt sé að umreikna hana yfir í skildinga í vasa. Hún er að ESB-aðild Austur- Evrópuríkjanna muni hraða umbót- um, styrkja lýðræðið í sessi og þar með gera þennan heimshluta örugg- ari. „Við getum þurft að greiða eitt- hvert verð fyrir pólitískan stöðug- leika,“ segir Fritz Breuss. Hann bendir jafnframt . á að sú sam- keppni, sem Austur-Evrópuríkin veiti nú löndum vestar í álfunni, hefði komið til burtséð frá því hvort Austurríki væri í Evrópusamband- inu eða ekki. Fólk blandi þessu hins vegar gjarnan saman. ESB kennt um breytingarnar Wolfgang Petritsch segir að fleiri dæmi séu um að fólk kenni Evrópu- sambandinu um allt, sem því þyki fara miður. Aðildin að ESB komi til á sama tíma og gífurlegar breyt- ingar séu að verða í austurrísku efnahagslífi og þjóðfélagi. Austur- ríki hafi verið á markalínunni milli austurs og vesturs. Ríkisvaldið hafi tekið sér stórt hlutverk í efnahags- lífinu eftir seinna stríð, mikil áherzla hafi verið lögð á þjóðarsátt vinnuveitenda og launþega og samfélagið hafi að mörgu leyti ver- ið lokað og hægfara. Þrátt fyrir efnahagslega velgengni hafi marg- ar greinar atvinnulífsins verið staðnaðar. Breytt staða í alþjóða- málum, nútímavæðing efnahagslífs- ins, einkavæðing og aukin sam- keppni - allt komi þetta fólki á óvart, það finni til öryggisleysis og kenni nú Evrópusambandinu um. Reyndar viðurkennir Petritsch að austurrískir stjórnmála- og embætt- ismenn geti að sumu leyti sjálfum sér um kennt. Þeir hafí ekki verið vanir því að taka mikið frumkvæði í gamla kerfinu; yfirleitt hafi þeir verið að framkvæma það, sem aðil- ar vinnumarkaðarins hafi verið bún- ir að semja um sín á milli. „Stjórn- sýslan var ekki vön því að gerðar væru kröfur til hennar um sköp- unargáfu. Það vilja menn hins vegar í Brussel. Þar er beðið um lausnir. Nú fara austurrískir embættismenn til Brussel og sitja og bíða eftir að fá lausnirnar upp í hendurnar. Nið- urstaðan verður sú að það eru lausn- ir framkvæmdastjórnarinnar í Brussel, sem verða ofan á og austur- rískum almenningi finnst að honum sé stjórnað að utan,“ segir Petritsch. Óttast um schillinginn Margir benda sömuleiðis á að það hafi ekki verið fyrr en eftir 1945 að Austurríkismönnum hafi tekizt að þróa sína eigin þjóðarvitund - fram að því hafi þeir litið á sig sem Þjóðveija. Hluti af hinni austurrísku sjálfsmynd sé einmitt hið sérstaka þjóðfélags- og efnahagskerfi, sem nú taki örum breytingum. Þar af leiðandi finnist mörgum þjóðarvit- undinni ógnað. Stór hluti af því er- lenda fjármagni, sem nú er fjárfest í Austurríki, er einmitt þýzkur og ýmsir óttast að aðildin að ESB hafi aukið áhrif Þjóðveija í landinu. Austurríkismenn eiga það hins vegar einmitt sameiginlegt með Þjóðveijum að vera stoltir af gjald- miðlinum sínum. Austurríski schill- ingurinn hefur verið einn af stöðug- ustu gjaldmiðlunum í Evrópu - enda hefur hann lengi verið tengdur við þýzka markið. Margir, ekki sízt eldra fólk, tengja gjaldmiðilsbreytingar við óðaverðbólgu og gengisfellingar fyrr á öldinni. Þetta endurspeglast í því að helmingur svarenda í áðurnefndri skoðanakönnun segist andvígur að- ild Austurríkis að evrópsku mynt- bandalagi og að schillingurinn víki fyrir evróinu. Aðeins 21% styður EMU-aðild, en 28% segjast óákveðin. Ríkisstjórnin hefur fram til þessa ekki viljað ræða EMU-málið mikið, en margir telja að það verði nú ekki umflúið öllu lengur. Stjórnmála- mennirnir verði að útskýra fyrir al- menningi hvers vegna það sé hag- fellt fyrir Austurríki að taka upp sameiginlegan gjaldmiðil og útrýma ýmiss konar misskilningi, á borð við að EMU-aðild muni leiða til þess að sparnaður al- mennings rýrni. Megin- röksemd ríkisstjómarinnar fyrir ágæti EMU er að sameiginlegur gjaldmiðill komi í veg fyrir að ríki, sem ekki búa við sama gengisstöðug- leika og Austurríki, geti lækkað verðið á útflutningi sínum með geng- isfellingum og þannig skotizt fram úr í samkeppninni. Evrópa mun horfa til Vínar Þótt mörgum Austurríkismönnum þyki ef til vill óþægilegt að hafa sogazt inn í hina evrópsku hringiðu á nýjan leik eftir friðsæld áranna eftir stríð, finnst sumum hin nýja staða Austurríkis spennandi og jafn- vel á vissan hátt afturhvarf til glæstrar fortíðar. Seinni hluta næsta árs verður Austurríki í forsæti ráð- herraráðs ESB og fær þannig tæki- færi til að móta stefnu sambandsins. Alexis Wintoniak, þingmaður ÖVP, segir fullur -eftirvæntingar: „Rétt eins og á Vínarfundinum 1815 mun öll Evrópa horfa til Vínar á ný.“ Allt f einu í miðju breyt- inganna Áhyggjur af áhrifum Þjóðverja

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.