Morgunblaðið - 10.05.1997, Síða 41

Morgunblaðið - 10.05.1997, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR LAUGARDAGUR 10. MAÍ1997 41 + Unnur Björg Gunnlaugsdóttir fæddist á Seyðis- firði 19. ágúst 1917. Hún andaðist á Sjúkrahúsi Reykja- víkur 1. maí síðast- liðinn. Foreldrar hennar voru Gunn- laugur Jóhannes- son, f. 3. apríl 1884, d. 22. des. 1964, og Sigurlaug Björns- dóttir, f. 25. júlí 1884, d. 20. des. 1964. Unnur giftist 31. maí 1942 Magnúsi Guðmunds- syni, f. 31. maí 1912, d. 9. ágúst 1990. Þau bjuggu mestallan sinn búskap á Reyðarfirði, lengst af í Odda. Árið 1990 fiuttu þau í þjónustuíbúð á Eg- ilsstöðum. Börn Unnar og Magnúsar eru: 1) Þórunn Aðal- björg, f. 4.6.1943, maki Kristján Gissurarson. Barn hennar: Aldurhnigin heiðurskona hefur kvatt okkur. Andlát hennar kom máske ekki á óvart, svo alvarlegan sjúkdóm sem hún átti við að stríða, en ekki óraði okkur hjónin fyrir því að svo skammt væri eftir af ágætri lífsgöngu þegar fundum bar síðast saman. Við áttum hana Unni að einstaklega góðum granna um ijölda ára og þar gilti ekki að garð- ar væru grannasættir svo ljómandi góð sem öll samskipti voru við þessa hressu og hispurslausu konu, sem hvergi lá þó á meiningu sinni, enda ákveðin í öllum skoðunum. Unnur var traust kona góðrar gerðar og trú sínu hlutverki í lífinu sem hún rækti í hvívetna af Heiðrún Ósk Sigfúsdóttir, f. 27.11. 1979. 2) Yngvi Guðmundur, f. 11.6. 1945, fyrr- verandi maki Ragn- heiður Haraldsdótt- ir. Börn þeirra: Sig- rún Unnur, f. 23.3. 1969. Sonur hennar Viktor Halldór, f. 8.9. 1992; Kristjana Hrönn, f. 18.4.1970, d. 15.10. 1974, og Drífa, f. 22.3. 1978. 3) Helgi Þröstur, f. 9.9. 1947, maki Gunnþóra Guðmundsdóttir. Börn þeirra: Magnús Guðmund- ur, f. 18.7. 1983, og Þóra Lind, f. 14.1.1985. 4) Harpa Jónsdótt- ir, fósturdóttir þeirra, f. 16.8. 1963. Barn hennar: Unnur Reg- ína Gunnarsdóttir, f. 23.9. 1992. Utför Unnar fer fram frá Reyðarfjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. samvizkusemi og eðlislægri kapp- semi. Þar fór kona hinnar hljóðlátu annar hversdagsins sem af alúð lagði haga og hlýja hönd að hvetju einu því sem sinna þurfti. Hróður slíkra fer oft ekki hátt en dýrmæti þeirra fyrir samfélagið er ótvírætt og gott er það að hafa lokið dags- verki sínu með þeim sóma sem Unnur svo sannarlega gerði. Hún Unnur var Austfirðingur og meginhluta ævi sinnar bjó hún á Reyðarfirði, var þar hinn trúi þegn, móðir og húsmóðir helzt og fyrst, þó víðar væri tekið til hendi af þeim röskleika sem hana einkenndi alla tíð. Hún var glaðsinna kona með bjart bros, gerðarieg kona og myndvirk hið bezta, enda bar heimili þeirra hjóna hagleika og snyrtimennsku húsmóðurinnar hið ágætasta vitni. Þau hjón höfðu bóksölu á hendi um árafjöld og hvenær sem komið var þar að dyrum og um afgreiðslu beð- ið, var manni tekið eins og aufúsu- gesti með ljúfu brosi og glöðu geði. Aldrei mætti maður öðru en hlýju viðmóti húsmóðurinnar, þó oftast væri að öðrum önnum starfað og ónæði vissulega að komumanni. Það var alltaf jafngott að sækja hana heim, hún var félagslynd og ræðin, skýr og einörð í öllum svör- um, einlæg og einbeitt ræddi hún málin og jafnan brá fyrir góðri glettni, öll hennar orðræða þannig að gott var lagt til mála. Unnur var mikil heimilismanneskja og börn hennar sem uppeldisdóttir báru góðri móður fagurt vitni. Umhyggja hennar og ástúð gagnvart þeim öll- um leyndu sér ekki. Magnús, eigin- maður Unnar, sem er látinn fyrir nokkrum árum, var hinn greindi atorkumaður, sem víða kom vel við sögu og átti eins og kona hans mæta lífsgöngu. Lífslán þeirra var fólgið í farsælu uppeldi ágætlegra gerðra bama, sem hafa reynzt þekkir þjóðfélags- þegnar. Að kveðjustund er komið og hug- ur okkar Hönnu leitar til liðinna stunda í nágrenni við góðá konu sem gjöful var á bros sín og hlýtt hugar- þel. Við sendum börnum hennar öll- um fjórum okkar einlægustu samúð- arkveðjur sem og öðrum aðstand- endum. Eystra lágu leiðir hennar, eystra er hún til hinztu hvílu borin í aðdraganda vermandi vors og sól- ríks sumars. Á mæta minningu bregður ljúfum ljóma. Hlý fer þökk okkar hjóna að hinzta beði. Unnur átti einlæga trúarvissu sem aldrei sló fölskva á. Megi hún allra góðra nægta njóta í ljóssins löndum. Blessuð sé björt minning. Helgi Seljan. UNNUR B. GUNNLA UGSDÓTTIR + Sigurður Freyr Pálsson var fæddur 26. desem- ber 1986. Hann lést í Kong í Danmörku 24. apríl síðastlið-' inn. Hann var sonur hjónanna Sigrúnar Fanndal Sigurðar- dóttur, leikskóla- kennara, og Páls Kristins Sigmunds- sonar, rekstrar- fræðings. Hann ólst upp ásamt bróður sínum, Páli Axel, sem er tveimur árum yngri, með foreldrum sín- um, fyrst í Kópavogi, en síðar í Borgarfirði, um tíma í Borgar- nesi, er faðir hans stundaði nám í Samvinnuháskólanum að Bi- fröst, en síðar í Reykholtsdal þar sem móðir hans veitti for- stöðu leikskóla sveitarinnar og faðir hans vann bókhaldsstörf. Haustið 1995 fiutti fjölskyldan til Danmerkur og settist að í Glamsbjerg á Fjóni. Utför Sigurðar fór fram frá Fossvogskirkju 2. maí. Enn erum við minnt á hið ör- skamma bil sem greinir líf frá dauða, hið stutta örstigna fótmál sem skilur heimana tvo. Skyndilegt slys sker líftaug ungs drengs, klipp- ir sundur hamingjuþráð foreldra, bróður, ættingja og vina hér á landi og erlendis. Á þeim árum er fjölskyldan átti heima hér í Borgarfirði urðum við þeirrar ánægju aðnjótandi að fá að gæta þeirra bræðra stöku sinnum er foreldrarnir þurftu að vera fjar- verandi. Þessar stundir eru okkur ríkar í minni. Margt var að gera, skreppa þurfti smástund niður í kjallara í boltaleik, hlaupið var upp á tank að fá útsýn yfir heiminn og þó að gamla tölvan byði ekki upp á fjöl- breytni var hún dyggi- lega nýtt, en það var líka stundum gott að kúra í „afastól" eða sófanum og hlusta á sögu eða bara spjalla svolítið og þegar þeir hittu frændsystkinin á Hvassafelli var svo sannarlega brugðið á glaðan leik. Sigurður Freyr var ekki allra. Hann vildi vera viss að hann gæti treyst þeim sem hann batt tryggðir við, en þegar það gerðist var vinátt- an traust og einlæg. Hann var rösk- ur drengur sem naut þess að reyna á afl sitt og getu og náði góðum árangri í íþróttum, einkum þó í sundi, en hann var líka íhugull og nokkuð dulur og dró sig stundum í hlé til þess að geta verið einn með hugsanir sínar. Fyrir einu og hálfu ári flutti fjöl- skyldan til Danmerkur. Þeim var þar öllum einstaklega vel tekið og urðu fljótlega hluti þess mannlífs sem þar er lifað, lærðu að laga sig að því og féllu inn í það með sama hætti og verið hafði hér heima. Sig- urður tók virkan þátt í félagslífi og íþróttum, einkum í knattspyrnu og naut sín vel - en þá gerist þetta. Það er erfitt fyrir okkur dauðlega menn með takmarkaðan skilning á lögmálum himins og heims að skilja og sætta okkur við það sem orðið er. Hið eina sem við getum er að treysta ráðsályktun þess Guðs sem gefur líf og tekur, að bak við þetta búi ákveðinn tilgangur, til þess ætlaður að stuðla að meiri og betri þroska okkar allra, bæði þeirra sem hér syrgja og sakna og hans sem burtu var kallaður. Án þeirrar trúar eru sorgin og söknuðurinn óbæri- leg. Þegar við hugsum til Sigurðar Freys, sem var okkur svo kær, á þeim ókunnu slóðum sem hann nú gistir, birtist í huganum mynd hans, sem með sínu bjarta, fallega brosi og skæru rödd gleður hugi og hjörtu þeirra sem þarfnast gleði og hugg- unar á sama hátt og hann bar gleði inn í líf okkar sem með honum áttu samvistir hér í heimi. Guð blessi okkur öllum minningu drengsins góða og gefi ástvinum hans öllum er harmur hefur svo sárlega slegið huggun og styrk á erfiðum stundum. Eygló og Snorri, Borgarnesi. Hann Sigurður Freyr er dáinn. Hann bjó í Reykholti í Borgarfirði á bæ sem heitir Litli-Hvammur. Hann var bekkjarbróðir okkar í rúmlega þijú ár eða þar til hann flutti til Danmerkur með fjölskyldu sinni. Eftir það hélt hann sambandi við nokkra skólafélagana með bréfaskriftum. Hann var mikill íþróttamaður, sérstaklega í sundi. Hann var mjög spenntur að fá að fara til Danmerkur. Þegar hann flutti þangað komum við bekkjar- systkinin saman og kvöddum hann með sælgæti og öðru tilheyrandi. Okkur finnst óréttlátt að hann skyldi deyja svona ungur, aðeins tíu ára. Við samhryggjumst fjölskyldu hans og biðjum Guð að styrkja hana í þessari miklu sorg. Við vitum að hann er ávallt meðal okkar. Kveðja frá bekkjarsystkinum úr Kleppjárnsreykjaskóla. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveld- ust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslu- kerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfaslma 5691115, eða á netfang þess þess Mbl@centrum.is en nánari upp- lýsingar þar um má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínu- bil og hæfilega línuleng — eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. SIGURÐUR FREYR PÁLSSON + PÁLLÞÓRÐARSON, Egilsbraut 9, Þoriákshöfn, andaðist á Landspítalanum að morgni 8. maí. Aðstandendur. Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir og amma, GUÐRÚN SIGURÐARDÓTTIR, Jörundarholti 150, Akranesi, verður jarðsungin frá Akraneskirkju mánu- daginn 12. maí kl. 14.00. Gísli Pálsson, Kristín Gísladóttir, Baldur Gíslason, Erla Gísladóttir, Gísli Arnar Baldursson, Jón Sævar Baldursson, Guðrún Sesselja Baldursdóttir. + Faðir okkar og tengdafaðir, JÓHANNESJÓHANNSSON kaupmaður, lést á Droplaugarstöðum í Reykjavík fimmtu- daginn 8. maí. Guðrún Jóhannesdóttir, Skúli Þór Magnússon, Óskar Jóhannesson, Bergþóra Sigurbjörnsdóttir, Helga Jóhannesdóttir, Valdimar Þórðarsson og fjölskyldur. + Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, RÓSA GUÐNADÓTTIR, Kirkjuvegi 11, Keflavík, er látin. Jarðarförin verður auglýst síðar. Guðbjörn Guðmundsson, Guðný Guðbjörnsdóttir, Gisli Pálsson, Guðmundur Guðbjörnsson, Guðveig Sigurðardóttir, Björn Herbert Guðbjörnsson, Ingunn Ósk Ingvarsdóttir, Róbert Þór Guðbjörnsson, Guðbjörg Jónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Faðir okkar, tengdafaðir og afi, HAUKUR JACOBSEN, Efstaleiti 12, Reykjavík, andaðist á Sjúkrahúsi Reykjavíkur fimmtu- daginn 8. maí. Jarðarförin verður auglýst síðar. Egill L. Jacobsen, Guðrún E. Jacobsen, Örn H. Jacobsen, tengdabörn og barnabörn. + Eiginmaður minn og faðir okkar, ELÍAS SIGFÚSSON frá Vestmannaeyjum, Dalbraut 18, Reykjavfk, lést á sjúkradeild Hrafnistu miðvikudaginn 7. maí. Guðfinna Einarsdóttir, Erna Elíasdóttir, Sigurbergur Hávarðsson, Einar Elíasson, Sigfús Þór Elíasson. A- C

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.