Morgunblaðið - 10.05.1997, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 10.05.1997, Qupperneq 42
42 LAUGARDAGUR 10. MAÍ 1997 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ -> . * Móðir okkar, stjúpmóðir og amma, SIGRÍÐUR ÞÓRÐARDÓTTIR fyrrum húsfreyja á Refsstað í Vopnafirði, andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 8. maí. Svava Pálsdóttir, Víglundur Pálsson, Þórður Pálsson, Björn Pálsson, Ásgerður Pálsdóttir, Guðlaug Pálsdóttir, Gunnar Pálsson, Erlingur Pálsson, barnabörn, tengdabörn og barnabarnabörn. + Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ANNA KAREN KRISTENSEN, áður til heimlis á Kópavogsbraut 16, sem andaðist á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund fimmtudaginn 1. maí, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju mánudaginn 12. maí kl. 13.30. Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Krabbameinsfélagið. Sigurður Jónsson, Sigurlaug Rafnsdóttir, Gisli Steinar Jónsson, Hjördís Svavarsdóttir, Anna Jóna Árnadóttir, John Bertil Mártenssen, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og hlýju við andlát og útför föður míns, tengdaföður og afa, HALLGRÍMS HANSSONAR, húsasmíðameistara, Skaftahlíð 9, Reykjavík. Jónas T. Hallgrímsson, Ásdís Haraldsdóttir, Hallgrímur Jónasson, Ólafur Steinn Jónasson, Viktoría Jónasdóttir, Ágústa Jónasdóttir, Agnes Jónasdóttir. + Okkar innilegustu þakkir fyrir veitta aðstoð, skilning og auðsýnda samúð vegna veikinda og fráfalls föður okkar og tengdaföður, JÓHANNS SIGURÐSSONAR frá Ljótsstöðum 2. Margrét Jóhannsdóttir, Haraldur Siggeirsson, Sigurborg Jóhannsdóttir, Albert Jakobsson, Sigrún Jóhannsdóttir. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vin- arhug við andlát og útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu, GUÐMUNDU LAUFEYJAR HARALDSDÓTTUR frá Hellissandi, Kirkjuvegi 9, Hafnarfirði. Jóhann Long Ingibergsson, börn, tengdabörn og barnabörn. + Innilegar þakkir til allra þeirra, er sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og útför elskulegr- ar eiginkonu minnar, móður okkar, tengda- móður og ömmu, JÓHÖNNU BJARGAR SIGURÐARDÓTTUR, Steinsholti, Gnúpverjahreppi. Loftur Eiríksson, Gunnar Örn Marteinsson, Eiríkur Loftsson, Stefanía Birna Jónsdóttir, Sigurður Loftsson, Sigríður Björk Gylfadóttir, Daði Viðar Loftsson, Bente Hansen, Lilja Loftsdóttir, Guðni Árnason, Sigþrúður Loftsdóttir og barnabörn. + Jónas Teitur Guðlaugsson fæddist í Reykjavík 28. maí 1928. Hann lést á heimili sínu 30. apríl síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Guðlaugur Guðmundsson, bryti, fæddur 1. mars 1899, dáinn 5. ágúst 1967, og Sig- urlín Valgerður Jónasdóttir, fædd 31. október 1901, dáin 23. janúar 1957. Bræður Jónasar voru Jónas Teitur, fæddur 12. október 1926, dáinn 12. apríl 1927, Ósk- ar, fæddur 31. janúar 1931, dáinn 18. desember 1984, eftir- lifandi kona Óskars er Dýrleif Jónína Tryggvadóttir. Jónas var ógiftur og barn- laus. Jónas verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu föstudaginn 9. maí og hefst athöfnin klukkan 15. Fyrstu kynni mín af frænda mín- um Jónasi, voru, þegar eg, ásamt frænku minni, heimsótti frændfólkið, er þá bjó innarlega á Njálsgötunni. Víst man eg glögg- lega, hversu hrifinn eg var af þvi margvislega barnagulli, er J>eir bræður, Jónas og Osk- ar, áttu. Þangað var gaman að koma, enda áttum við að fagna góðum móttökum hjá Sigurlín frænku vorri. Árin liðu, en sam- skiptin voru eigi mjög mikil framan af. En því er nú einu sinni á þann veg farið, að tíminn líð- ur fram, líkt og árstraumur, áin straumharða grefur undan, og hrífur með sér ýmislegt, er hún ber með sér og færir fram til sjávar. Eins streymir og rennur elfur tímans, eilíflega áfram - og hrífur með sér ýmislegt sem öðrum er kært. Fyrst hreif straumurinn eilífi með sér Sigurlín, næst Guðlaug, þá Ósk- ar, bróður Jónasar, og núna seinast Jónas sjálfan - og færði í hafið endalausa. Ugglaust hafði móðurmissirinn fyrst, og því næst föðurmissirinn mikil og djúptæk áhrif á Jónas frænda minn, enda fór hann nú oft- ar að sækja okkur heim frændfólk sitt. Oft heimsótti hann móðursystur mína, náfrænku sína, á meðan hún ' lifði, - en einnig hún hvarf í hafið { endalausa - þangað sem við raunar öll rötum að lokum. Á fyrstu búskaparárum mínum var hann tíður jólagestur okkar hjóna. En tímarnir breytast, þá og hagir, og fundum vor Jónasar fór fækkandi, því miður, e.t.v.' um of fækkandi, hin seinustu ár.' Jónas var mikill grúskari og góður | ættfræðingur, og sannaðist það í góðum blaðagreinum. Hann var eins og margir aðrir, { einfari og það mikill. Að vera ein- fari er eigi gott og því miður eru þeir of margir einfararnir. Að vísu ræddi Jónas aldrei við mig um sínar dýpstu og innilegustu tilfinningar, en það þykist eg vita, að ugglaust hefir honum eigi ávallt vel liðið, og hin síðustu ár átti hann við veikindi að stríða, og þrúgandi ^ einsemd. Nú þegar horft er yfir tímans 1 haf, festast augun við ýmislegt sem ( mjög hefði mátt á betri veg fara. Þannig er það ávallt og þannig var um samskipti vor Jónasar. En það sem er liðið er liðið og tjáir eigi lengur um að tala. Genginn er drengur og nú er hans einfaragöngu lokið, og hinzta kveðj- an ein eftir. Hugurinn staldrar nú við heitustu stundir horfinnar tíðar. Eg kveð frænda minn og færi honum þökk 1 fyrir þær stundir - og óskir um birtu | á eilífðarlöndum. Blessuð sé minning Jónasar. Björn G. Eiríksson. JONAS TEITUR GUÐLA UGSSON FANNAR ÞORLÁKUR SVERRISSON + Fannar Þorlákur Sverris- son fæddist í Reykjavík 29. nóvember 1968. Hann lést af slysforum 5. apríl síðastliðinn og fór útför hans fram frá Víd- alínskirkju í Garðabæ 22. apríl. Er sárasta sorg okkur mætir og söknuður huga vom grætir þá líður sem leiftur af skýjum Ijósgeisli af minningum híýjum. (H.I.H.) Vorið er í nánd og með vorkomu fylltumst við bjartsýni á að allt yrði betra með hækkandi sól. Því miður, elsku Fannar, auðnaðist þér ekki að fagna vorinu með okkur og það er svo erfitt að hugsa fram í tímann og sjá bara fyrir sér tómarúm. Það var svo gott að hafa þig. Þú varst yndislegur, ungur maður, kurteis og prúður, hafðir þínar skoðanir sem þú aldrei reyndir að troða upp á aðra. Það eru svo óteljandi minning- ar sem sækja á hugann þegar ég hugsa um þig, elsku sonur minn. I fyrsta svifflugið með pabba þínum fórst þú þriggja ára gamall og sat ég þá með þig í fanginu í aftursæt- inu og frá þeim tíma átti flugið hug þinn allan. Sumarfríin á sólarströnd- um með ykkur systkinin, þið bræð- urnir á ströndinni grafandi hvor annan í sandinn, sumarbústaðaferðir á haustin, tínandi ber og spilað lúdó fram á nætur. Þetta eru yndislegar minningar og svo margar minningar leita á hugann. Eg er stolt móðir að hafa átt þig. Þú hefur fært mér þann skilning á lífínu að dýrmæt- asta eignin er kærleikur, virðing og trú en ekki eingöngu veraldlegur uppgangur. Hafðu þakkir fyrir allt, elsku Fannar. Minningin um elskað- an son mun lifa í hjarta mínu. Þín, mamma. + Kæru vinir nær og fjær. Ykkar stuðningur var okkar styrkur á erfiðum tímum. Gott er að eiga góðs að minnast um JÓN HALLDÓR HANNESSON, Hjarðarbóli, Ölfusi. Guðrún Andrésdóttir, Andrés Ingi Jónsson, Hannes Bjartmar Jónsson, Einar Pétur Jónsson og aðrir ástvinir. + Þökkum auðsýnda samúð vegna fráfalls RÖGNU JÓNSDÓTTUR, Laugartúni 19, Svalbarðseyri. Friðrika Jónsdóttir, Ragna Erlingsdóttir Anna Jónsdóttir, og fjölskylda. Ingibjörg Þorsteinsdóttir, Ferdinand Jónsson, Sólveig Jónsdóttir, Kristfn Jónsdóttir og fjölskyldur. Elsku bróðir. Aldrei óraði mig fyrir að við myndum eiga svona stutta samleið í þessu lífí. Sumarið að nálgast og svifflugið að hefjast. Nokkrum dög- um áður en þú lagðir í þessa ferð vorum við að ræða að nú færir þú að fljúga með litla nafna þinn þann- ig að þetta héldi áfram næstu kyn- slóð á eftir okkur. Við ólumst upp á Sandskeiðinu öll sumur og vorum álíka mikið í loftinu sem á jörðu niðri. Þetta varð þitt líf frá fyrstu stundu og varstu nú á leið til Pól- lands að fljúga. Þú hafðir ekki áhuga á að starfa við atvinnuflug, vildir leika þér í loftinu og hafðir þú ferð- ast víða um að læra listflug. Verald- legir hlutir skiptu þig engu máli. Þú tjáðir þig ekki mikið, en gleðin skein úr augum þínum þegar ég bað þig að verða guðfaðir sonar míns og enn meira hissa varðst þú þegar þú heyrðir í kirkjunni að hann væri líka nafni þinn. Ég var sjö ára þegar þú fæddist og þvílík hamingja að eign- ast lítinn bróður. í mínum augum varst þú fallegasta og besta barn sem fæðst hafði. Á veturna stunduð- um við skauta og skíði með pabba. Alltaf var hann tilbúinn að fara með okkur út í náttúruna sem þú unnir svo mjög. Elsku bróðir, erfitt er til þess að hugsa að halda lífínu áfram án þín, ég átti eftir að segja þér svo margt. En ég veit það að þú átt eftir að vera hjá okkur T. Fannari og passa upp á okkur. Og mín trú er sú að þúi eigir eftir að taka á móti mér þegar ég flyst á næsta stig. Minning- una um yndislegan bróður hulinn birtu og hlýju mun ég ávallt geyma í hjarta mínu. Þín elskandi systir, Margrét Sverrisdóttir. Ég losnað hefi jarðarfjötrum frá, í frelsi kannað leiðir himingeims, mót sólu klifrað, klofið loftin blá og komist inn í föpuð æðri heims. Ég dansað hef við sólsprengd skúraský sem skinu eins og þúsund lita glóð, og gert svo margt sem enginn skilur í og aldrei fyrri dreymdi nokkra þjóð. Ég svifíð hefí, sveiflast, hvoifst og steypst og svifíð aftur hærra og lengra en fyrr, mér allif vegir lífsins hafa leyfst í ljóssins riki opnar hveijar dyr. (O.G.H.) Ég þakka fyrir að hafa fengið að kynnast þér, elsku frændi minn. Þinn, Theodór Fannar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.