Morgunblaðið - 10.05.1997, Qupperneq 50
50 LAUGARDAGUR 10. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Grettir
Ljóska
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Er sjómannadag-
urinn tímaskekkja?
Frá Georg Magnússyni:
NÚ LÍÐUR að árlegum lög-
skipuðum frídegi sjómanna. Öll
íslensk skip skulu vera lögum
samkvæmt í höfn. Nú er það svo
að útgerð fiskiskipa hefur ger-
breyst síðan ákveðið var að halda
þennan frídag.
Sótt er á fjarlæg mið og má
þar nefna Reykjaneshrygg og
Flæmingjagrunn.
Að mínu mati er það alger fá-
sinna að ætla að stefna úthafs-
veiðiskipum í land til þess að
halda uppá sjómannadaginn.
Þetta eru langar siglingar t.d. af
Reykjaneshrygg rúmur sólar-
hringur aðra leiðina og síðan
landstoppið, þannig að reikna má
með því að það fari allt að fjórir
sólarhringar í þetta frí. Hafa ber
í huga að þetta er sá tími sem
einna mest er veiðivon á úthafs-
karfa þannig að um verulega
tekjuskerðingu getur verið að
ræða þar sem menn eru launa-
lausir þann tíma sem fríferðin
tekur.
Fyrir okkur sem byggjum af-
komu á úthafsveiðum er lög-
skipaður frídagur orðinn tíma-
skekkja sem þarf að lagfæra.
Með þessu er ég ekki að leggja
til að frídagur sjómanna verði
lagður niður, heldur það að það
verður að vera hægt að hliðra til
þannig að skip t.d. í hálfnaðri
veiðiferð þurfi ekki að hætta veið-
um til þess eins að glata dýrmæt-
um tíma. Það er útilokað annað
en hægt verði að semja um svona
atriði í stað þess að útgerðir
hundsi frídaginn algerlega og
greiða síðan einhveija sekt eftir
á, eins og reynslan sýnir.
Það getur ekki orðið annað en
allra hagur að þessu verði breytt.
Að lokum vil ég minna á að sjó-
mannadagurinn er frídagur sjó-
manna sem þýðir að þeir eiga að
vera í fríi. Samkvæmt því eiga
sjómenn ekki að fara með fólk í
skemmtisiglingar á sjómannadag-
inn eins og tíðkast hefur verulega
lengi. En því miður hefur sjó-
mannadagsráðum og nefndum
um land allt þótt það alveg sjálf-
sagt að óska eftir því við sjómenn
á þessum degi, sem er helgaður
sjómönnum.
Fyrir utan það að oft á tíðum
eru síðan nánast allar öryggiskr-
öfur þverbrotnar hvað varðar
fjölda fólks um borð í skipunum
sem fara þessar skemmtiferðir.
Reykjaneshrygg, 6. maí,
GEORG MAGNUSSON,
úthafsveiðiskipinu Sigli SI 250.
er borgið! Hann er að komast á
fætur! Hann er að þurrka af sér
rykið... Af hverju?
Er Guð í Görðum?
Frá Önnu Jóhönnu
Guðmundsdóttur og
Önnu Guðrúnu Hugadóttur:
í TILEFNI af orðum sr. Kristjáns
Björnssonar á Hvammstanga í
Morgunblaðinu 1. maí sl. vilja
undirritaðar, Anna Jóhanna Guð-
mundsdóttir og Anna Guðrún
Hugadóttir, kjörmenn í Garða-
sókn, taka fram eftirfarandi.
Við hörmum þá stöðu sem upp
er komin í prestakallinu varðandi
væntanlegar prestskosningar. Við
gengum til kjörmannakosningar
með þeim ásetningi að sætta okk-
ur við þá niðurstöðu sem út úr
kosningunni kæmi og starfa af
heilum hug með þeim presti sem
kosningu hlyti. Það voru því mikil
vonbrigði þegar hluti sóknar-
nefndar Garðasóknar lýsti því yfir
strax að loknum kjörfundi að „þar
sem þessi niðurstaða hefði orðið“
yrði gengið í að safna undirskrift-
um til að knýja fram almenna
prestskosningu. Við lýstum þá
strax yfír mikilli andstöðu okkar
við þessi áform og töldum að hlut-
verki sóknarnefndar við val á
presti væri lokið um leið og úrslit
kjörmannakosningar lægju fyrir.
Aðrir voru ekki sama sinnis og
því fór sem fór. Við teljum að með
slíkum vinnubrögðum sé verið að
skaða einingu og starfsfrið í kirkj-
unni.
Þá höfum við orðið varar við
mikla óánægju meðal bæjarbúa
með framkvæmd undirskriftasöfn-
unarinnar. Yfirlýst markmið var
að verið væri að vinna undir merkj-
um lýðræðis, en í ljós kom að þarna
var um hóp stuðningsmanna eins
umsækjanda að ræða og finnst
því mörgum að þeir hafi skrifað
undir á fölskum forsendum. Mest
óánægja hefur þó komið fram með
að forsvarsmenn söfnunarinnar
fóru í Fjölbrautaskólann í
Garðabæ og báðu nemendur að
skrifa undir án þess að þeir fengju
tækifæri til að ráðfæra sig við
vandamenn sína.
Að lokum viljum við taka fram
að við teljum orð sr. Kristjáns
Björnssonar eiga við rök að styðj-
ast þar sem hann segir: „Þessi
framganga tiltölulega lítils hóps
innan sóknarnefndar Garðasóknar
hefur orðið til þess að nú virðist
stefna í óefni innan prestakalls-
ins.“ Að okkar mati eru þau vinnu-
brögð sem þessi hópur hefur við-
haft óeðlileg og mjög gagnrýni-
verð.
Sendendur eru kjörmenn í
Garðasókn:
ANNA JÓHANNA
GUÐMUNDSDÓTTIR,
Hrísholti 13, 210 Garðabæ.
ANNA GUÐRÚN HUGADÓTTIR,
Holtsbúð 89, 210 Garðabæ.
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG:
MBL@CENTRUM.IS / Áskriftargjald 1.700 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 125 kr. eintakið.