Morgunblaðið - 10.05.1997, Síða 61
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 10. MAÍ1997 61
M YN DBOIM D/KVIKM YN Dl R/UTVARP-S JON V ARP
Sérvitur gamanmynd
Eyöimerkurtunglsýki
(Mojave Moon)_____________
Gamanmynd
★ ★'/2
Framieiðandi: Matt Salinger. Leik-
stjóri: Kevin Dowling. Handritshöf-
undur: Leonard Glasser. Kvik-
myndataka: James Glennon. Tón-
list: Johnny Caruso. Aðalhlutverk:
Danny Aiello, Anne Archer, Alfred
Molina, Michael Biehn, Angela Jo-
ilie, Jack Noseworthy. 95mín.
Bandaríkin. Bergvík 1997. Útgáfu-
dagur: 22. apríl. Myndin er bönnuð
börnum innan 12 ára.
DANNY Aiello leikur bílasalann
A1 McCord, sem er nýskilinn og
nýfluttur til Los Angeles. McCord
er ekki alveg viss
hvort honum líki
þetta nýja heim-
ili, en það breytist
allt þegar ung
kynbomba (Ang-
ela Joile) blikkar
hann á veitinga-
stað. Áður en
hann getur sagt
„grái fiðringur-
inn“, hefur A1 skutlað stúlkunni inn
í miðja eyðimörkina, orðið ástfang-
inn að móður hennar (Anne Archer
með Monroe-hreim), uppgötvað lík
í farangursgeymslunni á bílnum,
og lent í miðjum skotbardaga.
Þetta er einkar ánægjuleg lítil
mynd, þar sem áherslan er á sér-
viskulegar persónur og skemmti-
lega skrifað handrit. Allir leikaram-
ir standa sig vel og þá sérstaklega
Michael Biehn (Terminator, Aliens)
sem hinn klikkaði kærasti móður-
innar, og Jack Noseworthy, sem er
hinn einfeldningslegi kærasti dótt-
urinnar. Helsti galli myndarinnar
er að hún vill oft fara yfir strikið í
að gera umgjörð sína sem sér-
stakasta og sérviskulegasta, en
besta dæmið um það er skotbardag-
inn, sem er eins og útúr súrrealísk-
um vestra, einnig fór hinn fyrsti
persónu sögumaður Aiellos í taug-
amar á mér, þrátt fýrir að hann
komi aðeins fram í byijun myndar-
innar. Annars hafði ég afskaplega
gaman af myndinni og mæli með
henni.
Ottó Geir Borg
LAUGARDAGSMYNDIR SJONVARPSSTOÐVANNA
Sjónvarpið ►21.05 Af þeim
! aragrúa mynda sem Ameríkanar
hafa gert um unglinga sína,
hvolpaástir þeirra, uppreisnir,
1 uppáhaldsmúsík, uppáferðir og,
1 að lokum, lágmarksþroska, þá er
: Fjör í æðum (Fast Times At
Ridgemont High, 1982) í hópi
þeirra skástu. Innihaldið er ofan-
talið en myndin er fyndin og fersk
ef ekki frumleg. Sean Penn er
fyrirtaks dóphaus og í úrvals leik-
araliði eru m.a. Jennifer Jason
Leigh, Judge Reinhold o.m.fl.
Pmmraun leikstjórans Amy Hec-
kerling og leikaranna Erics Stolz,
Forests Whitaker, Anthony Edw-
ards og Nicolas Cage. ★ ★ ★
Sjónvarpið ►22.35 Seinni hluti
skrímslatryllisins Skrímslið (The
Beast, 1996).
Stöð 2 ► 15 .00 Náungi nokkur
hyggst ná betri tökum á kvenþjóð-
inni með aðstoð ævafoms töfra-
hrings en breytist í staðinn í hund
í gamanmyndinni Lubbi (Shaggy
Dog, 1994), endurgerð vinsællar
Disnéy-myndar frá 1959. Um-
sagnir liggja ekki fýrir en Dennis
Dugan leikstýrir Ed Begley jr. í
aðalhlutverkinu.
Stöð 2 ^21.05 - Sjá umfjöllun
til hliðar.
Stöð 2 ►23.25 James Gamer
hefur alltaf verið með skemmti-
; iegri leikumm og hann fær eitt
sitt bitastæðasta hlutverk í seinni
i tíð í sannsögulegu sjónvarps-
myndinni Villimenn við dymar
i (Barbarians At The Gate,
1993). Hann leikur F. Ross John-
son, stjómanda risafyrirtækisins
RJR-Nabisco sem tekst á við slótt-
uga íjárfesta sem hyggjast ná af
honum fyrirtækinu. Aðrirgóðir
. leikarar em Jonathan Pryce, Peter
Riegert og Joanna Cassidy. Leik-
stjóri Glenn Jordan. ★ ★ ★
Kínahverfið
í okkur öllum
NÚ verðurgaman. Kínahverfið
(Chinatown, 1974, Stöð 2, 21.05)
er komin í flokk sígildra saka-
málamynda og er þar áreiðanlega
í fremstu röð, trúlega ein af fímm
bestu frá upphafí kvikmynda-
gerðar. Jack Nicholson er óað-
finnanlegur sem einkaspæjarinn
J.J. Gittes sem rambar af spori
hefðbundinnar framhjáhalds-
rannsóknar inná afar flókna en
velfléttaða spennuslóð, þar sem
spilling einstaklinga og samfé-
lags, siðferðileg og pólitísk, em
eitt. Ef grannt er skoðað fjallar
myndin ekki aðeins um tilurð Los
Angeles heldur nútímaþjóðfélags.
En hún fjallar ekki síður um hyl-
dýpin í mannshuganum. Handrit
Roberts Towne er þannig marg-
slungið meistaraverk, enda Ósk-
arsverðlaunað og fyrirmynd
margra slíkra, og leikstjóm Ro-
mans Polanski er pottþétt. Hið
heita andrúmsloft, mettað þurrki
og svita til skiptis, er laðað fram
í töku, leikmynd og tónlist. Faye
Jack Nicholson sem J.J. Gitt-
es eftir tilræði við nef hans,
en það er leikstjórinn Ro-
man Polanski sem leikur tdl-
ræðismanninn.
Dunaway og John Huston era
hrein snilld í sínum margbrotnu
hlutverkum. Ef þið hafíð á tilfínn-
ingunni að ég sé hrifínn af þess-
ari mynd þá er það vegna þess
að éger það. ★ ★ ★ ★
Stöð 2 ►01.00 Axel Foley, hin
kjaftfora lögga með rostungshlát-
urinn, skemmti áhorfendum í
túlkun Eddies Murphy dyggilega
í fyrstu myndinni, Beverly Hill
Cop. Mynd númer tvö skemmti
minna og mynd númer þijú, Lögg-
an í Beverly Hills (Beverly Hills
Cop 3,1994) skemmtir minnst.
En hún skemmtir þó. Leikstjóri
John Landis. ★ ★
Sýn ^21.00 Með augum kattar-
ins (Cat's Eye, 1985) veitir
þremur hrollvekjusögum Steph-
ens King skárri úrvinnslu en sög-
ur hans fá yfirleitt á hvíta tjald-
inu. Kötturinn er leiðarstefið í
þessum sögum sem að öðra leyti
em hversdagshryllingur um með-
allag. Lewis Teague leikstjóri
kann til verka. ★ ★
Árni Þórarinsson
SPICE Girls ætla að skella sér í kvikmyndagerð í sumar.
Kvikmynd
með
Spice Girls
► SPICE Girls ætla ekki ein-
göngu að skemmta sér á Cannes
kvikmyndahátíðinni í ár, þær ætla
einnig að herja á dreifingaraðila
en stúlkurnar munu heQatökur
á kvikmynd í júní. Myndin á að
vera um þær sjálfar, svona í anda
Bítlamyndarinnar „A Hard Day’s
Night“.
Mel C., Emma, Geri, Victoria,
og Mel B. ætla að syngja og dansa
fyrir framan vélaranar en myndin
á einnig að sýna lífið baksviðs,
viðtöl við blaðamenn og baráttuna
við ágenga aðdáendur. Handritið
er skrifað af Jennifer Saunders
og Kim Fuller en Saunders er
m.a. þekkt fyrir gamanþættina
„Absolutely Fabulous“. Myndin er
væntanleg á markaðinn um jólin.
Terry
Gilliam
á fullu
TERRY Gilliam hefur skrifað
undir að leikstýra Johnny Depp
og Benicio Del Toro í kvikmynd
byggðri á sögu Hunters S.
Thompsons „Fear and Loath-
ing in Las Vegas“. Gilliam
stýrði seinast Bmce Willis í „12
Monkeys". Eftir að tökum á
„Fear and Loathing in Las
Vegas“ lýkur ætlar Gilliam að
stýra Nicholas Cage í vísinda-
skáldsögumyndinni „Defective
Detective“. Cage kemur til með
að leika lögreglumann í New
York sem þarf að fara yfír í
fantasíuheim til þess að leita
að týndu barni.
Vinnið gegn fíla-
penslum og bólum
iú&(n f.
SáuunA
silicol skin
m súicol sk\n
laiwsgii IfiiifliQ^ewgiiCÍIai^állh^^
Endurteknar rannsóknir hafa staðfest árangur Silicol skin
í baráttunni gegn fílapenslum, bólum og feitri húð.
íslenskar leiðbeiningar fylgja. Fæst í flestum apótekum.
\Æw
í MIKLUM METUM !
m
mb'iilniMli
MíÚV’Kv