Morgunblaðið - 15.06.1997, Side 2
2 SUNNUDAGUR 15. JÚNÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Nýútskrifaðir iðnnemar taka virkan þátt í hátíðahöldunum 17. júní
Iðnmenntun sýnd
sú virðing sem
henni ber
SÚ NÝBREYTNI verður nú á
annars hefðbundnum hátíða-
höldum í Reykjavík á þjóðhátíð-
ardaginn, 17. júní, að nýútskrif-
aðir iðnnemar ásamt nýstúdent-
um munu leggja blómsveig á
leiði Jóns Sigurðssonar í kirkju-
garðinum við Suðurgötu og að
styttu hans á Austurvelli. Að
sögn Steinunnar V. Óskarsdótt-
ur, formanns þjóðhátíðarnefnd-
ar Reykjavíkurborgar, er þessi
breyting hugsuð sem liður í því
að sýna iðnmenntun þá virðingu
sem henni ber, en þrátt fyrir
fögur orð ráðamanna á hátíðar-
stundum um gildi iðnmenntunar
viUi það oft gleymast þegar til
kastanna kemur.
Bjarki Már Magnússon tré-
smiður lagði fram tillögu á þingi
Iðnnemasambands íslands 1995
þess efnis að iðnnemar fengju
hlutdeild í hátíðahöldunum 17.
júní. Borgaryfirvöld tóku vel í
þá tillögu og á síðastliðnu ári
lögðu tveir iðnnemar blómsveig
að leiði Jóns Sigurðssonar og
tveir nýstúdentar lögðu blóm-
sveig að styttunni.
Bjarki átti nýlega viðræður
við forseta íslands og formann
þjóðhátíðarnefndar og varð það
að samkomulagi að nú yrði
skrefið stigið til fulls, þannig
að nýútskrifaður iðnnemi og
stúdent myndu framvegis
standa samhliða á báðum stöð-
um.
Uppreisn æru fyrir
iðnmenntun í landinu
Áratuga hefð er fyrir því að
nýstúdentar frá Menntaskólan-
um í Reykjavík taki þátt í þess-
ari athöfn og nær hún að sögn
Steinunnar allt aftur til þess
tíma er Lærði skólinn var eina
menntastofnunin í landinu. „Oft
er það þannig með hefðir að þær
dagar uppi og enginn hugsar út
í af hveiju þær eru tilkomnar,“
segir hún.
Bjarki kveðst afar ánægður
með að hugmyndin sé að verða
að veruleika og telur það
ákveðna uppreisn æru fyrir iðn-
menntun í landinu, sem hingað
til hafi verið álitin hálfgerð und-
irmálsstærð i menntakerfinu.
„Þetta eru mjög skýr skilaboð
og með þessu má í caun segja
að verknámi sé lyft á hærri
stall,“ segir hann.
: '
Morgunblaðið/Jim Smart
BJARKI Már Magnússon segir að verknámi sé lyft á hærri stall
með virkri þátttöku iðnnema í hátíðahöldunum 17. júní, þar sem
nýútskrifaður iðnnemi mun ásamt nýstúdent leggja blómsveig
að styttu Jóns Sigurðssonar.
SÉRBLAÐIÐ Ferðalög - sum-
arfrí á íslandi fylgir Morgun-
blaðinu í dag. Sérblaðið er 32
bls. og kemur í stað ferðablaðs-
ins sem venjulega er á sunnu-
dögum í blaðinu. Blaðinu var
dreift á Akureyri með blaðinu
í gær.
Meðal efnis eru greinar og
viðtöl um fuglaskoðun og
plöntusöfnun á ferðalögum,
sagt er frá nýstárlegum mögu-
leikum innan ferðaþjónustunnar
eins og að fara á hreindýraveið-
ar, í ísklifur og björgunarleið-
angra. í opnunni er stórt ís-
landskort sem sýnir nokkur
dæmi um skemmtun sem stend-
ur ferðamönnum til boða um
land allt.
Snyrtilegur
snúruþjófur
HÚN greip í tómt, húsmóðirin í
Vestmannaeyjum, sem gekk út í
garð í gærmorgun og ætlaði að taka
inn þvott af snúrunni, sem hún hafði
hengt út kvöldið áður. Ekkert var
eftir nema eitt handklæði.
Hún hugðist láta lögregluna vita
en gekk þó fyrst hring um nágrenn-
ið til að grennslast fyrir um þvott-
inn. Ekki bar sú leit árangur, en
þegar hún kom aftur heim, sá hún
hvar þvotturinn lá á loki öskutunn-
unnar við hús hennar, snyrtilega
samanbrotinn, að sögn lögreglu.
Hverfandi líkur
á að Spassky og
Fischer komi
EINAR S. Einarsson, fyrrv. forseti
Skáksambands íslands, segir ýmsa
annmarka á því að þeir Borís
Spassky og Bobby Fischer komi
hingað til lands í haust á afmæl-
ishátíð í tilefni af því að 25 ár eru
liðin frá heimsmeistaraeinvíginu í
skák í Reykjavík. Einar hefur fyrir
hönd Skáksambandsins kannað
möguleikana á því að fá þá Spas-
sky og Fischer hingað til lands og
hefur hann m.a. verið í sambandi
við Spassky þess vegna. Hann seg-
ir að í ljós hafi komið að hverfandi
líkur séu á því að af komu þeirra
hingað geti orðið.
Einar segir að ástæðan sé fyrst
og fremst sú að Fischer sé útlægur
úr heimalandi sínu, Bandaríkjun-
um, vegna brots á viðskiptabanni
Sameinuðu þjóðanna í Svartfjalla-
landi þegar hann tefldi einvígi við
Spassky þar haustið 1992. Haft
var eftir Spassky í Morgunblaðinu
í gær að af því gæti orðið að Fisch-
er kæmi hingað ef honum yrðu
greiddir að lágmarki 40 þúsund
Bandaríkjadalir.
Borís Spassky Bobby Fischer
„Við eru ekki útbærir á neina
peninga handa honum, en ef hann
vildi heiðra okkur íslendinga með
hingaðkomu sinni þá væri það hið
besta mál. Hann er hins vegar
landflótta og á ekki afturkvæmt
til Bandaríkjanna. Ef hann fer
þangað eða til annars NATO-lands
á hann yfir höfði sér einnar milljón
dollara sekt og margra ára fang-
elsi og það yrði krafist framsals á
honum. Það eru því vissir ann-
markar á þessu öllu saman,“ sagði
Einar.
Fótbrotnaði á bifhjóli
UNGUR maður fótbrotnaði við
Háafoss í Þjórsárdal um tvöleytið
aðfaranótt laugardags þegar hann
varð fyrir því óhappi að þungt bif-
hjói sem hann var á féll ofan á
hann.
Hann var á ferð ásamt fimm
félögum sínum á bifhjólum þegar
óhappið varð. Sjúkrabíll frá Sel-
fossi, sem sendur var til að sækja
manninn, komst ekki alla leið
vegna ófærðar og var björgunar-
sveitin Sigurgeir í Gnúpveijahreppi
þá kölluð út til að flytja hann til
móts við sjúkrabílinn. Maðurinn
var fluttur á Sjúkrahús Suðuriands
á Selfossi til skoðunar og þaðan
var hann sendur á slysadeild
Sjúkrahúss Reykjavíkur, þar sem
hann átti að gangast undir aðgerð
um hádegið í gær. Að sögn Frið-
riks Sigurbergssonar, vakthafandi
læknis á slysadeild, var fótbrotið
slæmt en engir aðrir áverkar.
Fyrsta búnað-
arþingskosn-
ing í áratugi
Eyjafjarðarsveit. Morgunblaðið.
KOSIÐ var til Búnaðarþings í Eyja-
firði á föstudag í fyrsta skipti í ára-
tugi. Tveir listar voru í kjöri, K-listi
sem er skipaður núverandi búnaðar-
þingsfulltrúa, Pétri Ó. Helgasyni, og
fyrrverandi formanni Stéttarsam-
bands bænda, Hauki Halldórssyni,
og M-listi sem er nýtt framboð, en
þar voru í fyrsta og öðru sæti Þórð-
ur Þórðarson og Benedikt Hjaltason.
K-listinn fékk 125 atkvæði eða
77,6% og tvo menn kjöma, M-listi
hlaut 31 atkvæði eða 19,3% og eng-
an mann kjörinn. 5 seðlar voru auð-
ir eða ógildir. Á kjörskrá voru 318
og kaus 161. Kjörsókn var því 50,6%.
-----» ♦ ♦
Vatnsúði en
ekki reykur
SLÖKKVILIÐIÐ í Reykjavík var
kallað út að húsi við Bakkagerði um
hádegisbilið í gær, þar sem grannar
í næstu götu höfðu gert viðvart um
reyk. Þegar nánar var að gáð reynd-
ist þó ekki um reyk að ræða, heldur
vatnsúða, þar sem verið var að þvo
húsið að utan.
-----»-♦.♦----
Ólympíuleikarnir
í eðlisfræði
500 manns frá
58 löndum
ÁKVEÐIÐ hefur verið að Ólympíu-
leikarnir í eðlisfræði verði haldnir
hér á landi á næsta ári og er gert
ráð fyrir að um 500 manns frá 58
löndum komi hingað til lands af því
tilefni. Að sögn Þorsteins I. Sigfús-
sonar prófessors og formanns fram-
kvæmdastjórnar leikanna, er áætl-
aður kostnaður við þá um 40 millj-
ónir króna.
■ Mikil lyftistöng/8
Inn í næstu öld
á nýjum þotum
►Flugleiðir kynntu í gær risa-
samning við Boeing-verksmiðjum-
ar og einnig tvo nýja áfangastaði,
Helsinki og Minneapolis í Banda-
ríkjunum /10
Valdarán í Afrlku
►Blóðug valdarán virðast daglegt
brauð í Afríku en svo er ekki því
hefurtalsvert áunnist í álfunni.
/15
Hvenær drepur
maður mann
►Eini íslenski læknirinn sem nú
starfar við réttarlæknisfræði er
Gunnlaugur Geirsson prófessor.
/21
Valkyrjur í
veitingarekstri
►í Viðskiptum/Atvinnulífi er rætt
Helgu Bjamadóttur og Kristbjörgu
Kristinsdóttur sem keypt hafa
Hard Rock Café og Sprengisand.
/24
B
► l-20
Ógestrisnir sóttir
heim
►Skúmurinn er sannkallaður kon-
ungur sandanna. Hann er alhliða
og stórtækur ræningi, drepur fugla
sem era stærri en hann sjálfur og
hrekur jafnvel hin mestu karl-
menni á flótta. /1&18-19
Varnarbarátta
Valgerðar
►Krabbamein er ótrúlega aigengt
í ætt Valgerðar Jónsdóttur Braun.
Amma hennar, ömmusystur, móð-
ursystir og móðir eru látnar úr
krabbameini ogg núna, aðeins 37
ára, er Valgerður nýkomin úr erf-
iðri lyfjameðferð og uppskurði við
brjóstakrabbameini. /4
Lifl frillulíf
►Á þjóðveldistímanum hét sam-
búð tveggja ógiftra einstaklinga
frillulífi en hórdómur ef giftir
menn höfðu frillur. Ungur sagn-
fræðingur Auður G. Magnúsdóttir,
er að ljúka doktorsritgerð í Gauta-
borgum frillulífi á 12. og 13. öld.
/10
BÍLAR_____________
► 1-4
íslenskt handverk
►Breyttur 15 manna Econoline
350 hefur bæst í hópbílaflota
landsmanna. /2
Reynsluakstur
►Mjúkur og öflugur Audi A6. /4
FERÐALÖG
► 1-32
Kynjaheimur fugla
►Fuglaskoðun er skemmtileg á
ferðalögum. /2
Á hreindýraveiðum
►Nýjasta veiðisport ferðamanns-
ins/22
FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir 1/2/4/8/bak Stjömuspá 42
Leiðari 28 Skák 42
Helgispjall 28 Fólk í fréttum 44
Reykjavíkurbréf 28 Bíó/dans 46
Skoðun 30 Utv./sjónv. 50,54
Minningar 32 Dagbók/veður 55
Myndasögur 40 Gárur 6b
Bréf til blaðsins 40 Mannlifsstr. 6b
ídag 42 Dægurtónl. 12b
Brids 42
INNLENDAR FRÉTTIR:
2-4-8-BAK
ERLENDAR FRÉTTIR:
1&6