Morgunblaðið - 15.06.1997, Page 10
10 SUNNUDAGUR 15. JÚNÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
í rammaáætlun Flugleiða til ársins 2006 er gert
ráð fyrir kaupum á allt að tólf nýjum þotum,
hafið verður flug á nýja áfangastaði austan hafs
og vestan, Keflavík verður aðaltengiflugvöllur
áætlanakerfisins og haldið verður áfram
að taka þátt í uppbyggingu ferðaþjón-
ustu hérlendis. Gert er ráð fyrir 9% árlegri aukn-
ingu í fiutningum og fyrirtækið leggur áherslu
á að ná aukinni arðsemi. Jóhannes Tómasson
ræddi við Sigurð Helgason og Leif Magnússon
í tilefni af þessum áformum og Kristinn
Bríem ræddi við Pétur J. Eiríksson.
Morgunblaðið/Jim Smart
Sigurður Helgason forstjóri Flugleiða
Inn í næstu öld með nýjum
þotum o g fleiri áfangastöðum
FLUGLEIÐIR kynntu í
gær stærsta samning
sinn um flugvélakaup
til þessa og gerður
verður við Boeing verk-
smiðjurnar bandarísku. Er um að
ræða rammasamning um kaup á
allt að 12 þotum til ársins 2006.
Má ætla að verðmæti þessa flota
sé nálægt 50 milljörðum króna.
Þegar hafa verið tímasett kaup fjór-
um þotum sem kosta munu 14 til
15 milljarða. Fjármögnun tveggja
fyrstu vélanna, sem afhentar verða
í janúar 1998 og apríl 1999, hefur
verið tryggð með tæpjega sjö millj-
arða króna láni. Áfangastöðum
verður fjölgað og flug hafið til
Minneapolis í Bandarikjunum og
Helsinki í Finnlandi næsta vor.
Stjóm félagsins samþykkti þessar
áætlanir á fundi sínum í liðinni viku.
„Framtíðarviðgangur félagsins
byggist á þrennu: Keflavíkurflug-
velli sem tengiflugvelli, öflugu
markaðsstarfí og tengslum við
ferðaþjónustuna. Við höfum lagt
fram áætlanir fyrir næstu þijú árin
og vinnuramma fyrir næstu 10 ár
og gert þar ráð fyrir kröftugum
vexti,“ segir Sigurður Helgason
forstjóri.
„Stefna Flugleiða er að fsland
verði hornsteinn í rekstrinum með
því að byggja upp og þróa íslenska
ferðaþjónustu og auka hlut í Norð-
ur-Atlantshafsfluginu með því að
byggja upp tengiflugvöllinn í Kefla-
vík. Þannig má tengja mikilvæga
markaði í Evrópu og Ameríku gegn-
um Keflavík og við leggjum áherslu
á stuttan ferðatíma, mikla tíðni og
ætlum bæði að þjóna þeim sem ferð-
ast vegna viðskipta og fólki á leið
í frí. Með þessu verður betri þjón-
usta við íslendinga en unnt væri
að veita ef við nytum ekki markað-
arins beggja vegna Atlantshafsins.
Forstjórinn segir að hlutverk
Flugleiða hafí verið skilgreint sem
SIGURÐUR Helgason forsljóri Flugleiöo. Morgunblaðið/Jim Smart
ferðaþjónustufyrirtæki með hag
viðskiptavina að leiðarljósi og legg-
ur áherslu á vöxt og arðsemi með
því að bjóða verðmæta þjónustu þar
sem ísland er hornsteinn. En hvem-
ig á að uppfylla þessa skilgreiningu?
„Það verður gert með mörgu
móti. Við ætlum að vaxa til að ná
stærðarhagkvæmni og byggja
starfsemina á flugi til, frá og um
Island í tengslum við íslenska ferða-
þjónustu. Við ætlum að ná vexti
bæði til íslands og á markaði yfír
hafið til að tryggja betri nýtingu
og hærri arðsemi," segir forstjórinn
og segir fyrirtækið einnig ætla að
taka enn virkari þátt í ferðaþjón-
ustu á íslandi meðal annars til að
skapa verðmætari þjónustu til sölu
á alþjóðamarkaði.
Sé litið nokkuð tilbaka má rifja
upp að sá samdráttur, sem varð á
miðjum níunda áratugnum þegar
helmingur farþega í millilandaflugi
var í Norður-Atlantshafsflugi, kom
illa niður á allri starfsemi Flugleiða.
Aukin samkeppni frá öðrum flugfé-
lögum og flugvöllum um alla Evrópu
dró úr samkeppnishæfni Lúxem-
borgar, félagið var ekki lengur eitt
um að bjóða lægstu fargjöld milli
Bandaríkjanna og Evrópu og flug-
flotinn var meðal hinna elstu hjá
flugfélögum í Evrópu. Var svo kom-
ið síðast á áratugnum að flutningar
milli Evrópu og Bandaríkjanna voru
skomir niður um helming og áfanga-
stöðum vestra fækkað úr fímm í
tvo. Jafnframt hófst uppbygging á
ný sem Sigurður lýsir svo:
„Fyrsta skrefíð var að gera
Keflavík að aðaltengivelli, fjölga
flugleiðum beggja vegna hafsins og
auka ferðatíðni og leggja stóraukna
áherslu á ísland sem ferðamanna-
land. Jafnframt hófst endurnýjun á
flugflota, viðhaldsstöð, hóteli og
bílaleigu. Þar var um að ræða 20
milljarða króna fjárfestingu sem
nam tvöfaldri veltu fyrirtækisins,
aðallega vegna nýju 737-400 og
757-200 vélanna. Þama var tekin
ákveðin áhætta en þessar ákvarð-
anir reyndust réttar og í framhaldi
af þessu tók félagið að rétta úr
kútnum. Við höfum að vísu ekki
enn náð þeim 5,5% hagnaði sem
stefnt var að, höfum verið við 2%
markið að viðbættum söluhagnaði
flugvéla en sjáum fram á að geta
aukið rekstrarhagnaðinn á næstu
árum.“
Nýtt fyrirtæki á
nýjum markaði
Sigurður Helgason segir að fyrir-
tækið sé á krossgötum á ný. Tekist
hafi að skapa nýtt fyrirtæki á nýjum
markaði með nýjum flugflota, við-
haldsstöð, ýmsum endurbótum og
meiri þátttöku í annarri ferðaþjón-
ustu.
„Við höfum náð helstu markmið-
um varðandi þjónustu við heima-
markað, fjölgun ferðamanna og
uppbyggingu tengiflugvallarins.
Áætlunarstöðum hefur fjölgað um
þriðjung frá árinu 1989 eða í 27
og árlega eru ferðirnar frá Kefla-
víkurflugvelli nú 4.435 og hafa þær
nærri tvöfaldast. Ferðamönnum frá
Evrópu hefur ijölgað um 300% á
áratug og við bjóðum tengingar
yfír Norður-Atlantshaf milli 72
borga í leiðakerfinu í stað 8 fyrir
10 árum. Þá hefur vægi Lúxem-
borgar í Norður-Atlantshafsfluginu
minnkað úr 93% í innan við 27%
og hlutur í heildarflutningum úr
46% í 8,6%.“