Morgunblaðið - 15.06.1997, Side 12

Morgunblaðið - 15.06.1997, Side 12
12 SUNNUDAGUR 15. JÚNÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ Hefð fyrir „lengdum“ flugvélum RIFJA má upp að Flugleiðir og forverar félagsins hafa áður notað „lengdar" flugvélar og þotur. Eru það vélar sem byggð- ar eru á eldri skrokki og ein- faldlega lengdar. Árin 1959 til 1973 voru notað- ar DC-6B vélar en sú vél var lengd og þróuð gerð af DC-4. CL-44 vélarnar voru notaðar í Ameríkufluginu 1964 til 1971 og nefndar hér Rolls Royce 400, notaður var fjöldi lengdra DC-8 þotna og 727-200 þotan var lengd útgáfa af 727-100 og Boe- ing 737 voru teknar í notkun þjá Flugleiðum eftir að þær höfðu verið lengdar í þrígang, úr 100, 200 og 300 í 400. Þá er Fokker F-50 vélin í innanlands- fluginu lengri gerð og þróaðri af Fokker Friendship. Tölur um 757 þotumar Frá því 757 þotan kom á markað fyrir 14 árum hafa 47 flugfélög keypt 870 slíkar þotur. • Fluttar hafa verið rúmlega 700 milljónir farþega í 757 þotum milli Kanada og Bandaríkjanna. • Á 14 árum hefur floti 757 þotna flogið sem svarar nærri 13 þúsund ferðum umhverfis jörðina. • Þung^i 757 á flugi, 113 tonn, er álíka mikill og dísilknúin járn- braut - en fer nokkru hraðar yfir. • Yfirborð vængjanna er 181 fermetri eða álíka mikið og dá- gott raðhús. • Samanlögð lengd allra víra í 757 er 100 km. Er sett saman úr 626 þúsund hlutum og 600 þúsund bolta og hnoð þarf til að festa þessa hluti saman. • Boeing-verksmiðjumar gera ráð fyrir að frá og með aldamót- um verði þriðjungur framleiddra 757 þotna af 300-gerðinni en tveir þriðju 200 gerðin. • Semfraktvélgetur757tekið rúmlega 6 milljónir golfkúlna. • Þess má geta að núverandi aðalforstjóri Boeing, Phil Condit, var yfirverkfræðingur við hönn- un og smíði 757. Nýjar flugvélar og flugflotaáætlun Flugleiða Boeing 757-300 Fjöldi véla (sumar- áætiun) 15- | B 757-300 (228 farþ.) | B 757-200 (189 farþ.) | B 737-400 (153 farþ.) | B 737-300 QC (135 f.) Flugfiotaáætlun Flugleiða til 2006 1997 1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 unarkerfunum, en reynslan sýnir að um 90% af allri sölu koma af fyrstu þremur línunum, en þar er ferðamöguleikum raðað eftir ferða- tíma. Við getum boðið stysta ferðatímann frá borgum eins og Osló, Stokkhólmi og Glasgow til flestra okkar áfangastaða í Bandaríkjunum. Við erum því mjög vel sam- keppnisfærir þrátt fyrir stoppið í Keflavík. Staðsetningin gefur okkur forskot þannig að Keflavíkurflugvöllur er hornsteinninn." Pétur leggur áherslu á að það sé ákaflega mikilvægt samhliða uppbyggingu Flug- leiða að flugstöðin í Keflavík verði stækkuð þannig að ekki verði skortur á stæðum. Eins þurfi að þróa stöðina á þann veg að hún verði skemmtilegri fyrir farþegana. „Það er verkefni sem við ætlum að ráðast í með flugmálastjórn.“ Pössum ekki vel inn í bandalög En væntanlega munu önnur flugfélög á hinum nýju áætlanaleiðum ekki sitja með hendur í skauti. Má ekki vænta einhverra viðbragða af þeirra hálfu við nýjum sam- keppnisaðilum? „Þegar litið er til finnska markaðarins þá held ég að við munum fyrst og fremst ná sölu af KLM og British Airways sem eru að bjóða farþegum að skipta um flugvél einhversstaðar. Við getum boðið styttri flug- tíma og betri flugvöll. Hins vegar erum við einnig að hugsa um íslenska markaðinn í Helsinki og þar reiknum við með að fá bæði hluta af ráðstefnumarkaðnum og helgarferðir yfir veturinn. í okkar huga er ísland einnig mjög mikilvægt." Nú hafa flest flugfélög verið að ganga í bandalög eða tengjast ínari böndum, er það ekkert áhyggjuefni fyrir ykkur að standa einir á báti í sam- keppninni við slíka risa? „Bandalögin eru nú einu sinni þannig að þau miða mikið að því að draga úr sam- keppni milli þeirra flugfélaga sem eru innan þeirra. Það er samt við því að búast að samkeppnin muni allt- af vera fyrir hendi og jafnvel aukast. Við höfum gengið í gegnum mjög erfið samkeppnistíma- bil, en alltaf staðið þetta af okkur. Ef við horfum aftur til síðasta áratugar 1984- 1986 vorum við að keppa við allt önnur flugfélög en við erum að gera í dag. Þau hafa allflest dottið út, sérstaklega einka- rekin flugfélög, en Flugleiðir alltaf staðið eftir. Flugleiðir eru reyndar þannig flugfélag að við pössum ekki mjög vel inn í banda- lög. Félagið er að keppa við önnur flugfé- lög og vill halda sjálfstæði sínu. Við höfum ekki áhuga á því að verða svæðisbundið Styttri fiugtími og betri flugvöllur flugfélag sem útvegar öðrum félögum far- þega, t.d. í London eða Frankfurt. Hins vegar teljum við okkur geta átt mjög gott samstarf við mörg af þessum félögum. Við eigum mjög_ gott samstarf við SAS um flug til og frá íslandi inn á Evrópu og Asíu. Ennfremur eigum við mjög gott samstarf við British Midland um flutninga á farþegum innan Bretlands og til Parísar. Við getum því átt lausara samstarf við bandalögin og ég reikna með því að við verðum í nánara samstarfi við t.d. Star Alliance- bandalagið þegar fram líða stundir, en sé okkur ekki verða fullgildan meðlim. í Bandaríkjunum erum við í tilraunasam- starfi við South-west Airlines um flug frá Baltimore til Cleveland og síðan gengur samstarfið við USAir ágætlega." Sendiráð Norðurlanda velja Flugleiðir Flugleiðir hafa stundum hlotið gagnrýni fyrir að bjóða mun hagstæðari fargjöld er- lendis fyrir farþega á leið milli Evrópu og Bandaríkjanna, en íslendingum gefst kostur á. Er þetta Norður-Atlantshafsflug að skila ykkur viðunandi fargjöldum t.d. á hinum nýju leiðum? „Við höfum verið að fara inn á áætlanaleið- ir þar sem samkeppnin er ekki mjög mikil. Núna fáum við t.d. betri fargjöld frá Boston og Baltimore heldur en New York. Við reikn- um með að það sama muni eiga við um Minneapolis. Varðandi þá gagnrýni að við látum Islendinga borga meira fyrir flug en aðra, vil ég undirstrika að við tökum mið af markaðsaðstæðum í einstökum löndum. Sum- staðar erum við að keppa við tugi stórra flug- véla, t.d. frá London, sem eru mjög ódýrar á hvert sæti. Við tókum þá ákvörðun fyrir um þremur árum að það yrði alltaf 10% ódýr- ara að fljúga frá íslandi til Bandaríkjanna heldur en frá Norðurlöndum. Það hafa einnig verið ýmiskonar tilboð í gangi á íslenska markaðnum í flugi til Bandaríkjanna og þetta hefur því breyst mjög mikið. Hér áður fyrr var þessi gagnrýni hins vegar réttmæt." En hversu tryggur er ykkar viðskipta- mannahópur í Bandaríkjunum og Evrópu? „Rannsóknir okkar sýna að við erum með mjög tryggan viðskiptavinahóp sem flýgur með okkur aftur og aftur. Við höfum verið að reyna að breyta þjónustunni á þann veg að fólk sé ekki einungis að fljúga með okkur vegna fargjaldanna heldur að það sækist sérstaklega eftir því. Það sem við höfum að bjóða hefur skapað talsvert af föstum við- skiptum. Þannig hafa öll sendiráð Norður- landanna í Washington valið að skipta við okkar og við finnum að meðal skandinava í Bandaríkjunum njótum við vin- sælda. Þegar hugmyndir voru uppi um að hætta jafnvel að fljúga til Fort Lauderdale og fljúga eingöngu til Orlando, fengum við undirskriftalista frá Fort Laud- erdale. Það var fólk með skandinavísk nöfn sem skoraði á okkur að halda fluginu áfram.“ Nýir áfangastaðir 1999? Þegar horft er lengra fram í tímann, hvaða möguleikar eru fyrir hendi á að færa enn frekar út kvíarnar í flugi yfir Norður-Atl- antshafið? „Við erum núna með átta þotur í rekstri og næsta sumar verðum við með tíu þotur. Það er síðan markmiðið að árið 2006 verði að lágmarki 16 þotur í rekstri. Við erum að skoða einn stað í viðbót í Bandaríkjunum fyrir sumarið 1999 og eins fleiri staði í Evrópu. Það er ekki ólíkegt að fleiri staðir bætist við. í Evrópu höfum við einkum horft á Edinborg og East Midlands og Brussel. Þá höfum við litið lengra austur og velt fyrir okkur St. Petersburg. Eins höfum við hug á flugi til Berlínar allt árið. í Banda- ríkjunum eru staðir á borð við Philadelphia og fleiri þótt við höfum ekki valið nema einn núna. Einnig stefnum við að því að auka tíðnina til Kanada og munum hefja flug þrisvar í viku næsta haust til Halifax og bæta fjórða fluginu við næsta sumar. Við stefnum að því að fljúga daglega til Halifax eins og annarra staða. Þar eru möguleikamir meiri en við áttum von á og sætanýtingin betri.“ Hins vegar er einnig stefnt að því að stækka, samhliða þessu, markaðinn fyrir flug milli íslands og Evrópu. Við viljum helst ekki að hlutfall Ameríkufarþega fari mikið yfir 40-50%. Við ætlum að stækka íslandsmarkaðinn með því að kynna ísland, sérstaklega utan háannatímans.“ Ætlum að stækka íslandsmarkað

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.