Morgunblaðið - 15.06.1997, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 15. JÚNÍ 1997 13
Leifur Magnússon framkvæmdastjóri þróunarsviðs
Rekstraröryggi og
hagkvæmni réði
Morgunblaðið/Jim Smart
LEIFUR Magnússon framkvæmdastjóri þróunardeildar.
FJÖLMÖRG atriði koma til
skoðunar þegar flugvéla-
kaup skulu ákveðin: Verð,
stærð, hagkvæmni, af-
kastageta, flugdrægi og þar fram
eftir götunum. Leifur Magnússon
framkvæmdastjóri þróunarsviðs
Flugleiða annast slíkar athuganir
og er hann beðinn að lýsa þeim
ferli sem Flugleiðamenn fóru gegn-
um áður en þessi umfangsmestu
flugvélakaup félagsins voru ákveð-
in.
„Leitin að fleiri þotum til að
stækka flugvélakost félagsins
byggist að miklu leyti á þeirri
reynslu sem við höfum fengið með
rekstri Boeing 757-200 og 737-400
þotunum síðustu sjö árin. Þegar
fyrirtækið stendur frammi fyrir því
að stækka flotann og fá stærri vél-
ar til að mæta aukinni flutninga-
þörf komu fyrst og fremst til skoð-
unar þotur frá Boeing-verksmiðjun-
um í Bandaríkjunum og Airbus en
að henni standa breskir, franskir,
spænskir og þýskir framleiðendur.“
Nokkrir kostir
Leifur segir að frá hvorri verk-
smiðju hafi nokkrir kostir komið til
skoðunar:
„Frá Boeing kom til greina að
kaupa nýjar gerðir af 737 þotunum
sem eru komnar og að koma á
markað og eru heldur stærri en 400
gerðin sem við höfum í notkun
núna. Þessar gerðir heita 600, 700,
800 og síðar 900 og við þurftum
að kanna sérstaklega hvort flug-
drægi þeirra væri nægjanlegt vegna
Ameríkuflugsins. Það virtist í fyrstu
vera nóg en við nánari skoðun kom
í ljós að þær næðu til New York
fullar af farþegum en hefðu þá
enga burðargetu fyrir frakt sem er
vaxandi þáttur hjá okkur.
Hjá Airbus voru kannaðar gerð-
irnar 319, 320 og 321 og þar reynd-
ist það sama uppi á teningnum,
flugdrægið var tæplega nógu langt
miðað við nauðsynlega flutninga-
getu. Allar þessar vélar geta borið
milli 125 og 183 farþega, hafa flug-
drægi sem er kringum þijú þúsund
sjómílur en arðsemi þessara véla
var ekki talin henta á flugleiðum
Flugleiða."
Leifur segir að eftir þessar at-
huganir hafi menn tekið að horfa
til 757 vélarinnar sem tekur tals-
vert fleiri farþega en 737 en verk-
smiðjurnar eru um þessar mundir
að kynna nýja gerð, 757-300.
Góð reynsla af 757 þotunum
„Reynsla okkar af 757 hefur
verið ákaflega góð, sérstaklega í
Ameríkufluginu, hún er nánast
klæðskerasaumuð fyrir þessar leið-
ir. Þar ber allt að sama brunni,
afkastagetan, flugeiginleikar og
rekstraröryggi allt. Það sést best á
því hversu vel vélarnar eru nýttar,
kringum 5 þúsund tíma á ári. Það
er mun meiri nýting en önnur flug-
félög geta státað af, enda má segja
að þessar þotur séu stanslaust á
ferðinni allan sólarhringinn.
Nýja gerðin kom einnig sérstak-
lega til skoðunar því flutningsþörfin
er alltaf að aukast og stöðugt er
knúið á um lækkun meðalfargjalda.
Hagkvæmnin í rekstri hverrar flug-
vélategundar skiptir því miklu máli.
Niðurstaðan af öllum þessum at-
hugunum er því sú að við munum
á næstu árum stækka flugflotann
með kaupum á 757-200 og 757-300
þotum.“
Næsta stærð fyrir ofan hjá Bo-
eing er 767 þotan en Leifur segir
hana vart hafa komið til álita þar
sem hún sé hönnuð til flugs á svo
miklu lengri flugleiðum en Flugleið-
ir hafi þörf fyrir, t.d. milli Kaup-
mannahafnar og Tókýó sem er 12
til 14 klukkustunda ferð.
„Sú vél er líka stærri og þyngri
og öll gjöld, svo sem vegna flugum-
ferðarstjórnar, yfirflugs, lendinga
og afgreiðslu eru reiknuð út frá
hámarksflugtaksþyngd. Fljótlega
kom í ljós að þessi gerð væri óþarf-
lega stór og myndi ekki verða hag-
kvæm í rekstri á flugleiðum okkar.“
Framleiðendur fylgjast með
Hver er aðdragandinn að svona
kaupum burtséð frá tæknilegum
athugunum og fjármögnun?
„Flugvélaverksmiðjur fylgjast
mjög vel með allri þróun hjá flugfé-
lögum og sækja á þau, stunda sölu-
mennsku og eru í sjálfu sér alltaf
að sýna það sem er í boði. Flugheim-
urinn er ekki svo stór og framleið-
endur vita nokkurn veginn hvenær
flugfélögin hyggjast endurnýja.
Þau sækja ekki síst á þegar nýjar
vélar eru væntanlegar og þeim þyk-
ir gott að geta notað sem sölurök
að þetta eða hitt flugfélagið hafí
þegar pantað svo og svo margar
vélar.
Flugleiðir voru meðal 9 fyrstu
flugfélaganna til að ákveða kaup á
737-400 þotunum árið 1987 og oft
bjóða verksmiðjurnar þeim sem
fyrstir eru til að ákveða sig hag-
stætt verð og þá er afgreiðslutími
stuttur. Það kom Flugleiðum heldur
betur til góða varðandi 737-400
þoturnar því fáum mánuðum eftir
að við höfum afráðið kaupin pönt-
uðu fjölmörg flugfélög slíkar vélar
og urðu að bíða lengi eftir afhend-
ingu.“
Leifur segir það sama gerast nú
varðandi 757-300 þotuna. Þýska
leiguflugfélagið Condor hefur af-
ráðið kaup á 12 þotum og hefur
kauprétt á 12 til viðbótar og Flug-
leiðir eru fyrsta áætlunarflugfélag-
ið sem ákveður kaup á slíkri vél.
Senda Boeing-verksmiðjurnar frá
sér frétt þessa efnis á morgun í
tengslum við flugsýninguna í Par-
ís. En hver er aðalmunurinn á
757-200 og 757-300?
„Aðalbreytingin er sjö metra
lenging á skrokknum og því fylgir
styrking á vængbitum, skrokki og
hjólabúnaði og ýmis tæknibúnaður
breytist einnig vegna lengingarinn-
ar en hreyflarnir verða sömu gerð-
ar. Þetta þýðir að við verðum með
228 sæti í stað 189 eins og er í
200 gerðinni og fraktrýmið verður
meira en stöðug aukning hefur
verið í fraktflutningum til flestra
áfangastaða Flugleiða. Með því
lækkar sætiskostnaður um 9%.
Hún verður einnig með nýjum inn-
réttingum en að öðru leyti verða
farþegar varla varir við breytingar
og flugmenn geta starfað jöfnum
höndum á 757-200 og 757-300 þar
sem stjórnklefinn er eins og þær
eru nánast eins í allri meðhöndlun."
Og Leifur segist ekki vera
hræddur um að byijunarörðugleik-
ar eigi eftir að koma upp varðandi
reksturinn á þessari nýju gerð:
„Nei, bæði er þetta vél sem
byggir á 18 ára reynslu á 757-200
gerðinni og þegar Flugleiðir fá
fyrstu 757-300 vélina í sumarbyij-
un árið 2001 hefur hún verið í
rekstri í tvö ár því Condor fær
fyrstu vél sína í ársbyijun 1999
þannig að jafnvel þótt einhver
vandamál komi upp verður löngu
búið að leysa þau.“
Svo þú ert sannfærður um að
hér sé verið að kaupa réttu vélarn-
ar?
„Já, eftir þessar athuganir okkar
sem fram hafa farið hjá ýmsum
deildum fyrirtækisins er ég viss
um að 757 gerðirnar henia best á
leiðakerfi Flugleiða. Helst vildi ég
sjá 757 þotur á öllum leiðum en
það var ekki talið mögulegt á þessu
stigi, 737 þoturnar væru áfram
hentugri á ákveðnum leiðum. Þar
er til dæmis átt við leiðina milli
Keflavíkur og Hamborgar með við-
komu í Kaupmannahöfn. Þá verður
frá og með október næstkomandi
ein 737-300 QC þota notuð til frakt-
flugs að næturlagi en farþegaflugs
að degi til og um helgar.“
Núna bjóðum viö nýja kraftniikla
súpertíma fyrir vanar konur.
Stanslaus keyrsla og fjör í
tvöföldum erfiðistímum.
Fyrsta námskeiðið hefst 2. j úní
Innritun er hafin á þessi
námskeið
ATH: A deinsfyiir vanar!
Frjálsa áskriftakerfið okkar
gerir þér kleift að mæta
hvenær sem þér henlar og æfa
þig undir leiðsögn læröra
kennara. Tímamir eru frá
morgni til kvölds.
Barnapössun fyrir hádegi.
I>ú nœrð árangri hjá oklcur!
- 7/0
10.55
1-2.45
16.15+20.15
s
19.30
17.30
-28/6 10.55
12.45
16.15+20.15
17.30
/6 - 12/7 «
16.30
10.30
17.80
Aöhold
Aðliald
Aöhald
Aöhald
Aöhald
Aðhold
Súpevtími
Aöhald
Aöhald
Aöhald
Sí^perttoi
Aöhald
Sújiertími
Aðhald
A-ölvald
ertími
sumar
Byggðu upp þrek og
mótaðu sterkan,
heilbrigðan og
fallegan líkaxna
undir leiösögn
lærðra kennara.
1. júní - 1. sept. 8 vikur, kr. 7.200.-
Þarsem manrwskjan skiptirmestu...
\v---7/
KFUM
Kynningardagur V
miðbæjarstarfs KFUM og KFUK
Opið hús í dag á Rabbloftinu og Loftstofunni,
Austurstrætí 20,
2. hæð kl. 14.00-17.15.
14.00: Helgistund.
15-00: Ávarp og tónlist.
16.00: Ávarp og tónlist.
17.00: Helgistund.
Kaffi, kakó, kex og kökur handa gestum og gangandi. Tekið á móti
gjöfum til starfsins. Allir eru hjartanlega velkomnir. Gengið inn
um næstu dyr til hægri við McDonalds.
Kl. 20.00 í kvöld verður almenn samkoma í Dómkirkjunni helguð
miðbæjarstarfinu. Ávörp séra Hjalti Guðmundsson, sóknarprestur
og Gísli Friðgeirsson, forsvarsmaður miðbæjarstarfsins.
Einsöngur: Helga Vilborg Sigurjónsdóttir.
Undirleikari: Bjarni Gunnarsson.
Ræðumaður: Séra Helgi Hróbjartsson.
Allir eru hjartanlega velkomnir.