Morgunblaðið - 15.06.1997, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 15. JÚNÍ1997 23
LÖGREGLAN handtekur meintan ræningja. Fylgt er ströngum reglum þegar lífsýni eru tekin og
flutt frá vettvangi afbrots eða neyðarmóttöku til rannsóknar hjá réttarlækni.
að brýna fyrir fólki meiri virðingu
fyrir barninu og rétti þess.
Það verður æ algengara að fólk
vilji rekja uppruna sinn með DNA-
rannsókn, sé einhver vafi um fað-
ernið eða það hafi ekki verið gefið
upp, móðirin t.d. ekki viljað það.
Þetta er mjög skiljanlegt. Við
erum að verða meðvitaðri um það
hve uppruninn skiptir miklu, vilj-
um vita hvaða erfðaefni komu
saman þegar við urðum til. Fjórð-
ungi bregður til fósturs, sögðu
forfeður okkar en ég held að erfð-
irnar séu mun afdrifarikari en
uppeldi og umhverfi.
Við lítum á ýmis réttindi sem
sjálfsögð en sjálfur tel ég að réttur
allra til að eignast bam sé ekki
lengur einhlítur. Mér finnst að
bamlaust par eigi ekki
endilega sjálfgefinn rétt
á fyrirgreiðslu, t.d. með
glasafrjóvgun. Þetta er
dýrmæt þekking og
tækni sem hægt er að
nota til góðs og enginn á að stöðva
framþróun en við verðum að um-
gangast tækninýjungar með
ábyrgðartilfinningu.
Ekkert fyrirtæki er hægt að
reka án þess að þak sé á útgjöld-
um, það á líka við um heilbrigði-
skerfið. Hvað á að ganga langt í
að tryggja rétt allra til að eignast
barn með tæknilegri aðstoð, á
hann t.d. að vera sjálfsagður þeg-
ar um alnæmi, lifrarbólgu eða
sannanlega erfðasjúkdóma hjá
foreldrum er að ræða? Við vitum
að nú eru um 450 manns hér á
landi sýkt af lifrarbólgu C, oftast
er þetta ungt fólk sem er eða hef-
ur verið í vímuefnum og smitast
af óhreinum sprautum. Síðar á
þetta fólk eftir að verða gríðarlega
þungur baggi á heilbrigðiskerfinu
sem þegar er ofhlaðið.
Eignist móðir með þennan sjúk-
dóm barn eru nokkrar líkur á að
barnið verði einnig sjúkt. A bam
sem ekki er búið að geta engan
rétt, má taka hvaða áhættu sem
er fyrir hönd þess? Þetta er mál sem
varðar framtíð okkar allra og DNA-
greiningin gerir enn brýnna að við
tökum afstöðu. Réttur bamsins er
sterkari en réttur fullorð-
ins fólks til að eiga bam.
Nú þegar er réttur til
að eiganst bam tak-
markaður með ýmsum
hætti í heiminum, full-
komið frelsi til að eignast afkom-
endur ríkir ekki. Þetta er takmark-
að með lögum í Kína og það veldur
þar ýmsum vanda, annars staðar
gera slæm kjör fólki erfitt fyrir um
bameignir. Mér finnst við verðum
að horfast í augu við að þessi rétt-
indi em ekki sjálfsögð lengur í heimi
þar sem auðlindir em takmarkaðar
og fólkinu fjölgar stöðugt. Við verð-
um alltaf að velja og hafna.“
Börn eins
og leikföng
fullorðinna
FLUGFELAG ISLANDS
Velkomin um borð!