Morgunblaðið - 06.08.1997, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
MIÐVIKUDAGUR 6. ÁGÚST 1997 11
Yiðeyjarkirkja
Kaþólsk messa til
heiðurs Olafi helga
VIÐEYJARKIRKJA var þétt skipuð
síðastliðinn sunnudag þegar biskup
kaþólska söfnuðarins á Islandi, Jo-
hannes Gijsen, söng messu til heið-
urs Ólafi helga Haraldssyni, Nor-
egskonungi.
„Biskupinn predikaði á íslensku
en messan fór fram að miklu leyti
á latínu og þá skynjaði maður söng
aldanna í kirkjunni," sagði Þórir
Stephensen, staðarhaldari í Viðey.
Sterk tengsl eru milli Viðeyjar-
kirkju og Ólafs helga. „Á sínum
tíma var Viðeyjarkirkja Maríu-
kirkja, en Ólafur helgi var einn af
dýrlingum kirkjunnar. Þannig að
Ólafsmessa var alltaf sungin í Viðey
á fyrri tíð. Þá má geta þess að
Styrmir fróði, sem var annar for-
stöðumaður klaustursins í Viðey,
skrifaði sögu Ólafs helga og það
er talið að Snorri Sturluson hafi
haft Ólafs sögu Styrmis að grund-
velli að sinni Ólafssögu."
Almenn kaþólsk biskupsmessa
hefur ekki verið sungin í Viðey síð-
an Jón Arason, biskup á Hólum
endurvígði kirkjuna og staðinn all-
ann í Viðey árið 1550. „Ég er mjög
ánægður með hvernig til tókst á
sunnudaginn og vonast til að efla
enn frekar tengslin milli þessa
gamla kaþólska helgiseturs og kaþ-
ólsku kirkjunnar á íslandi í dag,“
sagði Þórir.
Morgunblaðið/Arnaldur
Halldór
Runólfs-
son ráðinn
yfirdýra-
læknir
• LANDBÚNAÐARRÁÐ-
HERRA hefur skipað Halldór
Runólfsson dýralækni í embætti
yfirdýralæknis frá og með 1. sept-
ember nk. Hann tekur við starfi
Brynjólfs Sand-
holt sem lætur
af störfum sök-
um aldurs.
Halldór nam
dýralækningar í
Skotlandi
1968-1973.
Hann var hér-
aðsdýralæknir í
Kirkjubæjar-
klaustursu-
mdæmi 1974-1983. Hann var
deildarstjóri við Hollustuvernd rík-
isins 1984-1991, en hefur síðan
verið framkvæmdastjóri Heilbrigð-
iseftirlits Kjósarsvæðis. Halldór
hefur auk þess gegnt ýmsum trún-
aðarstörfum fyrir stjórnvöld og
Dýralæknafélagið, en formaður
þess var hann um tíma.
Halldór sagði í samtali við Morg-
unblaðið að meginhlutverk yfir-
dýralæknis væri að koma í veg
fyrir útbreiðslu dýrasjúkdóma.
Honum bæri að stuðla að því að
dýrasjúkdómar sem fyrir væru í
landinu breiddust ekki út og einnig
að koma í veg fyrir að sjúkdómar
sem ekki væri að finna hér bærust
til landsins. Með auknum innflutn-
ingi á matvælum á seinni árum
þyrfti yfirdýralæknir að gæta sér-
staklega að því að hann yrði ekki
til þess að spilla þeirri góðu stöðu
sem við höfum hér á landi hvað
varðar dýrasjúkdóma. Eins þyrfti
að gæta að því að innflutt mat-
væli yllu ekki sjúkdómum í mönn-
um.
„Það má segja að við stöndum
nokkuð vel að vígi hvað varðar
dýrasjúkdóma. Á liðnum árum og
áratugum hefur okkur tekist að
útrýma mörgum sjúkdómum, en
það hefur líka kostað mikla vinnu
og mikla fjármuni. Það er því mikil-
vægt að halda þessari góðu stöðu,“
segir Halldór.
Halldór sagði að yfirdýralæknir
sinnti auk þess margs konar ráð-
gjöf til ríkisstjórnar og ráðherra
um allt sem sneri að þessum mála-
flokki. Eðlilega þyrfti hann einnig
að hafa mikil samskipti við héraðs-
dýralækna og sérgreinadýralækna
sem undir embættið heyrðu.
Aðrir umsækjendur um stöðu
yfirdýralæknis voru dýralæknarnir
Gunnlaugur Skúlason, Konráð
Konráðsson, Magnús H. Guðjóns-
son og Ólafur Oddgeirsson.
4 ISUu 1000 sn.þvottavél, Stiglaus hitastillir '£P£S4^80Qsn. þvottavél, 13 þvottakerfi
Hraðþvottakerfi (30mín.) 15 mismunandi kerfi. Sþárnaðarkerfi - Flýtiþvottakerfi,
Tekur 5 kg. Vinduöryggi
> V1000 sn. þvottavél, 17 þvottakerfi,
ullarvagga, sparnaðarkerfi, tekur 5 kg.
)Ol 1200 sn. þvottavél, 13
ullarvagga, sparnaðarkerfí,
tekur 5 kg.
þurrkari, tekur 5 kg.,
120 mín prógram, 2 hitastillingar o.mfl.
þvbttavél, tekur 12 manna
stell, lágvær, 4 þvottakerfi
baraklaus þurrkari, tekur 6 k(
120 mín prógram, 2 hitastillingar o.ml
_ ____*-i ^_/_l
>Ool 158 l.kæliskápur með
læð: 139 cm, breidd: 55,5 cm
TVestfrost kæliskápur og frystir
Hæð: 185 cm, breidd: 59,5 cm
SlEMENSu,
stell, 3 þvottal
ottavél, tekur 12 manna
Aqua Stop flæðiö|yqgi.
eldavél, 4 hraðsuðuhellur, undir
og yfirhiti, grill. Hæð:90/92 cm,
breidd: 59,5 cm, dýpt: 60 cm
erum
VERIÐ VELKOMIN I VERSLUN OKKAR
- ANNO 1 929 -
Skútuvogur 1 • Simi 568 8660 • Fax 568 0776
I. kæliskápur með 141. frysti
Hæð 85 cm, breidd: 55 cm
Verð kr. stgr.
Verð kr. stgr.
Verð kr. stgr.
Verð kr. stgr.
Verð kr. stgr.
Verð kr. stgr.
Verð