Morgunblaðið - 06.08.1997, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
MIÐVIKUDAGUR 6. ÁGÚST 1997 15
Grágæsinni fjölg-
ar á Blönduósi
Blönduósi - Mikið hefur verið
um það rætt að undanförnu
að grágæsinni hafi fækkað og
m.a. vitnað í talningar frá
Bretlandi. Blönduósingar
verða ekki mikið varir við
þessa fækkun því enginn vafi
er á, sögn kunnugra, að grá-
gæsinni hefur fjölgað á
Blönduósi. íbúar við Flúða-
bakka geta a.m.k. borið vitni
um það, því gæsaskíturinn á
götunni er slíkur að menn
tala um hálkubletti af þessum
völdum. Gæsin er nokkuð gæf
og heimarík. Hún hvæsir á
þá sem hætta sér of nærri og
dæmi eru um að gæsir hafi
orðið undir bíl og látið þar líf
sitt. Um það vitnar grafreitur
sem einhver hjartahlýr vegf-
arandi hefur gert einni gæs-
inni og letrað á krossinn
„Gæs“.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Morgunblaðið/Sig. Fannar
Hér er Þröstur Árnason bæði
hræddur og hissa með ný-
fenginn afla.
X-ferðir á Selfossi
Nýir af-
þreyingar-
mögnleikar
Selfossi - Ferðaskrifstofan X-ferðir
á Selfossi stóð nýverið fyrir kynningu
á nýjum afþreyingarmöguleikum.
Farið var í sjóstangveiði og skemmti-
siglingu frá Þorlákshöfn. Þátttakend-
ur í ferðinni voru frá ýmsum fyrir-
tækjum frá Selfossi og Reykjavík.
Siglt var undir stjórn Hauks Jóns-
sonar skipstjóra á 10 tonna trillu,
Mána ÁR. Trillan getur tekið 8-15
manna hópa og eru ferðirnar hugs-
aðar fyrir starfsmannafélög smærri
fyrirtækja og einnig sem óvissuferð-
ir, sem njóta síaukinna vinsælda.
Mokveiði var í ferðinni og veidd-
ust í kringum 80 þorskar á sjóstöng,
einnig veiddist töluvert af ufsa en
vegna smæðar þá var honum sleppt.
Veitt var rétt utan við hafnargarðinn
í Þorlákshöfn og það var ekki annað
að sjá á því fólki sem þarna var
komið saman en að ferðin hefði ver-
ið ógleymanlegt ævintýri. Þorbjörg
Árnadóttir hjá X-ferðum sagðist
hafa verið ánægð með útkomuna.
VERKTAKAR!
0 ÍSURUMI
grunnvatnsdælur
1 “-8“ 220/380 V
SkútUTOfli 12a, 104 Rvík., s. 5812530