Morgunblaðið - 06.08.1997, Side 20
20 MIÐVIKUDAGUR 6. ÁGÚST 1997
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
LISTIR
-----------------------— i
Calment lifði
20 Frakk-
landsforseta
Marseille. Reuter.
FRANSKA konanJe-
anne Calment, sem
lést árla í fyrradag,
náði hærri aldri en
nokkur staðfest dæmi
eru um fyrr og síðar.
Hún var 122 ára og
164 daga gömul er
hún dó á elliheimili í
bænum Arles í Suður-
Frakklandi þar sem
hún fæddist og bjó
alla sína tíð. Ekki hef-
ur verið skýrt frá því
hver dánarorsök Cal-
ment var.
Calment fæddist í
Arles 21. febrúar
1875 en þá var Lenín
fimm ára og jafn-
mörg ár voru liðin frá því að
Napóleon III hrökklaðist frá völd-
um. Þá voru og 10 ár frá morðinu
á Abraham Lincoln Bandaríkja-
forseta. Þegar hún fæddist voru
hvorki til kvikmyndir, bílar, símar
né flugvélar. Alls 20 menn hafa
gegnt embætti Frakklandsforseta
um hennar daga.
„Minning þessarar merku konu
mun lifa í hugum Frakka um alla
eilífð,“ sagði Jacques Chirac for-
seti í gær. Hann sagði leyndar-
dóminn á bak við langa ævi frú
Calment vera þann að hún hefði
jafnan gleymt öllum erfiðleikum
og vandræðum, einungis lagt hið
ánægjulega á minnið.
Hláturinn lengir lífið
Þó hún hafi verið orðin blind
og nær heyrnarlaus var frú Cal-
ment vel á sig komin allt þar til
hún dó. Hún var ætíð geðgóð og
laus við streitu og höfðu læknar
aldrei neina skýringu á því. Sagði
hún jafnan að brosmildi lengdi
lífið. Skopskyn hennar var anná-
lað. „Ég er aðeins með eina
hrukku og ég sit á henni,“ sagði
hún nýverið. „Ætli ég deyi ekki
hlæjandi," var ennfremur nýlega
eftir henni haft. Sumir halda því
fram að skýringa á langlífi Cal-
ment sé að leita í litningum henn-
ar, forfeður hennar hafi allir náð
háum aldri.
Frú Calment, sem komst á líf-
eyrisaldur árið sem herir nasista
réðust inn í Frakkland, 1940, lifði
eiginmann sinn, Fernand Cal-
ment, og alla afkomendur. Þau
gengu í hjónaband
1896 en hann dó 1942.
Dóttir þeirra lést árið
1934 og dóttursonur,
sem var læknir, lést
1963.
Þegar Calment
varð 121 árs var gef-
inn út geisladiskur
sem bar nafnið „Lags-
kona tímans" þar sem
hún talaði við teknó-
og rappundirleik.
Óperur voru henni þó
fremur að skapi en sú
tónlist sem leikin var
á diskinum. Carmen
eftir Bizet var í uppá-
haldi hjá henni enda
frumflutt árið sem
hún fæddist.
Nýhætt að reykja
Calment reykti þar til hún lagði
þann ósið á hilluna fyrir fimm
árum, en gottþótti henni súkkul-
aði og hún fékk sér vínglas öðru
hveiju. Hún var 14 ára gömul er
hún hitti málarann Vincent van
Gogh, sem keypti jafnan striga
og liti í verslun föður hennar.
„Hann var ljótur eins og erfða-
syndin, skapbráður, ókurteis og
lyktaði af brennivíni. Ég forðaði
mér jafnan þegar hann birtist,"
sagði frú Calment.
Fyrir 32 árum hafði lögfræð-
ingur í Arles, Andre-Francois
Raffray, augastað á íbúð Cal-
ment, sem þá var níræð, og samdi
um það við hana, að hann skyldi
greiða henni 34.000 krónur á
mánuði meðan hún lifði gegn því
að eignast íbúðina að henni lát-
inni. Hann lést 77 ára gamall í
hitteðfyrra og hafði þá borgað
íbúðina að minnsta kosti þrisvar
sinnum. „Við semjum öll af okkur
einhvern tíma á lífsleiðinni," svar-
aði Calment er hún var spurð um
samning þeirra á 120 ára afmæli
sínu 1995.
Sá elsti
Að sögn franskra fjölmiðla er
elsti núlifandi maður heims, að
Calment brottgenginni, dansk-
bandarískur karlmaður að nafni
Christian Mortensen sem býr á
elliheimili í San Rafaei í Kalifor-
níu. Heldur hann upp á 115 ára
afmæli sitt 16. ágúst næstkomandi.
Jeanne
Calment
Karl Bretaprins
Kirkjan
andvíg
hjónabandi
Sydney. Reuter.
GEORGE Carey, erkibiskupinn
í Kantaraborg, sagði í gær að
ef Karl Bretaprins kvæntist að
nýju myndi það valda ensku
biskupakirkjunni „miklum
vanda“.
Carey sagði að skilnaður
Karls og Díönu prinsessu ylli
ekki vandræðum en öðru máli
gegndi um nýtt hjónaband.
Erkibiskupinn í Kantara-
borg, sem er andlegur leiðtogi
kirkjunnar, hefur hingað til
neitað að tjá sig um afleiðingar
þess að Karl kvæntist ástkonu
sinni, Camillu Parker Bowles.
Bresk dagblöð hafa verið með
vangaveltur um að hann vilji
kvænast Parker Bowles en
Carey kvaðst telja að prinsinn
myndi ekki ganga í hjónaband
að nýju.
Uppskeru-
brestur í
Norður-
Kóreu
Róm. Reuter.
ÞURRKAR hafa valdið uppskeru-
bresti i Norður-Kóreu. Hjálparsam-
tök segja að 70% af maísuppsker-
unni hafi eyðilagst.
Norður-Kórea hefur þurft á al-
þjóðlegri hjálp að halda síðan flæddi
yfir akra á árunum 1995 til 1996.
Þurrkarnir að undanförnu bæta
gráu ofan á svart. „Þetta verða
gífuriegar hörmungar sem enginn
átti von á vegna þess að þeir [N-
Kóreumenn] vonuðu alltaf að byija
myndi að rigna,“ segir Roberto
Christen, ráðgjafi hjá Alþjóðamat-
vælastofnuninni (FAO) í Róm.
Hjálparstarfsmenn segja að 38%
af n-kóreskum börnum undir fimm
ára aldri séu vannærð. Byijað er
að líkja ástandinu við Eþíópíu á
níunda áratugnum.
Ástríðufull-
ur einfari
RÚSSNESKI píanó-
leikarinn Sviatoslav
Richter er nýlátinn á
83. aldursári. Richter
var einn af meisturum
klassísks píanóleiks á
þessari öld. Hann var
sjálflærður á píanó
framan af aldri og var
orðinn þekktur undir-
leikari og aðstoðar-
hljómsveitarstjóri
Óperunnar í Odessa
þegar hann hóf nám
við Tónlistaháskólann
í Moskvu, 22 ára að
aldri. Richter naut
mikillar hylli í heima-
landi sínu og á alþjóða-
vettvangi en olli aðdáendum sínum
oft vonbrigðum með því að hætta
við tónleika á síðustu stundu. Tón-
listarfólk minnist þessa merka
manns sem sérviturs einfara sem
stöðugt kom á óvart í túlkunum
sínum.
Rögnvaldur Siguijónsson,
píanóleikari, hlýddi á tónleika Ric-
hters í Kaupmannahöfn fyrir um
17 árum. „Það var alveg stórkost-
legt en það kom mér á óvart að
ekki skildi vera fullt hús á tónleik-
um jafn virts píanóleikara,“ segir
Rögnvaldur. Hann segir að spila-
mennska Richters hafi verið langt
frá því að falla að smekk allra og
sjálfur hafi hann ekki alltaf kunnað
að meta túlkanir Richters. „Hann
var mikill sérvitringur og fór sínar
eigin leiðir en hann var afskaplega
hugmyndaríkur og kom manni á
óvart og þess vegna var alltaf
spennandi að hlýða á túlkanir
hans,“ segir Rögnvaldur.
Jón Ásgeirsson, tónskáld og tón-
listargagnrýnandi, minnist Ric-
hters fyrir ástríðufullar túlkanir.
„Hann spennir bogann
oft hátt og mörgum
finnst hann ofgera í
magnþrungnum flutn-
ingi,“ segir Jón. Hann
segir spilamennsku
Richters oft sérvisku-
lega en rómantísk tón-
verk hafi hann spilað
af miklum glæsibrag.
„Einhver minnisstæð-
asta spilamennska
hans í mínum huga er
sonata apassionata
eftir Beethoven. Þar
greip maður andann á
lofti yfir framúrskar-
andi leik Richters,"
segir Jón.
„Richter er maður sem mikill
söknuður er í,“ segir Steinunn
Birna Ragnarsdóttir, píanóleikari.
„Hann er einn af þessum stóru
píanistum af gamla skólanum sem
maður óttast að sé að líða undir
lok.“ Hún segir að sérstaða Ric-
hters felist í breidd hans í verk-
efnavali og mjög persónulegri túlk-
un. „Hann var litríkur og sterkur
í túlkun sinni, leitaði inn á við og
hann féll ekki í þá gryfju að verða
skemmtikraftur," segir Steinunn.
Hún telur það kost fremur en löst
fyrir píanóleikara að vera sérlund-
aður því auðvelt sé að týna sér
þegar menn haldi tónleika jafn ört
og víða og Richter gerði. „Ég
hreifst mjög mikið af upptökum
hans á Bach og Beethoven. Hann
leyfði sér aldrei að missa það mikla
stjórn á sér að hann gæti túlkað
vel rómantík en hann var skipu-
lagður í hugsun og hafði alltaf
heildarsýn yfir það sem hann var
að spila. Klassísk verk sem kröfð-
ust yfirsýnar áttu því vel við hann,“
segir Steinunn Birna.
Sviatoslav
Richter
VERK Birnu Matthíasdóttur.
Umrót í
Galleríi
Listakoti
GRAFÍKLISTAKONAN Birna
Matthíasdóttir opnar sýningu á
verkum sínum í Galleríi Listakoti,
Laugavegi 70, á morgun, fimmtu-
dag. Hún sýnir bæði einþrykk og
ætingar. Verkin eru öll unnin á
þessu ári á vinnustofu félagsins
Islenskrar grafíkur og í Skotlandi
þar sem Birna hefur dvalist síðast-
liðin tvö ár.
Birna lauk námi frá Myndlista-
og handíðaskóla íslands árið 1991
og hefur síðan numið og starfað
að myndlist sinni í Svíþjóð, á Spáni
og Bretlandi.
Sýningin stendur til laugardags-
ins 30. ágúst og er opin alla virka
daga frá kl. 10-18 og laugardaga
10-16. Birna verður á staðnum
kl. 17-18 opnunardaginn.
-----♦--------
Helga sýnir í
Jóni Indíafara
HELGA Jóhannesdóttir opnar
einkasýningu á leikverkum, í dag,
miðvikudag, í versluninni Jóni
Indíafara í Kringlunni. Sýningin
ber yfirskriftina Blátt.
Sýningin er opin á verslunartíma
til 1. september.
Litlaus Leður-
blökumaður
KVIKMYNPIR
Sambíóin, Álfa-
bakka/Kringlubíó/
Rcgnboginn
„BATMAN & ROBIN" ★
Leikstjóri: Joel Schumacher. Kvik-
myndataka: Stephen Goldblatt.
Handrit: Akiva Goldman og Christo-
pher McQuarrie. TæknibreUur: Pac-
ifíc Data Images, Warner Digitial
Studios, Flash Film Works. Aðalhlut-
verk: Arnold Schwarzenegger,
George Clooney, Chris O’Donnell,
Uma Thurman, Alicia Silverstone,
og Michael Gough. 126 mín. Banda-
rísk. Warner Bros.
ÞAÐ hlaut að koma að því. Síð-
asta innleggið í Leðurblökuseríuna
er langdregið og þreytandi. í fyrri
myndum í seríunni var ekki lögð
mikil áhersla á söguþráð, en hann
var samt til staðar í einhverri
mynd, og smá púðri var alltaf eytt
í persónusköpun, að minnsta kosti
fyrir illmennin, en þessu hefur al-
veg verið sleppt í þetta skipti.
Spennan er horfin með öllu og það
eina sem situr eftir er innantóm
meira en tveggja tíma löng skraut-
sýning á skautum.
Hveijum datt í hug að ráða
George Clooney í hlutverk Leður-
blökumannsins? Hann hefur
kannski réttu hökuna í búninginn
en annað hefur hann ekki. í fyrstu
tveimur Leðurblökumyndunum,
„Batman“ og „Batman Returns",
sem Tim Burtons leikstýrði, fór
Michael Keaton með hlutverk
Bruce Wayne/Leðurblökumanns-
ins og kom skemmtilega á óvart
sem alvarlegi ríkisbubbinn sem
klæðist einkennilegum búningi á
kvöldin til þess að geta farið út
með allt flotta dótið sitt og barið
á krimmum og biluðum óþjóðalýð.
Val Kilmer skellti sér síðan í
skikkjuna í þriðja innlegginu,
„Batman Forever11, og var kyn-
þokkafullur og dapur Leðurblöku-
maður. Clooney er hins vegar
hvorki sjarmerandi né þunglyndur
vegna fortíðarinnar, heldur litlaus
og óspennandi skuggamynd ger-
sneydd karakter.
Um aðstoðarmenn Leðurblöku-
mannsins er best að segja sem
minnst. Chris O’Donnell leikur
Robin. Hann er daufur og sviplít-
ill tuðari sem eyðir myndinni í það
að væla utan í Wayne. Þessir
óskemmtilegu félagar fá nýjan
aðstoðarmann þegar Barbara
(Alicia Silverstone), frænka Al-
freðs bryta, ákveður að gerast
Leðurblökustelpan. Enginn ætti
að verða hissa á því að frétta að
hún er foreldralaus og gleymir
sorgum sínum með því að keppa
á mótorhjóli. Hún fær að sjálf-
sögðu þennan fína búning með
svakalega háhæluðum skóm svo
það sé nú auðveldara fyrir hana
að spretta úr spori á eftir ill-
mennunum.
Þá eru það illmennin, sem fram
að þessu hafa verið lífblóð Leður-
blökumyndanna. Jack Nicholson,
Danny DeVito, Michelle Pfeiffer,
Christopher Walken, Tommy Lee
Jones, og meira að segja Jim
Carrey, hafa öll verið eftirminni-
leg sem snarbilaðir skúrkar í
Leðurblökumyndunum þremur. í
þetta skipti er það austurríska
vaxtarræktartröllið Arnold
Schwarzenegger, sem fær heið-
urshlutverkið sem aðalfólið í
„Batman & Robin“. Schwarz-
enegger hefur mjög takmarkaða
leikhæfileika og tekst því illa að
vera skemmtilega bilað illmenni.
Það fer aðallega hrollur um áhorf-
endur þegar hann birtist af því
að þá þurfa þeir að hlusta á mann-
inn reyna að gera sig skiljanlegan
á enskri tungu.
Þar sem Schwarzenegger mis-
tekst hrapallega, fellur það í
skaut Umu Thurman að vera geð-
veiki snillingurinn í þessari mynd
og hún gerir það með glans. Það
birtir yfir tjaldinu í hvert skipti
sem Thurman lætur sjá sig sem
Poison Ivy. Hún er eini leikarinn
sem virðist virkilega finna sig í
hlutverki sínu og greinilega nýtur
þess að leika svona ýkta persónu.
Leikur Thurman er samt ekki nóg
til að bjarga myndinni.
Ef fólk gerir sig ánægt með
risavaxna sviðsmynd, tæknibrell-
ur og hávaðasama hljóðrás þá er
„Batman & Robin“ myndin fyrir
það. Ef ekki þá er fjórða myndin
um Leðurblökumanninn þreyt-
andi hávaðamengun.
Anna Sveinbjarnardóttir
)
I
*
I
í
>
[
>
i
[
I
I
I
t
I
I
a