Morgunblaðið - 24.08.1997, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 24.08.1997, Qupperneq 4
4 B SUNNUDAGUR 24. ÁGÚST 1997 MORGUNBLAÐIÐ BRYNHILDUR Jóhannsdóttir. ÞAÐKOM ALDREI GUSTUR AÐMÉR Sú sem þetta mælir er Brynhildur Jóhanns- __dóttir, ekkja Alberts Guðmunds-_ sonar, stórkaupmanns og alþingismanns, sem er jafnframt einn frægasti íþróttamaður — sem Islendingar hafa eignast, og ruddi brautina á alþjóðavettvangi. Brynhildur ræddi lífshlaup sitt við Guðrúnu Guðlaugsdóttur fyrir skömmu. INN 21. ágúst 1926 fæddist hjónunum Jó- hanni Guð- mundssyni og Guðrúnu Magnúsdótt- ur stúlkubam rétt fyrir miðnætti, fáeinum mínút- um síðar fæddist svo önnur stúlka og hún er sú sem hér segir af. Bryn- hildur Jóhannsdóttir fæddist í Reykjavík en fór tveggja ára gömul með foreldrum sínum og tvíbura- systur, Álfhildi Helenu, til Siglu- fjarðar og þar bjó fjölskyldan í tólf ár. Á Siglufirði bjó föðurfólk Bryn- hildar, Jóhann faðir hennar var frá Syðsta-Mói í Fljótum. Framan af leið líf Brynhildar eins og „dans á rósum“, eins og hún orðar það - en svo drap sorgin á dyr. „Þegar ég var hálfs sjöunda árs dó tvíbura- systir mín og það var óskaplega sárt fyrir okkur sem eftir vorum,“ segir Brynhildur. „Það var þó for- eldrum mínum raunabót að rúmum mánuði síðar fæddist þeim drengur, Álfþór Brynjarr. Ég var hins vegar lengi leið yfír að eignast ekki nýja systur í stað þeirrar sem ég missti og saknaði svo sárlega. Systir mín dó úr heilahimnubólgu, þeirrar teg- undar sem tiltölulega auðvelt er að lækna með þeim Iyfjum sem fyrir hendi eru í dag, en ekki voru til þá.“ Þótt líf Brynhildar yrði ekki samt lengi upp frá þessum atburði á hún þó ákaflega góðar minningar frá Siglufirði. „Þar voru allir góðir við mig, bæði skyldir og vandalausir, og þannig hefur það raunar alltaf verið. Ég sagði þetta einu sinni við vinkonu mína og hún svaraði: „Binna mín, það er ekki hægt að vera vondur við þig.“ Þessi orð hennar glöddu mig. Faðir Brynhildar var verkstjóri í síldarverksmiðjunum á Siglufirði. „Þá voru allir í síld,“ segir Brynhild- ur. Þegar talið berst að efnhag fjöl- skyldunnar kveðst Brynhildur lítið hafa „spekúlerað" í honum. „En við höfðum það gott og bjuggum í eigin húsi og þótt það væri engin höll var það höll fyrir mig,“ segir hún. Þegar Brynhildur var 12 ára flutti fjöl- skyldan til Seyðisfjarðar þar sem Jóhann faðir hennar var fram- kvæmdastjóri við Síldarverksmiðj- una í fimm ár. Brynhildur var á átj- ánda ári þegar fjölskyldan flutti til Reykjavíkur. „Þá var ég búin að vera hér tvo vetur í Versló, bjó hjá frænku minni, ég lauk námi veturinn sem pabbi og mamma fluttu suður," segir hún. En hvers vegna skyldi hún hafa valið nám við Verslunar- skólann? „Það var svo flott,“ svarar hún sposk. Ekki kveðst hún hafa haft minnsta áhuga fyrir verslunar- störfum þegar námið hófst, valinu hafí líklega helst ráðið að faðir henn- ar hafði verið í Verslunarskólanum á sinni tíð og einnig var þetta talinn góður „stökkpallur" í annað nám. Ur því varð þó aldrei. „Mér gekk vel að læra og íhugaði að taka stúd- entspróf en þá var ég trúlofuð Al- bert og hann var ekki á því að sleppa mér í skóla aftur, annars hefði ég hiklaust haldið áfram námi,“ segir hún. Síðar stundaði hún þó margvís- legt tungumálanám, bæði meðan hún bjó í Frakklandi og á Ítalíu, - „svo fór ég í spönskunám með vin- konu minni fyrir nokkrum árum og við lærðum það mikið að ég gat bjargað mér ansi vel á spönsku. Ég kann iíka „graut“ í þýsku og raunar fleiri tungumálum." En hvar skyldi hún hafa hitt Al- bert Guðmundsson? „Við hittumst fyrst á dansæfingu í Samvinnuskó- lanum þar sem hann var við nám þá. Bekkjarbræður mínir í Versló spurðu raunar hvað ég hefði verið að gera á dansæfingu í Samvinnu- skólanum en það var svona þá, maður flakkaði á milli dansæfinga framhaldsskólanna sem þá voru starfandi. Ég hafði aldrei heyrt Al- berts getið þegar ég hitti hann á dansæfingunni og ég vissi raunar ekki fyrr en að heilum vetri liðnum að Alli minn væri sá hinn sami og AIli í Val sem þá var farið að tala talsvert um. Hann talaði aldrei við mig um fótbolta enda hafði ég eng- an áhuga á íþróttum og hef aldrei haft. Við fórum mest í bíó, þá þurfti fólk oft að kaupa miða á svörtum markaði, og svo fórum við á dansæf- ingar og þar kom að ég fór með honum á árshátíð hjá íþróttafélaginu Val. Ég hafði einstaklega gaman af að dansa, ég fór ekki í dansnám af neinu tagi, mér var þetta bara í blóð borið eins og fleirum. Ég lærði svolít- ið á píanó en hafði mesta ánægju af þeirri tónlist sem mest var í tísku á stríðsárunum en þá var þetta allt að gerast. Talið berst að bíómyndum og leik- urum en Brynhildur safnaði Ieikara- myndum eins og margar stúlkur af hennar kynslóð. Hún hugsar sig vandlega um þegar ég spyr hana hver hafl verið uppáhaldsleikkonan hennar á þessum árum. „Ég hugsa að það hafi verið Katharine Hep- burn,“ segir hún svo. „Hún var ekki beint lagleg en bar mikla persónu." Sir Laurence Olivier, Clark Gable og Robert Taylor voru líka í náðinni hjá Brynhildi. „Það var ekki svo mikið um skemmtanir þá, allir fylgdust vandlega með þeim kvikmyndum sem hingað bárust, ég man t.d. vel þegar stórmyndin fræga, Á hverfanda hveli, kom. Hún var sýnd tvö kvöld í röð, hún var svo löng, og biðröðin eftir miðunum var líka löng. Við Albert fórum á allar bíómyndir sem komu hingað - þá gat hann haldið í hönd- ina á mér. í þá tíð sýndi fólk ekki tilfinningar sínar opinberlega." Brynhildur fór að vinna við skrif- stofustörf hjá fyrirtækinu Friðrik Bertelsen eftir að náminu við Versl- unarskólann lauk. Síðar vann hún hjá Innkaupastofnun ríkisins. „Svo giftist ég og fór út,“ segir hún. „Við Albert vorum trúlofuð í fjögur ár. Fyrst vorum við í námi og svo fór Albert út til Skotlands og Eng- lands í framhaldsnám í verslunar- fræðum." Hvernig skyldi Albert, sem var lítt efnum búinn á þeim árum, hafa fjármagnað námsferðir sínar til útlanda? „Ég tók að mér að verða gjaldkeri fyrir hann,“ svar- ar Brynhildur. „Ég tók af honum allt sælgætisát og lagði fyrir pening- ana sem í slíkt höfðu farið og þann- ig m.a. fékk hann ferðafé. Hann var óskaplegur sælkeri, var alltaf með súkkulaðistykki í vasanum, en eftir að gjaldkerinn kom til sögunnar var tekið fyrir það og hann átti 15 þús- und krónur þegar hann fór út. Það þætti líklega ekki mikið núna. Fyrst eftir að hann kom út bjó hann hjá skoskum vinum okkar en svo fór hann til London og þá fór hann að spila með Arsenal, þeir vildu fá hann í liðið en þá fékkst ekki leyfi fyrir útlendinga. Þetta var byrjunin á íþróttaferli hans á erlendri grund.“ Meðan á þessu öllu stóð sat Bryn- hildur heima hjá foreldrum sínum í „föstum festum," eins og hún orðar það. „Ég fór aldrei neitt nema í bíó og leikhús meðan Albert var úti, ég fór aldrei á böll nema með honum eftir að við vorum trúlofuð," segir hún. Árið 1946 gerði svo Albert brúðkaup sitt til Biynhildar og var þá mikið um dýrðir. Rösku ári síðar fæddist þeim hjónum fyrsta barnið, dóttirin Helena, og skömmu síðar hélt Brynhiidur með manni sín til útlanda. „Þá yfirgaf ég fyrst for- eldrahúsin og það gerði ég með viss- um söknuði. Foreldrar mínir voru bæði góð, gáfuð, skáldmælt og skemmtileg og heimilislífið hjá þeim var afar gott. Móðuramma mín var hjá okkur í heimili og hún sagði mér margt gagnlegt og skemmtilegt og það gerði líka föðuramma mín á Siglufirði. Hún endursagði mér heilu skáldsögurnar sem hún hafði lesið. I miðri sögufrásögn mundi hún svo kannski eftir annarri sögu sem hún hafði iesið og sagði mér hana inni á milli, svo það fór ekkert til spillis. Sjálf hef ég alltaf haft ákaflega gaman af að lesa, bæði ljóð og óbundið mál. Einu sinni var Einar Benediktsson mitt uppáhaldsskáld en núna er ég mun hrifnari af Steini Steinarr, Tómasi og Snorra Hjartar- syni.“ Uppáhaldskvæði Brynhildar er þó ekki eftir neitt af þessum skáldum - heldur hana sjálfa og er um hana og Alberl. Situr hljóð í húmsins næði hugur reikar víða. Trúir enn á töfraklæði við tóna undurþýða. Reynir orð á flugi að fanga Finnst hún þekkja lagið. Luktar brár og bros um vanga blítt er hörpuslagið. I found my thrill on Blueberry Hill - on

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.