Morgunblaðið - 24.08.1997, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 24.08.1997, Blaðsíða 19
18 B SUNNUDAGUR 24. ÁGÚST 1997 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. ÁGÚST 1997 B 19 MAMIRAUA land flæðiskógarins AMAZON-frumskógurinn er langstærsta regn- skógabeltið sem eftir er á jörðinni. Hann breiðist yfir miðhluta Suður-Am- eríku og þekur rúmlega 7 milljón ferkílómetra svæði í sex löndum. Heitir og rakir vindar af Atlantshafi mæta röku uppstreymi skógarins og við þær aðstæður myndast mikil úr- koma á vatnasvæði sem er á stærð við Bandaríki Norður-Ameríku. Þar er stærsta og flóknasta vatnasvið veraldar; þéttriðið net ofið úr ám, fljótum og vötnum með ótrúlega fjölbreyttu lífríki. Við ósinn er Amazon-fljótið um 300 km breitt, það inniheldur um 15% af öllu ár- vatni jarðar og er rúmlega íjórum sinnum stærra en næststærsta fljót- ið, Congo-fljótið. Amazon-fljótið rennur um land goðsögulegra ævintýra, land ótal sagna af furðum og hættum sem landkönnuðir upplifðu á ferðum sín- um upp fljótið. Strax í barnæsku heillaðist ég af þessum sögum og gömlu koparstungunum sem skreyttu þær. Friðlandið Eftir að hafa unnið í rúmlega tíu ár í norðurhluta Venezuela við Orin- oco-fljótið fékk ég loksins tækifæri til að kynnast Amazon-svæðinu af eigin raun. Eg fór að vinna með hópi brasilískra stúdenta á vemdarsvæði sem kallast Mamirauá, land flæði- skógarins. Eg fékk fyrst innsýn í hugtakið flæðiskógur í fyrstu heim- sókn minni til Mamirauá. Eg var á ferð með Ronis da Silveira, brasil- ískum nema sem rannsakaði lifnað- arhætti jacares, sem er suður-amer- ískur ættingi krókódíla. Ég stóð í báti og horfði á munguba-trén teygja sig til himins. Munguba-trén hafa þráðbeina stofna með hvítum berki og rauðum fræhylkjum en á trénu fyrir ofan mig og á öllum trjánum í kringum okkur voru greinileg litaskil á stofnunum í um það bil 10 metra hæð þar sem stofn- inn varð ljósari ofan þeirra. Þegar Ronis sagði mér að þetta væru efstu flóðamörkin sá ég strax fyrir mér hvernig svæðið liti út á regntímabilinu; kaffærður skógur þar sem aðeins efstu krónumar standa út í heitt rakt loftið, tímabil þar sem hægt væri að sigla milli trjákrónanna á meðan fiskar synda milli stofnanna fyrir neðan. Ég fór að taka eftir fleiri ummerkjum hinna árlegu flóða. Það sem við fyrstu sýn virtust vera stórir hey- bingir voru I rauninni smærri tré, með krónurnar skreyttar þurru grasi sem hafði flækst við greinam- ar þegar vatnsborðið féll. Termíta- og vespubú sem em yfirleitt áber- andi, vora einungis sjáanleg á hærri svæðum þar sem nú var þurrt land. Þetta vora Várzea, flæðiskógar Amazons, einhverjir forvitnilegustu og sérstæðustu skógar jarðar. Skógar Amazon-svæðisins era yf- irleitt ekki flæðiskógar og kallast terra firme eða „fastlendis“-skógar. Þar er geysimikill gróður með 40-60 metra háum trjám en jarð- vegurinn undir skógarbotninum er sérlega ófrjósamur og óhæfur til jarðræktar eftir að skógurinn hefur verið raddur. Flæðiiendur Amazons fá á hinn bóginn næringarefni í formi botnfalls úr hinu gragguga Amazon-fljóti. Jarðvegur svæðisins er mjög frjósamur vegna þessarar árlegu áburðargjafar sem á upprana sinn að mestu í rofi úr Andesfjöllun- um sem afmarka vesturströnd Suð- ur-Ameríku. Vegna hins frjósama jarðvegar og nálægðar við ána, sem er þjóðbraut svæðisins, hefur fólk kosið að setjast að nærri flæðilendum Amazons. Mikilvægur hluti skógarins með- fram bökkum fljótsins hefur horfið vegna nýtingar manna og ágangur- inn heldur áfram enn í dag. Stærsta ósnerta flæðiskóglendi Brazilíu er fyrir ofan bæinn Tefé en þar mætast árnar Solimöes (en svo kallast efsti hluti Amazon-fljóts í Brazilíu) og Japurá (sem streymir úr Kólumbíu). Morgunblaðið/John Thorbjarnarson VISINDAMENN að rannsaka svarta caiman-krókódílinn sem er stærsta rándýr Suður-Ameríku. Hann getur orðið allt að fimm metra langur og tonn að þyngd en hann er nú í útrýmingarhættu. Þar hefur stór hluti flæðilendisins verið friðaður í Mamirauá, en þar fer fram brautryðjendastarf í vernd- un flæðiskóganna og samfélagsins sem þar hefur þróast. Mamirauá firiðlandið þekur rúm- lega milljón hektara eða um tíunda hluta af stærð Islands. Innan friðlandsins er að finna margbreyti- leg híbýli sem ráðast af því hversu hátt vatnsborðið nær á flóðatíman- um og hversu lengi það stendur. Óteljandi vötn af öllum stærðum era þarna á víð og dreif, tengd saman með ám og sikjum. Meðfram vatns- bökkum geta myndast fljótandi gróðurþekjur sem hýsa fiska og skordýr. Stundum er þekjan jafnvel mannheld og nógu þykk til að tré geti skotið þar rótum. Þegar flóðin standa sem hæst er hægt að róa gegnum skóginn á kanó og horfa á fiska og höfranga og trjá- stofna hverfa ofan í blátært djúpið. En í þessum miklu flóðum er engin örk eða Nói til bjargar landdýram og þau sem þar lifa hafa aðlagast þessum aðstæðum. Þama er of blautt fyrir margar tegundir en jagúarar og landskjaldbökur halda þama til. Ekki er vitað hvernig þessar tegundir lifa þegar allt þurr- lendi fer í kaf. Meinlausir mannætufiskar Mörgum og hræðilegum mannætusögum fer af pirana fiskin- um, fremur smávöxnum kjötætu- fiski sem finnst víða í vötnum Suð- ur-Ameríku. Eftir að hafa eytt meira en tíu áram ævi minnar vað- andi í þessum vötnum get ég fullyrt RANNSÓKNIR í Mamirauá fara einkum fram í flothýsum sem dreift er um svæðið. SKJALDBÖKUR hafa löngum verið aðalfæða íbúa í bænum Tefé, þessum hefur verið safnað fyrir veitingahús í bænum. VATNALILJUR í Amazon fljótinu. Ein forvitnilegosta skepnan er Amazon sækýrin. Sækýr eru plöntuætur sem lifa einkum við strand- lengju hitabeltis- landa. að ennþá hef ég tíu putta og tíu tær. Ég veit aðeins um fá dæmi þess að þessir ófrægðu fiskar hafi bitið menn. Að mínu mati er piraracu mun merkilegri skepna. Þetta er ein stærsta ferskvatnsfisktegund jarð- ar, hún getur orðið tveggja metra löng og 200 kíló að þyngd. Þessi fer- líki synda um vötnin í Mamirauá, gleypa loft og soga upp smærri fiska. Vegna einhvers undarlegs þróunarstökks andar piraracu fisk- urinn að sér lofti. Veiðimenn leggja við hlustir og renna á andardráttinn, læðast að þeim og kasta í þá skutli. Þegar portúgalskir sæfarar komu til Brasiliu fyrir 300 árum vora þeir vanir því að borða saltfisk „bacalao". Þar sem langt var í næstu þorska- mið var piraracu veiddur og seldur sem „bacalao" en heldur hefur gengið á stofninn og því sést þessi fiskur vart utan Mamirauá vemdar- svæðisins. Frá árinu 1990 hefur hópur vís- indamanna unnið við rannsóknir á samspili manns og náttúra í Ma- mirauá. Hluti rannsóknanna beinist að tegundum sem eru nánast óþekktar eða í útrýmingarhættu, eins og uakari apanum sem er rauð- ur í framan með hvítan feld, en einnig eru skoðaðar tegundir sem era undirstaða efnahags svæðisins. Ein forvitnilegasta skepnan er Amazon sækýrin. Sækýr era plöntu- ætur sem lifa einkum við strand- lengju hitabeltislanda, en í Amazon hefur þróast tegund sem lifir ein- göngu í fersku vatni og sést svaml- andi um ár og vötn flæðilendanna. Verndarsvæðið er eitt síðasta vígi þessarar hæglátu skepnu, víða sést hún ekki lengur, en kjöt hennar þykir herramannsmatur. Vísinda- menn í Mamirauá era að skoða lifn- aðarhætti sækýrinnar og fylgjast með árstíðabundnum ferðum henn- ar um Amazon með senditækjum. Rannsóknir í Mamirauá fara eink- um fram í flothýsum sem dreift er um svæðið. Það er eina skynsam- lega leiðin til að búa á svæði þar vatnið fer upp og niður um 10 metra á ári. Það er í svona húsum sem vís- indamenn eins og ég halda til og stunda sína vinnu og það er ekki lítil hamingja sem fylgir því að vakna að morgni við hljóðin í höfrangum að veiðum fyrir utan dymar. Tvær teg* undir höfranga lifa á þessu svæði og sjást víða, um höfrangana hafa myndast miklar goðsagnir og hjá- trú. Þeir era sagðir færa mönnum gæfu og era því ekki veiddir. í þjóð- sögum segir að á nóttunni geti þeir orðið að myndarlegum ungum mönnum sem draga stúlkur á tálar, eflaust skýringarsögn sem fylgir ótímabærum þungunum. Krókódflar í útrýmingarhættu Suður-ameríski caiman krókódíll- inn, jacaré, er ein sýnilegasta dýra- tegundin í Mamirauá. Tvær tegund- ir finnast víða; gleraugna caiman og svarti caiman. Sá svarti getur orðið allt að fimm metra langur og tonn að þyngd og því er hann stærsta rándýrið í Suður-Ameríku en vegna óhóflegrar veiði manna er tegundin nú í útrýmingarhættu. Síðan 1993 hafa rannsóknir mínar í Mamirauá einkum beinst að þessum nú- tímarisaeðlum. Næsti bær við Mamirauá er Tefé. Þar búa um 40.000 manns og líklega jafnmargir svartir hrægammar. í lok 19. aldar var bærinn smærri og þar bjó náttúrafræðingurinn Henry Walter Bates, sem skrifaði um bæ- inn og umhverfi hans í bók sinni „Náttúrafræðingurinn á bökkum Amazon-fljóts". Ef maður gengur gegnum bæinn í dag undrast maður breytingamar á bænum sem lifir nú einkum á skógarhöggi. Róttækasta breytingin hefur orðið í sambandi við skjaldbökur en Bates skrifaði í bók sinni að aðalfæða íbúanna væri fiskur og skjaldbökur. Fyrir daga rafmagns og lampaolíu var nóttin við Amazon lýst upp með olíu sem unnin var úr skjaldbökueggjum. Stórar árskjaldbökur, eða tartarun- gas, vora mikilvæg náttúraauðlind og á henni byggðu flestir afkomu sína, milljónum eggja var safnað og skjaldbökur vora veiddar í hundrað þúsunda tali árlega. Nú era engar tartarangas skjaldbökur í Tefé. Strendur þar sem þessar skjaldbök- ur grófu egg sín í sandinn í þús- undavís era auðar, afleiðing fjögur hundruð ára ofnýtingar á eggjum og fullorðnum dýram. Síðustu varpsvæðin era vel þekkt og fólk situr um þau og bíður eftir að skjaldbökurnar skríði á land og verpi eggjum sínum. Þar sem tart- arangas skjaldbökur veiðast ekki lengur hefur fólkið snúið sér að tveimur smærri tegundum tracaja og iaga. Um helgar má sjá þær á grillinu fyrir utan veitingastaði í Te- fé á meðan fólkið sem býr ofar í landinu, á Mamirauá friðlandinu, kvartar yfir því að börnin þeirra hafi aldrei séð tartaragas skjaldböku. Ef svo fer fram sem horfir munu bamabörnin aldrei sjá tracaja eða iaga skjaldbökur. Mamirauá er undraverður staður. Þar mætast vatn, skógur og ótrúlegt dýralíf á einstakan hátt. Að mörgu leyti er eins og tíminn hafi staðið í stað á skeiði þegar lífið var einfald- ara. Á yfirborðinu er eins og líf fólksins hafi ekki breyst í 200 ár, en sannleikurinn er sá að margir íbú- anna hafa misst lífsafkomuna með hrani stofna eins og piraracu risa- fisksins og tartaraga skjaldbökunn- ar. En ekki er öll nótt úti og í næstu greinum mun ég lýsa nokkram nýj- um leiðum sem við vinnum að til að tryggja sjálfbæra þróun í samspili fólksins í flæðiskógunum og um- hverfisins. í 2. grein verður athyglinni beint að Caim- an-krókódflum og því að rannsaka stærst^ rándýr Suður-Ameríku. í þeirri 3. er fjallað um Anaconda- kyrkislönguna, stærstu kyrkislöngu heims, sem nú er kunn úr samnefndri kvikmynd, og um rannsóknir í Venezuela. I 4. grein verður þannig fjallað um Skjald- böku-áætlunina sem er verkefni unnið í sam- vinnu h'ffræðinga, heilbrigðisstétta og mann- fræðinga sem hefur það að markmiði að mað- urinn geti lifað í sátt við umhverfið. Andri Snær Magnason þýðir greinaflokk— inn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.