Morgunblaðið - 16.09.1997, Síða 1

Morgunblaðið - 16.09.1997, Síða 1
104 SIÐURB/C 209.TBL. 85. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Úrslit norsku þingkosninganna flækja stj órnarmyndunarmoguleika Tvær herflugvélar farast við Afríku Jagland biðst lausnar og Hagen í oddastöðu THORBJ0RN Jagland forsætisráð- herra Noregs sagðist í gærkvöldi myndu biðjast lausnar eftir að hann hefði lagt fram frumvarp til fjárlaga 13. október næstkomandi. Þegar 96,4% atkvæða í norsku þingkosn- ingunum höfðu verið talin í gær- kvöldi benti allt til þess að Verka- mannaflokkurinn fengi um 35% at- kvæða og missti tvo þingmenn, en Jagland hafði lýst því yfir í kosn- ingabaráttunni að hann færi frá, fengi flokkurinn ekki sama fylgi og 1993 eða 36,9%. Leiðtogar mið- flokkanna sögðust myndu freista stjórnarmyndunar og þykir Kjell Magne Bondevik úr Kristilega þjóð- arflokknum líklegastur til að leiða stjórn af því tagi, en flokkur hans þykir einn helsti sigurvegari kosn- inganna. Stjórnarmyndun kann hins vegar að eiga eftir að reynast erfið og jafnvel taka margar vikur. Verði ekki um að ræða samstarf milli Verkamannaflokksins, Miðflokks- ins og Sósíalíska vinstriflokksins verða bæði borgaralegu flokkarnir og miðflokkarnir að taka tillit til Framfaraflokks Carls I. Hagen, sem jók fylgi sitt úr 9% 1993 í 15,3% og fjölgaði þingmönnum sín- um úr 10 í 25. Hlýtur hann jafn- marga þingmenn og Kristilegi þjóð- arflokkurinn sem stefndi í 13,7% kjörfylgi, en sá flokkur fékk 5,8% atkvæða í síðustu kosningum og 12 þingmenn. Gjörningaveður í vændum í sjónvarpsumræðum flokksleið- toganna í gærkvöldi sagðist Jagland myndu biðjast lausnar eftir mánuð og fyrst þá geta formlegar stjórnar- myndunartilraunir hafíst. Leiðtogar miðflokkanna sögðust þó strax í gærkvöldi myndu freista myndunar samsteypustjórnar. Þótti það til marks um það gjörningaveður sem yfírvofandi er talið í norskum stjórn- málum, að Jan Petersen, leiðtogi Hægri flokksins, kvaðst myndu reyna að knésetja slíka stjóni. Fyrir Petersen hafði það verið eitt mik- Reuter KJELL Magne Bondevik, forsætisráðherraefni Kristilega þjóðarflokksins, og flokksleiðtoginn, Valgerd Svarstad Haugland, höfðu ástæðu til að fagna kosningaúrslitum í gærkvöldi, flokkur þeirra bætti við sig miklu fylgi og líkur eru á að hann leiki lykilhlutverk í nýrri ríkissljórn í Noregi. ilvægasta mál kosning- anna, að meirihluti Verkamannaflokksins, Miðflokksins og Sósíal- íska vinstriflokksins hyrfi. Þegar 96,4% at- kvæða höfðu verið talin voru þeir með 85 þing- sæti af 165. Virðast vonir Petersen um að Hægiiflokkurinn leiki lykilhlutverk í myndun nýrrar stjórnar hafa dvínað en flokkurinn fékk nú minna kjörfylgi en nokkru sinni frá 1884. Lars Sponheim, leiðtogi Frjálslynda flokksins, sem jók þing- THORBJ0RN Jag- land dapur á kosn- ingavöku í gærkvöldi. mannatölu sína úr ein- um í sex, sagði hverf- andi líkur á stjórnar- myndun borgaralegu flokkanna Hægri, Kristilega þjóðarflokks- ins og Frjálslynda flokksins. Petersen til- kynnti Bondevik hins vegar seint í gærkvöldi, að hann væri reiðubú- inn að freista stjórnar- myndunar undir hans forystu. Eftir því sem á kvöldið leið breikkaði brosið á Kjell Magne Bondevik, forsætisráð- herraefni Kristilega þjóðarflokksins, og flokksleiðtogan- um Valgerd Svarstad Haugland. Fylgi flokksins hafði aukist úr 5,8% í 13,7% og þingmönnum fjölgað úr 12 í 25. Bondevik þykir Iíklegastur til að freista myndunar nýrrar ríkis- stjómar. Miðflokkurinn fer ótvírætt lang- verst út úr kosningunum, fylgið fell- ur úr 16,7% sem hann fékk árið 1993 í 8,0% og þingmönnum fækkar úr 32 í 11. Flokksleiðtoginn Anne Enger Lahnstein taldi eigi að síður allar líkur á að flokkurinn myndi eiga aðild að næstu ríkisstjóm. Hvalfangarinn Steinar Bastesen náði kosningu og boðaði aukna umræðu um sjávarútvegsmál á þingi. Reyna að róa sambandssinna GERRY Adams, forseti Sinn Fein, veifar er hann gengur inn í Stormont-kastala ásamt félögum til viðræðna um framtíð N-írlands. Belfast. Reuter. BRESKIR og írskir leiðtogar freist- uðu þess í gær að koma flokkum norður-írskra sambandssinna að við- ræðuborði um framtíð Norður- írlands. Samtök harðlínumanna, Sinn Fein, stjórnmálaarmur írska lýðveldishersins (IRA), mættu til friðarviðræðnanna í gær. Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, og Bertie Ahern, írskur starfsbróðir hans, gáfu í gær út yfir- lýsingu sem talin var myndu greiða fyrir þátttöku a.m.k. stærsta flokks sambandssinna, Sameiningaflokks Ulster (UUP), en leiðtogi hans, David Trimble, fagnaði yfirlýsing- unni og sagðist koma til viðræðna „svo fljótt sem auðið væri“. Trimble sagðist áður vilja eiga viðræður við sáttasemjarann í við- ræðunum, bandaríska öldungadeild- arþingmanninn George Mitchell, um fyrirkomulag viðræðnanna en hugsanlegt var talið að það þýddi að UUP tæki þátt í fundum í gegn- um þriðja aðila. í yfirlýsingu Blairs og Aherns sagði, að stöðu Norður-írlands yrði ekki breytt án samþykkis íbúanna og jafnframt væri ætlast til þess að hryðjuverkasveitir, bæði kaþólikka og mótmælenda, afvopnuðust meðan á friðarviðræðunum stæði. Eru stað- hæfingar þeirra beint svar við yfir- lýsingu IRA frá í síðustu viku þar sem samtökin sögðust eiga erfitt með að sætta sig við þessi tvö skil- yrði. Líklegt að árekstur hafi orðið Windhoek, Bonn, Washington. Reuter. BRAK úr sovéskri Tupolev Tu-154 þotu þýska hersins fannst í gær úti fyrir strönd Namibíu, að því er Volk- er Rúhe, varnarmálaráðherra Þýska- lands, greindi frá. Fundu leitarmenn m.a. hluta af sæti úr flugvél og í því þýsk blöð. Þykir þetta benda til að brakið sé úr vélinni, er hvarf á laugardag, á sama tíma og banda- rísk herflutningavél af gerðinni C- 141 hvarf á sömu slóðum. Namibísku leitarmennirnir fundu einnig stóran olíuflekk á sjónum skammt frá og sterk steinolíulykt fannst á svæðinu. Að sögn fulltrúa þýska varnarmálaráðuneytisins er talið líklegt að vélin hafi hrapað í hafíð á þessu svæði, sem er um 80 sjómílur frá ströndinni. Tuttugu og flórir menn voru um borð í þýsku vélinni og níu með þeirri bandarísku. Talsmaður b'andaríska varnarmála- ráðuneytisins sagði í gær að „talið væri líklegt" að vélarnar hefðu rek- ist á í lofti og báðar farist. Fulltrúi þýska varnarmálaráðuneytisins tók í sama streng og sagði „ekki hægt að útiloka" að slíkur árekstur hefði orðið. Þýska vélin var á leið frá Bonn til Höfðaborgar í Suður-Afríku, og sú bandaríska á leið frá Windhoek í Namibíu til Ascensioneyju í Atl- antshafi. Að sögn varnarmálaráð- herra Þýskalands rofnaði samband við þýsku vélina kl 14 á laugardag. Fulltrúar þýska flughersins vildu ekkert segja um hugsanlegar orsak- ir slyssins, en talsmaður samtaka flugmanna sagði að samskiptaörð- ugleikar hefðu getað átt þátt í því að slysið varð. Af tæknilegum ástæðum væri talstöðvasamband einstaklega slæmt við vesturströnd Afríku. ------»-■♦—♦----- Fallast á hvalveiðar Norðmanna Ósló. Morgfunblaðið. STJÓRNVÖLD í Bandaríkjunum hafa vent sínu kvæði í kross hvað varðar hrefnuveiðar Norðmanna og segja nú, að þau efíst ekki um laga- legan rétt þeirra. Þau hvetja hins vegar til, að veiðarnar verði stund- aðar í samræmi við þær reglur, sem Alþjóðahvalveiðiráðið hefur sam- þykkt. Káre Bryn, fulltrúi Norðmanna hjá Alþjóðahvalveiðiráðinu, segir, að Bandaríkjastjórn hafi gefíð grænt ljós á hvalveiðar Norðmanna hvað lögin varði þótt hún taki fram, að hún sé í aðalatriðum andvíg hval- veiðum. Segir hann, að þetta komi fram í bréfí, sem James Baker, full- trúi Bandaríkjanna í hvalveiðiráðinu, hafi sent sér. Bryn segir, að Baker hafí sent mörg bréf síðasta misserið þar sem hann er með ýmsar tillögur um hvernig Norðmenn eigi að afla sér stuðnings í vísindanefnd hvalveiði- ráðsins við áframhaldandi veiðar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.