Morgunblaðið - 16.09.1997, Blaðsíða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Lítið miðar hjá
leikskólakennurum
Krafa lækkuð
í 105 þúsund
krónur
LÍTIÐ miðaði í samkomulagsátt á
löngum samningafundi leikskóla-
kennara og viðsemjenda þeirra hjá
ríkissáttasemjara á sunnudag. Nýr
fundur hefur verið boðaður annað
kvöld, miðvikudagskvöld, og verður
launaliður nýs samnings þá ræddur,
en um hann stendur aðalágreining-
urinn. Leikskólakennarar hafa boðað
verkfall frá 22. september næstkom-
andi.
Björg Bjarnadóttir, formaður Fé-
lags leikskólakennara, sagði að lítið
hefði miðað í samkomulagsátt á
fundinum, þrátt fyrir að leikskóla-
kennarar hefðu lagt fram gagntilboð
við tilboð sveitarfélaganna þar sem
krafa um grunnlaun var lækkuð í
105 þúsund krónur og dregið veru-
lega úr öðrum kröfum. Þessi tilslök-
un hefði skilað litlum árangri.
Launaliður samninganna og röðun í
launaflokka væri enn í algjörum
járnum, en ætlunin væri að ræða
þessa liði nýs samnings á fundinum
á miðvikudag.
Björg sagði að grunnlaunakrafan
og krafan um röðun í launaflokka
væru meginkröfur félagsins í þess-
um samningum. Enn bæri heilmikið
í millum og hún yrði svartsýnni á
lausn með hveijum deginum sem liði
og nær drægi verkfalli.
Grunnlaun heildarlaun í
flestum tilvikum
Björg sagði að grunnlaun leik-
skólakennara væru nú tæpar 82
þúsund krónur. í því sambandi væri
rétt að benda á að grunnlaunin
væru í flestum tilfellum einnig heild-
arlaun. Ekki væri um að ræða nein-
ar aukagreiðslur eða yfirvinnu í
nokkrum mæli, þannig að grunn-
launin væru í flestum tilvikum það
sem fólk væri að fá í launaumslagið.
„Auðvitað heldur maður í vonina
fram á síðustu stundu að samningar
náist, en með hveijum deginum sem
líður minnka líkurnar á því,“ sagði
Björg ennfremur.
Morgunblaðið/Rúnar Þór Björnsson
FJÖLDI manns var við opnunina.
HANS Mikkelsen, formaður Færeyingafélagsins, í ræðustól og
við hlið hans er Guðrún Þórðardóttir, formaður Islendingafé-
lagsins, og fleiri gestir.
Mikil
gleði við
opnun
Miðgarðs
Odense. Morgunblaðið.
YFIR tvö hundruð manns komu
á opnun sameiginlegrar félags-
miðstöðvar íslendingafélagsins
og Færeyingafélagsins í Odense,
Danmörku. Húsfyllir var og fór
það fram úr björtustu vonum
allra sem að undirbúningnum
hafa staðið. Félögin, sem bæði
eru það lítil að þau hafa ekki
bolmagn til að vera með eigið
húsnæði, gripu til þess ráðs að *
leigja saman félagsaðstöðu í
miðborg Odense. Eftir nokkurra
vikna vinnu var húsnæðið svo
formlega tekið í notkun og voru
menn að vonum glaðir og bjart-
sýnir þegar þessum áfanga var
loksins náð. Eftir að formenn
félaganna höfðu tekið til máls
og lýst félagsmiðstöðina form-
lega opna, voru veitt verðlaun í
samkeppni um nafn félagsmið-
stöðvarinnar. Hlaut hún nafnið
Miðgarður og hugmyndina átti
FÆREYSK og íslensk börn sungu fyrir gesti.
íslensk kona, Elsa ísfold.
Færeysk og íslensk börn,
ásamt kennurum sínum, sem eru
í móðurmálskennslu í sama
skóla höfðu æft saman lög hvor
hópur á sínu tungumálinu og
fengu gestir að njóta þess við
þetta tilefni. Þvi næst hóf fær-
eyskur karlakór upp raust sína
og að því loknu sneru menn sér
að veitingum sem fólk af báðum
þjóðum hafði lagt til og gerðu
menn þeim góð skil. Ætlunin er
að hafa félagsmiðstöðina opna
nokkur skipti í viku, bæði sam-
eiginlega og einnig geta félags-
menn fengið húsnæðið fyrir
einkasamkomur eða klúbba-
starfsemi af ýmsu tagi. Um
kvöldið var svo móttaka fyrir
þá íslendinga sem eru nýfluttir
til Odense, en það er fastur liður
hjá Islendingafélaginu á hverju
hausti.
Ríkisendurskoðun segir að 45% munur sé á launum röntgenlækna á SHR og Landspítala
Málið í höndum
samstarfsráðs
sjúkrahúsanna
RÍKISENDURSKOÐUN hefur komist að því
að heildarlaun röntgenlækna á Sjúkrahúsi
Reykjavíkur hafí verið um 45% hærri en hjá
röntgenlæknum á Ríkisspítölunum á síðasta
ári og fyrstu sex mánuðum þessa árs. Mis-
munandi starfsfyrirkomulag er á sjúkrahús-
unum tveimur og er mælt með að horft verði
til Ríkisspítala við endurskoðun á starfsfyrir-
komulagi á Sjúkrahúsi Reykjavíkur. Ingi-
björg Pálmadóttir heilbrigðisráðherra vildi
ekki tjá sig um hvort farið yrði að ráðum
Ríkisendurskoðunar. Aðeins að málið væri í
höndum samstarfsráðs sjúkrahúsanna. Ef
samstarfsráðinu tækist ekki að finna lausn
ætti hún von á því að málið kæmi til af-
greiðslu í ráðuneytinu.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið
óskaði liðsinnis Ríkisendurskoðunar bréfleið-
is fyrir einum og hálfum mánuði. Annars
vegar var Ríkisendurskoðun beðin um að
bera saman launakjör röntgenlækna á
sjúkrahúsunum tveimur og hins vegar að
leggja mat á hvort hagkvæmt yrði að heim-
ila Ríkisspítölum að taka upp sama starfsfyr-
irkomulag og á SHR.
Ríkisendurskoðun kemst að því að heildar-
laun röntgenlækna á SHR hefðu verið 45%
hærri en hjá röntgenlæknum á Ríkisspítölun-
um á síðasta ári og fyrstu sex mánuði þessa
árs. Sami munur reyndist vera ef aðeins var
tekið mið af greiðslum sjúkrahúsanna til
læknanna. Heildarlaun til 21 röntgenlæknis
á sjúkrahúsunum námu 121 milljón króna á
árinu 1996.
Um mismunandi starfsfyrirkomulag
kemst Ríkisendurskoðun að því að kostnaður
á hvern svokallaðan læknapunkt á SHR er
tæplega 15% hærri en á Ríkisspítölunum.
Tvo þriðju af mismuninum megi rekja til
hærri launakostnaðar á SHR og þriðjung til
annars hærri rekstrarkostanðar. Heildar-
kostnaður röntgendeildar SHR er sagður
nema 300 milljónum en um 280 milljónum
á Ríkisspítölunum árið 1996. Hlutfall launa-
kostnaðar á SHR af heildarkostnaði deildar-
innar nam 63% en 48% hjá Ríkisspítölum.
Læknapunktar voru 2.337 þúsund á SHR
og 2.530 á Ríkisspítölunum á síðasta ári.
Lokaniðurstaða Ríkisendurskoðunar er að
hið nýja fyrirkomulag á SHR skili hvorki
meiri afköstum m.t.t. kostnaðar né sé ódýr-
ara miðað við hvern læknapunkt í saman-
burði við Ríkisspítala. „Þvert á móti verður
að telja að það fyrirkomulag sem er hjá
Ríkisspítölunum sé bæði hagkvæmara og
ódýrara og því er ekki mælt með að breyting-
ar verði gerðar á núverandi fyrirkomulagi í
þessum efnum hjá Ríkisspítölum," segir í
skýrslu Ríkisendurskoðunar, „heldur hitt að
fyrirkomulagið hjá Sjúkrahúsi Reykjavíkur
sé tekið til endurskoðunar og við það verk
horft til Ríkisspítala.“
Athugasemdir við útreikninga
Ríkisendurskoðunar
Örn Smári Arnaldsson, forstöðulæknir
myndgreinga- og rannsónasviðs SHR, sagð-
ist hafa gert athugsemdir við útreikninga
Ríkisendurskoðunar á starfsemi röntgen-
deildanna. „Ríkisendurskoðun miðar við svo-
kallað læknapunkta, þ.e. ákveðinn punkta-
fjölda fyrir tilteknar rannsóknir. Lækna-
punktar eru hins vegar ekki tengdir raun-
verulegum kostnaði, t.d. eru ekki gefnir fleiri
punktar vegna rannsóknar á yfirvinnutíma,
og því er ekki hægt að styðjast við iækna-
punktana eina,“ segir hann.
Hann nefndi að áfram væri hægt að halda
og nota ýmsar aðrar aðferðir í talnaleik.
„VSÓ miðar við starfsmanna- og rann-
sóknarfjölda og kemst að því að gerðar séu
fleiri rannsóknir á starfsmann hér en á Land-
spítalanum. Sjálfur hef ég komist að því
miðað við rannsóknarfjölda og kostnað
stöndum við okkur 45% betur,“ sagði hann
og tók fram að áfram væri hægt að leika
sér með tölur og komast að því að SHR stæði
sig 12% betur miðað við kostnað á starfs-
mann.
Örn Smári hefur gert Davíð Á. Gunnars-
syni ráðuneytisstjóra grein fyrir athuga-
semdum sínum við skýrslu Ríkisendurskoð-
unar með formlegum hætti bréfleiðis.
Biðstaða hjá sjúkrahúslæknum
Hann sagði að gerður hefði verið samning-
ur um að starfsmenn fengju hluta af greiðsl-
um til sjúkrahússins vegna læknisþjónustu
utan dagvinnu í ársbyrjun 1996. Samningn-
um hefði hins vegar verið sagt upp af hálfu
sjúkrahússins og ekki greitt eftir honum frá
því 1. júlí sl.
„Við höfum ekki farið út í neinar aðgerð-
ir vegna uppsagnarinnar enda ríkir ákveðin
biðstaða um launakjör sjúkrahúslækna þar
til gengið hefur verið frá kjarasamningi. Ef
hins vegar lækkun verður á launum er ekki
ólíklegt að læknar hugsi sér til hreyfings.
Skortur er á röntgenlæknum erlendis og
kjörin eru miklu betri. Einn læknir sagði við
mig að hann gæti fengið vinnu í Noregi á
morgun."
Breytir engu fyrir
Landspítalalækna
Níu af ellefu röntgenlæknum á Landspítal-
anum hafa sagt upp störfum vegna óánægju
með laun. Flestar uppsagnirnar taka gildi í
desember. Ólafur Kjartansson, yfirlæknir á
röntgendeild Landspítalans, sagði í samtali
við Morgunblaðið að niðurstaða Ríkisendur-
skoðunar breytti engu fyrir læknana á deild-
inni. „Ég get ekki séð að nokkru breyti að
læknar séu lækkaðir í launum á Borgar-
spítalanum. Hérna eru læknar orðnir lang-
þreyttir á ástandinu og hafa jafnvel búið sig
undir að hefja störf erlendis. Mikil eftirspurn
er eftir myndgreiningarlæknum á hinum
Norðurlöndunum, ekki síst í Noregi, og kjör-
in eru miklu betri en hér gerist," sagði Ólaf-
ur og tók fram að hann hefði vitneskju um
að unnið væri að því á sérstakri skrifstofu
í Bergen að fá myndgreiningarlækna til
starfa.
Ólafur tók fram að ýmislegt væri við for-
sendur Ríkisendurskoðunar að athuga, t.d.
væri löngu orðið tímbært að endurskoða
læknapunktaviðmiðið. Að hans áliti væru
deildirnar á sjúkrahúsunum sambærilegar
varðandi afköst. Hins vegar væri starfsemin
nokkuð ólík, t.d. væri einn þriðji sjúklinga á
SHR innan sjúkrahúss á meðan tveir þriðju
á Landspítala væru innan sjúkrahúss, og því
væri erfitt að bera starfsemina saman.
j
\
i
i
i
f
il