Morgunblaðið - 16.09.1997, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 16.09.1997, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 1997 47 1 ; i I j J 1 i ! I 1 < i i i i i i < i i i' BRÉF TIL BLAÐSINS Eru kennarar lagðir í einelti? Framhald frá 7. september Frá Hevdísi Pálu Pálsdóttur: NÚ ÆTLA ég að lýsa fyrir ykkur líðan minni og vonleysinu sem ég hef verið haldin síðustu daga og ekki lagaðist það eftir að hafa lesið Morgunblaðið, sunnudaginn 7. september. Atvinnuauglýsingarnar (bls. 2E), auglýst er eftir manneskju með viðskipta- fræði- eða aðra sambærilega menntun. Mán- aðarlaun 450.000.- Lesandabréf (bls. 48), Hanna Sif skrifar grein og spyr hvort kennarar séu lagðir í einelti og leggur þar út af þeim launum sem grunnskólakennarar hafa í dag (byrjunar- laun kennara í KÍ eru u.þ.b. 78.000.-) og hvað þeim er boðið í kjaraviðræðunum sem nú eiga sér stað, 86.000.-. Einnig talar hún um launamun t.d. kennara og viðskiptafræð- inga, sem þó hafa svipað háskólanám að baki. Eins og áður sagði eru byrjunarlaun kenn- ara um 78.000.-, Hanna Sif segir viðskipta- fræðinga auðveldlega geta fengið 200.000.- í grunnlaun og miðað við fyrrnefnda auglýs- ingu geta þeir fengið allt að 450.000.-. Þetta er fólk sem er með svipað nám að baki, af hveiju er þessi ógurlegi munur? Sjálfsagt vinna viðskiptafræðingar fyrir þeim launum sem þeir hafa en ég tel mitt starf krefjast mikillar ábyrgðar og ekki vera minna verð- mætt, ef fólk vill fara út í það að tala um verðmætasköpun. Sá efniviður sem ég er með í höndunum daglega, nemendur mínir, er síst minna verðmætur en verðbréfin og allt hvað það nú er sem viðskiptafræðingar fást við í sinni vinnu. Ég, eins og Hanna Sif, íhuga uppsögn. Ég, eins og Hanna Sif, er góður kennari. Við erum mörg eins og Hanna Sif! Ég er 26 ára, hef fyrir barni að sjá og er að rembast við að eignast mína fyrstu íbúð. Um síðustu mánaðamót fékk ég útborgaðar 73.000 kr. (ég er á fjórða ári í kennslu). Það sjá það allir að þetta reikningsdæmi gengur ekki upp en fram að þessu hef ég þó þráast við vegna þess að ég er góður kennari, hef margt til starfsins að leggja og vegna þess að ég hef metnað fyrir þessu starfi. Þessu starfí sem allir eru tilbúnir til að lofa í áramóta- og nýársávörpum en eng- inn virðist tilbúinn til að borga neitt fyrir. Nei, það styttist í að ég skrifi uppsagnar- bréfið, eins og svo margir góðir kennarar sem telja sér ekki fært að vinna á þessum launum og eru orðnir þreyttir á skilningsleysi fólks á starfmu. Þetta er að gerast á sama tíma og við erum full af metnaði fyrir þessu starfi. Ég neita að trúa að þetta sé það sem sveitastjórar, sveitastjórnarmenn, foreldrar og aðrir uppalendur vilja, svo ég bið þá er málið varðar að bæta, í raun, laun kennara og koma í veg fyrir flóð uppsagna áður en það verður of seint og enginn fæst til að sinna þessu starfi. Við erum að tala um fram- tíð barnanna okkar allra! HERDÍS PÁLA PÁLSDÓTTIR, Gullengi 33, Reykjavík. Frábærir tónleikar Vox Feminae í Austurríki Frá Margréti Á. Halldórsdóttur: MIG langar til að segja frá tónleik- um sem ég sótti hér í Austurríki fyrir stuttu. Þetta eru tónleikar sem sönghópurinn Vox Feminae hélt hér laugardaginn 23. ágúst sl. Vox Feminae er eins og margir vita hópur innan Kvennakórs Reykja- víkur. Hópurinn var stofnaður árið 1993 af Margréti J. Pálmadóttur og er hún jafnframt stjórnandi hópsins. Árið 1995 hófst samvinna kórsins, að frumkvæði Margrétar, við Sibyl Urbancic, kennara við Tónlistarháskólann í Vín. Hefur Sibyl komið til íslands 2-3 sinnum á ári síðan til að leiðbeina hópnum. Ferðin hingað til Vínar og tónleik- arnir voru lokapunkturinn á þessari samvinnu. Og hvílíkur lokapunktur! Sibyl hefur tekist að laða fram það besta í hverri og einni og gefið þeim sjálfstraust sem geislaði af þeim á tónleikunum. Þessir lokatón- leikar kórsins undir stjórn Sibylar er hápunktur ferils þeirra hingað til. Tónleikarnir voru haldnir í Bene- diktínaklaustri, Stift Göttweig, sem er í um 100 km fjarlægð frá Vín, við borgina Krems. Umgjörð tón- leikanna var öll hin fegursta. Þetta klaustur var stofnað árið 1083 og er uppi á hárri hæð með fögru út- sýni til allra átta. Byggingarnar eru stórar og í einni þeirra er salur sem notaður hefur verið til tónleikahalds sl. 3 sumur. Tónleikarnir stóðu í tæpa tvo klukkutíma og verð ég að segja að þeir voru alveg stórkost- legir. Efnisskráin var mjög kröfu- hörð, gömul og ný verk eftir austur- ríska höfunda og verk eftir Jón Nordal, Þorkel Sigurbjömsson, Bám Grímsdóttur o.fl. Eftir hlé voru sungin austurrísk og íslensk þjóðlög. Efnisskráin var sungin án undirleiks, af mikilli gleði og mjög músíkalskt, öll lögin tandurhrein og tær. Mjög gott samræmi var milli radda og hafði stjórnandinn einstakt lag á að laða fram fagran samhljóm. Aðdáunarvert var hversu hún gerði þetta á eðlilegan og áreynslulausan hátt. Þessir tónleik- ar voru frábærir. Það var samdóma álit allra þeirra sem komnir voru til að hlusta. Ég fullyrði að ef þær halda áfram á sömu braut á Vox Feminae áreiðanlega eftir að láta að sér kveða í framtíðinni bæði inn- anlands sem utan! Konur í Vox Feminae, ég var afar stolt af því að vera íslendingur á tónieikum ykkar, sérstaklega ís- lensk kona og ég óska ykkur, Mar- gréti og Sibyl innilega til hamingju með þessa glæsilegu tónleika. MARGRÉT Á. HALLDÓRSDÓTTIR, Probusgasse 18, 1190 Vín, Austurríki. PFAFF CANDYEAGAR Etmfleiri heimiMstœki Mikil verökekkun! Mikið er um að vera. Verið velkomin, skoðið úmlið, gerið kaup ársins. Við höldum upp á 30 ára gott samstarf PFAFF og Candy með miklum afslætti til viðskiptavina okkar á um 50 gerðum heimilistækja. Hér eru nokkur dæmi: worrAVHAR PFA —1 >-"'»yÉLOE 94900- ELDAVELOFNOGUPPÞVOTIAVEL Allt í einu tæki. ELDAVELAR með helluborði og ofhi. frá47»310r pvorrAVÉLOGÞUBwyM 69800- ‘Heimilistœkjaverslun Grensásvegur 13 -108 Reykjavík - Sími 533 2222
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.