Morgunblaðið - 16.09.1997, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 1997 53
FÓLK í FRÉTTUM
Mickey Jupp
Kærkomið frelsi
n Sva
reunblaðið/j6.
MICKEY Jupp í einni af
heimsóknum sínum hingaö til lands.
BRESKI tónlistarmaður-
inn og lagasmiðurinn
Mickey Jupp, sem
samið hefur óteljandi lög fyrir
ólíka listamenn, hefur tekið
ástfóstri við ísland síðan hann
kom hingað til tónleikahalds
fyrir nokkrum árum. Síðan
hefur Jupp komið hingað
reglulega, yfirleitt til að spila
en einnig til að slaka á og
dveljast með vinum sínum
sem eru orðnir þónokkrir.
Enn er Jupp væntanlegur í
heimsókn, að þessu sinni
til tónleikahalds og leikur í
kvöld með Björgvini Gísla- 0
syni og félögum.
Mickey Jupp segir að það að
koma til íslands sé kærkomin
leið til að heimsækja stað á jörð-
inni sem hann kunni vel við og
um leið að spila rokk. „Ég á orð-
ið góða vini á íslandi, en þetta er
fimmta heimsókn mín hingað.
Ég hef alltaf spilað í ferðunum
utan einu sinni fyrir tveimur ár-
um að ég kom hingað í vikufrí.
Reyndar eru þessar heimsóknir
mínar hingað alltaf hálfgert frí,
það líður yfirleitt svolítill tími á
milli þess sem ég spila og því hef
ég góðan tíma til að slaka á og
skoða mig um.“
Mickey Jupp segir að fyrst
þegar hann kom hingað hafi
hann farið hringinn og leikið
víða, en hann kunni þó best við
sig í Reykjavík. „Það er kostur
að vera á sama staðnum þegar
aldurinn færist yfir mann,“ segir
hann og hlær við.
Að þessu sinni leikur Jupp
með Björgvini Gíslasyni og fé-
lögum, en hann hefur áður leikið
með Björgvini og segist hlakka
til að leika með honum aftur.
„Ég þekki aftur á móti ekki til
hinna hljóðfæraleikaranna en
þar sem þeir leika reglulega með
Björgvini tel ég víst að þeir séu
góðir.“ Jupp segist hafa í hyggju
að frumflytja einhver lög hér að
þessu sinni en hann segist þó
engu lofa. „Ég er með nokkur
lög í fórum mínum sem mig
langar til að prufukeyra en ég
veit ekki hvernig fer. Það á eftir
að sjá hvernig rætist úr þeim á
æfingum og hvort okkur finnist
þau ganga upp. Dagskráin verð-
ur áþekk því sem ég flutti síðast
þegar ég var hérna, en ég hef
ekki leikið ný lög á sviði í nokkur
ár og mig langar því til að gá
hvort það gangi upp. Þau eru
aftur á móti ný fyrir mér og því
veit ég ekki almennilega hvernig
þau hljóma."
Mickey Jupp hefur starfað
sem lagasmiður í mörg ár og
verið samningsbundinn til að
semja reglulega lög sem aðrir
hafa síðan flutt. Hann er nú laus
undan þeim samningi, segist
hafa ákveðið að láta hann renna
út og taka sér smáfrí frá laga-
smíðunum. „Ég er reyndar að
semja þrjú lög sem stendur, gef
þeim ekki nema 20 mínútur á
dag hverju og tek það rólega
sem er góð tilbreyting. Síðustu
30 ár hef ég verið meira og
minna samningsbundinn sem
lagasmiður og frábært að njóta
frelsisins. Ég er með tilboð frá
tveimur fyrirtækjum sem vilja
ráða mig í fasta vinnu, en ég
ákvað að taka mér smáfrí og
þarf ekki að svara þeim fyrr en
ég kem heim frá íslandi, þannig
að kannski eru þetta síðustu frí-
dagamir í bili.“
Mickey Jupp leikur með
hljómsveitinni Vestanhafs og
Jens Hanssyni saxófónleikara í
kvöld og annað kvöld á Gauki á
Breski tónlistarmaður-
inn og lagasmiðurinn
Miekey Jupp er tíður
gestur hér á landi.
Hann er kominn
hingað í fímmta sinn
og mun spila á Gauk
á Stöng í kvöld og
annað kvöld.
M0RSE stýri og stjórnbúnaður
Stjórntæki fyrir vélar, gíra, spil o.fl. Mikið úrval fyrir allar véla-
tegundir og bátagerðir. Flestar lengdir og sverleikar af börkum.
Viðurkennt vörumerki, hagstætt verð.
Sendum hvert á land sem er.
VÉLASALAN EHF.
ÁNANAUST 1, REYKJAVÍK. SÍMI 552 6122.
Tónleikar í Háskólabíói
fimmtudaginn 18. september kl. 20:00
Hljómsveitarstjóri:
B Tommy Andersson
Einleikari:
Sigrún Ebvaldsdóttir
johannes Brahms: Serenada op. 16
Franz Schubert: Rosamunda, forl.
Piotr Tchaikovsky: Fi&lukonsert
Sinfóníuhljómsveit íslands
Háskólabíói vib Hagatorg
Sími: 562 2255
Fax: 562 4475
Veffang: www.sinfonia.is
Miöasala á skrifstofu hljómsveitarinnar og viö innganginn
HRAÐLESTRARNÁMSKEIÐ
71 Viltu auka afköst í starfi með margföldun á lestrarhraða?
51 Viltu bjarga næstu prófiun með glæsibrag?
^ Viltu njóta þess að lesa mikið af góðum bókum?
Ef svar þitt er jákvætt skaltu skrá þig strax á næsta hrað-
lestramámskeið sem hefst þriðjudaginn 30. september.
Skráning er í síma 564-2100.
HFt^ÐLESTTRARSKÓLJNN
Gagnfræðingar Ingimarsskólans
1947
Samkoman, vegna 50 ára afmælisins, verður 3. október 1997.
Bréf verða póstlögð einhvern næstu daga.
N íumannanefndin