Morgunblaðið - 16.09.1997, Blaðsíða 50
50 ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
íjp ÞJÓÐLEIKHÚSB sími 551 1200
Stóra sóiðið kf. 20.00:
ÞRJÁR SYSTUR - Anton Tsjekhof
Frumsýning fös. 19/9 kl. 20 örfá sæti laus — 2. sýn. lau. 20/9 nokkur sæti
laus — 3. sýn. sun. 21/9 nokkur sæti laus — 4. sýn. fim. 25/9 nokkur sæti
laus — 5. sýn. sun. 28/9 — nokkur sæti laus.
FIÐLARINN Á ÞAKINU - Bock/Stein/Harnick
Fös. 26/9 — lau. 27/9 nokkur sæti laus.
Litla sóiðið kl. 20.30:
LISTAVERKIÐ - Yasmina Reza
Fös. 26/9 nokkur sæti laus — lau. 27/9 nokkur sæti laus.
SALA ÁSKRIFTARKORTA STENDUR YFIR
Innifalið í áskriftarkorti eru 6 sýningar
5 súninqar á Stóra sóiðinu:
ÞRJÁR SYSTUR - GRANDAVEGUR 7 - HAMLET - ÓSKASTJARNAN
- KRITARHRINGURINN I KAKASUS
1 eftirtalinna súninga að eigin Oali:
LISTAVERKip - KRABBASVALIRNAR - POPPKORN - VORKVÖLD
MEÐ KROKODILUM - GAMANSAMI HARMLEIKURINN - KAFFI -
MEIRI GAURAGANGUR
Miðasalan er opín alla daga i september kl. 13-20
Símapantanir frá kl. 10 virka daga.
BEIN ÚTSENDING
2. sýn. lau. 20. sept.
sun. 28. sept. kl. 14
sun. 5. okt. kl. 14
Takmarkaður
sýningafjöldi
fös. 19.9 kl. 23.30
uppselt
mið. 24. sept.
örfá sæti laus
Ath. aðeins örfáar
sýningar.
Loftkastalinn, Seljavegi 2.
Miðasala s. 552 3000, fax 562 6775
Miðasalan opin frá 10:00—18:00
I (S L E N S K U Ú P E R U N NI
Lau. 20/9 kl. 20.00
Allra síðasta sýning.
Ósóttar miðapantanir seldar í dag.
Ath. 2 fyrir 1 á Steikhús Argentínu
fylgir hverjum miða.
m BS5S1
lll'l'IVÍIIHIIIIII llll Hlllllllllllllllllll í HÍMII liíil 1475
Takmarkaður sýningarfjöldi.
Miðasala í Herrafataverslun Kormáks
og Skjaldar, Skólavörðustíg 15,
sími 552 4600.
■ffivnEE-mqi1 u 111 n ■
SÍMSVARI í SKEMMTIHÚSINU
ALLAN SÓLARHRINGINN
FESTINGAJÁRN
p ■ ■ OG KAMBSAUMUR
Þýsk gæðavara — traustari festing
HVERGI MEIRA ÚRVAL
Ármúla 29 - 108 Reykjavík - símar 553 8640 og 568 61OO
FÓLK í FRÉTTUM
Welles, Kane, og
Hollywoodsagnfræði
ORSON Welles og kvikmyndatökumaðurinn
Gregg Todd, sem átti stóran þátt í frumlegu
útliti „Citizen Kane“, stilla saman strengi sína.
ORS0N Welles lét hafa eftir sér á síðari hluta
ævi sinnar að hann yrði örugglega aftur
söluvara í Hollywood. Eftir að hann lauk
„Touch of Evil“ fyrir Universal árið 1958 tókst
honum ekki að fá kvikmyndaverin í Hollywood til
þess að fjármagna hugmyndir sínar í þau 27 ár sem
hann átti eftir ólifað.
Nú virðist spá Welles vera að rætast. Tvö hand-
rita hans, „The Brass Ring“ og „The Dreamers",
eru komin í vinnslu hjá tveimur sjálfstæðum fram-
leiðendum og í Hollywood eru tvær kvikmyndir, þar
sem Welles er aðalpersónan, í undirbúningi.
Athyglin hefur mest beinst að „RKO 281“, hand-
riti sem John Logan skrifaði og tekur fyrir átökin
á milli Welles og fjölmiðlakonungsins Williams Ran-
dolphs Hearst þegar sá fyrrnefndi vann að gerð
„Citizen Kane“. Handritið er í eigu kvikmyndafyrir-
tækis þeirra Scott-bræðra, Ridleys og Tonys, og
ætlaði Ridley upphaflega að leikstýra. Nú er staðan
sú að handritið er leikstjóralaust og verið er að leita
að aðilum til að fjármagna verkið.
Þrátt fyrir að brösuglega gangi að koma „RKO
281“ í vinnslu hafa margir þekktir leikarar sýnt
myndinni áhuga. Sagt er að bæði Marlon Brando
og Gene Hackman vilji leika Hearst, Edward Norton
Welles sjálfan, Madonna ástkonu Hearsts, leikkon-
una Marion Davies, Dustin Hoffman handritshöf-
undinn Herman J. Mankiewicz, og Bette Midler slúð-
urdálkahöfundinn Louellu Parson.
Ef allt þetta lið verður innanbprðs er greinilegt
að stefnt er að gerð alvarlegrar Óskarsverðlauna-
myndar. Galdurinn verður þó að heilla gagnrýnend-
ur sem hafa sett Welles á stall og telja flestir að
þeir séu sérfræðingar í öllu sem viðkemur kvikmynd-
um goðsins. Ef „RKO 281“ slær feilnótu þá er víst
að gagnrýnendur eiga eftir að hakka myndina í sig.
Illgjarn Welles
Aðalgagnrýnandi Daily Varíety, Todd McCarthy,
hefur fengið að lesa handritið yfir og varar aðstand-
endur myndarinnar við því að nokkur atriði eigi
örugglega eftir að fara fyrir brjóstið á kvikmynda-
sagnfræðingum. Welles og
Mankiewicz séu t.d. látnir fá
hugmyndina að „Citizen
Kane“ þar sem þeir sitji í
glæsiboði heima hjá Hearst.
Hið rétta í málinu er að Wel-
les var aldrei boðið til San
Simeon, íburðarmikilla hýbýla
Hearsts, sem er fyrirmyndin
að Xanadu í myndinni.
Samkvæmt McCarthy er
miklu púðri eytt í að láta
Welles reyna að koma í veg
fyrir að Mankiewicz fái hluta af heiðrinum fyrir
handritið að „Citizen Kane“. MacCarty viðurkennir
að smá átök hafi orðið um þetta á milli þeirra fé-
laga en handrit Logan liti afstöðu Welles alltof dökk-
um litum.
Annað atriði segir McCarthy hreinlega vera
hlægilegt. í handritinu eru allir stórlaxar Holly-
wood, Mayer, Zanuck, Disney, Warner, Cohn, og
Goldwyn, látnir setjast niður á fundi og reyna að
fá Selznick ofan af því að dreifa myndinni. Sam-
kvæmt sögunni reyndi Mayer að kaupa „Citizen
Kane“ af RKO með það í huga að eyðileggja hana
en handritshöfundinum fannst það greinilega ekki
nógu krassandi og ákvað að koma á átakafundi í
staðinn.
McCarthy endar umfjöllun sína með því að segja
að auðvitað taki höfundar sér alltaf skáldaleyfi þeg-
ar þeir fjalli um liðna atburði en handrit Logan
gangi of oft í bága við þá sögu sem aðdáendur
Welles þekkja til þess að þeir geti samþykkt það.
Hann ráðleggur því Scott-bræðrum að setjast niður
með Logan og endurskoða handritið áður en þeir
fara af stað í tökur.
Galdurinn
verður þó
að heilla
gagnrýn-
endursem
hafa sett
Welles á
stall
BÍÓIN í BORGINNI
Sæbjörn Valdimarsson / Arnaldur Indriðason / Anna Sveinbjarnardóttir
BÍÓBORGIN
Face off ★ ★ k'A
Slíkur er atgangurinn í nýjasta trylli
Woos að hann ætti að vera auðkennd-
ur háspenna/lífshætta. Góð saga til
grundvallar æsilegri og frumlegri at-
burðarás frá upphafi til enda. Vel leik-
in, forvitnilegir aukaleikarar, mögnuð
framvinda en ekki laus við væmni
undir lokin sem eru langdregin og
nánast eini ljóðurinn á frábærri en
ofbeldisfullri skemmtun.
Hefðarfrúin og umrenningurinn
k k k
Hugljúf teiknimynd frá Disney um
rómantískt hundalíf. Prýðileg afþrey-
ing fyrir alla fjölskylduna sem ber
aldurinn vel, var frumsýnd árið 1955.
Grosse Pointe Blank kkk'/i
Þétt og vönduð skemmtun í dekkri
kantinum þar sem söguhetjan
(Cusack) er leigumorðingi sem heldur
til heimaborgarinnar til að hitta æsku-
ástina sína og dæla blýi í nýjasta fóm-
arlambið. Yndislega kaldhæðin, vel
leikin og skrifuð. í hæsta máta óvenju-
leg enda gerð af frumlegri hugsun sem
er fágæt í Hollywood.
Batman og Robin *
Sjá Sambíóin, Álfabakka.
Yktir endurfundir *
Ykt og klúðursleg gamanmynd. Lisa
Kudrow og Mira Sorvino eru mjög
mistækar.
SAMBÍÓIN, ÁLFABAKKA
Breakdown kkk
Pottþétt spennumynd í flesta staði
með óslitinni afbragðs framvindu, fag-
mannlegu jrfirbragði, fínum leik og
mikilfenglegu umhverfi.
Face/Off k + k'A
Sjá Bióborgina.
Hefðarfrúin og umrenningurinn
★ ★ ★
Sjá Bíóborgina.
Blossi ★★★
Blossi er köld mynd. Hún er gerð úr
mörgum sterkum þáttum en cnertir
áhorfanda mjög lítið. Myndin er engu
að síður áhugavert framlag til ís-
lenskrar kvikmyndagerðar.
Hefðarfrúin og umrenningurinn
★ ★ ★
Sjá Bióborgina.
Addicted to Love ★ k'A
Óvenjuleg og öðruvísi ástarsaga sem
á sínar góðu, gamansömu stundir.
Engu að tapa ★★
Tim Robbins og Martin Lawrence
tekst að skemmta áhorfendum ágæt-
lega í ófrumlegri gamanmynd um vin-
skap ólíkra félaga.
Speed 2 ★★
Framhaldið kemst ekki með stefnið
þar sem Speed hafði stuðarana.
Batman & Robin ★
Leðurblökumaðurinn flýgur lágt í
fjórða innlegginu um ævintýri hans.
Eini leikarinn sem virkilega nýtur sín
er Uma Thurman sem náttúruverndar-
sinni. George Clooney er hreint út
sagt vonlaus í aðalhlutverkinu.
Menn í svörtu ★ ★ ★ ’/2
Sumarhasar sem stendur við öll loforð
um grín og geimverur. Smith og Jon-
es eru svalir og töff og D’Onofrio fer
skelfilegum hamförum.
Frumskógafjör ★ ★
Endurgerð á franskri gamanmynd sem
hefði heppnst ef hún hefði verið um
allt annað en lítinn indjánastrák í
heimsókn í stórborginni.
HÁSKÓLABÍÓ
Þegar við vorum kóngar
Frábær heimildarmynd um heims-
meistarakeppnina í hnefaleikum í Zaír
’74 milli Foremans og Alis. Gamla
„fiðrildið" í essinu sínu.
Skuggar fortíðar ★ ★
Myndin er byggð á raunverulegum