Morgunblaðið - 16.09.1997, Blaðsíða 24
Cl rcet flgflM3T«T38-.3! 'A'UIACVJKmM
24 ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 1997
ERLEIMT
LISTIR
GIGAJHHUDHOM
MORGUNBLAÐIÐ
Gengi gjaldmiðla aðildarríkja EMU
læst saman þegar í maí
Mörgum spurning
um enn ósvarað
Mondorf-les-Bains. Reuter.
FJ ÁRMÁLARÁÐHERRAR aðild-
arríkja Evrópusambandsins ákváðu
um helgina á fundi í Mondorf-les-
Bains í Lúxemborg að læsa saman
gengi gjaldmiðla þeirra ríkja, sem
taka munu þátt í Efnahags- og
myntbandalagi Evrópu (EMU) strax
næsta vor, um leið og ákveðið verð-
ur hvaða ríki taka þátt í EMU. Enn
er þó mörgum spurningum ósvarað
um fyrirkomulag myntbandalagsins.
„Frá því að þetta verður tilkynnt
munum við í raun hafa komið á hluta
myntbandalags-
ins,“ sagði Hans
Tietmeyer, seðla-
bankastjóri
Þýzkalands, eftir
að ákveðið var að
flýta festingu
gengisins. Hann
sagði að með
þessari ákvörðun væri íjármála-
markaðnum gefið skýrt pólitískt
merki. „Þetta veitir markaðnum ör-
yggi,“ sagði Tietmeyer.
Akvörðun sennilega
tekin í maí
Enn er þremur lykilspurningum
þó ósvarað. í fyrsta lagi hvaða ríki
verði í EMU, í öðru lagi hvaða að-
ferð verði notuð til að ákveða það
gengi, sem verður fest, og í þriðja
lagi hvenær nákvæmlega ákvörðun
verður tekin um bæði fyrmefndu
atriðin.
Ennfremur er óvíst hver mun
stýra Seðlabanka Evrópu, sem stofn-
aður verður um leið og EMU gengur
í gildi í ársbyijun 1999 og nákvæm-
lega hvaða viðmið bankinn muni
hafa í stefnu sinni.
Þá hafa hagfræðingar látið í ljós
efasemdir um að næsta vor sé hægt
að festa gengi gjaldmiðlanna, sem
munu renna inn í evróið 1. janúar
1999, en viðhalda engu að síður
sjálfstæðri vaxtastefnu í hveiju og
einu aðildarríki allt næsta ár.
Á fundinum í Mondorf var engum
spurningum svarað skýrt en ýmsar
vísbendingar komu fram, sem benda
til að í maí næstkomandi verði
ákveðið að læsa saman gengi
gjaldmiðlanna á því miðgengi, sem
nú gildir í Evrópska gengissamstarf-
inu (ERM). í ERM er ákveðið mið-
gengi ákveðið, en gengi gjaldmiðl-
anna má sveiflast 15% til eða frá.
Bæði Tietmeyer og Alphons
Verplaetse, seðlabankastjóri Belgíu,
hafa lýst því yfir að skynsamlegast
sé að velja miðgengið, fremur en að
nota flókna aðferð til að reikna út
meðalgengi yfír lengri tíma.
Hvað varðar dagsetningu ákvörð-
unar ræddu fulltrúar Þýzkalands á
fundinum ítrekað
um „maí“. Orð-
rómur er á kreiki
um að ákveðið
verði að læsa
saman gengið 1.
til 3. maí næst-
komandi. Að-
spurður sagði
Theo Waigel, fjármálaráðherra
Þýzkalands, að dagsetning hefði
ekki verið ákveðin. Hann bætti hins
vegar við: „Margt mælir með fyrstu
helginni í maí.“
Tietmeyer vildi ekki svara spum-
ingum um það hvernig hægt yrði
að hafa mjög mismunandi vaxta-
stefnu í væntanlegum aðildarríkjum
EMU í marga mánuði eftir að geng-
ið hefði verið læst saman. Hann
sagði aðeins: „Svigrúm til stefnu-
mótunar í einstökum ríkjum verður
að sjálfsögðu takmarkað."
írar í vanda verði
miðgengi valið
Verði miðgengi gjaldmiðlanna
valið, standa Irar frammi fyrir því
vandamáli að írska pundið er eini
gjaldmiðillinn innan ESB, sem und-
anfarið hefur selzt á mun hærra
gengi en miðgenginu. Þannig feng-
ust 2,69 þýzk mörk fyrir pundið síð-
astliðinn föstudag en miðgengið er
2,41 mark.
írar þurfa því annað hvort að fara
fram á það við önnur aðildarríki að
miðgengi pundsins verði breytt eða
að taka þá áhættu að ganga inn í
EMU með gjaldmiðil, sem væri of
veikur fyrir hið hraðvaxandi írska
hagkerfi.
Utanríkisráðherrar ESB ræða
fjölgun aðildarríkja
S-Evrópuríki hóta
að hindra stækkun
Brussel. Reuter.
SUÐLÆGARl ríki Evrópusambands-
ins, sem mest hafa fengið í sinn hlut
í byggða- og landbúnaðarstyrki, hóta
að hindra stækkun sambandsins til
austurs nema tryggt verði að þau
tapi ekki á henni fjárhagslega. Hart
var deilt um íjármálahlið stækkunar-
innar á fundi utanríkisráðherra ESB
í Brussel í gær.
Það kemur í hlut leiðtogaráðs ESB
að taka endanlega ákvörðun um það
í desember hvaða ríkjum verður boð-
ið til aðildarviðræðna á næsta ári.
Framkvæmdastjórnin hefur lagt til
að þau verði aðeins sex; Eistland,
Tékkland, Ungveijaland, Pólland,
Slóvenía og Kýpur.
Mismunandi sjónarmið
Á ráðherrafundinum kom fram
að aðildarríkin hafa mjög mismun-
andi sjónarmið varðandi stækkun.
Svíþjóð, Danmörk, Ítalía og Grikk-
land lögðu áherzlu á að Lettlandi,
Litháen, Slóvakíu, Búlgaríu og Rúm-
eníu yrði einnig boðið til viðræðna,
þótt þau kynnu að öðlast aðild síðar
en hin ríkin.
Frakkland, Belgía og Ítalía sögðu
að ekki væri hægt að ráðast í stækk-
unina nema ná fyrst samkomulagi
um breytingar á stofnunum sam-
bandsins, sem frestað var á nýaf-
staðinni ríkjaráðstefnu.
Deilt um fjármálin
Harðasta gagnrýnin á áætlanir
framkvæmdastjórnarinnar um
stækkun kom hins vegar frá suðlæg-
ari ríkjum, einkum Spáni og Portú-
gal. Abel Matutes, utanríkisráðherra
Spánar, sagði að land hans ætlaði
sér ekki að tapa eyri á stækkuninni
til austurs. „Þetta er ekki stundin
til að hafa í hótunum, en það er ljóst
að ríkisstjórn Spánar mun ekki sam-
þykkja að [stækkun] komi niður á
suðlægari ríkjunum,“ sagði hann við
blaðamenn í Brussel.
Framkvæmdastjórnin telur að
ekki verði hjá því komizt að draga
úr landbúnaðar- og byggðastyrkjum,
eigi austurstækkunin ekki að bera
fjárhag ESB, miðað við núverandi
tekjustofna, ofurliði.
Á ráðherrafundinum kom jafn-
framt fram að sum efnaðri ríki sam-
bandsins eru ekki reiðubúin að borga
meira í sjóði sambandsins til að
greiða fyrir stækkun. Þetta sjónar-
mið kom fram af hálfu Þýzkalands,
Hollands og Svíþjóðar.
Sumt snoturlega gert
LEIKLIST
Loftkaslalinn
BEIN ÚTSENDING
Höfundur: Þorvaldur Þorsteinsson.
Leikstjóri: Þór Tidinius. Dramaturg:
Ingibjörg Björnsdóttir. Leikmynd og
búningar: Stígur Steinþórsson. Förð-
unarmeistari: Kristín Thors. Ljós:
Jóhann Bjami Pálmason. mjóðmynd:
Máni Svavarsson. Leikarar: Eggert
Þorleifsson, María Ellingsen, Olafur
Guðmundsson, Sveinn Geirsson, og
Þrúður Vilhjálmsdóttir. Sunnudagur
14. september.
LEIKRIT Þorvalds Þorsteinsson-
ar, sem frumsýnt var á sunnudags-
kvöld í Loftkastalanum, er senni-
lega misjafnasta verk sem undirrit-
aður hefur fjallað um. Verkið er í
sjálfu sér brotakennt, eins og við
er að búast af umfjöllunarefninu,
en brotin ná ekki að loða saman
og mynda neina viðunandi heiid svo
heitið geti. Verk, sem er á köflum
áhugavert og einstaklega vel leikið,
verður þegar upp er staðið mis-
heppnuð tilraun sem ekki er hægt
að segja að hafi náð tilgangi sínum
á nokkum hátt.
Fyrst ber að nefna hreint
skemmtigildi verksins. í verkinu úir
og grúir af bröndurum, sumum
smellnum og öðrum, af ásettu ráði,
lúnum og þreyttum. Flesta þeirra
reytir af sér persóna Didda, í með-
förum Ólafs Guðmundssonar. En
Ólafi mistekst að halda athygli
áhorfenda og að gæða textann ein-
hveiju lífi. Endurtekningarnar
verða of umsvifamiklar og draga
athygli frá því sem er bitastæðast
í verkinu. Eggert Þorleifsson sýnir
marga fyndna takta í hlutverki Jóns
Loga en honum tekst ekki að halda
uppi fyrri hlutanum einn síns liðs.
Þessar tvær persónur eiga að sýna
yfírborðsmennsku fjölmiðlalífsins
en þar sem þær eru einungis til á
yfírborðinu og aldrei sýnt undir það
ná þær aldrei að skipta áhorfendur
nokkru máli.
Það bitastæðasta er brot úr leik-
riti sem bíður frumsýningar og eru
þau sýnd í kynningarskyni í sjón-
varpssal. Leikritið er í nánum
tengslum við „raunverulegt" líf
leikkvennanna. Þessi brot eru vel
skrifuð, beinskeytt og meitluð og
það kemst til skila að hér eru leik-
konur að leika leikkonur sem eru
að leika í verki sem er - að því er
virðist - byggt á lífi þeirra með
skáldinu í verkinu. Leikur Maríu
Ellingsen er sterkur og sýnir áhuga-
verða og spennandi hlið á henni,
þar sem hún leikur nokkuð upp
fyrir sig í aldri. Þrúður Vilhjálms-
dóttir er til fyrirmyndar sem yngri
konan í lífí skáldsins. Þeim tekst
sérstaklega vel að koma til skila
hinum mörgu hliðum persónanna,
enda áberandi hvað þeirra hlutverk
eru betur skrifuð og úthugsuð en
önnur. En um leið og samleik þeirra
sleppir og þær þurfa að kljást við
aðrar persónur fer stemmningin út
um þúfur.
Sveinn Geirsson leikur rithöfund-
inn, þungamiðju þáttarins og verks-
ins í heild. Hann nær hvorki að
vera nógu sannfærandi þegar hann
sýnir skáldið í skrípamynd né þegar
hann fer með einræðu hins von-
svikna listamanns í lokin. Þarna
hefði þurft miklu styrkari leikstjórn
og hnitmiðaðri vinnu höfundar.
Myndversumhverfíð býður upp á
marga möguleika. Það er því miður
að leikstjórinn nýtir sér þá ekki.
Statistar með myndatökuvélar, stór
sjónvarpsskjár, Ijós er líkja eftir
sjónvarpslýsingu, ýktir búningar og
ýtin hljóðmynd eru fyrirferðarmikil
á sviðinu. En allt þetta er aðallega
fyrir í tilgangsleysi sínu. Leikstjóra
tekst ekki að nýta sér tæknina til
neins sem skýrir eða skerpir inntak
verksins. Honum tekst heldur ekki,
í samvinnu við höfund og dramat-
úrg, að tvinna saman ólíka þætti
verksins í heild sem gæti sagt okk-
ur eitthvað nýtt um yfírborðs-
mennsku fjölmiðla og umfjöllun um
list og listamenn. Eftir stendur
gloppótt kvöldskemmtun sem
minnir á misheppnaðan sjónvarps-
þátt. Það er því viðeigandi að nota
þau orð sem persóna skáldsins not-
ar um leik eiginkonu sinnar í verk-
inu sem lokaorð enda er Ieikur
Maríu og Þrúðar það sem hér stend-
ur upp úr: „Sumt snoturlega gert.“
Sveinn Haraldsson
Morgunblaðið/Golli
MARÍA Ellingsen, Eggert Þorleifsson og Sveinn Geirsson fylgjast með myndum á ímynduðum sjón-
varpsskjá í Beinni útsendingu.
Rokkaður spuni
SLAGVERKSLEIKARINN Gunn-
laugur Briem kemur fram með þrem-
ur djasshljóðfæraleikurum, búsett-
um í London, á tónleikum sem haldn-
ir verða í kvöld kl. 21 á Hótel Sögu
á vegum djasshátíðarinnar RúRek.
Kvartettinn skipa Joe Hubbard raf-
bassaleikari, Momington Lockett
tenórsaxafónleikari og Michael
Anthony Smith gítarleikari ásamt
Gunnlaugi en þetta er frumraun
hans sem hljómsveitastjóri.
Uppistaða tónleikanna er frum-
samin verk en einnig verða leikin
klassísk verk í nýjum útsetningum
sveitarinnar. Gunnlaugur lýsir verk-
unum sem rokkuðum og hrynvísum
spuna. „Að mínu viti eru þetta bestu
djassleikarar sem völ er á í Lond-
on,“ segir Gunnlaugur. „Þetta verk-
efni er mjög spennandi fyrir mig og
heiður að fá að spila með þessum
mönnum.“ Þeir Gunnlaugur, Anth-
ony Smith og Joe Hubbard hafa all-
ir leikið saman áður, Mornington
Lockett er viðbót við þennan hóp en
Gunnlaugur segir hann reyndar hafa
DJASSKVARTETT skipaður þeim Joe Hubbard, Mornington
Lockett, Michael Anthony Smith og Gunnlaugi Briem heldur tón-
leika á Hótel Sögu í kvöld.
leikið áður með Smith og Hubbard fremst að hafa gaman af þessu í
svo þeim hafí gengið vel að aðlagast kvöld og skemmta okkur og áhorf-
hver öðrum. „Við ætlum fyrst og endurn," segir Gunnlaugur.
.