Morgunblaðið - 16.09.1997, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 16.09.1997, Blaðsíða 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ AÐSEIMDAR GREINAR Skólamál í Dalasýslu Kynningarfundur um „Úttekt á fræðslu- málum í Dalasýslu“ var haldinn í Búðardal 2. september sl. Kynntar voru niður- stöður viðamikillar út- tektar og tillögur um nýskipan skólamála í Dölum sem ráðgjafa- fyrirtæki hefur unnið fyrir sveitarfélög sýsl- unnar, Dalabyggð og Saurbæjarhr. Dala- byggð varð til árið 1994 við sameiningu 6 hreppa sýslunnar en þeir voru: Suðurdala-, Haukadals-, Laxár- dals-, Hvamms-, Fellsstrandar- og Skarðshr. Verkefnisstjóri kynnti skýrslu sína en skólamálum er nú svo hátt- að, að Dalabyggð rekur grunnskóla í Búðardal og að rekstri grunnskól- ans á Laugum standa bæði sveitar- félögin. Lagt er til að skólarnir verði sameinaðir í einn skóla og að kennsla fari fram í Búðardal. Skólasel verði rekið í Tjarnarlundi í Saurbæ fyrir yngstu nemendur úr Saurbæ og af Skarðsströnd. Fundurinn var boðaður báðum sveitarstjórnum, skólastjórum, full- trúum skólanefnda og foreldraráða beggja skóla. Að lokinni kynningu fóru fram fyrirspurnir og umræður og síðan var samþykkt að setja á fót 5 manna nefnd til að vinna áfram að skipulagsmálum skóla í Dölum. Inngangsorð í umræðuna um skólamál í Dölum Fyrsti ræðumaður, að lokinni kynningu, var formaður skóla- nefndar Laugaskóla og prófastur í Dölum og var ræða hans um margt merkileg. Til að lýsa hughrifum sínum af tillögu skýrsluhöfundar minntist hann orða hins rómverska stjórn- málamanns, Cató gamla sem endaði allar ræður sínar með því að segja: „Að lokum legg ég til að Karþagó verði lögð í eyði.“ Túlkun hans á til- lögunni hljómaði því svo: „Hér með skal Laugaskóli lagður í rúst.“ Þessi inngangs- orð í umræðuna um skólamál í Dölum eru umhugsunarverð. Þau gefa með afgerandi hætti tóninn um hið heilaga stríð sem nú skal háð fyrir tilvist Lauga í Sæl- ingsdal sem grunnskóla sýslunnar. Ekkert annað kemur til greina. Önnur sjónarmið landráð. Hann vísar út í ystu myrkur hugmynd um að tryggja skólastarf á Laugum með öðrum hætti en með skóla fyrir börn. Hugmynd um skóla fyr- ir aldraða telur hann hlægilega og ekki umræðuverða. Og af orðum oddvita Saurbæj- arhr. mátti hveijum manni vera ljóst að stríðið skyldi háð hvað sem tautaði og raulaði og á hvetju sem gengi og hvað sem það kostaði. Báðir þessir herramennn úr Saur- bæjarhr. höfnuðu Búðardal alger- lega sem hugsanlegum skólastað fyrir sameinað skólastarf. Raunar voru ræður þeirra ekki að hætti herramanna en það er nú smekks- atriði. Hvorugur vék að því af hvaða ástæðu þeir telja Búðardal réttminni en Lauga sem skólastað fyrir grunnskóla Dalasýslu. Til upprifjunar Byggingu og rekstur heimavist- arskóla á Laugum má rekja til fræðslulaga frá 1946 sem lögðu áherslu á sameiningu skólahverfa um rekstur skóla en fram að þeim tíma var hver hreppur sérstakt skólahverfi og farskólarnir við lýði. Hvammshr. einn ög sér hóf í upphafi af myndarskap að reisa skólahús á Laugum árið 1956 og síðan komu önnur sveitarfélög að því máli. Árið 1966 eru öll sveit- arfélög sýslunnar orðin aðilar að uppbyggingu og rekstri Lauga- skóla. Miklar umræður hafa vafalaust átt sér stað í hveijum hreppi fyrir sig um skólamálin á þessum tíma. Svo var t.d. í Laxárdalshreppi þar sem mikið var rætt um hvort hrepp- urinn með þéttbýlið í Búðardal inn- anborðs ætti að gerast aðili að Búðardalur er miðstöð stjórnsýslu og hvers kyns þjónustu við inn- anverðan Breiðafjörð. Guðrún Konný Pálma- dóttir telur að þar sé öflugur grunnskóli einn af hornsteinunum. Laugaskóla. Þetta átti sér rætur í því að íbúar Búðardals og nágrenn- is vildu heimangönguskóla en ekki senda böm sín í heimavistarskóla. Þessi áhersla „þéttbýlinganna" var eðlileg og réttmæt en um það voru víst ekki allir sammála þá fremur en nú. I þá daga voru samgöngur með öðrum hætti en nú og nokkrum erfiðleikum bundið fyrir börn í dreifbýli Laxárdalshrepps að sækja skóla í Búðardal. Aðild Laxárdalshr. að Lauga- skóla byggðist því í upphafi á því að börn úr dreifbýli hreppsins sóttu skóla að Laugum. Auk þess var viðurkenning fræðsluyfirvalda á heimangönguskóla í Búðardal háð því að Laxárdalshr. gerðist þátttak- andi í uppbyggingu og rekstri Laugaskóla sem og varð. Jafnframt var rekinn skóli í Búðardal en íbú- ar þar voru milli 60 og 80 á þessum árum. Nú hélt þéttbýlið áfram að vaxa í Búðardal og þá sér í lagi um og eftir 1970 þegar hér voru miklir uppgangstímar og margt ungt fólk með börn á skólaaldri að setjast hér að. Skólinn í Búðardal komst hins vegar ekki í eigið húsnæði fyrr en árið 1976 og bygging seinni áfanga skólahússins lauk ekki að fullu fyrr en 12 árum síðar. Staða skólamála 1997 Þegar núverandi staða er skoðuð í ljósi sögunnar er vert að velta því upp hvort þéttbýlið í Búðardal hafi minni rétt nú en áður til heiman- gönguskóla í Búðardal og ef svo er, þá hvers vegna. Þótt Búðardalsskóli hafi verið viðurkenndur af skólayfirvöldum jafn lengi og Laugaskóli er eins og hann hafí aldrei hlotið raunveru- lega viðurkenningu annarra en íbúa Búðardals. Þetta kom glöggt fram í máli formanns skólanefndar Laugaskóla og oddvita Saurbæj- arhr. á skólafundinum 2. september sl. þar sem Búðardalur fær algera og fortakslausa höfnum sem skóla- staður fyrir grunnskóla Dalasýslu. Ýmis teikn eru á lofti um það að skólarnir verði sameinaðir í eina skólastofnun þótt óvissa ríki um annað þegar þetta er skrifað. Ef reikna á með því að „herra- mennirnir“ á skólafundinum í Búð- ardal hafí þar túlkað almennustu sjónarmið íbúa dreifbýlisins, sem ég leyfi mér stórlega að draga í efa, þá er ljóst að Búðardalur er ekki viðurkenndur sem skólastaður í hugum meirihluta íbúa Dalasýslu. Og fyrir íbúa Búðardals, nemendur og starfsfólk Búðardalsskóla, væri vissulega sárt að upplifa það eftir áratuga langt og farsælt skóla- starf. Minna má á að fyrrum Laxár- dalshr. stóð fyllilega við skyldur sínar og ábyrgð gagnvart börnum dreifbýlisins í hreppnum, með aðild sinni að uppbyggingu og rekstri Laugaskóla á sínum tíma meðan samgöngur voru ljár í þúfu skóla- sóknar þeirra í Búðardalsskóla. Framtíðin Búðardalur er héraðskjarni fyrir byggðir við innanverðan Breiða- fjörð. Miðstöð stjórnsýslu og hvers kyns þjónustu með nýlegum og vönduðum mannvirkjum. Búðar- dalur og sú fjölþætta þjónustustarf- semi sem hér er rekin gegnir lykil- hlutverki í því að draga að nýtt fólk og nýtt blóð í sýsluna. Að hér sé öflugt þéttbýli með alla þá grunnþjónustu sem fólk í dag á rétt á og gerir kröfu til, skiptir sköpum varðandi framtíð Dala- sýslu. Öflugur grunnskóli er þar einn af hornsteinum. Búseta fólks ræðst ekki ein- göngu af atvinnumöguleikum. Hún ræðst einnig að miklu leyti af skól- um og þjónustustigi. í sókn að efl- ingu byggðar í Dölum verður ekki vígbúist frá neinum einstökum stað öðrum en Búðardal. Ég tel að því fyrr sem þessi hugsun fær almenn- an og víðtækan hljómgrunn, því betur og markvissar tekst að efla byggðina í heild sinni. Hvað framtíðin ber í skauti sér er annars ekki gott að segja fyrir um. Hitt er víst að krafan um áframhaldandi skólastarf í Búð- ardal þar sem nú búa um 300 manns, er og verður áfram við lýði og því fær ekkert haggað. Breytingu þar á verður ekki þröngvað í gegn, á hveiju sem gengur í henni veröld. Að lokum skal tekið fram að skoðanir sem hér eru settar fram eru greinarhöfundar. Tillögur um nýtt skólaskipulag hafa ekki hlotið umfjöllun hreppsnefndar Dala- byggðar. Höfundur er varaoddviti ogfor- maður hreppsráðs Dalabyggðar. Guðrún Konný Pálmadóttir MUNIÐ SÉRPANTANIR ÁHÚSGÚGNUM TÍMALEGA FYRIR JÓLIN Mörkinni 3, sími 588 0640 E-mail: casa@islandia.is Full laun í fæðingarorlofi eða ekki? í NÝJASTA tölu- blaði Vinnunnar, mál- gagns ASÍ, er vakin athygli á máli sem hef- ur ekki farið hátt að öðru leyti í fjölmiðlum, en það er fullgilding tilskipunar Evrópu- sambandsins um vinnuvernd barnshaf- andi kvenna og kvenna sem nýverið hafa fætt. Efni hennar felur í sér stórkostlegar réttar- bætur fyrir starfsmenn sem fara í fæðingaror- lof, því skv. 11. gr. hennar eiga þeir rétt á a.m.k. þriggja mánaða veikindalaunum í fæðingarorlofi. Það eru því margir sem hafa beðið spenntir eftir Iögleiðingu tilskipun- arinnar hér á landi, en því miður virðast stjómvöld ætla að fara á skjön við ákvæði hennar og það átti að gerast hægt og hljótt, án þess að eftir yrði tekið. Veikindalaun fyrstu 14 vikurnar 111. gr. tilskipunarinnar er kveð- ið á um að bætur til handa foreldr- um í fæðingarorlofi skuli (í minnst 14 vikur, sbr. 9. gr.) tryggja að minnsta kosti jafnmiklar tekjur og hlutaðeigandi starfsmaður fengi í veikindafríi, hugsanlega bundið við eitthvert hámark sem kveðið er á um í innlendri löggjöf. Samkvæmt núgildandi lögum býr þorri launa- fólks við það að fá greiðslur frá Tryggingastofnun ríkisins í fæðing- arorlofí, sem nema að hámarki um það bil 60 þúsund krónum á mán- uði, en undantekningar eru þó frá þessu í sumum kjarasamningum. Hins vegar kveða lög á almennum vinnumarkaði á um að svokölluð staðgengils- regla gildi í tiltekinn tíma, (að jafnaði fyrsta mánuðinn) þegar þetta sama launafólk fer í veikindaleyfi. Stað- gengilsreglan felur í sér að starfsmaðurinn fær greidd þau laun sem hann hefði haft, ef forföll hefði ekki borið að höndum, þ.e. grunnlaun ásamt yfir- vinnukaupi og ýmsum álagsgreiðslum, s.s. námskeiðsálag, flokk- stjóraálag, viðgerðar- og þungaálag o.s.frv. Að loknu því tímabili sem staðgeng- ilsreglan gildir tekur svo við tíma- bil þar sem starfsmaðurinn á rétt á dagvinnukaupi í fjarveru sinni vegna veikinda. Skýlaus réttarbót en kostnaðarsöm! Ef tekið er tímabil þriggja fyrstu mánaða í veikindum er því oft um að ræða að starfsmaður hafí einn mánuð á fullum launum en næstu tvo á dagvinnukaupi. Regla sem kveður á um að starfsmaður eigi rétt á sömu greiðslum í fæðingaror- lofí þýðir því í langlestum tilvikum gerbyltingu fyrir stöðu þeirra starfsmanna sem fara í fæðingaror- lof. Þetta er öllum ljóst sem kynna sér tilskipunina og þetta var fulltrú- um atvinnurekanda og stjórnvalda ljóst strax þegar þeim var kunnugt um efni hennar, þ.e. á árinu 1992. Þess vegna hefur verið dregið í lengstu lög að fullgilda efni hennar og á fundi samráðsnefndar félags- málaráðuneytisins og samtaka aðila vinnumarkaðarins í september 1993 Það er óþolandi að búa við það, segir Bryndís Hlöðversdóttir, að ís- lenzk stjórnvöld líti á það sem sitt helzta hlut- verk að koma sér undan því að standa við alþjóð- legar skuldbindingar. lýsti fulltrúi atvinnurekanda því sérstaklega yfir að framkvæmd til- skipunarinnar fæli í sér verulegan tilkostnað þar sem hún gjörbylti gildandi reglum um barnshafandi konur á vinnumarkaði og um greiðslur í fæðingarorlofí. Jafn- framt var eftir því óskað við utan- ríkisráðuneytið að leitað verði eftir sem lengstum aðlögunartíma fyrir Island til að hrinda ákvæðum til- skipunar þessarar í framkvæmd. Það hefur greinilega verið orðið við þessum tilmælum, því gert var ráð fyrir að aðildarríkin fullgiltu tilskip- un þessa tveimur árum eftir gildis- töku hennar, þ.e. í september 1994. Hroðvirknisleg vinnu- brögð stjórnvalda Nú gerist það þremur árum eftir að tilskipunin átti í raun að taka gildi að í kyrrþey er gefin út reglu- gerð, sem átti að fela í sér lögleið- ingu hennar. Málið var kynnt í stuttu máli fyrir samráðsnefnd fé- lagsmálaráðuneytisins, en afgreitt þaðan með hraði eftir svo til enga umræðu. En ekki nóg með seina- ganginn og hroðvirknislega af- greiðslu málsins, heldur hefur heil- brigðisráðuneytinu tekist að túlka ákvæðið um greiðslur í fæðingaror- lofi svo að þegar talað er um greiðsl- ur í veikindum sé í raun verið að vísa í ákvæði almannatrygginga- laga um sjúkradagpeninga! Túlkun þessi er rökstudd með vísan í yfir- lýsingu sem fylgir tilskipuninni en það er fráleitt að telja slíka yfirlýs- ingu geta þrengt svo efni tilskipun- arinnar sjálfrar að hún nái ekki fram tilgangi sínum. Það er of langt mál að fara ofan í efnisatriði um- ræddrar yfirlýsingar hér, en henni virðist fyrst og fremst vera ætlað það hlutverk að fyrirbyggja mis- túlkun í þá veru að þungun skuli að öðru leyti jafnað við sjúkdóm. Hver er réttur launa- fólks í málinu? Þessi tilskipun felur í sér ýmsar aðrar réttarbætur fyrir þungaðar konur og foreldri í fæðingarorlofí, sem vert er að kynna sér og vísa ég þar til umfjöllunar Vinnunnar og tilskipunarinnar sjálfrar. Þáttur stjómvalda í samvinnu við atvinnu- rekendur er hins vegar með ólíkind- um í þessu máli. Ekki aðeins hafa stjórnvöld vanrækt þá skyldu sína að kynna lögleiðingu tilskipunar- innar og þau áhrif sem hún hefur á réttarstöðu iaunafólks, heldur hefur beinlínis verið farið á skjön við efni hennar. Slík málsmeðferð hlýtur að enda í kæmmáli fyrir þar til bærum aðilum, en það er óþol- andi að búa við það að íslensk stjórnvöld líti á það sem sitt helsta hlutverk að koma sér undan því að standa við þær skuldbindingar sem felast í alþjóðlegum samþykktum. Höfundur er þingmaður Alþýðubandalagsins fyrir Reykjavíkurkjördæmi. Bryndís Hlöðversdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.