Morgunblaðið - 16.09.1997, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 16.09.1997, Blaðsíða 38
" 38 ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR * Tr + Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, STEFÁN JÓHANNSSON, Grundargötu 20, Siglufirði, andaðist á Landspítalanum að kvöldi laugar- dagsins 13. september. Jarðarförin auglýst síðar. Sigga Sól, börn, tengdabörn og barnabörn + Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, DAGMAR LÚÐVÍKSDÓTTIR, Neshaga 6, Reykjavík, lést á Landspítalanum sunnudaginn 14. september. Sigríður Gizurardóttir, Lúðvík Gizurarson, Valgerður Einarsdóttir, Bergsteinn Gizurarson, Marta Bergman, Sigurður Gizurarson, Guðrún Magnúsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir mín, tengdamóðir og amma, STEFANÍA JÓNSDÓTTIR frá Hrauni, Sléttuhlíð, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtu- daginn 18. september kl. 15.00. Ragna Jóhannsdóttir, Jóhanna Einarsdóttir, Pétur Guðjónsson, Ragna Pétursdóttir, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, KARÓLÍNA SIGURBJÖRG JÓNSDÓTTIR, frá Sjólyst, Grindavík, verður jarðsungin frá Grindavíkurkirkju mið- vikudaginn 17. september kl. 14.00. Sædís E. Hansen, Kaj H. Hansen, Sigurjón Keith Wiltiamsson, Linda H. Hansen, Karina H. Arp, Johnny Bo Arp, Daniel Arp, Nadia Arp, Við þökkum af alúð öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og vináttu við andlát og útför móður okkar, SIGURBORGAR EYJÓLFSDÓTTUR, Sörlaskjóli 44, Guð blessi ykkur öll, Kristín Guðleifsdóttir, Anna Guðleifsdóttir, Bjarni E. Guðleifsson, Fjóla Guðleifsdóttir, Hanna Lilja Guðleifsdóttir. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, GUÐMUNDÍNU GUÐMUNDSDÓTTUR, Hrafnistu. Unnur Hjartardóttir, Jóhann Guðmunsson, Oddur R. Hjartarson, Soffía Ágústsdóttir, Sigrún Ágústsdóttir, Guðbjörg Guðjónsdóttir og ömmubörn. RAFN JÚLÍUSSON + Rafn Júlíusson fæddist í Reykjavík 4. desem- ber 1931. Hann lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur 7. sept- ember síðastliðinn. Foreldrar hans voru Júlíus Árnason kaupmaður og kona hanas Margrét Þor- varðardóttir. Systk- ini hans voru Sigur- rós, Þorbjörg og Þorvarður Jón. Þor- björg og Þorvarður Jón eru látin. Rafn kvæntist Kristínu Guð- mundsdóttur og eignuðust þau tvær dætur; 1) Sigríður, f. 24.10. 1954. Maki Guðmundur Þór Björnsson. Þeirra börn: Kristín Hulda, f. 25. ág. 1978, Björn Þór, f. 2. sept. 1980, og Rafn, f. 15. nóv. 1983, 2) Mar- grét Júlía, f. 17. des. 1959. Maki Steingrímur Einar Hólm- steinsson. Þeirra börn: Harpa Stein- unn, f. 30. sept. Hólmsteinn f. 14. des. 1987, og Orri Stein- ar, f. 22. apríl 1992. Rafn varð stúd- ent frá MR 1952. Cand. phil. frá HÍ 1953. Nám í frönsku og bók- menntum við Sor- bonne í París 1953-1956. Hóf starf hjá Pósti og síma 1957. Starfaði sem póstmálafulltrúi frá 1960- 1992 er hann tók við starfi framkvæmdastjóra póstmála- sviðs. Um síðustu áramót varð hann forstöðumaður alþjóða- og samstarfsdeildar Pósts og síma hf. Útför Rafns fer fram frá Áskirkju í dag og hefst athöfn- in klukkan 13.30. í dag kveð ég ástkæran tengda- föður minn, einhvern þann mesta heiðursmann sem ég hef kynnst. Mig langar að minnast hans með örfáum orðum. Nú eru liðin rúm 20 ár frá því að ég kynntist Rafni fyrst. Eins og við er að búast er margs að minn- ast. Efst er þó í huga hve vel þau Didda og Rafn tóku mér, þessum strák sem fór að venja komur sínar á Týsgötuna til að hitta eldri dóttur- ina. Iðulega kom fyrir fyrsta sumar- ið okkar Siggu, að ég var mættur í heimsókn áður en hún kom heim úr vinnu. Var mér þá boðið til stofu og spjölluðum við saman um heima og geima þar til Sigga kom heim. Þetta voru mér ánægjulegar stund- ir í þægilegu andrúmslofti. Síðan höfum við Rafn átt fjölmargar stundir saman og setið og skrafað. Hann var afskaplega viðræðugóður og mikilvægur kostur hans var að hann sýndi viðmælanda sínum áhuga, hvað hann væri að fást við, hvernig gengi og svo framvegis. Hlýlegt handtak í hvert sinn er við hittumst eða kvöddumst undirstrik- ar manngerðina. Hann var ávallt höfðingi heim að sækja og eru ófá- ar ánægjustundirnar, þar sem öll fjölskyldan hefur safnast saman í mat eða kaffi hjá Diddu og Rafni, fyrst á Týsgötunni og nú síðar á Laugarásveginum. Kæri Rafn, það eru ómetanleg forréttindi að hafa fengfið að kynnast þér. Elsku Didda mín, Sigga og Mar- grét og öll barnabörnin, missir ykk- ar er mikill. Megi góður Guð styrkja ykkur og varðveita í sorginni. Guðmundur Þór Björnsson. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fenp að kynnast þér. (Ingibj. Sig.) Hvert andartak var auðnuspor með þér. Það eru forréttindi að hafa fengið að eiga þig, elsku afi, fengið að vera með þér, drekka af visku- brunni þínum, teiga í sig spekina, æðruleysið, yfirsýnina, jákvæðnina, umburðarlyndið, kærleikann. Alltaf hafðir þú réttu svörin, bestu lausn- ina, svo skilningsríkur, svo yfírveg- aður, svo rólegur. Þú umvafðir okk- ur ást og hlýju, hvattir okkur, hrós- aðir, uppörvaðir. Þú varst kletturinn og máttarstólpinn. Það eru forrétt- indi að hafa fengið að Iæra af þér. Þú varst besti kennarinn, besta fyrir- myndin. Elsku afí, hafðu þökk fyrir allt. Guð geymi þig. Barnabörn. Skammt er nú stórra högga á milli. í upphafi þessa árs lézt Bragi Björnsson og nú er kvaddur Rafn Júlíusson. Báðir voru þeir bekkjar- bræður mínir í gagnfræða- og menntaskóla og nær nánustu vinir, ásamt þeim bekkjarbræðrum mín- um öðrum, Hannesi Péturssyni, Jóni Thors og Ólafi St. Sigurðs- syni, um hálfrar aldar skeið. Sú vinátta brást aldrei, hvað sem á dundi, þótt stöku sinnum liði nokk- ur stund milli funda. Tveimur verð- ur nú færra, er við hittumst næst á árlegu borðhaidi í desember. Rafn var að mörgu leyti minnis- verður maður. Eðlislæg greind, gott og hlýlegt uppeldi sem og farsæl menntun varð honum giftudijúgt í starfi hjá sama vinnuveitanda, Pósti og síma, í fjörutíu ár. í starfi sínu nýttist honum vel frábær tungu- málakunnátta, sem kom í ljós strax í menntaskóla. Ekki siður nýttist honum skapferlið, dásamlega jafn- geðja og hreinn mannasættir. Hátt- vísin brást honum heldur aldrei. Slíkan mann var gott að blanda geði við. Ef ég ætti ekki annars kost en að lýsa honum í einu orði, þá þetta: Drengskaparmaður. Rafn var vel á sig kominn líkam- lega. Stór og stæðilegur og yfir honum var reisn. Dökkt yfirbragðið framan af ævi lýsti af mildi og hógværð. Grásprengt hárið seinni hluta æviskeiðsins breytti engu þar um, jók aðeins á virðuleikann. Ekki er mér kunnugt um, að Rafn hafi víða verið félagsbundinn maður. Honum leiddist einfaldlega allt félagastúss, einkum dægur- málaþras. Hann var þó alla tíð bundinn Knattspyrnufélaginu Val tryggðaböndum og keppti auk þess í handbolta í Ármanni á mennta- skólaárum sinum. Við Rafn áttum oft, einkum á fyrri árum, glaðan fund saman. Lúmsk hnyttni hans, án minnstu meinfýsi, var óborganleg. Nutum við gömlu vinir hans þess í ríkum mæli. Við ótímabært brotthvarf hans, svo og Braga Björnssonar, þess einstaka húmorista, er ég hræddur um, að eitthvað þyngist yfir gamla hópnum. Flugið verði ekki eins létt, er menn hittast, enda aldur að færast yfir. Skömmu eftir að Rafn kom heim frá námi í Frakklandi, sem var hon- um hugstæðast allra landa utan Islands, kynntist hann eftirlifandi eiginkonu sinni, Kristínu Guð- mundsdóttur. í hjónabandi þeirra reis lífshamingja hans hæst, enda mikið jafnræði með þeim hjónum og gagnkvæm væntumþykja. Dæt- urnar tvær og síðar meir tengda- synir og barnabörn innsigluðu þá hamingju. Þótt Rafn væri ekki margmáll um einkahagi sína, duldist engum, sem þekktu hann náið, hvert hugur- inn leitaði. I erfiðum veikindum sín- um uppskar svo Rafn eins og hann hafði sáð, einstaka fórnfýsi, og órofa tryggð sinna nánustu. Við, gömlu vinir Rafns, svo og eiginkonur okkar, drúpum nú höfði. Hryggð okkar er mikil og sár. Kristínu, eiginkonu Rafns, dætr- um þeirra hjóna, svo og öðrum nákomnum aðstandendum, votta ég heilshugar samúð mína og óska þeim farsældar. Blessuð sé minning vinar míns, Rafns Júlíussonar. Jón P. Ragnarsson. Góður vinur og samstarfsmaður til margra ára er látinn. Rafn Júl- íusson hóf störf hjá Pósti og síma snemma árs 1957 og hafði því lok- ið fjörutíu ára starfi þegar hann lést 7. september sl. Starfssvið Rafns var póstþjónustan. Fljótlega eftir að hann hóf störf tók hann við starfi póstmálafulltrúa en því starfí fylgdu m.a. samningar við erlend ríki og samskipti við alþjóða- stofnanir og ráðuneyti. í því starfi kom málakunnátta hans sér vel en Rafn var góður málamaður. Hann hafði stundað nám við Svartaskóla (Parísarháskóla) eins og fleiri góðir Islendingar, og kom frönskukunn- átta hans að góðu gagni hjá Pósti og síma. Franskan var opinbert tungumál Alþjóðapóstsambandsins og reyndi ef til vill meira á frönsk- una í því sambandi áður fyrr en nú síðustu árin. í ársbyijun 1992 var Rafn skipaður framkvæmda- stjóri póstmálasviðs og gegndi hann því starfi til síðustu áramóta er Pósti og síma var breytt í hlutafé- lag. Þá tók hann við starfi forstöðu- manns alþjóða- og samstarfsdeildar póstsviðs hjá hinu nýja hlutafélagi og gegndi hann því meðan kraftar entust. Að sjálfsögðu hlóðust á Rafn ýmis aukastörf sem tengdust hans aðalstarfi. Hann átti sæti í mörgum ráðum og nefndum um lengri eða skemmri tíma og má þar nefna starfsmannaráð, skólanefnd Póst- og símaskólans, safnráð Póst- og símaminjasafnsins og frímkeijaútg- áfunefnd. Þá var hann ritstjóri Nordisk Posttidskrift fyrir íslands hönd um aldarfjórðungs skeið, en það er rit um póstmál sem póst- stjórnir á Norðurlöndum gefa út sameiginlega. Einnig sat hann í stjórn og varastjórn Alliance Francaise um árabil. Rafn hafði yfirgripsmikla þekk- ingu á ýmsum sviðum, ekki aðeins á sviði almennra póstmála heldur á fleiri sviðum og má þar nefna frí- merkjafræði sem ekki stendur öllum opin. Margir leituðu ráða hjá honum enda var hann tillögu- og úrræða- góður. Það er margs að minnast frá nær fjörutíu ára samstarfi. Minningar um ljúfan dreng, orðvaran dreng- skaparmann, sem vann störf sín af kostgæfni. Einnig minningar frá góðum stundum utan hins eiginlega vinnudags. Eitt vil ég nefna sér- staklega. Mörg undanfarin ár höf- um við nokkur hjón farið saman á leiksýningar í Þjóðleikhúsinu, höfð- um þar áskriftarkort. Við hlökkuð- um alltaf mikið til þessara Ieikhús- ferða og reyndum að missa ekki af þeim. Fórum við gjarnan heim í kaffi á eftir og þar voru málin rædd áfram og krufin til mergjar. Mér eru minnisstæðar hnyttnar athuga- semdir Rafns frá þessum kvöldum. Þegar ég heimsótti Rafn á Sjúkra- hús Reykjavíkur, tæpri viku áður en hann lést, bárust væntanlegar leikhúsferðir í tal og bað hann mig að nálgast áskriftarkortin fyrir sig. Var það auðsótt mál að verða við hans síðustu bón. Við Rafn förum ekki í fleiri leikhúsferðir saman en við Elín minnumst margra góðra stunda á heimili þeirra Rafns og konu hans Kristínar, frænku minnar, fyrst á Týsgötunni og síðar á Laugarásveginum. Þau áttu glæsilegt heimili og voru höfðingjar heim að sækja og gestrisin með afbrigðum. Að leiðarlokum kveðjum við Rafn með þakklæti fyrir samfylgdina og við Elín vottum Kristínu, dætrunum Sigríði og Margréti Júlíu og öðrum ástvinum þeirra okkar dýpstu sam- úð og biðjum góðan Guð að styrkja þau í sorginni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.