Morgunblaðið - 16.09.1997, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Bj örgunarleiðangurinn í Hamarsfirði var erfiður og tók rúma sjö tíma
Gengn í snjókomu og
myrkri upp fjallið
RAGNAR Þorgilsson var einn 12 björgun-
arsveitarmanna frá Djúpavogi sem fóru
upp að flakinu.
Aðstæður til björgunar inn af Hamarsfírði
voru erfíðar og þurftu björgunarmenn að
leggja mikið á sig til að komast að flakinu.
Þeir gengu upp í 800 metra hæð, yfír gil,
bratta urð og klettabelti. Héraðslæknirinn
á Djúpavogi segist hafa óttast að einhver
myndi slasa sig á leiðinni.
BJÖRGUNARSVEITARMENN frá
Djúpavogi gengu í snjó og myrkri
upp snarbratta hlíðina inn af sunn-
anverðum Hamarsfirði. Þeir voru
meira en þijá klukkutíma á leiðinni
upp að flaki þyrlunnar, sem var I
tæplega 800 metra hæð. Mönnum
stóð nokkur hætta af gijóthruni og
segir Guðmundur Björgvinsson
læknir að hann hafi óttast að slys
yrðu á fólki við björgunaraðgerðir.
Björgunarsveitir frá
Hornafirði, Djúpavogi,
Stöðvarfirði, Breiðdalsvík
og Fáskrúðsfírði voru
kallaðar út eftir að fréttir
bárust af slysinu. 17
menn fóru frá björgunarsveitinni á
Djúpavogi og lögðu þeir fyrstir af
stað frá Hamarsfirði. Þeir óku á bíl-
um 10-12 km inn dalinn frá bænum
Bragðavöllum. 12 menn lögðu af
stað upp hlíðina, en litlu seinna fóru
tveir menn frá Þyrluþjónustunni á
eftir þeim upp.
Þyrlan heilleg
„Aðstæður þarna eru erfiðar.
Fjallshlíðin er mjög brött og yfir
urðir og klettabelti að fara. Landið
er því mjög erfitt yfirferðar. Það var
snjóföl yfir öllu og niðamyrkur.
Veðrið var þó ekki slæmt. Það gekk
á með éljum upp í íjallinu, en það
varð aldrei mjög hvasst,“ sagði
Ragnar Þorgilsson, félagi úr björg-
unarsveitinni á Djúpa-
vogi.
Björgunarsveitar-
mennirnir komu á slys-
stað laust eftir miðnætti.
Ragnar sagði að þyrlan
hefði verið heilleg. Hún hefði verið
á hliðinni, en þyrluspaðinn hefði leg-
ið 20-30 metrum frá. Hann sagði
allt benda til að þyrlan hefði hrapað
úr lítilli hæð.
Eftir að læknir hafði gengið úr
skugga um að flugmaðurinn var lát-
inn var tekin ákvörðun um að óska
ekki eftir frekari aðstoð björgunar-
þyrlu Landhelgisgæslunnar. Olafur
Ragnarsson, sveitarstjóri á Djúpa-
vogi, sem var í björgunarmiðstöðinni
í Hamarsfirði, sagði að menn hefðu
ekki talið fært að láta þyrluna lenda
uppi á fjallinu og því hefðu björgun-
araðgerðir miðast við að hún lenti í
dalnum eða á Djúpavogi. Þess hefði
hins vegar ekki gerst þörf og því
hefði henni verið snúið
við frá Höfn í Hornafirði.
Leiðin niður erfið
Ragnar sagði að leiðin
niður hefði ekki síður ver-
ið erfíð en leiðin upp. Ákveðið hefði
verið að fara aðra leið niður, sem
var aðeins innar í dalnum. „Menn
voru orðnir nokkuð blautir og sumir
orðnir mjög þreyttir enda voru ekki
allir vanir göngumenn. Við bárum
með okkur þungar byrðar, m.a. tösk-
ur og búnað fyrir lækninn, sem var
erfitt í þessum bratta. Það tók einn-
ig í að halda á sjúkrabörunum nið-
ur, en sem betur fer komu menn
úr öðrum björgunarsveitum til móts
við okkur og héldu á börunum síð-
asta spölinn."
Ragnar sagði að band hefði verið
haft í sjúkrabörunum og menn hefðu
haldið í það þegar farið var niður
klettabeltin. Hann sagði að nokkur
hætta hefði stafað af gijóthruni frá
þeim sem voru ofar í hlíð-
inni og m.a. af þeim sök-
um hefði leiðin niður ver-
ið torsótt. Björgun-
armenn komu niður í
Hamarsfjörð um 4:30.
Ólafur Ragnarsson sagði að yfir
50 björgunarmenn hefðu tekið þátt
í aðgerðinni. 9 reyndir menn frá
björgunarsveitunum á Fáskrúðsfirði,
Breiðdalsvík, Stöðvarfírði og Höfn
hafí lagt af stað upp hlíðina til að
aðstoða mennina frá Djúpavogi.
Ekki hægt
að lenda á
slysstaðnum
Gangan var
erfiðari en
búist var við
Morgunblaðið/Golli
ÁGÚST Bogason, einn björgunarmanna, sýnir hvaða leið menn komu niður af fjallinu.
GUÐMUNDUR Björgvinssón var nýkom-
inn til starfa á Djúpavogi þegar slysið varð.
ÓLAFUR Ragnars-
son sveitarstjóri.
Hann sagði að björgunarmenn hefðu
allir unnið þrekvirki því afar erfitt
væri að ganga upp hlíðina og enn
erfiðara í myrkri og hálku.
Nýr læknir var að
koma til starfa
Guðmundur Björgvinsson læknir
sagði að nokkuð hefði skort á að
réttar upplýsingar hafi borist af að-
stæðum í Hamarsfírði áður en lagt
var af stað. Gangan upp íjallið hafí
tekið lengri tíma og verið mun erfíð-
ari en rætt hafi verið um þegar far-
ið var af stað frá Djúpavogi. Hann
sagðist vera óvanur göngumaður og
haft áhyggjur af því að geta ekki
haldið í við björgunarmenn á leiðinni
upp. Við þessar aðstæður mætti
enginn vera byrði á björgunarliðinu.
Sem betur fer hefði það ekki gerst.
„Aðstæður þarna í fjallinu voru
erfiðar og ekki bætti snjókoma úr.
Eg óttaðist allan tímann að einhver
myndi slasa sig á leiðinni upp eða
niður. Á leiðinni upp var ég viss um
að við myndum fá þyrlu og þetta
yrði ekki eins mikið mál og kom á
daginn. Það hélt manni gangandi á
leiðinni upp,“ sagði Guðmundur.
Ekki hefur verið fastráðinn lækn-
ir á Djúpavogi síðan í vor, en lækn-
ar hafa skipst á að sinna staðnum
til bráðabirgða. Heilsugæslustöðin í
Grafarvogi hefur tekið að sér að
manna læknishéraðið út nóvember.
Guðmundur kom til starfa sl. laug-
ardag, daginn áður en slysið varð,
en enginn læknir hafði verið á
Djúpavogi frá síðustu mánaðamót-
um. Ólafur Ragnarsson sagði óþol-
andi að búa við þessa óvissu í lækn-
ismálum. Það hefði orðið erfitt fyrir
björgunarmenn að þurfa að leggja
af stað upp á fjallið, vitandi af
stórslösuðum manni þar, án þess að
hafa lækni með í för.
Kallaður að þriðja flugslysinu
Þetta er þriðja skiptið sem Guð-
mundur er kallaður til vegna flug-
slyss. Hann kom að flugslysum sem
urðu í Ásbyrgi og í Mývatnssveit,
en bann var þá læknir á Húsavík.
Annað slysið var dauðaslys, en í hinu
stórslösuðust þrír ungir menn.
BESTA BÓKIN um getnað,
meðgöngu og fæðingu
• Áreiðanteg. nútimaleg og
auðskilin bók um fæðingu
barns og umönnun á fyrsla
æviskeiði. • Fjallað er um efnið
bæði frá sjónarhóli móður og
bams. • Ljósmyndir, teikningar,
ómsjármyndir og íínurit
— samtaís yfir 500 iitmyndir.
• 350 bls. i stóru broti.
3JNk
4>
FORLAGIÐ
Laugaveg! 18 • Sími 51S 2500 • Siðumúla 7 • Simi 510 2500
Enginn þungi var kominn neðan í þyrluna þegar hún fórst
Steyptist til jarðar úr lítilli hæð
„ÞYRLAN var í mjög lítilli hæð þegar slysið varð. Ég get
engum getum leitt að því hvað gerðist; það verður Flugslysa-
nefnd að skera úr um,“ sagði Halldór Hreinsson, fram-
kvæmdastjóri Þyrluþjónustunnar hf. í Reykjavík, eiganda
þyrlunnar sem fórst í Hamarsfirði á sunnudagskvöld.
Þyrlan var af gerðinni Bell Jet Ranger, árgerð 1973.
Hún hafði verið í eigu Þyrluþjónustunnar frá 1991. „Þyrlan
hafði verið í verkefnum fyrir austan í nokkra daga, meðal
annars við að aðstoða við gullleit," sagði Halldór Hreins-
son. „Á sunnudagskvöld fór hún svo í að flytja hreindýra-
skrokka af heiði og niður í dal.“
Enginn þungi
Halldór sagði að eftir því sem hann kæmist næst hefði
flugmaðurinn verið að lyfta þyrlunni lítillega, til að hægt
yrði að setja krók í hreindýr á jörðinni, en enginn þungi
hefði verið kominn neðan í hana þegar hún steyptist til
jarðar úr nær engri hæð. „Flugslysanefnd á eftir að rann-
saka orsakir slyssins og ég vil ekki vera með neinar getgát-
ur. Eftirlit með þyrlunni hefur verið í fullu samræmi við
reglur og flugmaðurinn, sem hóf störf hjá okkur fyrir þrem-
ur árum, þekkti þyrluna vel.“
Morgunblaðid/RAX
ÞYRLA Þyrluþjónustunnar, TF-HHD, sem
fórst í Hamarsfirði á sunnudag. Myndin var
tekin í nóvember sl., þegar þyrlan lenti í
gjánni sem myndaðist við gosið í Vatnajökli.