Morgunblaðið - 16.09.1997, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 16.09.1997, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ ERLEIMT ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 1997 21 ÞEGAR Mauno Koivisto varð forseti Finnlands fékk hann ekkert um það að vita hvað fyrirrennara hans í embættinu, Urho Kekkonen, og ráðamönnunum í Kreml hafði farið á milli. Kekkonen „ríkti“ í Finnlandi frá 1956 til 1982 í náinni samvinnu við Sovétmenn en í endurminninga- bók, sem Koivisto hefur gefið út, er dregin upp ný og ekki mjög fögur mynd af finnska landsföðurnum. Norska blaðið Aftenposten sagði frá þessu í gær og þar kemur fram, Koivisto að Finnar hafí aldrei fengið að vita allan sannleik- ann um Kekkonen. Þegar Koivisto tók við gerði hann heldur ekkert til að draga úr þeirri landsföðurímynd, sem fyrirrennari hans hafði, eða ekki fyrr en nú með endurminninga- bókinni. Segist hann hafa fundið hjá sér þörf til að andmæla ýmsu, sem haldið hafi verið á loft í opinberri umræðu. Tóku með sér skjölin Sem forseti fékk Koivisto aldrei fullan aðgang að skjölum um þá fundi, sem Kekkonen hafði átt með þjóðhöfðingjum eða forsætisráðherr- um annarra ríkja, þar með talinna Sovétríkjanna. Hafa þær upplýs- ingar vakið mikla eftirtekt því ef það er eitthvað, sem nýr forseti þarf að vita, þá er það hvað fyrirrennari hans sagði við ráðamenn erlendis. Öll skjöl Kekkonens voru fjarlægð úr forsetahöllinni í Helsinki og Ahti Kaijalainen tók alla sína pappíra úr utanríkisráðuneytinu. Koivisto hafði því í raun ekki við neitt annað að styðjast nema dagblöðin um það, sem þeim og Sovétmönnum hafði farið á milli á sínum mörgu fundum. Juhani Suomi, „konunglegur" ævisöguritari Kekkonens, hefur and- mælt þessum fullyrðingum Koivistos og segir hann ljúga. Segir hann, að Koivisto hafi sem forseti fengið mik- il gögn í hendur. Suomi er eini fræði- maðurinn, sem fengið hefur fullan aðgang að skjölum Kekkonens, en þau eru í strangri gæslu annars manns, Pekka Láhteenkorva. „Sérstök meðhöndlun“ Suomi og Láhteenkorva halda því fram, að Koivisto hafi í raun fengið „sérstaka meðhöndlun" og dagblaðið Kansan Uutiset henti það á lofti: „Um það snýst einmitt þetta mál. Forsetinn fékk ekki að kynna sér skjöl Kekkonens, heldur fékk hann „sérstaka meðhöndlun". Juhani Su- omi prófessor er svo mikill og merki- legur, að maður eins og Koivisto er varla þess verður að kyssa klæða- fald hans,“ sagði blaðið. Koivisto hefur ekki enn fengið að skoða Kekkonen-skjölin og leit í skjalasöfnum í Moskvu um viðræður Kekkonens við Sovétleiðtogana hef- ur engan árangur borið. Hins vegar má margt læra af skýrslum Ingem- ars Hegglöfs, fyrrverandi sendiherra Svía í Helsinki, til utanríkisráðuneyt- isins í Stokkhólmi en á valdatíma Kekkonens fengu Svíar mikið af upplýsingum um finnsk málefni. Rætt um að skipta á NA-Lapplandi og Kiijálahéruðum Það, sem fékk einna mest á Koi- visto, var þegar hann uppgötvaði, að síðast á sjöunda áratugnum hefði Kekkonen átt í viðræðum við Leoníd Brezhnev, þáverandi leiðtoga Sovét- ríkjanna, um að láta Rússa fá hluta af Norðaustur-Lapplandi gegn því, að Finnar fengju Kiijálahéruðin aft- ur. Var um þetta rætt í sambandi við fulla viðurkenningu á Austur- þýska alþýðulýðveldinu og Vestur- Þýskalandi. Segist Koivisto hafa orð- ið miður sín þegar hann sá hve nærri lá 1968, að finnsk utanríkis- mál og innanríkismál tækju fullkom- lega óútreiknanlega stefnu. A þess- um tíma voru vinstrimenn í meiri- hluta á þinginu. URHO Kekkonen á fundi með þeim Leoníd Brezhnev, leiðtoga Sovétríkjanna, Alexei Kozygín og Níkolaj Podgorní. 3ragðminna og E-ví-tamínbas-t-t krakkalyei -fyrir unga o-Purhuga! p s m m C5áfur3 sjón, kra-ftur og PHA! Krakkalýsið er afrakstur þróunarstarfs rannsóknardeildar Lýsis hf. og unnið í samráði við foreldra og börn. Krakkalýsið er þorskalýsi og inniheldur mikið af fjölómettuðu ómega-3 fitusýrunni DHA. Vísindamenn hafa leitt sterk rök að því að DHA stuðli að uppbyggingu heila og miðtaugakerfis. A- og D-vítamín í Krakkalýsinu hafa góð áhrif á sjónina og vöxt tanna og beina. Til að styrkja varnir líkamans var E-vítamíni bætt í Krakkalýsið. vmnmgar skafmiði í hverjum pakka í öllum Krakkalýsispökkum er skafmiði sem gefur möguleika á spennandi vinningum og þeir sem ekki fá vinning strax eiga kost á risaaukavinningi sem er Packard Bell PC tölva frá Tæknivali hf. Meira PHA - minna bragól Krakkalýsið er bragðlítið og meðhöndlað á sérstakan hátt til að ná fram hagstæðu hlutfalli milli vítamína og DHA. '/ertvu hress og vertu með! Ráðlagöur dagskammtur fyrir börn 1-10 ára er 10 ml eða 1 barnaskeið. - Grarulavegi 4? LYSI siirii' r>B2'3777 fax: 56? 3823, heimaslútV www.lysi-.is Koivisto, fyrrv. forseti Finnlands Fékk ekki að sjá skjöl Kekkonens V'DDA F
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.