Morgunblaðið - 16.09.1997, Síða 20

Morgunblaðið - 16.09.1997, Síða 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ NEYTENDUR Nýtt Hárvörur HAFINN er innflutningur á J.F. Laz- artigue hárvörum sem eru hannaðar af franska hárgreiðslumeistaranum Jean Francois Lazartigue. Á útsölu- stöðum J.F. Lazartigue er boðið upp á hárgreiningu en í fréttatilkynningu frá Bergfelli ehf. segir að með því sé unnt að greina frá ástandi hársrót- ar og hársvarðar. Meðal þeirra vara sem fáanlegar eru frá þessu merki eru efni sem ætluð eru til að vinna gegn hárlosi eða styrkja hárvöxt og eru þau seld að undangenginni hár- greiningu. Vörumar eru fáanlegar i Skipholts apóteki, Húsavíkur apóteki og Apóteki Suðumesja. ♦ ♦ ♦ Bónns með heimasíðu í DAG, þriðjudag, verður heima- síða Bónuss sett á alnetið undir netfanginu www.bonus.is. Á heimasíðunni verða settar fram upplýsingar fyrir neytendur, t.d. um afgreiðslutima verslana, staðsetningu þeirra, símanúmer og svo framvegis. Að sögn Jóns Ásgeirs Jóhannessonar verður á heimasíðunni tilboðssíða og er stefnan að tilboð Bónusblaðsins verði líka á alnetinu. Þá segir Jón Ásgeir að sérstak- ur fyrirspumadálkur sé á síðu þeirra þar sem viðskiptavinir geti komið með ábendingar um það sem betur megi fara og kom- ið með fyrirspumir. Þá verður einnig sérdálkur á heimasíðunni undir heitinu Vissir þú? Þar verð- ur viðskiptavinum bent á ýmis- legt til gagns og gamans og oft koma þar fram upplýsingar sem geta komið að góðum notum við sparnað og innkaup. Verðkönnun ASÍ, BSRB og Neytendasamtakanna Allt að 115% verðmumir á fimleikanámskeiðum MIKILL verðmunur er á byijenda- námskeiðum í fimleikum eða 115% á þeim námskeiðum sem skoðuð voru og fímleikakennslan er al- mennt ódýrari á landsbyggðinni. Þetta kemur fram í verðkönnun sem forsyarsmenn samstarfsverk- efnis ASÍ, BSRB og Neytendasam- takanna um verðlagseftirlit og verðkannanir létu gera á nokkrum greinum tómstundastarfs barna og unglinga. í fréttatilkynningu sem forsvarsmenn samstarfsverk- efnisins sendu frá sér í gær kemur fram að sömu sögu er að segja um danskennslu, en dansskólar á Akureyri eru mun ódýrari en á höfuðborgarsvæðinu. Sé miðað við byijendanámskeið fyrir börn eldri en sex ára er ódý- rasti skólinn á höfuðborgarsvæð- inu 38% dýrari en dýrari skólinn á Akureyri, en innan Akureyrar var svo 25% verðmunur. Innan höfuð- borgarsvæðisins er verðmunur óverulegur fyrir börn eldri en 6 ára en 38% fyrir böm á aldrinum 4-5 ára. Að sögn Birgis Guðmundssonar, starfsmanns þessara þrennra fé- lagasamtaka, er aðeins miðað við byijendanámskeið og segir könnun- in því ekkert um verðmun varðandi önnur námskeið. Þá er heldur ekki lagt mat á gæði kennslunnar. Uppgefið verð er án afsláttar- kjara, svo sem systkinaafsláttar og bendir Birgir foreldrum á að kynna sér slíka afslætti. 92% verðmunur á danstímanum Kannað var verðlag hjá fimm dansskólum á höfuðborgarsvæð- inu og tveim á Akureyri, þá skal tekið fram að Dansskóli Sigurðar Hákonarsonar er með útibú í Þor- lákshöfn og er sama verð þar og á höfuðborgarsvæðinu. Miðað var við byijendanámskeið með einni kennslustund í viku fyrir börn og unglinga í samkvæmisdönsum. Þar sem námskeiðin eru mislöng var reiknað út verð á kennslu- stund. Birgir segir að sé miðað við börn á aldrinum 4 til 5 ára reyndist kennslustundin dýrust hjá Danssmiðju Hermanns Ragn- ars eða 614 kr. en ódýrust hjá Dansskóla Sibbu á Akureyri eða 320 kr. sem er 92% verðmunur. Á höfuðborgarsvæðinu reyndist kennslustundin fyrir börn á aldrin- um 4 til 5 ára ódýrust hjá Dans- skóla Sigurðar Hákonarsonar eða 446 kr. sem gerir 38% verðmun innan höfuðborgarsvæðisins. Sömu skólar eru í efsta og neðsta sæti fyrir börn og unglinga eldri HVAÐ KOSTAR FYRIR BORNINIFIMLEIKA OG DANSIVETUR? Byrjendanámskeið í samkvæmis- og barnadönsum Dansskólar Námskeið fyrir börn 4-5 ára miðað við 1. tíma á viku Námsk. fyrir 6 ára og eldri miðað við 1. tíma á viku Lengd námskeiðs Lengd tíma Verð Verð á námsk. tíma Lengd Lengd Verö Verð á námskeiðs tíma námsk. tíma Danskóli Heiðars Ástvaldssonar 14 vikur 50 mín. 8.500 kr. 607 kr. 14 vikur 50mfn. 8.500 kr. 607 kr. Danskóli JónsPéturs og Köru 14 víkiir j 40 mín. 6.900 kr. 493 kr. 14 vikur 50mín. 8.400 kr. 600 kr. Danssmiðja Hermanns Ragnars 14 vikur 50 mín. 8.600 kr. 614 kr. 14 vikur 50mfn. 8.600 kr. 614 kr. Danskóli Sigurðar Hákonarsonar 13 vikur 50 min. 5.800 kr. 446 kr. 13 vikur 60 mín. 7.800 kr. 600 kr. Nýi Danskólinn 13 vikur 50 min. 6.500 kr. 500 kr. 13 vikur 50 mín. 7.200 kr. 554 kr. Dansskóli Önnu Breiðfjörð, Akureyri 5 vikur 50 mín. 2.000 kr. 400 kr. 5 vikur 50mín. 2.000 kr. 400 kr. Dansskóli Sibbu, Akureyri 10 vikur 50 mín. 3.200 kr. 320 kr. 10 vikur 50 mín. 3.200 kr. 320 kr. - 1 en 6 ára og er þar einnig 92% verðmunur á landsvísu. Hins veg- ar dregur saman með skólunum á höfuðborgarsvæðinu fyrir börn eldri en 6 ára en þar reyndist kennslustundin ódýrust hjá Nýja dansskólanum eða 554 kr. sem gerir 11% verðmun á höfuðborgar- svæðinu. Birgir segir athyglisvert að almennt eru engar reglur hjá skólunum um hámarksfjölda nem- enda en það gefur augaleið að fjöldi nemenda hefur mikið með gæði kennslunnar að gera. Fimleikar Kannað var verðlag hjá 12 íþróttafélögum og kom mikill verðmunur í ljós milli einstakra félaga en einnig milli höfuðborg- arsvæðisins og annarra lands- hluta. Miðað var við byijenda- námskeið annars vegar fyrir börn yngri en 6 ára og hins vegar börn eldri en 6 ára. „Nokkuð misjafnt er milli félaga hversu margir tímar byijendum eru boðnir sem gerir samanburð erf- iðan, auk þess sem ýmist er greitt fyrir hvern mánuð eða námskeið- ið í heild en í þeim tilvikum var fundið verð á fjórum vikum út frá lengd námskeiðs. Sé miðað við byijendanámskeið fyrir eldri en sex ára og tvær stundir á viku reyndist námskeiðið dýrast hjá Ármanni eða 4.000 kr. á mánuði en ódýrast hjá Fimleikaráði Ak- ureyrar eða 1.857 kr. fyrir fjórar vikur sem er 115% verðmunur." Verðmunur milli landshluta Greinilegur verðmunur er milli höfuðborgarsvæðisins og annarra landshluta. Birgir bendir á að sé miðað við byijendanámskeið fyrir sex ára og eldri með tveim stund- um á viku reyndust fjögur af fimm ódýrustu námskeiðunum vera utan höfuðborgarsvæðisins. Á næstunni verður einnig birt verð- könnun samstarfsverkefnisins á boltaíþróttum. TUNGUMÁLANÁMSKEIÐ Kennt er í byrjenda-, framhalds- og talæfingaflokkum. ENSKA - DANSKA - NORSKA - SÆNSKA - FRANSKA KVÖLEÉSfÓLI ■ - ÍTALSKA - SPÆNSKA - ÞÝSKA - KATALÓNSKA - líADAVAAC ÍSLENSKA fyrir útlendinga HvrAvVvd ^ ~ og fjöldi annarra námskeiða. Snælandsskóli - 200 Kópavogur ínnritun í símum: 564 1527,564 1507 og 554 4391 kl. 17.00-21.00.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.