Morgunblaðið - 16.09.1997, Page 22

Morgunblaðið - 16.09.1997, Page 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Hague ræðst að Blair WILLIAM Hague, leiðtogi breska íhaldsflokksins, sakaði Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands og leið- toga Verkamannaflokksins, á sunnu- dag um að nota andlát Díönu, prins- essu af Wales, í bílslysi í París sér til pólitísks framdráttar. Sagði Hague að forsætisráðherr- ann hefði gerst sekur um pólitískan subbuskap þegar hann lét greina fjöl- miðlum frá því hvaða ráð hann hefði gefíð bresku konungsfjölskyldunni eftir dauða Díönu. Hague var harðlega gagnrýndur fyrir ummæli sín. Konungsfjölskyldan lýsti yfír furðu, Ron Davies, ráðherra um málefni Wales, sagði ummæli hans „fyrirlitleg" og fýrrverandi ráð- herra íhaldsmanna sagði að Blair hefði komið fram af miklum virðu- leika. Hague hefur verið gagnrýndur fyrir að hafa skort þunga í ummælum sínum eftir andlát Díönu. Hann var í viðtali hjá David Frost hjá breska ríkissjónvarpinu, BBC, á sunnudags- morgun og kvaðst óánægður með að forsætisráðherrann hefði notað andlát Díönu til að efla stöðu sína. Fyrstu heimsókn Madeleine Albright til Mið-Austurlanda lokið Fjórar landnemafjölskyldur flytja inn í Ras al-Amoud is nokkrum klukkutímun áður en landnemarnir fluttu inn hafði aðstoðarmaður Netanyahus haldið því fram að forsætisráðherrann hygðist koma í veg fyrir áætlanir bandaríska iðnjöfursins, Irving Moskowits, um að byggja 70 heimili fyrir gyðinga I Ras al-Amoud þar sem 11.000 Palestínumenn búa. Skipulagsnefnd Jerúsalemborgar staðfesti hins vegar byggingaleyfí fyrir svæðið á sunnudag. Aðgerðum landnemanna hefur verið líkt við kalda vatnsgusu í andlit Albright en í heimsókn sinni til ísrael lagði hún áherslu á að ísraelar frystu um- deildar byggingarframkvæmdir á palestínsku landi. Áður hafði ísraelsstjóm, að tilstuðlan hennar, ■ tilkynnt tilslakanir í refsi- og öryggisaðgerðum sem gripið var til eftir sprengjutilræði hryðjuverka- manna í Jerúsalem. Til stendur að ráðgjafar Netanyahus og Yassers Arafats, leiðtoga Palestínumanna, hitti Albright í Wáshington síðar í mánuðinum. jeru^oieiu, uuum, Deirui. neuier MADELEINE Albright, utanríkisráðherra Banda- ríkjanna, sneri heim úr fyrstu ferð sinni til Mið- Austurlanda í gær. Flaug hún frá Amman I Jórdan- íu, í gærmorgun, áleiðis til Líbanon. Áður hafði hún heimsótt Egyptaland, Saudi-Arabíu, Sýrland, ísrael og sjálfstjómarsvæði Palestínumanna á her- teknu svæðunum. Við brottförina frá Amman sagði Albright að tekin hefðu verið lítil skref í átt til friðar en tilgang- ur ferðarinnar var að reyna að endurlífga friðarvið- ræður á svæðinu. Friðarviðræður ísraels- og Palest- ínumanna hafa legið niðri frá því í mars á þessu ári er Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra ísra- els, gaf leyfí fyrir nýbyggingum gyðinga á palest- ínsku landsvæði í Austur-Jerúsalem. Friðarviðræð- ur ísraela og Sýrlendinga hafa hins vegar legið niðri frá því stjóm Netanyahus tók við I maí á síð- asta ári. Að loknum fundum með ráðamönnum I Líbanon sagðist Albright hafa fundið fyrir vilja meðal ísraelskra, sýrlenskra og líbanskra ráða- manna um að taka upp friðarviðræður . Vatnsgusa í andlit Albright Fjórar ísraelskar fjölskyldur fluttu inn í tvö yfír- gefín hús á hinu umdeilda Ras al-Amoud svæði í gærmorgun. Palestínumenn köstuðu gijóti að land- nemunum og ísraelskar friðarhreyfingar hröðuðu sér á vettvang til að mótmæla aðgerðunum. Herlið var kallað út til að gæta öryggis landnemanna en talsmaður ísraelsku ríkisstjómar sagði engan laga- legan grundvöll til þess að flytja fólkið í burtu þar sém eigandi húsanna stæði að baki flutningnum. Netanyahu gagnrýndi aðgerðir landnemanna sem hann sagði hvorki koma Jerúsalem né ísrael til góða. David Levi, utanríkisráðherra varaði við því í útvarpsviðtali að aðgerðimar sendu út skila- boð um að það væm landnemar en ekki ríkisstjórn- in sem réðu ferðinni í stefnumótun ísraela. Einung- Reutcr KRANI var í gær notaður til að lyfta vögnum lestar, er fór út af sporinu og fram af brú í Madhya Pradesh-héraði á Indlandi á sunnudag. Sjötíu og sjö manns, að minnsta 77 fórust á Indlandi kosti, fórust í slysinu og rúm- lega 230 slösuðust. Fimm fremstu vagnarnir lentu ofan í þurrum árfarvegi, en ekki er vitað hvað olli því að lestin fór útaf sporinu. Sveitarstjórnakosmngar í Bosníu-Herzegovínu Stóráfallalausar en þýðingarmiklar Sartyevo, Tuzla, Brussel. Reuter. STARFSMENN kjörstjórna í sveit- arstjórnakosningum í Bosníu-Herz- egovínu, sem fram fóm um helg- ina, vom önnum kafnir í gær við að telja upp úr kjörkössunum. Úr- slita er þó ekki að vænta fyrr en í lok vikunnar. Embættismenn alþjóðastofnana sem hafa haft með höndum eftirlit með framkvæmd kosninganna sögðu í gær að erfiðasta verkefnið framundan verði að framfylgja úr- slitum þeirra, en hvernig til tekst með það verkefni geti ráðið úrslitum um framtíð hins brothætta friðar sem ríkt hefur í landinu frá því borgarastríðinu lauk fyrir tveimur árum. Að meðaltali greiddu atkvæði um 70 af hundraði hinna 2,5 milljóna Bosníumanna, sem vora á kjörskrá, en sú kjörsókn þykir góð undir ríkj- andi kringumstæðum. Kosið var um nýjar sveitarstjómir í rúmlega 100 borgum, bæjum og sveitahéruðum. Að sögn Láru Margrétar Ragn- arsdóttur alþingismanns, sem tók þátt í kosningaeftirliti í Sarajevo á vegum Öryggis- og samvinnustofn- unar Evrópu, ÖSE, sagði í samtali við Morgunblaðið I gær að kosning- arnar hefðu farið „þokkalega" fram, en augljóst hefði verið að það væri ekki sízt þeim þrýstingi að þakka sem þeir aðilar hefðu verið beittir sem annars voru liklegir til að spilla fyrir framkvæmd kosning- anna. Munaði þar mest um viðveru friðargæzluliða NATO. „Þolraun þessara kosninga verð- ur að tryggja að úrslitin verði virt,“ sagði fulltrúi Carlosar Westen- dorps, æðsta erindreka Evrópusam- bandsins og ÖSE í Bosníu. Fulltrúar hins svokallaða sam- skiptahóps fímm öflugustu ríkj- anna, sem hafa haft afskipti af málefnum Bosníu, koma saman í Lundúnum í dag til að ræða stöð- una og taka ákvarðanir um við- brögð í kjölfar kosninganna. „Útlagaatkvæði" kunna að skipta sköpum Þótt opinber úrslit muni ekki liggja fyrir fyrr en í lok vikunnar var talning atkvæða langt komin I gær á sumum stöðum. í norðaustur- bosnísku borginni Tuzla, sem frá stríðslokum hefur verið undir stjórn þjóðernissinnaðra múslima úr flokki Alija Izetbegovic forseta, SDP, greindu talsmenn kjörstjómar þar frá því að allt benti til yfirgnæf- andi sigurs stjómarandstöðuflokka þar í borg. Sameiginlegur fram- boðslisti nokkurra minni stjómar- andstöðuflokka hefði unnið með yfirburðum þrátt fyrir ákafan kosn- ingaáróður þjóðemissinna. Svipuð úrslit kunna að verða nið- urstaðan í fleiri sveitarfélögum, þar sem þjóðernissinnar eins af þjóða- brotunum þremur, Serba, Króata eða múslima, hafa ráðið ríkjum frá því bardögum lauk. Er talið að at- kvæði „útlaga“, hundraða þúsunda flóttamanna, sem hröktust frá þess- um stöðum og hafa ekki átt aftur- kvæmt en em samt enn skráðir kjósendur í sínum gömlu heima- byggðum, geti haft mikil áhrif á úrslit kosninganna á slíkum stöð- um. Ákæra vegna kynfer ðislegrar mis- notkunar á sænsku barnaheimili Auknar kröfur til starfsfólks á leikskólum? Kaupmannahöfn. Morgunblaöið. FORELDRAR barna á einkabarna- heimili í Karlstad í Svíþjóð hafa ákært 27 ára karl, er starfaði sem fóstri á heimilinu, fyrir að hafa misnotað börnin kynferðislega. Maðurinn starfaði á heimilinu síð- astliðinn vetur, en var þá látinn hætta störfum þar sem grunur lék á að hann hefði hegðað sér ósæmi- lega gagnvart börnunum. Forstöðu- kona heimilisins áleit þá ekki for- sendur fyrir að sækja manninn til saka. Tuttugu börn voru að jafnaði á heimilinu. Málið hefur vakið mikla athygli í Svíþjóð og er nú spurt hvaða kröfur eigi að að gera til þeirra, er starfa með börn. Maðurinn hóf störf á barnaheimil- inu í mars í fyrra. í október tók forstöðukonan eftir því að sími heim- ilisins hafði verið notaður til að hringja í dýr símanúmer, þar sem boðið er upp á kynferðisefni af ýmsu tagi. Hún komst þá að því að starfs- maðurinn hafði verið þar að verki og gaf honum viðvörun vegna þessa. í vor fóru svo einhver barnanna að segja foreldrum sínum frá einhveiju „skrýtnu", sem maðurinn gerði með þeim. Það leiddi til þess að maðurinn var rekinn úr starfí í maí. Á þeim tíma gerði forstöðukonan þó ekkert frekar í málinu. í viðtali við sænska útvarpið I gær sagði hún að á þeim tíma hefði ekki legið ljóst fyrir hvað maðurinn hefði aðhafst og því ekki verið forsendur fyrir að ákæra hann. í sumar hefðu hins vegar fleiri börn sagt foreldrum sín- um meira um það sem gerst hefði og í kjölfarið hefði orðið ljósara á hveiju hefði gengið. Aðspurð sagðist forstöðukonan enn halda fast við að hún hefði tekið rétt á málinu. Það voru foreldrar tveggja barna, sem lögðu fram kærur á hendur manninum fyrir rúmri viku. Eftir rannsókn var maðurinn handtekinn á föstudaginn, yfírheyrður og dæmdur í gæsluvarðhald. Maðurinn sat með jakka yfír höfðinu og tók hann aldrei af sér meðan fulltrúar fjölmiðla voru í námunda. Talað er um að hann hafí misnotað sjö börn, en þar sem málið er á frumstigi er enn óljóst hvað gerðist í raun og veru. Viðbrögð yfirvalda I gær voru að betur þyrfti að fylgjast með þeim sem ráðnir væru til að vinna með börn, kanna feril þeirra og sakavott- orð. Einnig er mikið til umræðu hvemig foreldrar eigi að tala við börn sin um svona hluti og þar sem börnin eru svo ung þá er spurningin hvernig eigi að vara þau við án þess að vekja óþarfa tortryggni og hræðslu í garð fullorðinna. Brestur heyrðist rett áður en þyrlan fórst FRUMSKOÐUN á hljóðrita norsku Super Puma þyrlunnar sem fórst við Noregsstrendur á mánudag fyrir viku leiðir í ljós að brestur heyrðist rétt áður en þyrlan fórst. „Það heyrist daufur hvellur og síðan líða 10-15 sekúndur þar til upptakan stöðvast. Ekkert heyrist I flugmönnunum en í bakgrunninum heyrist niður frá litlum þyrilsnún- ingshraða sem leiðir síðan til þess að viðvörunarflautur gjalla," sagði Finn Heimdal, framkvæmdastjóri norsku flugslysarannsóknarnefndar- innar í samtali við norska blaðið Aftenposten i gær. Heimdal er horfínn frá þeirri skoð- un, að sprenging hafí orðið I þyrl- unni, hann telur að öllu heldur hafi orðið bilun í hreyfílbúnaði hennar. Búist er við að rannsókn á hljóðritan- um Ijúki í dag. Verr hefur gengið að ná hlutum þyrlunnar upp af hafsbotni en von- ast var til. í gær átti að freista þess að lyfta meginhluta farþegaklefans upp í körfu á hafsbotni svo öruggt verði að lík, sem þar er að fmna, komi einnig upp. í fyrrinótt náðust upp hreyfill, tijóna og smáhlutar úr skrokknum. Enn hafa hins vegar gírbox, þyrilhöfuð, tvö blöð úr aðal- þyrlinum, annar mótoranna og fjöldi blaða úr stélþyrli ekki fundist.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.