Morgunblaðið - 16.09.1997, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 1997 23
Ný von í
Kýpur-
deilunni?
GLAFCOS Clerides, forseti
Kýpur og Rauf Denktash, leið-
togi Kýpur-Tyrkja, hafa hug á
að hittast og ræða öryggismál.
Þetta kom fram í máli Madel-
eine Albright, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, sem
millilenti á Kýpur á leið sinni
heim frá Mið-Austurlöndum í
gær. Albright hitti enga emb-
ættismenn á Kýpur en hafði
þetta eftir Tom Miller, mála-
miðlara Bandaríkjanna í Kýp-
urdeilunni, sem var í sambandi
við deiluaðiia á mánudag.
Winnie Mand-
ela í framboð
WINNIE Madikizela-Mandela,
fyrrverandi eiginkona Nelsons
Mandela forseta Suður-Afríku,
verður í framboði til embættis
fulltrúa Afríska þjóðarráðsins í
desember. Nelson Mandela mun
þá segja af sér formennsku í
ráðinu og er búist við að núver-
andi fulitrúi, Thabo Mbeki, taki
við af honum. Hvort sem Winnie
nær kjöri eða ekki er framboð
hennar talið mjög vandræðalegt
fyrir forsetann sem fór fram á
skilnað eftir að Winnie hafði
misnotað aðstöðu sína sem ráð-
herra í stjóm hans.
Nýjar ásak-
anir Paulu
Jones
RÁÐGJAFI Paulu Jones, sem
hefur kært Bill Clinton Banda-
ríkjaforseta fyrir kynferðislega
áreitni, gaf í skyn í sjónvarps-
viðtali í Bandaríkjunum í gær
að starfsmenn Hvíta hússins
hafi sigað skattayfirvöldum á
Jones eftir að hún hafnaði
sáttatilboði lögfræðinga forset-
ans í síðustu viku. Jones vinnur
nú að því að ráða nýja lögfræð-
inga en lögfræðingar hennar
hættu afskiptum af málinu í
kjölfar þess að hún hafnaði til-
boðinu. Talsmaður Hvíta húss-
ins vísaði ásökununum sam-
stundis á bug
Bankar loka
á Bhutto
SVISSNESK yfirvöld tilkynntu
í gær að þau hefðu fryst banka-
reikninga Benazir Bhutto, fyrr-
verandi forsætisráðherra Pak-
istan, og Qölskyldu hennar.
Þetta var gert samkvæmt
beiðni pakistanskra yfirvalda
en þau hafa ásakað Benazir og
eiginmann hennar Asif Ali
Zardari um stórfellda spillingu.
Benazir, sem stödd er í Dubai,
hefur ekkert látið hafa eftir sér
um málið, en talsmaður hennar
segir ásakanirnar þátt i áróð-
ursherferð gegn stjórnmála-
flokki hennar.
Sendiherrar
ESB til íran
EVRÓPUSAMBANDIÐ sam-
þykkti í gær að senda sendi-
herra sína aftur til íran. Sam-
bandið kallaði sendiherra sína
heim eftir að þýskur dómstóll
komst að þeirri niðurstöðu, fyrr
á þessu ári, að írönsk stjórn-
völd hefðu staðið að baki pólit-
ískum morðum í Þýskalandi á
árinu 1992. Sambandið mun
koma umsókn þessa efnis á
framfæri við stjórnvöld í Teher-
an síðar í vikunni.
Reuter
MÍATT Picarello, átta ára, leikur sér að tveim F-117 eftirlíkingum á meðan móðir hans talar í sím-
ann. Þau þurftu að bíða leyfis til að fara heim til sín, en F-117 þotan kom niður á götunni sem
heimili þeirra stendur við.
F-117 flugvél Bandaríkjahers ferst í Baltimore
Brotnaði á flugi
Washington. Reuter.
BANDARÍSKI flugherinn tilkynnti
í gær að allar F-117A, torséðar
þotur hersins yrðu kyrrsettar um
ótiltekinn tíma í kjölfar þess að ein
slík brotnaði á flugi og hrapaði í
úthverfi Baltimore á sunnudag.
Fernt slasaðist lítillega á jörðu
niðri. Flugmaðurinn losaði sig úr
vélinni áður en hún hrapaði og
sveif til jarðar í fallhlíf ómeiddur.
Samkvæmt yfirlýsingum
varnarmálaráðuneytisins var vélin
að taka þátt í flugsýningu, og varð
slysið um klukkan 19,00 á sunnu-
dagskvöld að íslenskum tíma.
Flugvélin var hlaðin tæplega fimm
tonnum af eldsneyti og er hún kom
niður varð sprenging í henni, og
eyðilagðist hús, bílskúr og tvær
bifreiðar er hún kom niður, og
annað hús skemmdist. Fernt, þrj ár
konur og maður, slasaðist lítillega
á jörðu niðri.
Fulltrúai' flughersins gátu ekki
gefið upplýsingar um orsakir
hrapsins, en vitni sögðu að hlutar
af stéli vélarinnar hefðu brotnað
af á flugi. Síðan fór vélin að velta
og snúast og reykur barst frá
henni, áður en flugmaðurinn losaði
sig úr henni og hún hrapaði til
jarðar.
Flugmaðurinn, Bryan Knight,
majór, hafði aðsetur í Nýju Mex-
íkó, með tæplega þrjú þúsund flug-
tíma að baki, þar af rúmlega fimm
hundruð á F-117. í yfirlýsingu frá
flughernum segir að ekki sé ástæða
til að ætla að það sem grandaði
vélinni yfir Baltimore geti haft
áhrif á aðrar vélar sömu gerðar.
Þær hafi þó verið kyrrsettar, að
minnsta kosti þar til í dag, til þess
að ganga megi úr skugga um að
óhætt sé að halda notkun þeirra
áfram. Flugritar véiarinnar er
hrapaði á sunnudag hafa fundist
og verið teknir til rannsóknar.
Bandaríkin endur-
skoða afstöðu sína til
jarðsprengna
Ihuga
aðild
að banni
BANDARÍKJASTJÓRN hefur
endurskoðað afstöðu sína til
banns við jarðsprengjum. Tals-
maður stjórnarinnar tilkynnti um
helgina að stjórnin sjái sér nú
fært að undirrita samning sem
banni jarðsprengjur að uppfyllt-
um tveimur skilyrðum auk níu ára
aðlögunartíma. Þetta kom fram í
dagblaðinuThe New York Times
í gær.
Skilyrðin sem Bandaríkjastjórn
setur eru annars vegar þau að
Bandaríkin fái að halda áfram
framleiðslu jarðsprengna sem
fylgihluta stærri sprengna, sem
ætlaðar eru skriðdrekum, og einn-
ig að þeir geti snúið baki við
samningnum, að undangengnum
sex mánaða biðtíma, verði þeir
fyrir árásum.
Ekki er talið víst að önnur að-
ildarríki samningsins sætti sig við
þessar kröfur Bandaríkjamanna,
sem upphaflega vildu gera það
að skilyrði að Kóreuskagi yrði
undanskilinn í samningnum.
Fráfall Díönu veldur auknum
þrýstingi
Bandaríkjastjórn, sem framan
af hugðist hvergi koma nærri
samningagerðinni, hefur verið
undir miklum þrýstingi um að
endurskoða afstöðu sína. Þrýst-
ingur á Bill Clinton, Bandaríkja-
forseta, jókst mjög í kjölfar dauða
Díönu, prinsessu af Wales, en
umfjöllun um dauða hennar
fylgdu gjarnan myndir úr nýlegri
ferð hennar til Bosníu, þar sem
hún vakti athygli á málstað fórn-
arlamba jarðsprengna.
Verði kröfur Bandaríkjamanna
samþykktar hafa þeir allt að 19
ár til að fjarlægja þær jarð-
sprengjur sem þeir hafa átt þátt
í að koma fyrir.
Breska konungsfjöl-
skyldan bítur frá sér
London, París. Reuter, The Daily Telegraph.
BRESKA konungsfjölskyldan lýsti
í gær yfir því að undanfarið hefði
riðið yfir „alda vangaveltna og
ónákvæmra frásagna" um atburði
eftir andlát Díönu prinsessu af
Wales í bílslysi í París og þyrfti
það leiðréttingar við. Lögreglan í
París hefur fundið rispu á Merced-
es-Benz-bifreiðinni, sem Díana lét
lífið í ásamt Dodi Fayed og Henri
Paul bílstjóra, og málningarbletti
og gæti það bent til þess að bifreið-
in hafi rekist utan í aðra bifreið.
Rannsóknarlögreglan í París
kveðst nánast hafa útilokað kenn-
ingar um að bílstjórinn hafi misst
stjórn á bifreiðinni vegna aksturs-
lags ökutækis fyrir framan hana.
Að sögn talsmanns konungsfjöl-
skyldunnar er ekkert hæft í frétt-
um um ágreining milli fjölskyld-
unnar og Charles Spencers jarls
og sagt er að Elísabet drottning
og Karl prins hafi ekki deilt um
það hvernig útför Díönu ætti að
fara fram.
Breskir fjölmiðlar hafa sagt að
Spencer-fjölskyldan og konungs-
fjölskyldan liafi deilt um hvort út-
för Díönu ætti að vera með opin-
berum hætti eða einkaathöfn. Þá
er sagt að Karl prins hafi þurft
að beita Elísabetu þrýstingi til að
fá hana til að bregðast við þegar
ljóst var hversu mikið Bretar
syrgðu Díönu.
Talsmaðurinn sagði að óhjá-
kvæmilega hefði komið upp smá-
vægilegur ágreiningur þar sem
aðeins hefði verið vika til að skipu-
leggja útförina, en leyst hefði ver-
ið úr honum hratt og í fullri vin-
semd.
Spænskur ferðamaður var í gær
sektaður um 15 þúsund krónur
fyrir að stela bangsa og blóma-
körfu, sem lögð höfðu verið fyrir
utan Kensington-höll í minningu
Díönu.
Yfirvöld í Slóvakíu báðust á
fimmtudag afsökunar á því að tveir
Slóvakar stálu blómum, sem höfðu
verið skilin eftir við Westminster
Abbey. Þá var Sardiníumaður sekt-
aður á miðvikudag fyrir að hafa
stolið bangsa fyrir utan St. Jam-
es’s-höll. Er hann kom út úr dóm-
salnum vék sér gangandi veg-
farandi að honum og sló hann í
andlitið.
NÝTT!
Ertu með bólgna og
þreytta fætur?
SANYLEG ítalskir sjúkra-
sokkar og sjúkrasokkabuxur
Mikið litaúrval • Allar stærðir
Frábært verð
gerið verðsamanburð,
það kemur á óvart!
Afmælistilboð:
20% afsláttur í september
Gríptu tækifærið og kynntu þér þessar
frábæru sjúkrasokka og sokkabuxur núna!
Skipholts Apótek
Skipholti 50 C • Sími: 551-7234