Morgunblaðið - 16.09.1997, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 16.09.1997, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 1997 31 3SVÆÐING LANDSBANKANS OG BÚNAÐARBANKANS Morgunblaðið/Golli tif. á fyrsta fundi sínum eftir stofnfundinn í síðustu viku, f.v. Sigríður Stefánsdóttir, Árni Mathiesen, vara- formanns bankaráðsins, Þórólfur Gíslason, varaformaður, Arnór Arnórsson og Haukur Helgason. bankarnir undir i markaðarins Morgunblaðið/Ásdís ÞEIR Halldór J. Krisljánsson, ráðuneytissljóri i viðskiptaráðuneytinu, Finnur Ingólfsson, viðskiptaráð- herra og Árni Magnússon, aðstoðarmaður viðskiptaráðherra kynntu nýju hlutafélögin um ríkisbankana á blaðamannafundi í síðustu viku. bankastjórunum verður hér eftir óheimilt að þiggja laun fyrir setu í stjórnum og nefndum á vegum bankanna. Bann við aðstoðarbankastjóratitli Hins vegar hefur viðskiptaráð- herra beint þeim tilmælum til stjórn- enda bankanna að stöðuheitin að- stoðarbankastjóri og framkvæmda- stjóri verði ekki notuð. Þetta hefur mælst illa fyrir í bankaheiminum og skapar nokkurn vanda 5 bönkunum, einkum þó í Búnaðarbankanum, þar sem fyrir eru fjórir aðstoðarbanka- stjórar og einn framkvæmdastjóri. Þannig er bent á að það hafi veru- lega þýðingu gagnvart erlendum fjármálastofnunum að nota þessu stöðuheiti t.d. þegar verið sé að semja um stærri lántökur í útlönd- um. Þá sé það óheppilegt gagnvart starfsfólki og viðskiptavinum að hringla með stöðuheiti þessara manna. í þessu sambandi er enn- fremur bent á að útibússtjórar á minni stöðum úti á landi hafi verið kallaðir bankastjórar af almenningi á þessum stöðum án þess að við því hafi verið amast. Spurt er hvernig það megi vera að bann við notkun þessara starfsheita skýri og afmarki verksvið yfirstjórnarinnar. „Það er alveg skýrt að einn aðal- bankastjóri er ráðinn og síðan tveir bankastjórar með honum sem mynda bankastjórn,“ segir Finnur Ingólfsson þegar hann er spurður um þetta atriði. „Síðan eru ráðnir aðrir starfsmenn fyrir neðan. Til þess að hafa verkaskiptinguna skýra og stjórnskipulagið einfalt tel ég rétt að þessi heiti, aðstoðarbanka- stjóri og framkvæmdastjóri, séu ekki notuð. I íslandsbanka eru bankastjórarnir kallaðir fram- kvæmdastjórar og síðan er einn bankastjóri. Þetta fyrirkomulag er nákvæmlega eins nema að því leyti að færri eru_ í stjórnskipulaginu í Landsbanka íslands hf. og Búnað- arbanka íslands hf.“ Leitað erlendra fyrirmynda um stjórnskipulag Því hefur verið haldið fram að upphafleg hugmynd viðskiptaráð- herra hafi gert ráð fyrir einum bankastjóra og þremur til fjórum framkvæmdastjórum. Ráðherra hafi orðið að láta undan þrýstingi um að þrír bankastjórar yrðu ráðn- ir. Hann vísar sjálfur til þess að undirbúningsnefndin hefði talið að það væri hægt að fara margar leið- ir í þessum efnum og leitað fanga erlendis um það hvernig stjórn- skipulag væri uppbyggt í nágranna- löndunum. „Niðurstaða nefndarinn- ar var sú að mæla með þessari leið sem þarna er sett fram,“ segir hann. „Ég er þeirri leið sammála og tel að með þessu séum við að einfalda stjórnfyrirkomulagið. Við erum að ráða einn aðalbankastjóra í bankana sem átti að vera megin- atriði og með honum eru tveir bankastjórar. Ég er fyllilega sáttur við þá niðurstöðu sem þarna fékkst, enda var þetta mín ákvörðun á grundvelli tillögu nefndarinnar." Það sjónarmið lá meðal annars til grundvallar hjá forystumönnum Sjálfstæðisflokksins að skynsam- legast væri að gera aðeins lág- marksbreytingar á stjórnskipulagi bankanna. Mikil uppstokkun í bankastjórnum og bankaráðum hefði óhjákvæmilega verið gerð miðað við pólitískar forsendur. All- ar skipulagsbreytingar yrðu auð- veldari viðfangs þegar bankarnir færu á hlutabréfamarkað og kröfu- harðir fjárfestar kæmu til skjal- anna, en þá myndi sjálfkrafa draga úr áhrifum stjórnmálamanna á bankana. Rætt um að selja 5-10% hlut í fyrsta áfanga Næstu skref eftir áramótin munu felast í því að hefja undirbúning að útboði og sölu á nýju hlutafé, en viðskiptaráðherra hefur boðað að stefnt verði að skráningu bank- anna á Verðbréfaþingi íslands. Samkvæmt upplýsingum Morgun- blaðsins hefur verið rætt um að selja hlutafé á almennum markaði sem næmi 5-10% af heildarhlutafé í bönkunum á fyrstu mánuðum næsta árs. Þannig er gert ráð fyrir að skapa aðhald að rekstrinum um leið og viðskipti með bréfin mynda markaðsverð á bönkunum. Líklegt er að bréfin verði boðin út eftir að formleg uppgjör gömlu bankanna fyrir árið 1997 liggja fyrir í byrjun marsmánaðar. Rætt hefur verið um að selja bréfin með áskriftaraðferð sem felst í því að allur almenningur geti skrifað sig fyrir hlut. Þannig er gert ráð fyrir að nýir hluthafar muni skipta hundruðum eða jafnvel þúsundum. Á þann hátt er ætlunin að kveða niður í upphafi alla gagn- rýni í þá veru að stjórnmálamenn hyggist selja bankana til útvalinna aðila. Ríkisábyrgðin orðin íþyngjandi En hvaða breytinga skyldi að öðru leyti vera að vænta eftir ára- mótin þegar bankarnir taka til starfa innan nýju hlutafélaganna? Ein meginbreytingin felst í því að frá áramótum verður ekki ríkis- ábyrgð á nýjum innstæðum eða lán- tökum bankanna. Eldri skuldbind- ingar bera hins vegar áfram ríkis- ábyrgð þar til þær eru að fullu upp gerðar. Erlendir lánardrottnar viðskipta- bankanna tveggja, Búnaðarbanka og Landsbanka, hafa vitaskuld fylgst með umræðunni um að breyta ríkisviðskiptabönkunum í hlutafélög. Þar munu fyrstu við- brögð við því hafa orðið á þann veg að íslensku ríkisbankarnir þyrftu að búa sig undir töluverða hækkun »- á vaxtaálagi og miklu skemmri lánstíma á lántökum sínum frá næstu áramótum en verið hefur. Hins vegar eru nú ýmis teikn á lofti um að breytingin muni jafnvel þýða hagstæðari kjör fyrir bankana en verið hefur. Þetta má rekja til mikils vægis ríkisábyrgðargjaldsins í lánskjörum bankanna, en þeir hafa þurft að greiða 0,25% álag fyrir ríkisábyrgð á sínar lántökur. Þetta álag var eðlilegt miðað við þau kjör sem bankarnir áttu kost á hér áður fyrr. Vegna batnandi- lánstrausts íslendinga og harðn- andi samkeppni á erlendum lána- mörkuðum hafa lánskjör bankanna stöðugt farið batnandi og dæmi eru um lántökur miðað við 10 punkta álag á millibankavexti í London (Libor). Þegar 0,25% ríkisábyrgðar- gjald bætist ofan á þessi kjör þýðir það einfaldlega að ríkisbankarnir bera jafnvel hærri fjármagnskostn- að erlendis en íslandsbanki. Af þessari ástæðu er reiknað með að ný lán hlutafélagsbankanna eftir áramótin verði í heild með hagstæð- ari kjörum en ella hefði orðið. Kröfur nýrra hluthafa Þá liggur í augum uppi að ein- hverra breytinga hlýtur að mega vænta í rekstri bankanna eftir að nýir hluthafar koma til skjalanna. Sömu sjónarmið hljóta þá að ráða ferðinni í bönkunum tveimur eftir þessa breytingu og hjá einka- bankanum Islandsbanka. Nýju hluthafarnir gera vitaskuld kröfu um arðsemi hlutafjárins sem ein- ungis næst fram með aðhaldi í rekstri, frekari hagræðingu, bættri þjónustu o.s.frv. Þar með verður. ekki undan því vikist lengur að leysa ýmis uppsöfnuð vandamál í starfsmannahaldi ríkisbankanna. Fullyrt er að stjórnendur þeirra hafi í mörgum tilvikum átt erfitt um vik með að segja upp fólki í ábyrgðarstöðum sem sýnt hafi mikla vanhæfni í starfi. Slíkir aðilar hafi fremur verið færðir til í veiga- minni störf sem stundum hafi verið talin til „göngudeildar". Þá er rætt um að ríkisbankarnir standi frammi fyrir þeim vanda að hafa yfir að ráða of mörgum starfs- mönnum með almenna þekkingu á bankastarfsemi, en skortur sé á fólki með sérhæfða þekkingu. Öll slík mál hljóti að verða tekin fastarf tökum eftir að bankarnir verði komnir í hlutafélagsformið. Loks er um það rætt að bankarnir þurfi að lúta aga markaðarins varðandi birtingu upplýsinga um áætlanir, rekstur og afkomu. Nýr og öflugur keppinautur Fullvíst er að samkeppnin á fjár- magnsmarkaðnum mun fara enn harðnandi. í hópi keppinauta hluta- félagsbankanna verður nú hinn nýi Fjárfestingarbanki atvinnulífsins sem settur verður á stofn um ára- mótin með samruna fjárfestingar- lánasjóðanna. Því er haldið fram að rekstrarkostnaður fjárfestingai>- lánasjóðanna hafi verið hlutfalls- lega mikill þannig að þar á bæ sé mikið svigrúm til hagræðingar. Nýi bankinn muni síðan hafa algjörlega fijálsar hendur til að keppa á fjár- magnsmarkaðnum, t.d. á sviði neyt- endalána, langtímaveðlána, kröfu- kaupa og kaupa skuldaskjala og viðskiptalána, fjármögnunarleigu, erlendra viðskipta o.s.frv. Fjárfest- ingarbankinn geti í raun annast alla þá starfsemi sem nú fer fram í viðskiptabönkunum að því undan- skildu að taka á móti innlánum frért almenningi. Þetta á eftir að skýrast innan tíðar þegar viðskiptaáætlun hins nýja banka mun liggja fyrir. En hvað sem því líður er ljóst að stjórnenda hinna nýju hlutafélags- banka bíður mikið verkefni við að standast kröfur hlutabréfamarkað- arins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.