Morgunblaðið - 16.09.1997, Page 35

Morgunblaðið - 16.09.1997, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 1997 35 Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson FRÁ síðasta íslandsmóti, sem er þá jafnframt síðasta mótið sem haldið er undir merkjum HÍS, þarna fara þeir efstu í tölti. Skriður kominn á sameingu LH og HIS HESTAR Islendingar atkvæða- miklir á afrekalistanum, Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson HÉR situr Sigurbjörn Bárðarson Gordon frá Stóru-Ásgeirsá, en þeir unnu gæðingaskeiðið á HM. Samruni LII og IIIS SAMEIGINLEGT ÞING Á EGILSSTÖÐUM VEL HORFIR í sameiningarferli Landssambands hestamannafélaga og Hestaíþróttasambands íslands og almennt talið að af sameiningu verði á sameiginlegu þingi beggja samtaka. Þingið verður haldið 24. og 25. októ- ber nk. á Eglisstöðum. Dagskrá þingsins verður með þeim hætti að þing LH verður sett klukkan 9.30 föstudaginn 24. október. Stendur það yfir allan daginn og fram á hádegi á laugardag en þing HÍS verður sett klukkan 13 og lýkur væntanlega und- ir kvöld. Nýlega var haldinn formannafund- ur samtakanna þar sem sameiningar- málin voru til umræðu. Var góð sam- staða um málefnið og telja menn sem rætt var við að sameiningardrögin séu mjög ásættanleg en ekki náðist sam- staða um sameiningu á þeim forsend- um sem fýrir lágu á ársþingi LH fýr- ir tæpu ári. Meðal þess sem breytt hefur verið er helst að nefna að sam- einuð samtök munu heita Landssam- band hestamannafélaga og þá er að nefna ýmsar orðalagsbreytingar. í nýju drögunum er til dæmis talað um félagsmenn í stað iðkenda. En mikil- vægasta breytingin er líklega sú að sameinuðum samtökum, _sem munu starfa _ innan vébanda íþróttasam- bands Islands, verður heimilt að inn- heimta félagsgjöld eins og gert hefur verið hjá LH til þessa. Þá er ekki talað um að leggja LH niður eins og var gert í fyrri drögum, en það fór mjög fýrir bijóstið á mörgum LH- mönnum. Ekki verður um stjómarkjör að ræða á þingunum en þess í stað munu stjómir beggja samtaka að öll- um líkindum tilnefna menn í sameig- inlega starfstjóm sem sitja mun í eitt ár. Birgir Siguijónsson formaður LH sagði, að ef sameining verður sam- þykkt færi í hönd erilsamt starfsár. Gerði hann ráð fyrir að skipuð yrði sérstök nefnd sem hefði það hlutverk að aðstoða félög við breytingar á lög- um þeirra í samræmi við lög samei- naðra samtaka og lög ÍSI. STAÐA íslendinga á nýútgefnum afrekalista FEIF er býsna góð en þar tróna þeir á toppnum í fimm greinum af sjö. Sigurbjörn Bárðar- son er efstur í fjórum greinum og Þórður Þorgeirsson í einni grein. Aðeins tveir heimsmeistarar, Sigur- björn Bárðarson og Karly Zings- heim, komast á toppinn. í tölti er Sigurbjörn efstur með 8,15, fyrrvarandi heimsmeistari Jolly Schrenk, Þýskalandi, kemur næst með 7,81, landi hennar Wolf- gang Berg er þriðji með 7,78 og Reinhardt Lodl, Austurríki, fjórði með 7,66. Irene Reber, Þýska- landi, er í fimmta sæti með 7,65. Þórður Þorgeirsson er í níunda sæti með 7,37, heimsmeistarinn í fjórgangi, Styrmir Árnason, er ell- efti með 7,33 en heimsmeistarinn í tölti, Vignir Siggeirsson, er í sext- ánda sæti. Sigurbjörn er einnig efstur í fjór- gangi með 7,65, Joly önnur með 7,54, Irenen Reber þriðja með 7,43 og Sveinn Hauksson fjórði með 7,26, Bernd Vith, Þýskalandi, fímmti með 7,10 og Jóhann R. Skúlason sjötti með 7,09. Heimsmeistarinn, Styrmir Árnason, er sjöundi með 7,06 og Fríða H. Steinarsdóttir er í áttunda sæti með sjö slétta. Karly Zingsheim, Þýskalandi, er eins og áður sagði efstur í fimm- gangi með 7,25 en Sigurbjörn annar með 7,02, Sigurður Sigurðarson þriðji með sjö slétta og Walter Feld- mann, Þýskalandi, fjórði með 6,97 og landa hans Tanja Gundlach kem- ur næst með 6,92. Angantýr Þórðar- son er sjötti með 6,88, Sveinn Jóns- son er níundi með 6,77 og Eisa Magnúsdóttir í fimmtánda sæti með 6,63. Sigurbjörn er með mikla yfirburði í gæðingaskeiði, er með 9 slétta, Angantýr kemur næstur með 8,09, Hulda Gústafsdóttir þriðja með 7,90 og Herbert Ólason fjórði með 7,72. Jóhann R. Skúlason er fimmti með 7,63 og Höskuldur Aðalsteinsson er sjöundi með 7,56 og Heiðar Hafd- al níundi með 7,34. íslendingar ein- oka einnig efstu sætin í 150 metra skeiði en þar er Þórður Þorgeirsson efstur með 8,80, Angantýr annar með 8,53 og Sigurbjörn þriðji með 8,53. Logi Laxdal er fjórði með 8,40 og Horst Klinghart, Þýskalandi, fimmti með 8,27. Þá er Sigurbjörn efstur í 250 metrunum með 8,90, Lothar Schenzel, Þýskalandi, kemur næstur með 8,83, Magnús Skúlason þriðji með 8,70, Irene Reber fjórða með 8,60 og Samantha Leidersdorf, Danmörku, fimmta með 8,57. Heimsmeistarinn í greininni, Logi Laxdal, er sjötti með 8,43. Slaktau- matöltið er eina greinin sem íslend- ingar koma lítið við sögu í en þar er efstur Uli Reber, Þýskalandi, með 7,85, Michela Aðalsteinsson, Austurríki, er önnur með 7,44, Sus- anne Beug, Þýskalandi, er þriðja með 7,41 og Dorte Mitgau, Þýska- landi, fimmta með 7,33. Heims- meistarinn í greininni, Ylva Hag- ander, Svíþjóð, er í _ áttunda sæti með 7,16 en efsti íslendingurinn er Styrmir Árnason, í fjórtánda sæti með 6,94. Afrekalistinn í heild sinni ásamt frekari upplýsingum um gerð hans er á ainetinu en einnig eru þar heild- arúrslit heimsmeistaramótsins. Slóð- in er http://www.datawerken.nl/isi.html Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson EFNILEGIR og góðir keppnishestar seljast vel um þessar mund- ir og meðal þeirra hrossa er Bassi frá Stokkseyri, en eigandi hans, Sveinn Jónsson, hefur fengið himinhátt tilboð í hestinn og verður gengið frá sölu hans um miðjan mánuðinn ef að likum lætur. Kynningarfundir í Sálarrannsóknaskólanum Opið hús og kynningarfundir verða í Sálarrannsóknarskólanum í kvöld og annað kvöld kl. 20.30 (þriðjudag og miðvikudag). Þar verður í skólastofu skólans flutt erindi um starfsemi skólans, s.s um líf eftir dauðann, starfsemi miðla og um álfa og huldufólk og önnur dulræn málefni. Allir velkomnir. Sálarrannsóknarskólinn er vandaður skóli þar sem almenningi eins og þér gefst kostur á að vita allt sem vitað er um dulræn mál, líf eftir dauðann, samband við framliðna, afturgöngur, berdreymi, fyrirboða, heilun, líkamninga, segulbandsmiðla, ljósmyndamiðla, og um flestöll önnur dul- ræn mál sem hugsast getur s.s. hvar framliðnir eru og hvers eðlis þessir handanheimar eru. Skólinn er eitt kvöld í viku eða eitt laugardagssíðdegi í viku. Yfir 600 ánægðir nemendur hafa notið þægilegrar og fræðandi skólavistar í skólanum sl. 3 ár. Hringdu og fáðu allar nánari upplýsingar um langskemmtilegasta skólann í bænum sem í boði er f dag. Svarað er í sfma skólans alla daga vikunnar kl. 14 til 19. Sálarrannsóknarskólinn, „Skóli fyrir leitandi fólk“. Vegmúla 2, s. 561 9015 & 588 6050. Mikil eftirspurn eftir keppnishestum' EFTIRSPURN eftir góðum keppnis- hestum hefur aukist áþreifanlega eftir heimsmeistaramótið í Noregi í byijun ágúst sl. Erlendir hestamenn hafa verið mikið á ferðinni í leit að slíkum hestum og virðist framboðið heldur minna en eftirspurnin. Gunn- ar Arnarsson hrossaútflytjandi segir að sú breyting hafí orðið að nú selj- ist þessir betri hestar einnig í ríkum mæli á innanlands markaði en fram að þessu hafi það fyrst og fremst verið erlendi markaðurinn sem var allsráðandi. Sagði Gunnar þetta koma heim og saman við mikla þátt- töku undanfarið í opnum mótum og ljóst að menn leggi meiri áherslu á betri hesta til þátttöku í keppni. Einnig mætti glöggt sjá að hestar keppenda í yngri flokkum hafí farið mjög batnandi. Taldi Gunnar að opnu mótin, sem fer fjölgandi með ári hveiju, hafí aukið áhuga manna á þátttöku í keppni og hefði það mjög góð áhrif á sölu hrossa og sömuleiðis framþróun reiðmennsk- unnar. Varðandi heildar útflutning hrossa sagði Gunnar að á miðju sumri hefðu um eitt hundrað færri hross verið seld út en á sama tíma fyrir ári. Hann sagðist ekki búast við nýju meti í útflutningi hrossa á þessu ári, líklega yrði það svipaður fjöldi og í fyrra. Valdimar Kristinsson yyfbliUlH Kostuðu áður 15.800 kr. Eigum einnig mikið úrval a{ öðrum hlííðaríatnaði og göngu- skóm í veiðiferðina. mu SKÚLAGÖTU 51 SÍMI: 551 1520 0G FAXAFENI 12 SÍMI: 588 6600 Veiðimenn! Vandaðir KRAPT kuldagallar í fel ulitum verða seldir á tillroðsverái næstu da^a. * Eitt blað fyrir alla! - kjarni málsins!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.