Morgunblaðið - 25.09.1997, Qupperneq 1
80 SIÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
217. TBL. 85. ÁEG. FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Franskir
ljósmyndar-
ar mótmæla
UM 75 franskir fréttaljósniyndarar
efndu til mótmæla við Elysee-höll í
París í gær vegna máls starfs-
bræðra sinna, sem eiga yfir höfði
sér ákærur fyrir manndráp vegna
bílslyssins sem varð Díönu Breta-
prinsessu að bana 31. ágúst. Ljós-
myndararnir lögðu niður ljós-
myndavélar sínar og blaðamanna-
skírteini og stóðu í tveimur röðum
við aðaldyr hallarinnar þegar ráð-
herrar frönsku sljórnarinnar
gengu þaðan af mikilvægum fundi
um fjárlög næsta árs.
Níu ljósmyndarar eiga yfir höfði
sér ákærur fyrir að hafa stuðlað að
dauða Díönu prinsessu, vins hennar
Dodis A1 Fayeds og bflstjóra þeirra
með því að veita þeim eftirför. Þeir
hafa einnig verið sakaðir um að
hafa tekið myndir af fórnarlömbum
slyssins í stað þess að koma þeim til
hjálpar.
Starfsbræður þeirra afhentu ráð-
herrunum yfirlýsingu þar sem þeir
mótmæltu þeirri ákvörðun dómara,
sem rannsakar málið, að leggja
hald á blaðamannaskírteini tveggja
af sakborningunum. Ljósmyndar-
arnir sögðu það einsdæmi í Frakk-
landi eftir síðari heimsstyrjöld að
gripið sé til slíkra aðgerða og sögð-
ust vera að verja prentfrelsið í
landinu.
--------------
Nóra sækir
Ím • 1 ' f
j v: | H 8111
11) 1 .1:
Reuter
Aldursbil
ræður kyni
frumburðar
London. Reuter.
MIKLU meiri líkur eru á að
frumburður konu sem giftist
sér miklu eldri manni verði
sveinbarn en stúlka, sam-
kvæmt niðurstöðum vísinda-
rannsókna við líffræðideild
Liverpool-háskólans í Bret-
landi.
Þessi þumalputtaregla á
hins vegar ekki við um seinni
böm og segja vísindamenn
engin tök á að útskýra hvers
vegna.
Þeir hafa komist að því að
sé eiginmaður meira en fimm
árum eldri en konan verði
fyrsta barn þeirra undantekn-
ingalítið drengur. Sé aldurs-
munur hjóna hins vegar minni
verður framburðurinn oftast
stúlka.
Óvænt vopnahlésyfírlýsing hersveitar alsírskra strangtrúarmanna
Kveikir veikar vonir um
að morðöldu linni í Alsír
Frásagnir ríkisfjölmiðla benda til
að stjórnin fallist á vopnahléð
í sig veðrið
Tijuana. Reuter.
FELLIBYLURINN Nóra sækir
ört í sig veðrið og nálgast Mexíkó
með þeim afleiðingum, að Mexíkan-
ar streymdu í neyðarskýli í gær.
í gær var Nóra 400 km úti á
Kyrrahafi og stefndi á Baja-skag-
ann. Talið var að veðrið myndi
ganga inn yfir Kaliforníu og
Arizona og yrði það í fyrsta sinn
sem fellibylur fer inn yfir Kaliforn-
íu. Búast má við miklu tjóni af völd-
um hans.
París, New York. Reuter.
EINHLIÐA vopnahlésyíh'lýsing
frelsishers íslams (AIS), herskárr-
ar hryðjuverkasveitar í Alsír, í gær
kveikir veikar vonir um að morð-
öldunni í landinu muni ljúka, að
mati erlendra stjórnarerindreka og
fréttaskýrenda. A sama tíma og yf-
irlýsingin var gefin jörðuðu harmi
slegnir aðstandendur 85 fómar-
lömb fjöldamorðs í Baraki á mánu-
dagskvöld.
Ríkisfjölmiðlar Alsírs, sem lúta
strangri ritskoðun af hálfu stjórn-
valda, fjölluðu mikið og ítarlega um
vopnahléstilkynningu AIS, en allt
frá því þau hófu vopnaða baráttu
við stjórnvöld snemma árs 1992
hefur samtökum strangtrúar-
manna verið úthýst með öllu úr
þeim.
Var það túlkað sem yfirvöld
hefðu samþykkt vopnahléð, en
samkvæmt tilkynningunni kemur
það til framkvæmda 1. október nk.
Stjómmálaskýrendur telja litlar
líkur á að blóðbaðið stöðvist þegar í
stað þar sem fjöldamorðið á mánu-
dagskvöld og morð á 98 manns í
ágústlok era skrifuð á íslömsku
herdeildina (GIA) sem þykir mun
vægðarlausari en AIS.
Yfirlýsingin er miklu fremur tal-
in hafa gildi þegar til lengri tíma
er litið. Áhrif hennar fari og eftir
því hvort ríkisstjórn landsins taki
einhuga undir hana. Hermt er að
ágreiningur ríki meðal alsírska
leiðtoga um hvemig bragðist skuli
við. Sumir þeima séu reiðubúnir að
semja við íslamska strangtrúar-
menn en aðrir telji einu leiðina að
uppræta þá með því að ganga milli
bols og höfuðs á þeim. Stæði
stjórnin einhuga gæti það leitt til
þess að hófsamir íslamstrúarmenn
og hófsamir stjórnarleiðtogar
tækju saman höndum og einangr-
uðu öfgamenn.
Bretar ósáttir með refsingu hjúkrunarkvenna í Saudi-Arabíu
500 vandarhögg og
átta ára fangelsisvist
Jamcstown. Dubai. Reuter.
HÁTTSETTIR embættismenn
sögðu að saudi-arabísk stjórnvöld
myndu ekki láta undan þrýstingi
Breta um að tveimur breskum
hjúkranarkonum, sem fundnar
hafa verið sekar um morð og fleiri
glæpi, yrði sýnd vægð. Benti flest
til að í uppsiglingu kynni að vera
milliríkjadeila Breta og Saudi-
Arabíu vegna málsins.
Samið um mildun
Onnur hjúkrunarkonan, Lucille
McLauchlan, hefur verið dæmd til
húðstrýkingar og fangelsisvistar.
Lögmaður stöllu hennar, Deborah
Parry, sagði að samið hefði verið
við bróður fómarlambsins, ástr-
alskrar hjúkrunarkonu, um að
hann félli frá kröfu um þyngstu
refsingu, þ.e. dauðadóm.
Pai’ry var fundin sek um morðið
á hjúkranarkonunni Yvonne Gil-
ford í desember sl. en ekki liggur
fyrir hvenær refsing hennar verð-
ur ákveðin. I iyrradag var úrskurð-
að að McLauchlan skyldi þola 500
vandarhögg og sæta að auki átta
ára fangavist. Hún var fundin sek
um að hafa aðstoðað Perry við
morðið á Gilford. Fannst hún látin í
herbergi sínu í Dhahran þar sem
konurnar þrjár unnu. Hún hafði
verið stungin 13 sinnum auk þess
sem hún hafði fengið þungt höfuð-
högg og verið kæfð.
Eftir að dómur var kveðinn upp
yfir McLauchlan sagði Frank Gil-
ford, bróðir Yvonne Gilford, að það
væri léttir að þurfa ekki að ákvarða
refsingu hennar en samkvæmt
saudí-arabískum lögum er það í
höndum fjölskyldu fómarlambsins
að krefjast annaðhvort dauðadóms
eða svokallaðra blóðpeninga af
dæmdum morðingjum ættingja
sinna.
Óviðunandi
nútimafólki
Robin Cook, utanríkisráðherra
Breta, sagði refsingu McLauchlan
með öllu óviðunandi í samfélagi nú-
tímamanna og kvaðst myndu taka
málið upp við saudi-arabískan
starfsbróður sinn í New York á
jnorgun.
pionn
Reuter
Vegtálmi á
V esturbakkanum
ÍSRAELSKIR landamæraverðir
settu upp vegatálma í útjaðri bæj-
arins Asira al-Shamaliya á Vestur-
bakkanum í gær. ísraelar greindu
frá því að fjórir af fimm tilræðis-
mönnum, er orðið hafa alls 20
ísraelum að bana í tveim sprengju-
tilræðum í Jerúsalem, hafi komið
frá Asira sem er skammt frá borg-
inni Nablus.
■ Tilræðismenn/22