Morgunblaðið - 25.09.1997, Page 4
MORGUNBLAÐIÐ
4 FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1997______________________
FRÉTTIR
Morgunblaðið/RAX
LAND- og Holtamenn hafa verið við smölun frá því á laugardag og rétta í dag í Áfangagili á
Landmannaleið. Myndin var tekin í Jökulgili í Landmannalaugum.
Endurbætur á skipa-
flota Mecklenburger
Hochseefischerei
Selja einn
af 5 tog-
urum til
Rússlands
GENGIÐ hefur verið frá sölu
á togaranum Bootes, einum
af fimm togurum Mecklenbur-
ger Hochseefischerei (MHF),
dótturfyrirtækis Útgerðarfé-
lags Akureyringa hf. í Þýska-
landi, til Rússlands og verður
skipið afhent í næsta mánuði.
Að sögn Guðbrands Sig-
urðssonar, framkvæmdastjóra
ÚA, er stefnt að því að fyrir-
tækið verði með fjögur skip í
rekstri á næstunni. Hann sagði
aðspurður að MHF ætti ekki
við fjárhagsörðugleika að
stríða en þau skip sem fyrir-
tækið gerir út séu að ýmsu
leyti óheppileg og því hafi ver-
ið ákveðið að ráðast í þessar
endurbætur. „Við sjáum okkur
ekki fært alveg á næstunni að
endurnýja þessi skip. Við telj-
um það góðan millileik að
fækka um eitt skip og nota
þá fjármuni sem við fáum út
úr sölunni til þess að endur-
bæta tvö þeirra skipa sem fyr-
ir eru,“ segir hann.
Óvanalega góð veiði að
undanfömu
Þegar hafa verið gerðar
umtalsverðar endurbætur á
togaranum Eridanus, skipt um
millidekk og bætt við frysti-
geymslu í skipið. Til stendur
að endurbæta togvindur i skip-
inu til að sérhæfa það til veiða
í Barentshafi, að sögn Guð-
brands. Einnig verða gerðar
endurbætur á togvindum á
öðrum togara fyrirtækisins,
sem stundað hefur grálúðu-
veiðar, með góðum árangri,
að sögn hans. Stjórnendur fýr-
irtækisins gera ráð fyrir að
tveir togarar verði áfram á
hefbundnum úthafskarfaveið-
um.
Veiðin þokkaleg
Útgerð MHF hefur gengið
þokkalega að undanfömu.
„Veiðin var þokkaleg í júlí en
fór niður í ágúst. Það sem af
er september hefur verið
óvanalega góð veiði miðað við
sömu mánuði á undangengn-
um árum,“ segir Guðbrandur.
ÁLFHILDUR Ólafsdóttir, hjá
Upplýsingaþjónustu landbúnað-
arins, segir ýmislegt benda til
þess að fallþungi dilka verði ívið
minni í haust en í fyrrahaust.
Fallþungi í fyrra var tæplega
15 kíló sem er yfir meðaltali
síðustu ára.
Sauðfjárslátrun er komin í
fullan gang, en auk þess var
talsvert slátrað í sumar. Álfhild-
Fallþungi
dilka minni
ur sagðist ekki hafa ítarlegar
upplýsingar um fallþunga og
hafa þyrfti í huga að frá mörg-
um bæjum væri ekkert byijað
að slátra. Hún sagði hins vegar
að ýmislegt benti til að fallþungi
á Suðurlandi yrði heldur minni
í ár en í fyrra. Hins vegar bær-
ust þær fréttir af norðanverðu
landinu að lömbin væru síst létt-
ari þar en í fyrra. Vorið hefði
verið kalt og þess vegna hefði
spretta á afrétti verið seinna á
ferðinni en venjulega.
Breytingar á póst-
flutningum hafa áhrif
Forsendur
fyrir flutn-
ingum
brostnar
JÓN Kristjánsson, formaður fjár-
laganefndar Alþingis, segir að sveit-
arstjórnarmenn víða af landinu hafi
lýst áhyggjum af breyttum forsend-
um í samgöngumálum í kjölfar þess
að Póstur og sími hf. hefur sagt upp
samningum um póstflutninga við
sérleyfishafa og flugfélög.
Fjárlaganefnd hefur að undan-
förnu rætt við sveitarstjórnarmenn
um áherslur þeirra í sambandi við
fjárlagagerð næsta árs. Jón sagði
að áberandi væri að margir hefðu
áhyggjur af þeirri stöðu sem skap-
aðist í kjölfar einkavæðingar Pósts
og síma. Fyrirtækið hefði sagt upp
samningum um póstflutninga og
þess vegna ríkti óvissa um flug á
nokkra litla staði um norðan- og
austanvert landið eins og t.d. til
Raufarhafnar. Eigendur sérleyfis-
bíla ættu einnig í erfiðleikum með
að halda rekstrinum gangandi eftir
að hafa misst póstflutninga.
Verulegt telyutap
Á fjárlögum þessa árs var 28,1
milljón króna varið til liðar sem heit-
ir vetrarsamgöngur og vöruflutning-
ar. Upphæðin er m.a. ætluð til að
styrkja flutninga þar sem þeir eru
erfíðir. Jón sagði að þessi styrkur
gæti ekki tekið á þeim vanda sem
nú blasti við. Þær breytingar sem
Póstur og sími hefði ákveðið að gera
á póstflutningum leiddu til verulegs
tekjutaps fyrir marga aðila. Stjórn-
völd gætu ekki hlaupið þar undir
bagga innan núverandi ijárhags-
ramma fjárlaga. Það ætti eftir að
ræða það hvort vilji væri fyrir því á
Alþingi að koma þarna á móts við
aðila með auknum fjárveitingum.
-----» ♦ 4----
Hnífstungu-
málið í
rannsókn
RANNSÓKN hnífstungumálsins í
Hafnarstræti og Pósthússtræti að-
faranótt sunnudags stendur nú yfir
hjá lögreglunni í Reykjavík. Unnið
hefur verið að því að yfirheyra vitni
í málinu.
Guðmundur Guðjónsson yfirlög-
regluþjónn rannsóknardeildar lög-
reglu sagði að hann vildi ekkert tjá
sig um hugsanlega atburðarás um
nóttina, enda miðaði rannsóknin að
því að leiða þá atburðarás skýrt í ljós.
Lína lögð frá Búrfelli
LANDSVIRKJUN gangsetur vél
númer tvö í Kröflu um miðjan októ-
ber og er ráðgert að keyra hana
með hálfum afköstum í vetur. Vetur-
inn 1998-1999 verður vélin síðan
keyrð með fullum afköstum. Þá er
undirbúningur hafínn að lögn 100
km langrar háspennulínu frá Búr-
felli til Reykjavíkur.
Ein stærsta framkvæmdin nú á
næstunni hjá Landsvirkjun er há-
spennulínulögn til Reykjavíkur frá
Búrfellssvæðinu. Línan verður um
100 km löng. Heildarkostnaður af
verkinu er 2,6 milljarðar kr. Undir-
búningur að þessu verki er hafinn.
Smærri verktakar í
undirbúningsþáttum
Þorsteinn Hilmarsson, upplýs-
ingafulltrúi Landsvirkjunar, segir að
undirbúningsþættir verksins séu
boðnir út í litlum áföngum, þ.e. und-
irstöður og slóðagerð, til þess að
minni íslenskum verktökum sé kleift
að taka þátt í útboðunum. Samið
hefur verið við verktaka um þijú af
fimm minni verkum sem verða boðin
út. Ræktunarsamband Flóa og
Skeiða gerir vegslóða frá Búrfells-
virkjun að Hvítá og á verkinu að
vera lokið um áramótin. Hljóðaði
tilboð þeirra upp á 109 milljónir kr.
sem er 65,6% af kostnaðaráætlun.
Samið var við JVJ verktaka um
gerð vegslóða frá Hvítá að Litlafelli
skammt frá Sandskeiði og hljóðaði
tilboð þeirra upp á 52 milljónir kr.
sem var um 36% af kostnaðaráætl-
un. Framkvæmdir eru hafnar og á
verkinu að vera lokið um áramótin.
Loks hefur verið samið við Feðga
ehf. og Garðar Þorbjörnsson um
jarðvinnu og undirstöður frá Grafn-
ingsvegi að Litlafelli og hljóðaði til-
boðið upp á 94 milljónir kr. en kostn-
aðaráætlun upp á rúmar 90 millj.
Þá hefur stærsti hluti verksins,
þ.e. útvegun efnis, reising turna og
strenging leiðara, verið boðinn út.
Tilboðin verða opnuð 21. október nk.
og búist við að tilboðsgjafar verði
einkum erlendir aðilar en jafnframt
er líklegt að íslenskir undirverktakar
komi að verkinu. Áætlað er að reis-
ing turna heQist í apríl 1998 en
verkinu öllu á að vera lokið 31. októ-
ber 1998.
Þá er þessa dagana verið að ljúka
við fimmta áfanga Kvíslaveitu. Einnig
er nú unnið við Hágöngumiðlun en
vinna þar hófst síðastliðið sumar. Þar
er ráðgert að verði unnið fram yfir
miðjan október. Framkvæmdum þar
á að ljúka næsta sumar og um mitt
sumarið á vatnssöfnun að geta hafist.