Morgunblaðið - 25.09.1997, Page 10
10 FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1997
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Umboðs-
skrifstofa
listamanna
styrkt
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
að styrkja umboðsskrifstofu
listamanna á íslandi með 250
þús. króna framlagi en óskað
var eftir 500 þús. Markmið
skrifstofunnar er að koma lista-
mönnum á framfæri heima sem
erlendis.
í erindi Óiafs Þórðarsonar
til borgarráðs kemur fram að
umboðsskrifstofan Þúsund
þjalir hafi verið stofnuð í júní
sl. Leitað er að atvinnufyrir-
tækjum fyrir listamenn hvort
heldur sem um er að ræða
hljóðfæraleikara, leikara, dans-
ara eða myndlistarmenn. Bent
er á að fyrirtækið hafi sambönd
við sambærilegar skrifstofur á
Norðurlöndum og auki þannig
möguleika á útflutningi ís-
lenskra listamanna.
Verðmæt-
um tækjum
stolið
BROTIST var inn í fyrirtæki
við Ármúla í fyrrinótt og þaðan
stolið verðmætum tækjum til
fjölföldunar myndbanda.
Þjófarnir spenntu upp hurð
og stálu fjölföldunartæki, dýru
sjónvarpstæki, myndbands-
tæki, myndböndum og verk-
færatösku. Þá var peninga-
skápur fyrirtækisins skemmd-
ur, en þjófamir náðu ekki að
opna hann. Lögregla hafði upp
á þjófunum í gær.
Eldur í gas-
leiðslu á
veitingastað
SLÖKKVILIÐ var kallað að
veitingastaðnum Pizza 67 í
Kópavogi á þriðjudagskvöld en
þar hafði brunnið í sundur gas-
leiðsla við eldunartæki. Starfs-
manni tókst að skrúfa fyrir
gasið og ráða niðurlögum elds-
ins áður en slökkviliðið kom á
vettvang og urðu litlar sem
engar skemmdir af völdum
eldsins.
Sími 555-1500
Garðabær
Stórás
Rúmgóð ca 70 fm 2—3 herb. íb. á
neðri hæð í tvíb. Ný eldinnr. Nýtt gler.
Parket.
Hafnarfjörður
Óttarstaðir
Til sölu ca 5—6 hektara landspilda úr
landi Óttarstaða I. Liggur að sjó. Verð:
Tilboð.
Reykjavíkurvegur
Gott skrifstofuhúsnæði ca 120 fm á 2.
hæð. Verð 4,9 millj.
Breiðvangur
Sérlega glæsileg ca 190 fm neðri sérh.
í tvíb. auk bílskúrs. 5 svefnh. Áhv.
byggsj. ca 2,7 millj. Verð 13,2 millj.
Gunnarssund
Til sölu er góð 3ja herb. íb. á jarðh.
Álfaskeið
Einbýlishús á tveimur hæðum með
hálfum kj., samtals 204 fm. Mikið end-
um. Ath. skipti á litilli íb.
Reykjavíkurvegur
Glæsileg 2ja herb. íb. á 3. hæð. Lítið
áhv. Verð 4,3 millj.
Vantar
ca 100 fm íb. nærri miðbæ Hafnar-
fjaröar.
Vantar eignir á skrá
Fasteignasala,
Strandgötu 25, Hfj.
Ámi Grétar Finnsson, hrl.
Stefán Bj. Gunnlaugsson, hdl.
Morgunblaðið/Helgi Sveinbjömsson
ÞAU Þorgeir Jónsson, Þráinn Viggósson, Karl Björnsson, Þór-
hallur Bjömsson, Kristján Kristjánsson (KK) og Þorbjörg Krist-
jánsdóttir með hluta af stórveiðinni.
Met-
dagur
álðu
ALLS veiddust 48 laxar í Hvítá í
Árnessýslu hjá Iðu á þriðjudaginn
og er það metveiðidagur á svæðinu
í að minnsta kosti þtjátíu ár. Helgi
Sveinbjörnsson á Launrétt í
Laugarási sagði í samtali við blað-
ið í gær að hann myndi eftir 46
laxa degi fyrir um þrjátíu árum
en það þyrfti að fara nokkuð
lengra aftur í öldina til að finna
dæmi um meiri dagveiði. Veiði-
svæðið á Iðu er stutt og þar er
aðeins veitt með þremur stöngum.
Félagarnir Þorgeir Jónsson og
Þráinn Viggósson drógu 29 um-
ræddra laxa, en hinum skiptu þau
Karl og Þórhallur Björnssynir og
KK og Þorbjörg dóttir hans á
milli sín. Einnig veiddust þennan
mikla afladag tíu 3-5 punda sjó-
birtingar. Helgi í Launrétt sagði
að Iðan hefði verið mislynd að
undanförnu, þannig hefðu veiði-
menn á mánudag staðið daginn á
enda og orðið lítið varir en síðan
hefðu veiðst 20 laxar á þriðjudag,
allir á spón. „Stóra veiðin var nær
öll tekin á flugu, aðeins þrír eða
Qórir voru teknir á maðk og eng-
inn á spón. Stærsti laxinn var 16
pund, en mest vár þetta frá 6
pundum og upp í rúmlega 10
pund. Það hélst allt í hendur þenn-
an dag, skilyrði voru frábær og
lax í tökuskapi. Ég hitti veiði-
mennina um kvöldið og þeir voru
á því að mikill lax hefði verið á
ferðinni," sagði Helgi.
690 úr Víðidalsá
„Þetta er nú búið hjá okkur og
áin endaði í 690 löxum. Okkur
fannst þetta nú ansi lélegt og
veiðin verður aldrei minni í ánni
en þetta,“ sagði Ragnar Gunn-
laugsson, bóndi á Bakka í Víði-
dal. Ragnar sagði að menn hefðu
einkum reiknað með að sjá meira
af smálaxi en raun bar vitni en
samt var það einmitt hann sem
bar uppi veiðina. „Það voru 426
smálaxar í aflanum, 7 punda og
minni, en aðeins 274 stórlaxar,
eða 8 punda og stærri. Við bjugg-
umst við því, það var smálaxinn
sem brást okkur. Þetta er fjórða
slaka árið í röð og vonandi fer
þetta að snúast við,“ bætti Ragn-
ar við. Tveir 21 punds laxar voru
stærstir í sumar.
Ragnar hafði ekki tekið saman
sjóbleikjuveiðina af silungasvæð-
inu, en sagði hana aðeins lakari
en í fyrra en á móti kæmi að fisk-
ur væri vænni. Á laxasvæðinu
voru bókaðar 925 bleikjur og milli
20 og 30 sjóbirtingar, allt að 10
punda.
Til marks um hve smálaxinn
var stór í sumar, sagði Ragnar
að sumarið 1994 hefðu 3 punda
laxar verið 19 talsins, en aðeins
5 stykki nú. 1994 sáust varla 7
punda laxar, en voru 70 í sumar!
Nokkrar tölur
Veiði er lokið í Laxá á Ásum
og voru 712 laxar dregnir á þurrt.
Það er slakt miðað við það sem
best gerist í ánni en eigi að síður
trúlega hæsta meðalveiði á stöng
úr nokkurri á hér á landi í sumar.
Hátt í 70 laxar eru komnir úr
Breiðdalsá. Þar er veitt út þennan
mánuð, en fáir standa vaktina.
Þeir sem hafa rennt hafa þó yfir-
leitt fengið laxa og flestir hafa
verið grálúsugir.
Yfir 1.000 bleikjur eru komnar
á land úr Hvolsá og Staðarhólsá
í Dölum að sögn Þrastar Elliða-
sonar, eins leigutaka svæðisins.
Laxveiðin hefur þó brugðist að
hans sögn, aðeins fáir tugir laxa
komið á land.
Hvalbeinin
um 13.000
ára gömul
ALDURSÁKVÖRÐUN hval-
beinanna, sem fundust í um 80
metra hæð yfir sjávarmáli í
maiarnámu í landi Stórufell-
saxlar í Skilmannahreppi í byrj-
un júní sl., hefur leitt í ljós að
þau eru um 12.800 ára gömul.
Aldursgreiningin var gerð við
Háskólann í Árósum og var
notast við svokallaða geisla-
kolsmælingu.
Að sögn dr. Hreggviðar Nor-
dais jarðfræðings sýnir fundur
og aidursgreining þessara beina
svo ekki verður um villst að
fyrir tæpum 13 þúsund árum,
þegar ísaldaijökullinn sem huldi
iandið var að byrja að hörfa inn
yfir núverandi strönd, hafi sjáv-
arstaða almennt verið há eða
um 105 til 110 metrar. „Beinin
fundust í um 80 metra hæð
yfir sjó og tilheyra því sjávar-
borði sem var að minnsta kosti
í þeirri hæð yfir sjávarmáli,"
segir Hreggviður.
Setlög í
105-110 metra hæð
„Setlögin sem beinin voru í
hafa verið rakin upp í 105 til
110 metra hæð og því er ein-
sýnt að þau tilheyra sjávarborði
sem var í þeirri hæð fyrir um
13.000 árum. Hvalurinn hefur
því sennilega drepist í fjöru-
borðinu og beinin síðan borist
aðeins út í sjóinn."
Hreggviður segir að á þess-
um tíma hafi Akrafjall að mestu
verið sæbrött eyja, nema við
Stórufellsöxl þar sem kannski
hafi verið svolítil malarfjara.
Þar hafi hvalurinn líklega synt
á land. Að sögn Hreggviðs eru
hvalbeinin nú varðveitt á
Byggðasafninu að Görðum og
stendur tii að þau verði þar til
sýnis í framtíðinni með skýring-
um og frásögnum.
Kópavogur setji auglýsingastefnu
sína fram með gagnsæjum hætti
SAMKEPPNISRAÐ hefur beint
þeim tilmælum til bæjarstjómar
Kópavogsbæjar að hún setji auglýs-
ingastefnu sína fram með gagnsæj-
um hætti til að tryggja að þeir aðil-
ar sem falast eftir auglýsingum
bæjarins sitji allir við sama borð
að því er varðar efnislegar forsend-
ur.
Samkeppnisstofnun var í vor beð-
in af ráðgjafarfyrirtækinu Nestor
að taka til athugunar viðskipti
Kópavogsbæjar við frétta- og bæj-
armálablöð útgefin í Kópavogi og
grípa til viðeigandi aðgerða ef
ástæða þætti til í þeim tilgangi að
frjáls útgáfa frétta- og bæjarmála-
blaða þar njóti jafnræðis á við slík
blöð sem útgefin eru af stjórnmála-
flokkum eða samtökum.
í erindinu frá Nestor til Sam-
keppnisstofnunar kom m.a. fram að
fyrirtækinu hefði fyrir nokkrum
misserum verið falið að afla upplýs-
inga hjá bæjaryfírvöldum í Kópavogi
um greiddan auglýsingakostnað
bæjarins til frétta- og bæjarmála-
blaða þar um tiltekið árabil. Við
skoðun hefði komið í ljós að gríðar-
legur munur væri á fjölda, stærð
og innihaldi auglýsinga frá Kópa-
vogsbæ eftir því hvort um stjórn-
málalega óháð blöð væri að ræða
eða málgögn stjómmálaflokka, þeim
síðamefndu í vil. Þrátt fyrir ítrekað-
ar óskir Nestors til bæjarstjóra og
formanns bæjarráðs Kópavogs og
síðan atbeina félagsmálaráðuneytis-
ins hefði ekkert svar borist.
1 ályktun samkeppnisráðs segir
að með óbreyttri stefnu Kópavogs-
bæjar í birtingu auglýsinga í bæjar-
málablöðum sé það álit ráðsins að
Kópavogsbær geti hindrað aðgang
nýrra blaða að markaðnum. Jafn-
framt gefi það bæjarmálablöðum
útgefnum af stjórnmálaflokkum
forskot á önnur bæjarmálablöð sem
gefin eru út í Kópavogi. Þessar
aðgerðir Kópavogsbæjar séu því til
þess fallnar að raska samkeppni í
útgáfu bæjarmálablaða í Kópavogi.
Dalsel — frábært verð
Laus strax
Mjög góð 90 fm, 3ja herb. íbúð á 3. hæð með stæði í bílskýli í mjög barn-
vænu hverfi. Laus strax. Lyklar á skrifstofu Valhallar. Áhv. 5,2 millj. Húsbr.
Lífeyrissj. o.fl. Verð aðeins 6 millj. Einstakt tækifæri. 2829.
Rauðás 21 — opið hús
í kvöld 18-20
Falleg, nýleg ca 70 fm í 3ja herb. íb. á 1. hæð í litlu fjölb. + bílskúrsplata.
Frábær nýting og skipulag. Mikið útsýni. Suðvesturverönd og austursvaiir
m. miklu útsýni. Áhvílandi 4,4 millj. byggingarsj. + húsbr. Verð aðeins 6,2
millj. Laus strax. Sölumaður Valhallar verður á staðnum milli kl. 18 og 20 í
kvöld. 2345.
Hraunbær 192
Opið hús í kvöld 19.30-22.
Stórglæsil. 5-6 herb. 121 fm íb. á 2. hæð I mjög góðu fjölbýli á afar rólegum
og barnvænum stað efst við Hraunbæ. Frábærlega skipulögð, mikið endur-
nýjuð eign. m.a. nýtt eldhús. Hús klætt utan að stórum hluta. 4 svefnherb.
o.fl. Sjón sannarlega sögu ríkari. Verð 8,3 millj. Guðlaugur og Kolbrún taka á
móti áhugasömum I kvöld. 2876.
Valhöll fasteignasala, Mörkinni 3,
Reykjavík. Sími 588 4477.
Aðstoðarutanríkisráðherra Noregs
Island og Noregur sam-
ræmi fiskveiðieftirlit
Ósló. Morgunblaðið.
SIRI Bjerke, aðstoðarutanríkisráð-
herra Noregs, segir að ísland og
Noregur þurfí að leita leiða til að
samræma eftirlit sitt með fiskveiðum
í því skyni að koma í veg fyrir
árekstra.
í júní sl. var Sigurður VE færður
til hafnar í Noregi vegna meints
brots á tilkynningaskyldu í lögsögu
Jan Mayen og í júlí færði Landhelg-
isgæzlan norska loðnuskipið Kristian
Ryggefjord til hafnar í Vestmanna-
eyjum, en skipstjórinn var m.a.
ákærður fyrir að færa tvöfalda afla-
dagbók. í samtali við íslenzka blaða-
menn í Ósló í gær sagði Siri Bjerke
að norsk stjórnvöld vildu gjarnan
ná betra samstarfi við íslendinga
um fiskveiðieftirlit. „Noregur hefur
gert samninga um sameiginlegt eft-
irlitskerfí við önnur ríki, sem við
eigum við náið samstarf á sjávarút-
vegssviðinu, t.d. Danmörku og Rúss-
land,“ segir Bjerke. „Við höfum haft
fi-umkvæði að nánara samstarfi og
ég vona að það geti líka haft jákvæð
áhrif á þær deilur, sem eru óleystar
í samskiptum landanna."
Bjerke segir aðspurð að samstarf
af þessu tagi ætti að geta komið í
veg fyrir að mál á borð við töku
Sigurðar VE endurtaki sig.
„Við þurfum að byrja á að skoða
hvort eftirlitskerfi fyrir sig og hvern-
ig það er byggt upp og halda síðan
áfram samstarfi um samræmingu
kerfanna," segir aðstoðarutanríkis-
ráðherrann.