Morgunblaðið - 25.09.1997, Síða 14

Morgunblaðið - 25.09.1997, Síða 14
14 FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Morgunblaðið/Kristján SIGURÐUR Helgason og Helgi Aðalsteinsson, starfsmenn Byggingafélagsins Kötlu hf., voru að gera klárt fyrir steypu á slippkantinum í gær. Unnið að viðgerð á slippkantinum Héraðsdómur Norðurlands eystra 15 mánaða fangelsi vegna kynferðisbrots Konur og sveitar- stjórnarmál RÁÐSTEFNA um konur og sveitar- stjórnarmál verður haldin í Alþýðu- húsinu á Akureyri næstkomandi iaugardag og stendur hún frá kl. 9.30 til 16. Elín Líndal formaður Jafnréttis- ráðs flytur ávarp og Linda Blöndal stjórnmálafræðinemi flytur erindi um konur í sveitarstjómum 1994 til 1998. Talsmenn stjórnmálaflokka gera grein fyrir afstöðu flokka sinna og svara spurningum. Unnur Karls- dóttir sagnfræðingur flytur erindi sem hún nefnir Tímabundin aðgerð eða uppgjöf? og er um Kvennafram- boðið á Akureyri 1982-1986. Ingi- björg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri í Reykjavík flytur erindi sem nefnist Með femínisma að leiðarljósi. Hör- kupúl - en þrælgaman er yfírskrift umræðu um kosti þess og galla að vera í sveitarstjórnarmálum. Skráning á ráðstefnuna er hjá rit- ara jafnréttisfulltrúa. -----♦ ♦ ♦----- Gospel, blús og djass GOSPEL, blús og djass verða alls- ráðandi á tónleikum sem haldnir verða í Deiglunni á Akureyri á föstu- dagskvöld, 26. september, en þeir hefjast kl. 21. og þá verða tónleikar í Glerárkirkju á laugardagskvöld, 27. september, einnig kl. 21. Það er djasstríó Carls Möllers píanóleikara sem leikur á tónleikun- um, en í því eru auk hans þeir Sig- urður Ingimarsson, söngvari, Guð- mundur Steingrímsson, trommur og Jón Rafnsson, bassi. VIÐGERÐ á slippkantinum við Slippstöðina hf. á Akureyri er vel á veg komin og að sögn Guð- mundar Sigurbjörnssonar, hafn- arstjóra Hafnasamlags Norður- lands, er ráðgert að viðgerð ljúki í lok næsta mánaðar. Töluvert tjón varð á slippkant- inum í febrúar sl. er fylling grófst undan stálþili á 20-30 metra kafla. Við það rann fylling innan við þilið út í sjó með þeim afleiðingum að þekja bryggjunn- ar féll niður á nokkuð löngum kafla. Starfsmenn hafnarinnar hafa séð um framkvæmd verksins og fengið til liðs við aðila í gegnum tilboð til að sjá um ákveðna verk- þætti. Guðmundur segir að þegar sé búið að gera við stálþilið, setja viðbótarstög og stálbita innan á þilið og nú sé verið að undirbúa steypu á kantinum. SEXTÍU og tveggja ára gamall karlmaður í Suður-Þingeyjarsýslu var í gær dæmdur í 15 mánaða fangelsi í Héraðsdómi Norðurlands eystra fyrir að hafa þrívegis fram- ið kynferðisbrot gagnvart stúlku sem var tæplega fimm ára er brot- in voru framin í upphafí þessa árs. Áreitnin átti sér stað á heimili mannsins, en þar hafði stúlkubarn- ið verið vistað af barnaverndar- nefnd Hafnarfjarðar. Stúlkan var vistuð á lögbýli ákærða í þrígang, fyrst sumarið 1995, þá í rúman mánuð sumarið 1996 og loks frá 31. ágúst 1996 til 4. febrúar 1997. Akærði og eiginkona hans hafa um árabil tekið við fjölmörgum börnum til skammtímavistunar fyrir félags- málayfirvöld og hefur heimili þeirra meðmæli barnaverndaryfir- valda. Grunsemdir vöknuðu um að stúlkan hefði áður mátt þola kyn- ferðislega áreitni, en kærumál látin niður falla um mitt þetta ár þar sem ekki þóttu hafa komið fram gögn er leiddu til saksóknar. Ákærða og eiginkonu hans var veitt ráðgjöf sérfræðinga um mál- efnið vegna áframhaldandi vistun- ar stúlkunnar á heimili þeirra. Starfsfólki Félagsmálastofnun- ar Hafnarfjarðar barst tilkynning um ætluð kynferðisbrot ákærða i byrjun febrúar síðastliðins. Játaði maðurinn við yfirheyrslur athæfi sitt. Fram kom við skýrslutökur að kært hafi verið milli hans og stúlkunnar sem jafnan kallaði hann afa. Veitti hann því athygli við upphaf síðustu vistunar henn- ar á heimili hans að breyting hafi orðið á hegðun hennar, m.a. sótt- ist hún eftir að leggjast ofan á hann er hann lagðist til hvílu. Hafði hann haft spurnir af því að stúlkan hefði mátt þola kynferðis- lega áreitni veturinn 1995-96. Játaði hann að atferli telpunnar hefði haft kynferðislega örvandi áhrif á sig og bar að sá veikleiki hefði orðið þess valdandi að hann gerðist sekur um fyrrnefnd brot. Leitaði hann sér aðstoðar geð- læknis í framhaldi af þessum at- burðum. Fram kemur í dómi Héraðsdóms Norðurlands eystra að brot manns- ins séu alvarlegs eðlis, þau hafi beinst að stúlkubarni sem honum hafi verið trúað fyrir í skamman tíma vegna erfiðleika hennar, en hann misnotað aðstöðu sína og trúnaðartraust barnsins, þó svo hann hefði átt að gera sér grein fyrir að háttsemi hans væri til þess fallin að valda barninu alvar- legu tjóni. Öflugur mengunarvarnabúnaður settur upp í Krossanesi í næsta mánuði Ætti að draga úr óþægind- um bæjarbúa vegna lyktar ÖFLUGUR mengunarvarnabúnaður verður tekinn í notkun í Krossanesverksmiðjunni á Akureyri í lok næsta mánaðar. Áætlaður kostnaður við nýja búnaðinn er um 43 milljón- ir króna. Þá ætti að draga verulega úr þeim óþægindum sem bæjarbúar hafa orðið fyrir vegna lyktar frá verksmiðjunni. Þeim dögum mun jafnframt fækka til muna þegar lykt finnst frá verksmiðjunni, auk þess sem lyktin ætti að verða minni þegar hennar verður á annað borð vart. Á undanförnum árum hefur verið lagt í mik- inn kostnað við endurbætur á verksmiðjunni og kaup á tækjum og búnaði. Frá árslokum 1995, þegar nýir eigendur tóku við rekstrinum og til loka yfirstandandi árs, mun um 300 millj- ónum króna hafa verið varið til þessara hiuta. Þar við bætist hefðbundið viðhald verksmiðj- unnar, sem einnig hefur verið viðamikið, segir í fréttatilkynningu frá Krossanesi hf. Áhersla á fullnýtingu Forsvarsmenn fyrirtækisins leggja ríka áherslu á að fullnýta hráefni sem gengur af við vinnslu hjá öðrum sjávarútvegsfyrirtækjum og væri að öðrum kosti hent. Verksmiðjan hafði frumkvæði að því að vinnsla á rækjuskel var hafin þar árið 1991 og hefur Krossanes hf. lagt fjórum rækjuvinnslum á svæðinu til búnað til að skilja skelina frá pillunarvatninu áður en það fer í sjóinn. Þá framleiðir verksmiðjan lýsi úr um 120 tonnum af lifur árlega og tekur við 7-8 þús- und tonnum af annars konar fiskúrgangi til bræðslu frá fiskvinnslustöðvum á Eyjafjarðar- svæðinu. Í Krossanesi er ennfremur búnaður til vinnslu loðnuhrogna og verksmiðjan er stærsti hráefnisbirgir fóðurvörufyrirtækja á Eyj afj arðarsvæðinu. Veltan í fyrra 1 milljarður f Krossanesi starfa nú 24 starfsmenn allt árið. Að auki starfa 6 manns í fiskimjölsverk- smiðju félagsins í Ólafsfirði en hún var keypt af Hraðfrystihúsi Ólafsfjarðar í árslok 1996. Velta Krossaness hf. í fyrra nam um 980 millj- ónum króna en gert er ráð fyrir að veltan í ár verði 15-20% minni. Núverandi hluthafar eru tæplega 90 og eru hlutabréf félagsins skráð á Opna tilboðsmarkaðnum. SKRIFSTOFUHUSN/CÐITIL LEIGU Hentugt skrifstofuhúsnœði er til leigu í Hafnarstrœti 93-95, fjórðu hœð. Stœrð húsnœðisins sem er um 350 fm, er tilbúið til útleigu með mjög stuttum fyrirvara. Upplýsingar gefa Sigurður Jóhannesson, aðalfulltrúi, símar 463 0300 og 852 0126. Kaupfélag Eyfirðinga. Ók í heimildarleysi og undir áhrifum SAUTJÁN ára stúlka var svipt öku- rétti í einn mánuð og gert að greiða 25 þúsund króna sekt í ríkissjóð auk sakarkostnaðar. Hún var ákærð fyrir að hafa í ágúst 1995, er hún var á 16. aldursári, ekið bifreið í heimildar- leysi og undir áhrifum áfengis innan- dyra í áhaldahúsi Ólafsfjarðarbæjar. Neitaði stúlkan sök við rannsókn málsins en játaði við aðalmeðferð. Fram kemur í dómi Héraðsdóms Norðurlands eystra að meðferð málsins hafí dregist á rannsóknar- stigi, það var sent frá Ólafsfirði til Isafjarðar þar sem skýrslur voru teknar, þaðan fór málið á ný til Ól- afsfjarðar og var sent til ríkissak- sóknara sem endursendi það til sýslumanns í júní síðastliðnum. Við ákörðun refsingar var höfð hliðsjón af óhóflegum drætti á meðferð máls- ins. Vátryggingafélag íslands gerði kröfu um að stúlkan greiddi félaginu bætur vegna skemmda á tveimur bifreiðum í áhaldahúsinu, rúmlega 100 þúsund krónur. Ekki þótti unnt að taka bótakröfuna til greina á grundvelli þeirra gagna sem fyrir lágu í málinu og frekari gagnaöflun myndi valda enn meiri töfum á máls- meðferðinni. Sýning á Café Menningu ÞORFINNUR Sigurgeirsson opnar sýningu á verkum sínum í Café Menningu á Dalvík í kvöld, fimmtudagskvöldið 25. septmber. Hann hefur haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í ýmsum samsýningum frá árinu 1984. Hlaut hann Bruno og Stella styrkinn fyrir fram- úrskarandi námsárangur árið 1991 og sama ár fékk hann Uni Média styrkinn fyrir bestu teikningu samsýningar sem haldin var í Quebec í Kanada. Verk hans eru unnin í akrýl, kol, olíu og vatnsliti.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.