Morgunblaðið - 25.09.1997, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 25.09.1997, Qupperneq 16
16 FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1997 LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir FRÁ hátíðarfundi hreppsnefndar Þórshafnarhrepps. Frá vinstri: Jón Gunnþórsson, Björgvin Axel Gunnarsson (varamaður), Rein- hard Reynisson, sveitarsljóri, Jóhann A. Jónsson, oddviti, Kristín Kristjánsdóttir, varaoddviti, Heiðrún Óladóttir (varamaður), ásamt ritara hreppsnefndarinnar, Jónu Þorsteinsdóttur (standandi). Hátí ðarfundur hreppsnefndar Þórshöfn - Hreppsnefnd Þórshafn- arhrepps hélt sinn 50. fund fyrir skömmu og var hann auglýstur sem sérstakur hátíðarfundur af því til- efni. Fundurinn var opinn öllum íbúum sveitarfélagsins til áheyrnar, svo_ sem venja er. Ársreikningar hreppsins voru undirritaðir á þessum fundi og var mikil breyting á þeim frá fyrra ári til hins betra. „Sveitarfélagið er nú efnahagslega sterkt og betri veltu- fjárstaða en áður fyrr,“ sagði Rein- hard Reynisson, sveitarstjóri, er hann skýrði ársreikningana. Sveit- arstjóri taldi ekki vænlega leið að draga saman í rekstri því sveitarfé- lagið yrði að vera samkeppnisfært við önnur sveitarfélög í því að veita nauðsynlega þjónustu. „Efnahags- batinn verður því m.a. nýttur til að bæta skuldastöðu sveitarfélagsins og auka þannig framlegð," sagði sveitarstjóri ennfremur. Stærstur þáttur í bættri stöðu Þórshafnar- hrepps er sala á hlutabréfum hreppsins í Hraðfrystistöð Þórs- hafnar hf. Áður fyrr var fjárhagsleg staða sveitarfélagsins fremur nei- kvæð og hefur því orðið stór breyt- ing til hins betra í þeim efnum og sannar það öðru fremur að stefna núverandi hreppsnefndar er í rétta átt._ Á þessum hátíðarfundi hrepps- nefndar kom margt fram, m.a. að söguritari vinnur nú að ritun byggðasögu Langnesinga og fyrir- hugað er að fyrri hluti hennar verði útgefinn næsta haust. Ennfremur var samþykkt á fundinum að sveit- arfélagið sæki um aðild að nor- rænni vinabæjarkeðju með Græn- land og Færeyjar í huga sem vinabæi. Á þessum hátíðarfundi samþykkti hreppsnefnd einnig að huga að endurbyggingu gömlu vatnsþróarinnar á Þórshöfn og minnast um leið eins síðasta vatns- bera landsins, Valda Fúsa. Atvinnulíf í blóma Miklar framkvæmdir á vegum sveitarfélagsins standa nú yfir og er þar stærst bygging íþróttahúss en einnig eru í byggingu tvö einbýl- ishús og fjórar íþúðir en mikil hús- næðisekla hefur háð mögulegri íbúa- flölgun í sveitarfélaginu um nokkum tíma. Gangstéttalagning og gerð göngustíga stendur einnig yfir. Það sem öðru fremur hefur einkennt daglegt líf hér á Þórshöfn á þessu ári, einkum í sumar, er mjög mikil atvinna og athafnasemi, hvert sem litið er. Á tímabili vom um 30 að- komnir iðnaðarmenn við ýmis störf hér í plássinu og kvartar því enginn yfir deyfð og aðgerðarleysi á þessum tímum hér á Þórshöfn. Morgunblaðið/Davíð Pétursson FRÁ þingmannafundinum á Vesturlandi. Þingmannafundir á Vesturlandi Grund - Öflug byggð við aldamót var yfirskrift fundar sem alþingis- mennirnir Guðjón Guðmundsson og Sturla Böðvarsson boðuðu til á Hvanneyri föstudaginn 19. septem- ber sl. Dagskrá fundarins var þannig að að loknu ávarpi þingmannanna flutti Ólafur Sveinsson hagverk- fræðingur framsögu undir yfir- skriftinni Staða- svæðisins metin - Yfirlit um þróun atvinnulífs og byggða. Næsti dagskrárliður bar yfirskriftina Veikar og sterkar hlið- ar Borgarfjarðar, Akraness og Borgarbyggðar til eflingar atvinnu- lífs og voru frummælendur Jónas Bjamason, forstöðumaður Hag- þjónustu landbúnaðarins, og Guð- rún Pétursdóttir, forstöðumaður Sjávarútvegstofnunar. Að framsöguerindum loknum og ágætum viðurgjörningi í kaffíhléi voru frjálsar umræður og almenn þátttaka í þeim. Að lokum drógu þingmenn niðurstöðu fundarins saman og svöruðu að nokkru því sem að þeim var beint. Almenn ánægja var með þetta framtak þingmannanna en svipaðir fundir verða haldnir í Gistiheimilinu Höfða, Ólafsvík, laugardaginn 27. september og Dalabúð í Búðardal mánudaginn 6. október. Byggiiig hafin á nýrri sundlaug í Stykkishólmi Stykkishólmi - Fyrsta skóflustung- an að nýrri sundlaug í Stykkishólmi var tekin föstudaginn 19. september sl. Verkið á að ganga fljótt og vel. Byggja á búningsaðstöðu, 60 fer- metra innisundlaug og 25 m útilaug með rennibrautum og heitum pott- um. Kostnaður við þessar fram- kvæmdir er áætlaður yfir 100 millj- ónir króna. Fyrsti áfangi, sem er jarðvegs- skipti, var boðinn út fyrir nokkru. Lægsta tilboð í það verk kom frá Kolbirni Björnssyni í Stykkishólmi og var 52,7% af kostnaðaráætlun. Stykkishólmsbær gekk að tilboðinu og hafa verið undirritaðir samning- ar. Hér er um mikið verk að ræða. Flytja þarf í burtu 6.300 rúmmetra af mold og leir og setja í staðinn uppfyllingu, 7.000 rúmmetra. Verk- lok í jarðvegs- og lagnavinnu er 1. desember nk. Það var margt manna sem mætti við íþróttamiðstöðina er fyrsta skófl- ustungan var tekin. Ólafur Hilmar Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason FYRSTU skóflustungu að nýrri sundlaug í Stykkishólmi tóku unglingarnir Hrefna Dögg Gunnarsdóttir og Rúnar Gunnarsson en þau hafa verið dugleg að æfa og keppa í sundi fyrir Umf. Snæfell. Á myndinni með þeim er María Valdimarsdóttir sund- þjálfari og Ólafur Hilmar Sverrisson bæjarsljóri. Sverrisson bæjarstjóri lýsti fyrirhug- taka fyrstu skóflustunguna. Að því uðum framkvæmdum og bað ungl- loknu hóf verktakinn framkvæmdir inga í sundliði Umf. Snæfells að við jarðvegsskiptin. Morgunblaðið/Áki Guðmundsson STARFSMAÐUR Malar- vinnslunnar hf. að störfum við að leggja slitlag á götur á Bakkafirði. Fram- kvæmdir í gatnamálum Bakkafirði - Gífurlegt átak hefur staðið yfir í gatnamálum Bakka- fjarðar undanfarnar vikur. Lagt hefur verið bundið slitlag á 80% af gatnakerfi þorpsins og Vegagerð ríkisins lagði nýtt slitlag á þjóðveg- inn sem liggur í gegnum þorpið. Áður en hægt var að setja bundna slitlagið á þurfti undirlag á allar götur og setja þær í réttar hæðir. Vegagerð ríkisins bauð út allar lagnir á slitlagi á Austurlandi í einu og Malarvinnslan hf. frá Egilsstöð- um fékk verkið. Malarvinnslan hf. er búin að vera að vinna um allt Austurland síðan í byijun maí þeg- ar hún kom hingað í lok ágúst og var búin hér 19. september sl. í samtali við Steinar Hilmarsson, oddvita, kom fram að hlutur Skeggjastaðahrepps í framkvæmd- inni væri á milli 3-4000 m2 og að samið hafði verið beint við Malar- vinnsluna hf., einnig að heildar- kostnaður við þessa framkvæmd alla er um 10 milljónir króna. Til marks um umfang þessarar framkvæmdar sagði Sigþór Sig- urðsson hjá Malarvinnslunni hf. að það þurfi 1200 lítra af tjöru og 120 m3 af klæðningarmöl í xh km af 6 m breiðum vegi af nýlögn en af nýlögn voru rúmir 2 km og af yfir- lögn um 5 km en í hana þarf helm- ingi minna. Það er því niðurstaða fréttaritara að það fóru um 108.000 lítrar af tjöru og um 1.080 m3 af klæðingarmöl, það eru um 167 vönibílsfarmar. I framhaldi af þessari fram- kvæmd á að skipta um ljósastaura og taka niður loftlínu sem þeim fylgir og setja nýja ljósastaura við aðalgötuna og setja gangstétt við eina götu líka. Ásjóna þorpsins mun taka miklum breytingum til batnað- ar þegar þessar miklu framkvæmd- ir eru búnar. Fyrsta djáknavígslan í Skálholti í 400 ár Fyrsta konan vígð til kirkjulegra starfa Selfossi - Guðrún Eggertsdóttir djákni var vígð í Skálholtskirkju á sunnudag af séra Sigurði Sigurð- arsyni vígslubiskupi. Guðrún er fyrsta konan sem fær vígslu í Skál- holtskirkju til kirkjulegra starfa og vígslan á sunnudag var fyrsta djáknavígslan í 400 ár í Skálholti. Vígsluvottar voru séra Guð- mundur Óli Ólafsson, sóknar- prestur í Skálholti, séra Svavar Stefánsson, sóknarprestur í Þor- lákshöfn, séra Jón Ragnarsson Hveragerði og Sigríður Valde- marsdóttir, djákni í Fríkirkjunni í Hafnarfirði ojg formaður Djáknafélags Islands. Guðrún Eggertsdóttir hefur verið ráðin til starfa við Þorláks- kirkju, Sjúkrahús Suðurlands, Heilsustofnun í Hveragerði og dvalarheimilið Kumbaravogi. Starf hennar er samstarfsverkefni innan prófastdæmisins en þetta er í fyrsta sinn sem djákni er ráð- inn með þessu fyrirkomulagi. „Mér líst vel á starfið, ég byij- aði 1. september og þetta er nýtt starf sem þarf að móta og fólkið að læra á að ég er til staðar,“ sagði Guðrún. Hún er ákveðna daga á hveijum stað og sinnir sálgæslu við sjúklinga, aðstand- endur og starfsfólk eftir þörfum. Þá er hún með bænastundir á stærstu stofnununum þar sem lögð er áhersla á fyrirbænir, þögn og íhugun. Morgunblaðið/Sig. Jóns. NÝVÍGÐUR djákni, vígslubiskup og vottar, að lokinni vigslu. í aftari röð eru séra Svavar Stefánsson, séra Jón Ragnarsson og séra Guðmundur Óli Ólafsson. Fyrir framan eru Guðrún Eggertsdóttir, nývígður djákni, séra Sigurður Sigurðarson, vígslubiskup í Skálholti, og Sigríður Valdemarsdóttir djákni. Nýr tölvuskóli á Selfossi Selfossi - Nýverið var settur nýr tölvuskóli á Selfossi, Tölvuskóli Suð- urlands. Skólinn er fyrsti tölvuskólinn á Suðurlandi en ásamt almennu tölvu- námi býður Tölvuskóli Suðurlands upp á bókhalds- og rekstramám. Eigandi Tölvuskóla Suðurlands er Valtýr Pálsson. Að sögn Valtýs leggst reksturinn vel í hann. Hann segir skólann hafa fengið góðar við- tökur og hafa skráningar á nám- skeið farið fram úr björtustu vonum. Valtýr segir að þörfin fyrir almennt tölvunám sé mikil. Fólk á öllum aldri hefur sótt þau námskeið sem nú þegar eru farin af stað, hvort sem um er að ræða námskeið fyrir byij- endur eða þá sem lengra eru komnir. Morgunblaðið/Sig. Fannar VALTÝR Pálsson leiðbeinir nemendum Tölvuskóla Suðurlands.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.