Morgunblaðið - 25.09.1997, Qupperneq 20
20 FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1997
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
ÚRVERINU
Morgunblaðið/Golli
ESTER Gísladóttir með beinlausu túnfisksteikurnar sem Hag-
kaup bauð upp á í gærmorgun. Upp úr hádeginu voru síðustu
kílóin að klárast.
Túnfiskurinn
seldist upp á
skömmum tíma
TÚNFISKURINN, sem Heimaey
VE fékk í trollið í síðustu viku og
var seldur á Fiskmarkaði Vest-
mannaeyja í fyrradag, var kominn
í allar verslanir Hagkaups í gær-
morgun, í Reykjavík, Njarðvík og
á Akureyri. Voru viðbrögðin afar
góð og upp úr hádeginu var allt
að klárast. Fiskbúðin Sæbjörg
keypti fiskinn fyrir Hagkaup en
þess má geta að áhöfnin á Heimaey
gaf andvirði hans til deildar
Krabbameinsfélags íslands í Vest-
mannaeyjum og Sæbjörg og Hag-
kaup ætla hvort um sig að leggja
það sama af mörkum til deildarinn-
ar.
Árni Ingvarsson hjá Hagkaupi
sagði að fiskurinn hefði vegið heill
225 kíló en þegar búið hefði verið
að skera hann og snyrta í bein-
lausar steikur, hefðu það verið um
100 kg, sem boðið var upp á. Tún-
fískur er víða um lönd, ekki síst í
Japan, einhver dýrasta matvara á
markaðnum en Árni sagði að ákveð-
ið hefði verið að selja hann á 998
kr. kílóið. Til samanburðar nefndi
hann, að Hagkaup hefði flutt inn
með flugi á síðasta ári ferskan tún-
fisk frá Oman og hefði hann verið
seldur á 2.500 kr. kg og selst vel.
Túnfískur er afar ljúffengur
matur, ýmist pönnusteiktur eða
grillaður en Árni sagði að varast
bæri að steikja hann of mikið.
Eins og fyrr segir ákvað áhöfnin
á Heimaey að gefa andvirði físks-
ins, 79.000 kr., til Krabbameins-
deildarinnar í Eyjum og Árni sagði
að Sæbjörg hefði ákveðið að jafna
þá upphæð og Hagkaup einnig.
Rauðsíða kaupir frystihús Trostans
Stefnt að helmings
fjölgun starfsfólks
FISKVINNSLUFYRIRTÆKIÐ
Rauðsíða á Þingeyri hefur stofnað
dótturfyrirtækið Rauðfeld ehf., sem
keypt hefur frystihús og tækjabún-
að Trostans á Bíldudal. Kaupverðið
hefur ekki fengist uppgefíð.
Fyrr í sumar var gengið frá kaup-
um Rauðsíðu ehf. á eignum Fáfnis
hf. á Þingeyri, sem Byggðastofnun,
Fiskveiðasjóður og Landsbanki ís-
lands leystu til sín nokkru áður.
Eigendur Rauðsíðu og dótturfélags-
ins Rauðfelds eru Eyþór Haralds-
son, framkvæmdastjóri afurðasölu-
fyrirtækisins Norfísk hf. í Reykja-
vík, Guðmundur Franklín Jónsson,
verðbréfasali í New York, og Ingi-
björg Vagnsdóttir, eiginkona Ketils
Helgasonar, framkvæmdastjóra
Rauðsíðu og Rauðfeldar. Hann rek-
ur einnig Bolfísk hf. í Bolungarvík
sem sérhæft hefur sig í vinnslu
Rússafisks. Norfísk selur svo afurð-
ir fyrirtækjanna. Eyþór og Ingi-
björg eiga 45% hlut í fyrirtækjunum
og Guðmundur 10%.
Reiknum með að
hafa nóg hráefni
Að sögn Ketils er stefnt að veru-
legri fjölgun starfsmanna í frysti-
húsinu á Bíldudal. Um það bil tutt-
ugu manns hafi unnið þar að stað-
aldri undanfarið, en gert er ráð
fyrir að starfsmenn verði 40 til 50.
„Við munum aðallega byggja
vinnsluna á Rússafiski. Sömuleiðis
á viðskiptum við heimabáta auk
þess sem við komum til með að
verða eitthvað á uppboðsmörkuð-
um. Við reiknum með því að hafa
nóg hráefni til að vinna í frystihús-
unum á Þingeyri og á Bíldudal.
Okkur líst mjög vel á þetta, hefðum
ekkert farið í þetta annars," segir
Ketill.
Einbeitir sér að vinnslu
rækju á Brjánslæk
Aðspurður um tildrög kaupanna,
svaraði Ketill því til að Eiríkur
Böðvarsson, eigandi og fram-
kvæmdastjóri Trostans, hafí viljað
einbeita sér í meiri mæli að rækju-
vinnslu á Bijánslæk en verið hefði.
„Við sáum okkur þarna leik á borði
með því að kaupa frystihúsið af
honum og hann kemur svo í staðinn
til með að efla rækjuvinnslu sína á
Bijánslæk verulega." Eiríkur Böð-
varsson hefur keypt togarann
gamla Lóm frá Hafnarfirði, en hann
heitir nú Geysir BA og hyggst gera
hann út á rækju.
Borís Jeltsín gagnrýnir öflug fjármálafyrirtæki
Vill að ríkið gegni auknu
hlutverki í efnahagslífinu
Varað við uppgangi glæpamanna í stjórnkerfinu
Moskvu. Reuter.
BORÍS Jeltsín, forseti Rússlands,
sagði í gær að ríkisvaldið ætti að
gegna auknu hlutverki í rússneska
efnahagslífínu til að tryggja að
sanngirni og réttlætis yrði gætt en
lagði áherslu á að
stjórnin myndi ekki
falla frá þeirri stefnu
að byggja upp fijálsan
markaðsbúskap. For-
setinn lofaði ennfremur
að herða baráttuna
gegn spillingu í landinu
og varaði við því að
glæpasamtök gætu
spunnið spillingarnet
sín í hveijum krók og
kima stjórnsýslunnar.
Ræða Jeltsíns þótti
endurspegla verulegar
breytingar í rússnesk-
um stjórnmálum frá því
forsetinn var endur-
kjörinn fyrir tæpum 15
mánuðum. Jeltsín lýsti
því m.a. yfir að Rúss-
landi stafaði ekki lengur hætta af
því að kommúnistar kæmust aftur
til valda. Hann sagði að efnahags-
kreppunni, sem ríkt hefur í Rúss-
landi frá hruni Sovétríkjanna 1991,
væri nú einnig lokið og lofaði hag-
vexti á næsta ári.
„Markaðurinn er ekki
allra meina bót“
„Við þurfum nýja efnahagsskip-
an og til þess þurfum við öflug og
skörp yfirvöld, sterkt ríkisvald,"
sagði Jeltsín í ræðu sem hann flutti
á setningarfundi Sambandsráðsins,
efri deildar rússneska þingsins.
„Allir eru nú sammála um að við
þurfum að auka hlutverk ríkisvalds-
ins í efnahagslífinu og við hyggj-
umst framfylgja þeirri stefnu,“
sagði forsetinn en bætti við að þetta
jafngilti ekki afturhvarfi til miðstýr-
ingarstefnunnar sem framfylgt var
á valdatíma sovéskra kommúnista.
„Þetta er afturhvarf til ígrundaðrar
efnahagsstefnu."
Forsetinn bætti við að fijálsi
markaðsbúskapurinn hefði fært
Rússland úr efnahagskreppunni
sem fylgdi hruni sovéska kommún-
ismans og efnahagshorfurnar væru
nú bjartar. „1998 ætti að verða
tímamótaár, ár hagvaxtar."
Jeltsín sagði tímabært að tryggja
meiri samhæfingu í
efnahagslífinu og
hann gagnrýndi öflug
fjármálafyrirtæki, sem
mörg hver studdu for-
setann í kosningunum
fyrir rúmu ári. Nokkur
þeirra hafa gert harða
hríð að stjórninni að
undanförnu vegna
deilu um sölu ríkis-
eigna.
„í upphafi umbót-
anna voru markaðsöfl-
in einu öflin sem gátu
komið okkur út úr
efnahagskreppunni,“
sagði hann. „En til að
tryggja varanlegan
hagvöxt nægir mark-
aðsfrelsið ekki eitt og
sér. Við þurfum nýja efnahagsskip-
an. Markaðurinn er ekki allra meina
bót. í öllum siðmenntuðum löndum
starfa markaðsöflin og ríkisvaldið
í sátt og samlyndi."
Vilja sporna við
einokun
Ummæli forsetans komu ekki á
óvart. Fijálslyndir umbótasinnar í
stjórninni hafa beitt sér fyrir því
að ríkisvaldið láti meira til sín taka
í efnahagslífinu, eins og til að
mynda í Þýskalandi, meðal annars
til að spoma við einokunartilburð-
um stórfyrirtækjanna.
„Stjórnin setur skýrar og sann-
gjarnar reglur um efnahagslega
framgöngu. Við ætlum að tryggja
að allir fari eftir þessum reglum —
stórfyrirtækin jafnt sem smáfyrir-
tækin og ríkið sjálft,“ sagði Jeltsín.
Hann bætti við að ekki yrði látið
viðgangast að embættismenn hag-
ræddu reglum markaðarins í þágu
eigin hagsmuna eða bandamanna
sinna, en nokkrir bankastjórar hafa
sakað umbótasinna í stjóminni um
að hafa gengið erinda ákveðinna
ijármálamanna á kostnað annarra.
Anatolí Tsjúbajs, fyrsti aðstoðar-
forsætisráðherra Rússlands, gagn-
rýndi einnig rússneska ijármála-
menn og forstjóra stórfyrirtækja á
blaðamannafundi í tengslum við
ársfund Alþjóðabankans og Al-
þjóðagjaldeyrissjóðsins í Hong
Kong. Hann sagði að rússneska
stjórnin væri reiðubúin að knýja
fram nýjar reglur um sölu ríkisfyrir-
tækja og umbætur til að auka sam-
keppnina í viðskiptalífinu, þrátt fyr-
ir andstöðu nokkurra stórfyrir-
tækja.
Herferð boðuð gegn
glæpamönnum
Jeltsín sagði við fréttamenn eftir
ræðuna að glæpasamtök stefndu
rússneska stjórnkerfinu í alvarlega
hættu. „Þau geta teygt anga sína
í hvern krók og kima nema allt
samfélagið sameinist í baráttunni
gegn þessu vandamáli."
Forsetinn kvaðst hafa sent emb-
ættismenn til að rannsaka mál
Gennadís Konjakhíns, fjármála-
manns sem gerst hefur borgarstjóri
Lenínsk-Kúznetskí í Síberíu. Rúss-
neskir fjölmiðlar hafa lýst borgar-
stjóranum sem glæpamanni er hafi
valdið ógnaröld í borginni en Konj-
akhín segir ekkert hæft í þeim ásök-
unum. Jeltsín hvatti til þess að sett-
ar yrðu reglur sem kæmu í veg
fyrir að dæmdir sakamenn gegndu
opinberum embættum.
Stjórnin hélt einnig áfram bar-
áttu sinni gegn spillingunni í gær
og Anatolí Kúlíkov innanríkisráð-
herra sendi neðri deild þingsins,
Dúmunni, lista með nöfnum 50
þingmanna sem hann sagði að væru
á sakaskrá. Að sögn fréttastofunn-
ar Interfax er mannréttindafrömuð-
urinn Sergej Kovaljov nefndur á
listanum, en honum var haldið í
sovéskum fangabúðum í mörg ár
fyrir „áróður gegn ríkinu". Valentín
Varenníkov hershöfðingi, sem af-
plánaði nokkurra mánaða fangelsis-
dóm fyrir aðild að valdaránstilraun
harðlínukommúnista árið 1991, er
einnig á listanum.
Reuter
BORÍS Jeltsín,
forseti Rússlands.
Tollfrjáls verzlun inn-
an ESB afnumin 1999
Brussel. Reuter.
FRAMKVÆMDASTJÓRN Evrópu-
sambandsins (ESB) útilokaði í gær
að hopað yrði frá fyrri ákvörðun
um að leggja niður tollfrjálsa verzl-
un innan ESB um mitt ár 1999,
þrátt fyrir mikinn þrýsting frá
hagsmunaaðilum sem vilja að þessi
starfsemi fái að haldast óbreytt.
Mario Monti, sem fer með málefni
innri markaðarins í framkvæmda-
stjórninni, hvatti í gær þá sem reka
fríhafnarverzlanir til að heíja undir-
búning þess að breyta verzlunum
sínum í venjulegar búðir sem greiða
sömu gjöld af veltunni og aðrir
verzlunarrekendur.
Afleiðingarnar verði
kannaðar
Mary O’Rourke, samgönguráð-
herra Irlands, hvatti í gær til þess
að horfið yrði frá ákvörðuninni.
Sagði O’Rourke afleiðingar þess
geta orðið mjög neikvæðar. í ræðu
sem hún hélt á ráðstefnu um málið
í Brussel sagði ráðherrann að toll-
fijáls verzlun hefði lagt mikið af
mörkum til afkomu ferðamanna-
þjónustunnar og ekki sízt atvinnu-
tækifæra í þeirri atvinnugrein.
„Með tilliti til mikilvægis hennar
verðum við að skoða afleiðingar
afnáms tollfrjálsrar verzlunar fyrir
ferðamennsku innan Evrópusam-
bandsins,“ sagði O’Rourke og hvatti
framkvæmdastjórnina til þess að
kanna til hlítar hvaða afleiðingar
þetta skref myndi hafa.
Fjármálaráðherrar ESB tóku um
það einróma ákvörðun 1991 að toll-
fijáls verzlun fyrir ferðamenn innan
ESB skyldi afnumin fyrir lok júní-
mánaðar 1999. Til þess að hnekkja
þessari ákvörðun þyrftu ráðherr-
arnir að ná einróma samkomulagi
um nýja ákvörðun.
Skekkir samkeppni
Monti sagði í yfírlýsingu, sem
hann gaf út í tilefni af ráðstefn-
unni, að hagsmunaaðilar hefðu feng-
ið sjö og hálfs árs aðlögunarfrest.
„Það er kominn tími til að þið notið
þennan frest á uppbyggilegan hátt
í stað þess að reyna að snúa klukk-
unni til baka,“ segir í yfírlýsingunni.
Segir Monti tollfijálsu verzlunina
njóta skattfríðinda að upphæð 160
milljarða ísl. kr. á ári og þetta
skekki samkeppni í verzlun. Ekki
kæmi til greina af hálfu fram-
kvæmdastjórnarinnar að nokkur
frekari frestur verði veittur.
„Ákvörðuninni verður ekki
breytt. Það er kominn tími til að
flugfélög, þjónustuaðilar á flugvöll-
um og þeir sem reka feijur, sem
og framleiðendur tóbaks og áfeng-
is, að takast á við raunveruleikann
og fjárfesta skynsamlega til að vera
búnir undir breytingarnar 1999.“