Morgunblaðið - 25.09.1997, Qupperneq 26
T£ tggi naaManaa .22 HUOÁQUTMMia
26 FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1997
GIGAJHVTITOflnM
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Nýttog
þó gamalt
í frönsku riti
TONIIST
Listasafn íslands
KAMMERTÓNLEIKAR
UNM tónleikar með verkum eftir
Peter Bruun, Jesper Nordin, Morten
Danielsen, Edina Hadziselimovic,
Timo Virtanen og Jexper Holmen.
Flytjendur islenskir og erlendir nem-
endur. Stjóraandi: Guðmundur
Hafsteinsson. þriðjudagurinn
23. september, 1997.
„EKKERT er nýtt undir sólinni"
var einu sinni sagt og má segja
að það hafi einkennt tónleika unga
fólksins sl. þriðjudag í Listasafn-
inu. Tónleikarnir hófust á söngv-
erki eftir Peter Bruun, er hann
nefnir Alle ting er hans spejl við
kvæði eftir Jörgen Gustava
Brandt. Verkið er ritað fyrir
Mezzo-sópran Klarinett, tilhaft
píanó, slagverk lágfiðlu og kontra-
bassa. Sönglínan er nær alveg tón-
tegundabundin og byggir mikið á
brotnum hljómum og mátti jafnvel
heyra stef eins do-mí-so-la og
fleira í þeim dúr. Á móti þessu er
nokkuð unnið með slag-effekta
bæði á strengi og píanóið og auð-
vitað á slaghljóðfæri, þannig að
umgerð sönglínunnar var oftlega
skemmtilega hljómandi. Flytjendur
léku með prýði undir stjórn Guð-
mundar Hafsteinssonar og þó ekki
reyndi mikið á söngkonuna, Jó-
hönnu S. Halldórsdóttur, sýndi hún
sig vera efnileg söngkona.
Segja má, að þrátt fyrir gamal-
kunnar tónhendingar, var verkið í
heild bæði fallega hljómandi, jafn-
vel sérkennilegt og ólíkt því sem
gat að heyra í þeim verkum sem
á eftir komu. Þar var verið að fást
við atriði sem voru af nýrri gerð-
inni fyrir 30 til 40 árum. Enda
eðlilegt að ungur tónhöfundur beri
merki kennslunnar og taki mið af
reynslu kennarans. Þau verk sem
falla undir þessi álög eru Departing
Water, fyrir flautu og píanó, eftir
Nordin, Situation, fyrir píanó, eftir
Danielssen, Syntymát, þtjú söng-
lög fyrir mezzo-sópran og píanó,
eftir Virtanem og Crystals, tveggja
þátta verk fyrir fiðlu og píanó,
eftir Holmen. Öll verkin voru að
mörgu leyti vel unnin og voru einn-
ig vel flutt.
Tónleikunum lauk með strengja-
kvartett eftir Hadziselimovic, frá
Saijevo. Verkið er í þremur þáttum
og hver þáttur mjög skýrt mótaður
með einföldum leikaðferðum.
Fyrsti kaflinn var mjög einfaldur
og þar brá fyrir alls konar stefjum
og tóneffektum en annar þátturinn
var að mestu leyti leikinn pizzicato
og þrátt fyrir einfaldleikann, var
hann á köflum skemmtilegur
áheyrnar. Síðasti þátturinn var
kraftmestur en þar var meira að
heyra af þekktum tóntiltektum frá
tilraunatímanum fyrir þrem til
fjórum áratugum.
Flytjendur voru að mestu leyti
íslenskir tónlistarnemar og stóðu
allir flytjendur sig með prýði og
mun síðar gefast tími til að fjalla
um það sem þeir hafa að gefa, er
þeir hafa lokið námi og koma fram
sem fullþroskaðir listamenn.
Jón Ásgeirsson
TÍMARITIÐ Pandora, sem er
evrópskt menningartímarit gefið
út í Frakklandi, hefur sent frá
sér ritið Poésie au visage multi-
colore þar sem saman fara ljóð-
list og myndlist.
Höfundar ljóðanna eru Vang-
elis Georgoudis og Catherine
Fabre og birtast þau á frönsku
og ítölsku. Myndlistarmennirnir
eru margir heimskunnir. Meðal
þeirra eru Salvador Dalí, An-
tonio Tapies og Oskar Kokosc-
hka. Norrænir listamenn, sem
eiga verk í ritinu, eru Ulf Nilsen,
Dagfinn Bakke, Juhana
Blomstedt, Ulla Rantanen og
Tryggvi Ólafsson. Mynd
Tryggva nefnist Til Pandoru.
I tímaritinu Pandoru hafa
birst verk eftir íslenska höfunda
í frönskum þýðingum og þar
hefur verið skrifað um íslenskar
samtímabókmenntir. Ritið er til
húsa í 4, Cours des Longs Prés,
92100 Boulogne France.
Fyrirlestraröð í Þjóð-
minjasafni Islands
Himna-
drottning
og helgir
menn
ÞJÓÐMINJASAFN íslands efnir til
fyrirlestraraðar um efni á sýning-
unni Kirkja og kirkjuskrúð - Mið-
aldakirkjan í Noregi og á Islandi í
Þjóðminjasafni Islands. Sýning þessi
er eitt þeirra viðfangsefna sem fengu
fjárveitingu úr norsk-íslenska menn-
ingarsjóðnum en þann sjóð stofn-
settu Norðmenn í tilefni af fimmtíu
ára afmæli íslenska lýðveldisins.
Þóra Kristjánsdóttir, listfræðing-
ur á Þjóðminjasafni, ríður á vaðið í
dag og flytur erindi sem hún nefnir
Himnadrottning og helgir menn. Þar
talar Þóra um listbúnað kirkna á
miðöldum.
Fimmtudaginn 2. október mun
Elsa F. Guðjónsson, fyrrverandi
deildarstjóri textíl- og búningadeild-
ar, halda fyrirlesturinn íslensk
kirkjuklæði á miðöldum. Þar fjallar
Elsa m.a. um altarisklæðin íslensku
sem eru einstök í sinni röð.
Fimmtudaginn 9. október talar
Hjörleifur Stefánsson, arkitekt, um
kirkjubyggingar hér á landi. Erindið
nefnir hann íslenskar miðaldakirkjur
og íjallar þar um líkan af íslenskri
miðaldadómkirkju sem smíðað var í
tilefni þessarar sýningar en jafn-
framt um gerð og uppsmíð líkansins
af litlu miðaldakirkjunni.
Allir fyrirlestrarnir hefjast kl. 17
og að þeim loknum gefst tækifæri
til þess að skoða sýninguna.
Síðasti sýningardagur er Iaugar-
dagurinn 18. október en þá verða
allir munirnir fluttir til Noregs þar
sem sýningin verður opnuð á nýjan
leik í Norsk Folkemuseum á Bygdoy
um miðian nóvember.
Icewear —
vegna flutninga
Allar Coral barna- og fullorðinspeysur seldar á kr. 750.
Eldri lagerar af ýmsum vörum á mjög hagstæðu verði kr. 150—3.900.
Útsalan stendur aðeins dagana 25. september — 4. október.
OPNUM í DAG
lcewear, Skútuvogi 13A, 104 Reykjavík.
Við erum bakvið Bónus gegnt Húsasmiðjunni.
Opnunartími kl. 12.00—18.00
— laugard. kl. 10.00—16.00
Sæbraut
D cn (l) £ Húsasmiðjan
Súöarvogur 03 L— E co Q- Q. 0) Skútuvogur
c Bónus
Hér erum við
Komiö og geríö frábær kaup