Morgunblaðið - 25.09.1997, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 25.09.1997, Qupperneq 28
28 FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR Pattstaða í menntun ÞEGAR þessi orð eru rituð hefur verið samið við kennara í leikskól- um og framhaldsskólum. Grunn- skólinn er enn í uppnámi og alls- endis óljóst hveijar lyktir verða. Hitt liggur þó fyrir að fjöldi kenn- ara hefur sagt upp störfum með eðlilegum fyrirvara. Vissa mín er sú að drjúgur hluti þeirra muni ekki snúa aftur til starfa. Ástæður eru margar. Helst ber þar auðvitað að nefna hin lágu laun eða um 70.000 krónur í byijunarlaun eftir þriggja ára háskólanám! í haust hafði ungur maður, nýkominn með kennararéttindi, ráðið sig til starfa við grunnskóla á Suðurnesjum. Hann langaði til að starfa með börnum. Skömmu fyrir upphaf skóla hringdi hann í skólastjórann og sagðist því miður verða að hætta við: „Eg hef ekki efni á að verða kennari.“ Ungi maðurinn hafði unnið sem vaktmaður við gæslu mannvirkja í sumar og reiknaði út að um áramót væri hann búinn að ná í því starfi árs- launum kennarans. Mér er kunnugt um kennara sem sagt hefur upp störfum eftir tæp- lega tveggja áratuga farsælt starf. Þessi kennari segist í raun vera búinn að sætta sig við lágu launin. Á móti þeim vegi hversu skemmti- legt starfíð sé. „Ég er hins vegar búin að fá mig fullsadda af því að þurfa eilíflega að verja starf mitt gagnvart árásum og fordómum foreldra og fólks úti í samfélag- inu.“ Hvaða áhrif til lengdar hefur það ef hugsjónafólk í kennarastörf- um hverfur úr skólunum? Hafa menn leitt hugann að því hveijir hafa verið og verða ráðnir í stað- inn? Hvaða langtímaáhrif verða af því þegar enginn kennari fæst í heila bekkjardeild eins og staðan er við nokkra skóla í dag? Ég hygg að þessi dæmi séu nokkuð lýsandi fyrir stöðu mála. Áhugasamt fólk, sem kýs að sinna menntun barna okkar, er að gefast upp vegna láglaunastefnu og fjandsamlegs viðmóts í samfélag- inu gagnvart störfum þeirra. Hugsanlega erum við að buga kennarastétt- ina sem við þó þurfum að reiða okkur á. Þetta er mótsögn enda virð- ist eftirlit með mann- virkjum helmingi bet- ur metið til launa held- ur en umönnun og uppeldi bama okkar. Er þetta hin fram- sækna menntaþjóð? Nöturlegar staðreyndir Þegar öllu er á botn- inn hvolft ættu þessi tíðindi ekki að koma okkur á óvart. Skóla- mál þjóðarinnar hafa verið í patt- stöðu um áratugaskeið. Veldur þar margt en fyrst og fremst takmark- aður vilji þjóðarinnar til að trúa því að góð menntun skili okkur fram- förum og betra mannlífi. Við þekkj- um reyndar fagurgala tyllidaganna um gildi vel menntaðrar æsku. Hann skiptir í raun engu máli þeg- ar efndir eru í hrópandi mótsögn. Fyrir vikið höfum við leitt yfir okk- ur vandræðalegt ástand hvað varð- ar menntun þjóðarinnar. Lítum aðeins á nokkrar stað- reyndir. Framlög hins opinbera til menntamála hafa löngum verið á íslandi með því lægsta sem þekk- ist innan OECD. Hvað varðar framlög íslenskra fyrirtækja til endurmenntunar verma íslending- ar hið vafasama botnsæti með 0,17% af launaveltu meðan Grikkir koma næstlægstir með 0,79% (Danir með um 5%). Þrátt fyrir áralanga umræðu um mikilvægi starfsmenntabrauta hefur lítið orð- ið ágengt í þeim efnum. Tölvudeild háskólans er í uppnámi vegna þess að brösuglega gengur að fá kenn- ara. Öllum ætti að vera í fersku minni útkoma okkar í TIMMS- könnuninni þar sem samanburður við aðrar þjóðir var okkur mjög í óhag. Viðbrögðin voru skondin í meira lagi og mátti heyra einfaldar skýringar á hinni dapurlegu út- komu. Hver kannast ekki við orrahríð í garð kennara í fjölmiðlum, á vinnustöðum og jafnvel inni á heimilum í viðurvist barna? Og svo segjumst við vilja skipa menntun í önd- vegi. Líklega hafa allir stjórnmálaflokkar í stefnuskrám sínum metnaðarfull orð um öndvegi menntunar og má segja að sá mála- flokkur hafi verið áberandi við síðustu kosningar, bæði til Alþingis og sveitar- stjórna. Að vanda hefur stjómar- andstaða hamast mjög á ríkisstjórn fyrir slælega framgöngu í þessum málaflokki. Þetta er í raun ekkert nýtt því allir flokkar inni á Alþingi Framfarir eru hvergi meiri en á Tævan, segir Hjálmar Arnason, en þar er menntun í hávegum höfð. hafa setið í ríkisstjórn (utan Kvennalista) síðustu kjörtímabil og söngurinn ávallt verið sá sami. Flokkarnir bera í raun allir ábyrgð á stöðunni hvað varðar Alþingi og kemur skýrast fram á sveitar- stjórnarstiginu. Nú er grunnskól- inn á herðum sveitarfélaga. Segja má að allir pólitískir flokkar (þar með talinn Kvennalisti) séu gild- andi í sveitarstjórnarmálum um landið. Þar fæst því ágætur þver- skurður á viljann til að láta hin fögru orð um gildi menntunar koma til framkvæmda. Reyndin er önnur og í raun sú sama og verið hefur um áratugaskeið. Niðurstað- an er því sú að í raun sé takmark- aður pólitískur vilji meðal þjóðar- innar til að láta menntun æskunn- ar vera í þeim forgangi sem stund- um má heyra nefndan. Reyndar tel ég mistök af hálfu samtaka kennara að halda samningum sín- um í hinu árangurslausa kerfí mið- stýringar. Þar með geta sveitar- stjórnarmenn skotið sér undan ábyrgð. Væri ekki vænlegra að halda ábyrgðinni heima í héraði og þannig þvinga sveitarstjórnar- menn til að axla ábyrgð með því að sýna viljann í verki. Er nokkuð að því að sveitarfélög keppi um bestu kennarana? Víkja foreldrar sér undan ábyrgð? En það er líka einföldun að líta bara til framlaga til skólamála. Við stöndum frammi fyrir þeirri staðreynd að skólar eru í vaxandi mæli að taka við uppeldishlutverki heimila. Þá má segja að hveiju því vandamáli, er upp rís í þjóðfélag- inu, sé sópað til úrlausnar inn í skólunum (kynfræðsla, fíkniefni, umferðarfræðsla, einelti, mataræði o.s.frv. o.s.frv.). Hinu má þó aldrei gleyma að frumskyldan er inni á heimilunum. Að mér læðist sá grunur að í mörgum tilvikum skipi menntun þar jafnlágan sess og annars staðar. Ekki skortir okkur foreldra skýringar á „tímaleysi" okkar þegar í hlut á að setjast niður með bömunum og skapa þeim hvetjandi umhverfi til lær- dóms og annars þroska. Mikil vinna, ferðalög, sjónvarpsgláp og tómstundaiðja eiga stundum greið- ari aðgang að tíma okkar en upp- eldishlutverkið með börnunum. Það er svo auðvelt að velta skyld- unni yfir á skólana og kennarana sem við tímum samt ekki að borga sæmilega fyrir. Reynsla mín af skólastarfi hefur lætt þessum grun að mér og sannfært mig nánast um að menntun hefur á of fáum heimilum þann forgang sem við þykjumst kjósa. Tilvistarkreppa kennara? Mín tilfinning er sú að hið óvin- samlega umhverfi, sem þjóðfélagið Hjálmar Árnason hefur skapað skólum, hafi smám saman leitt kennara í harða varnarstöðu. Á milli þeirra og hinna utan skólanna hefur skapast spenna sem gerir ekkert annað en skaða. Segja má að fyrir vikið sé kennarastéttin í nokkurs konar til- vistarkreppu þar sem orkan fer að mestu í kröfu um mannsæmandi laun á kostnað uppbyggjandi skólastarfs. Þegar rætt er um að- hald og eftirlit snýst stéttin til varnar og telur enga aðra þess umkomna að fylgjast með því starfi sem fram fer innan skólanna. Spennan eykst og vandinn eykst og e.t.v. verður vandi okkar mestur ef við rænum kennara starfsgleð- inni. Hvaða áhrif hefur það á börn- in okkar og menntastig þjóðarinn- ar? Ráðuneyti mennta- mála og önnur Menntastig þjóðar er upp- spretta framfara og hamingju. Um það verður ekki deilt. Þær framfarir verða hins vegar ekki mældar á skömmum tíma. Þess vegna hættir okkur ögn til að raða ýmsum verkefnum, sem nær eru okkur í tíma, ofar í forgangsröð. Gildir það jafnt um gæslu mann- virkja, „frið“ á heimili eða fjár- festingu fyrirtækja. Við höfum fram til þessa kosið að hleypa ýmsum þáttum fram fyrir mennt- un barna og þjóðar. Ég trúi að við lok 20. aldar sé orðið nauðsyn- legt fyrir okkur að taka afstöðu til þess inni á heimilum, í skólum, fyrirtækjum og í pólitík hvort við meinum eitthvað með því að mennt sé máttur. Mér er sagt að í Tævan sé stjórnsýsla á þann veg skipulögð að efstur og valdamest- ur sé forseti landsins. Næst undir honum komi menntamálaráðu- neyti og síðan skörinni lægra önn- ur ráðuneyti. Þetta er líklega skýr- asta dæmi um að láta menntun hafa forgang. Fyrir vikið eru framfarir líklega hvergi í heimin- um jafnmiklar og á Tævan og þjóðin hefur fengið þennan skiln- ing sinn á gildi menntunar marg- faldan til baka. Tævan er orðin ein ríkasta þjóð veraldar. Er ekki tími til kominn að tengja? Höfundur er alþingismaður. Óskar Fjóla Jón Þóra Tómasson Bender Snorrason Biering Jafnrétti til náms? Opið bréf til menntamálaráðherra JAFNRÉTTI til náms hefur ver- ið eitt af aðalsmerkjum íslensks þjóðfélags. Réttur fatlaðra til náms á framhaldsskólastigi hefur verið tryggður í lögum um framhalds- skóla frá því lög þar að lútandi voru fyrst sett á Alþingi árið 1987. Sá réttur var svo staðfestur með lögum um framhaldsskóla árið 1992. Því miður er það svo að jafn- rétti til náms er aðeins í orði en ekki á borði: nokkurs konar jafn- rétti - fyrir suma. Í vor var tekin sú ákvörðun, að þroskaheftum og Ijölfjötluðum nemendum skuli aðeins standa til boða tveggja ára nám á framhalds- skólastigi. Nái þau áform fram að ganga munu þessir nemendur ljúka allri skólagöngu 18 ára, á sama tíma og jafnaldrar þeirra eiga kost á fjölbreyttu námi, sem getur verið allt að tíu árum lengra. Furðuleg ákvörðun Þessi ákvörðun vekur furðu ekki síst í ljósi þeirrar umræðu undan- farna mánuði að auka beri og styrkja menntun á íslandi. Þá má ekki gleyma því, að nemendur sem glíma við fötlun af einhveiju tagi þurfa meiri stuðning, kennslu og tíma en aðrir. Þannig búa þeir sig best undir lífið sjálft og þátttöku í atvinnulífinu. Það er áhyggju- efni, að menntun fatlaðra skuli ekki lúta sömu metnaðarfullu hug- myndum og þeim sem nú er rætt um að innleiða í íslenskt mennta- kerfi. Ef ekki verður orðið við kröfunni um aukna, fjölbreyttari og betri menntun fyrir fatlaða, sérstaklega fýrir þá sem eru þroskaheftir og fjölfatlaðir, munu þeir ekki njóta sín. Þeir eins og önnur ungmenni eiga rétt á framhaldsnámi við sitt hæfi og á sínu áhugasviði. I vor útskrifuðust tíu sextán ára Við förum fram á, segja Þóra Biering, Jón Snorrason, Fjóla Bender og Oskar Tómasson, að dreng- irnir tveir fái það sem þeim ber til loka lög- verndaðs skólanáms. þroskaheftir unglingar úr Öskju- hlíðarskóla. Hópurinn átti vel sam- an, hafði myndað traust vináttu- og félagatengsl, enda stundað nám saman nokkra undanfarna vetur. Nú beið unglinganna tveggja ára framhaldsnám í Borgarholtsskóla. Þeir voru að vonum dálítið kvíðnir að fara í annan skóla, í annað umhverfi, því þessir einstaklingar þurfa vegna fötlunar sinnar langa aðlögun að öllum breytingum. f júní kom hins vegar í ljós, að aðeins átta af nemendunum tíu fengu inni í Borgarholtsskóla. Son- um okkar var vísað frá. í engu var getið hvar frekari skólagöngu fyrir drengina var að fá, eins og lög gera þó ráð fyrir. ítrekaðar fyrir- spurnir og bréf til þín persónulega og í ráðuneytið hafa engu skilað. f gegnum aðra höfum við hins vegar spurnir af því, að drengirnir tveir, sem hér um ræðir, geti feng- ið inni í fullorðinsfræðslu fatlaðra. Vinirnir átta byijuðu í skólanum í septemberbyijun, en fullorðins- fræðslan mun síðar. Hvemig eig- um við að útskýra það fyrir drengj- unum, að þeir fái ekki lengur að fylgja vinunum? Hvers vegna var þeim úthýst? Hvers vegna þurfti að tvístra hópnum? Skólameistari Borgarholtsskóla bar við pláss- Ieysi á fundi 18. júní síðastliðinn, en við erum bara að tala um 2 drengi, ekki 20 eða 200, aðeins tvo. Hvers vegna? Við óskum eftir skýringum. Það nægir okkur ekki að bera því við, að það sé í höndum skólastjórn- enda að ákveða hvaða nám er í boði í skólunum fyrir nemendur sem víkja frá eðlilegum þroska og fyrir hversu marga. Það er ekki eingöngu í höndum skólameistar- anna. Hvað með skyldur mennta- málaráðuneytisins samkvæmt lög- um um framhaldsskóla? Við vitum ekki betur en þær skyldur séu ítrekaðar í drögum að reglugerð við lögin. Þar kemur fram svart á hvítu, að ráðuneytið á að sam- þykkja áform um nám eða nám- skrá fyrir fatlaða nemendur, sem einstakir skólar eða skólastjóm- endur gera. Eiga fatlaðir nemend- ur kannski ekki sama rétt á að stunda nám við hæfi á framhalds- skólastigi og jafnaldrar þeirra? Þurfa þeir styttra nám? Hver ber hina endanlegu ábyrgð á því, að allir nemendur fái menntun við hæfi á öllum skólastigum óski þeir þess? Við förum fram á, að drengirnir tveir fái það sem þeim ber í hópi félaganna til loka lögverndaðs skólanáms. Höfundar eru foreldrar fatlaðra drengja.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.