Morgunblaðið - 25.09.1997, Side 29

Morgunblaðið - 25.09.1997, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1997 29 Opið bréf til forsætisráðherra vegna annarlegra vinnubragða í heilbrigðisráðuneytinu MORGUNBLAÐINU hefur bor- ist eftirfarandi opið bréf til for- sætisráðherra frá sex læknum á Sjúkrahúsi Reykjavíkur og Land- spítala: „Reykjavík, 17. september 1997. Hr. Davíð Oddsson, forsætisráð- herra, Stjórnarráðinu við Lækjar- torg. Reykjavík. yirðulegi forsætisráðherra: Á undanförnum mánuðum hafa tvær skýrslur verið birtar á vegum heilbrigðisráðuneytisins þar sem fjallað er m.a. um fyrirkomulag blóðrannsókna og greiningu blóð- sjúkdóma. í báðum þessum skýrsl- um er komist að þeirri niðurstöðu að rannsóknastofur í blóðmeina- fræði (hematologiu) skuli innlimað- ar í meinefnafræðirannsóknastofur og að rannsóknastofur skuli samein- aðar, sem liður í „hagræðingu" í sjúkrahúsrekstri. Fyrri skýrslan var unnin af Nýsi hf. og hin síðari af VSÓ hf., en báðar skýrslurnar eru sagðar byggjast á „viðtölum við yfirmenn deilda“ á sjúkrahúsunum í Reykjavík. Þar sem báðar skýrsl- urnar eru byggðar á nafnlausum heimildarmönnum og vega hart að faglegum hagsmunum lækna, sem greina og meðhöndla blóðsjúkdóma eins og t.d. hvítblæði, og vega ekki síður að heilsufarslegum hagsmun- um sjúklinga með blóðsjúkdóma, viljum við vekja athygli yðar á eftir- farandi: 1. Við gerð ofangreindra til- lagna var ekki haft samráð við einn einasta starfandi blóðmeinafræð- ing á íslandi; engan, ólíkt því sem gefið er í skyn af ráðgjafarskrif- stofum launuðum af almannafé. Niðurstaða skýrslnanna kemur því gjörsamlega aftan að öllum íslensk- um blóðmeinafræðingum. 2. Allar sérgreinar læknisfræð- innar búa yfir sérstakri greiningar- tækni. Þannig eru sérstakar rann- sóknastofur á vegum hjartalækna, meltingarlækna og blóðmeinafræð- inga svo eitthvað sé nefnt. Hinir síðastnefndu eru sérfræðingar m.a. í greiningu og meðferð á sjúkdóm- um í blóðkornum (þ.e. í blóð-, merg- og eitilfrumum) annars vegar og í blæðingar- og storkusjúkdómum hins vegar. Blóðmeinafræðingar hafa í ljósi þekkingar sinnar á grein- ingartækni og hæfni til ráðgjafar, áratugum saman verið ábyrgir á íslandi fyrir greiningu hvítblæðis og annarra illkynjaðra blóðsjúk- dóma, blóðleysis, blæðara, alvar- legra blæðingavandamála í tengsl- um við skurðaðgerðir og gjörgæslu og fjölda annarra sjaldgæfra kvilla sem tengjast blóði. 3. Til þess að geta sinnt sjúkl- ingum sínum og ráðgjöf við aðra lækna hafa blóðmeinafræðingar verið ábyrgir fyrir sérstökum rann- sóknastofum sem varða ofan- greinda þætti eins og tíðkast víða erlendis. Sem dæmi skal nefnt, að rannsóknastofa í blóðmeinafræði á Landspítala er rekin af blóðmeina- fræðingum í góðu samstarfi við aðrar rannsóknastofur t.d. í mein- efnafræði, ónæmisfræði, blóð- bankafræði og vefjameinafræði. Við Rannsóknastofu Landspítalans í blóðmeinafræði er beitt fullkom- inni tækni og smásjárskoðunum, en niðurstöður allra vandamála- sýna og endanleg skoðun og grein- ing alvarlegra blóðmeina byggist á skoðun og sérþekkingu blóðmeina- fræðinga. Meinefnafræðingar búa ekki yfir sambærilegri þekkingu á þessu sviði eins og gefur að skilja, en styrkleiki þeirra er í efnamæl- ingum blóðs, t.d. kólesteróls, horm- óna og lyfja. Það hefur verið sér- stakur styrkur blóðmeinafræðinga að starf þeirra skuli byggjast á milliliðalausri tengingu milli sjúkl- ings, rannsóknastofu og réttra við- bragða. Engar kvartanir hafa bor- ist undirrituðum um ófullnægjandi greiningarhæfni rannsóknastofa á okkar vegum, en vegna skýrslu- gerða ráðuneytisins og sameining- arhugmynda hefur framkvæmda- stjórn Landspítalans verið gert ómögulegt að ráða nýjan forstöðu- lækni við blóðmeinadeild þegar núverandi yfirmaður hættir störf- um í lok árs vegna aldurs. 4. Það er mikilvægt að gera sér grein fyrir því, að öll kennsla og þekking íslenskra læknanema, hjúkrunarnema og meinatækna- nema í blóðmeinafræði er byggð á kennslu blóðmeinafræðinga undan- farna áratugi. Meinatæknar starfa á rannsóknastofum um allt land og hæfni þeirra til fyrstu skoðunar margra sýna byggist á þessari kennslu, og áframhaldandi nánu og góðu samstarfi við blóðmeina- fræðinga. 5. Engu er líkara en að Nýsir hf., VSO hf. og heilbrigðisráðu- neytið séu að þjóna öðrum hags- munum en bestu hagsmunum sjúklinga við ofangreinda tillögu- gerð. Væri það umhugsunarefni fyrir ráðherra og þingmenn að skoða stjórnsýsluaðferðir embætt- ismanna í heilbrigðisráðuneyti fremur en að stofna til annarlegs stríðs við lækna og annað heilbrigð- isstarfsfólk í þjónustu einhverra dulinna hagsmuna, sem hvergi mega konia fram. Vinnubrögð þau sem að ofan er lýst eru algerlega óviðunandi í stjórnsýslunni og er það krafa und- irritaðra, allra blóðmeinafræðinga á íslandi, að ofangreindar skýrslur verði gerðar ómerkar svo forkast- anleg sem vinnubrögðin eru sem skýrslurnar eru byggðar á. Við vilj- um fá vinnufrið til þess að geta sinnt verkefnum okkar á þann hátt sem sjúklingar eiga skilið. Við full- yrðum að engir aðrir læknar búi yfir þeirri þekkingu sem blóðmeina- fræðingar hafa tileinkað sér á blóð- sjúkdómum, hvorki til greiningar né meðferðar. Óskum við eftir því að þeir læknar gefi sig fram sem hafa bak við tjöldin ráðiagt ráðu- neyti heilbrigðismála breytt fyrir- komulag á rannsóknum í blóð- meinafræði. Þá er það e.t.v. um- hugsunarefni fyrir forsætisráð- herra og Alþingi íslendinga hvort ekki skuli tekið til sérstakrar skoð- unar ráðuneyti sem beitir síendur- tekið vinnubrögðum, sem valda ófriði og skerða bestu hagsmuni sjúklinga. Það kann að vera að ráðuneytið og stjórnsýslan þar sé meira vandamál en læknarnir, en sem betur fer byggist heilbrigðis- kerfið á þekkingu læknanna en ekki á skriffmnum ráðuneytisins. Undir þetta bréf rita allir blóð- meinafræðingar á íslandi. Eins og aðrir hópar lækna, sem að er veg- ið, munum við grípa sameiginlega til viðeigandi viðbragða verði starfsaðstaða okkar, kjör og fagleg forysta skert með valdboði. Guðmundur I. Eyjólfsson, læknir, Sjúkrahúsi Reykjavíkur, Jóhanna Björnsdóttir, læknir, Landspítala, Sigmundur Magnússon, forstöðulæknir, Landspítala, Guðmundur M. Jóhannesson, Landspítala, Páll Torfi Önundarson, læknir, Landspitala, Vilhelmína Haraldsdóttir, læknir, Sjúkrahúsi Reykjavíkur." (VIUNIÐ SÉRPANTANIR ÁHÚSGÖGNUM TÍMALEGA FYRIR JÓLIN Mörkinni 3, sími 588 0640 E-mail: casa@islandia.is Primordiale N U I T NÆTURVÖRÐUR HÚÐARINNAR Primordiale Nuit er nýtt næturkrem frá LANCÖME með A vítamíni. Strax frá fyrstu notkun verður húðin hvíldari, mýkri og endurnærð. Komdu og fáðu sýnishorn. Haustlitirnir frá LANCOME eru komnir. Ferskir og nýstárlegir litir. Til að fullkomna förðunina bjóðast strípulitir fyrir hár og glitrandi púður. Sérfræðingur frá LANCÖME verður í versluninni í dag og á morgun. Kaupaukar sem munar um. Gullbrá snyrtivöruverslun Nóatúni 17, sími 562 4217 ESTEE LAUDER Haustið, þar sem allt verður á hvolfi upside Dröwn Nýir, tvílitir varalitir, sem vekja gríðarlega athygli: Chestnutty, Wildberry, Bonfire, Cider og UpsideBrown. Einnig haustlitir fyrir augu og neglur. Snyrtivöruverslunin Brá Laugavegi 66 Sími 551 2170 Ráðginfi frá Estée Lauder verður versluninni í dag og á morgun. SNYRTISTOFAN GUERLAIN I Óðingata 1 • 101 • Reykjavik I | Sími 562 3220 • Fax 552 2320| Pol og kraftun í Kópavogi Opnuð verður ný og glæsileg Nautilus heilsuræktarstöð í Sundlaug Kópavogs sunnudaginn 28. september 1997 Aðeins verða seld árskort í heilsuræktina og er aðgangur að sundlauginni innifalinn. Sénstakt DPNUNARTILBOÐ 2B. sept. Ánskont á kn. 9.990, staðgneitt Fram til ánamóta verður árskont selt á kn. 14.990 staögneitt. Stöðin er búin æfingatækjum frá NAUTILUS, sem talin eru ein þau bestu á markaðnum, auk hlaupabanda, stfgvéla og hjóla.Komið og kynnið ykkur frábæra NAUTILUS aðstöðu til líkamsræktar. íþróttakennarar sjá um kennsluna. Fyrstu 300 sem skrá sig fá Nautilus T-bol. Visa og Euro greiðslur í boði. NautHuS á íslandi NautHuS á íslandi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.